Helgarpósturinn - 27.10.1983, Blaðsíða 23

Helgarpósturinn - 27.10.1983, Blaðsíða 23
jj'ésturinn^ Fimmtudagur 20. október 1983 23 Nærmynd Framhald af bls. 5 „Hilmar er raungóður maður, en hann ætti að vera búinn að fá Nóbelsverðlaunin fyrir lygi. Hann er fæddur Ieikari og lygari, þótt hann meini ekkert slæmt með því í sjálfu sér“, segir einn gamall kunn- ingi Hilmars. Kona um þrítugt sem hefur búið með Hilmari í sumar segir við HP: „Hilmar er besta og versta manneskja sem ég þekki. Það góða við hann er að hann þekkir fóik og skilur það. Hann veit hvað er að vera manneskja og þess vegna elska ég hann. Hann er hlýjasta manneskja sem ég þekki. En hann er ennfremur mesti lygari og leikari sem ég þekki. Þegar hann er fullur er hann harður viðskiptamaður og mikill bisnessrefur" Hilmar Helgason' hefur mikið verið bendlaður við kvenfólk. Lilli Berndsen segir eftifarandi um kven- semi Hilmars: „Hilmar er að kom- ast á þann aldur að hann heldur að hann sé kvennamaður. Hann held- ur því einnig fram að kvenfólk hafi sprengt hann. Svoleiðis tal er nátt- úrlega tómt kjaftæði. Kvenfólk sprengir mann ekkert, nema að maður vilji það sjálfur. Svo er Hilmar eins og sumir; halda að þeir frikki við hvern sopa. En þetta er nú bara tímaspursmál hjá honum Hilmari mínum, fólk hefur ákveðið þol og hann líka þótt hans sé óvenjulega mikið. Þetta fyllerí end- ist ekki til eilífðar; hann brotnar líka. En eins og er verður engu tauti við hann komið, við alkóhólistarnir erum þannig; við heyrum bara ekkert, erum alveg heyrnarlausir. Nema þegar við viljum heyra. En þá heyrum við líka vel.“ Fornvinur Hilmars segir við HP: „Hilmar er snillingur í að gera kvenfólk hrifið af sér. Hann dáleið- ir og heilaþvær stélpurnar svo þær verða alveg kolruglaðar, hann notar sölumennskuhæfileika sína einnig á ástarsviðinu" Vinkona Hilmars segir við HP: „Konur leita á Hilmar. Hann hefur sjálfur skapað þessa ímynd. Hann á peninga, er þekkt andlit og hann hefur þetta sérstaka viðmót sem gerir að fólk treystir honum og opnar sig fyrir honum. Kvenmenn falla fyrir slík- um manni. En hann er enginn stjörnufoli, heldur þráir bliðu og að vera elskaður. En hann viðurkennir aldrei að hann þurfi á öðrum að halda" Einn Freeportfaranna tekur und- ir þessi orð: „Hilmar er mjög Iokað- ur maður sem á fáa vini. Hann byrgir allt inni með sér en á auðvelt með að leiðbeina og hjálpa öðrum. Þess vegna er hann verstur sjálfum sérí‘ Guðmundur J. Guðmundsson segir um áfengisneyslu Hilmars: „Eg ætla ekki að fara að halda neinar siðferðispredikanir. Ég tek bara manninn eins og hann er. En Hilmar er auðvitað búinn að þver- brjóta öll náttúrulögmál og á að vera dauður úr brennivínsdrykkju fyrir löngu. En þegar Hilmar er orðinn þreyttur á að selja blóma- fræfla og er búinn að gera Krísuvík heimsfræga og leggja frá sér flösk- una, þá ætla ég að gripa hann í verkalýðshreyfinguna. Mig hefur lengi langað í þennan mann. Verka- lýðshreyfingin er stútfull af leiðin- legum fjöldaframleiddum, stöðluð- um mönnum sem hrærast um í lognmollu. Okkur vantar þessa sjaldgæfu menn, eins og Hilmar er, hlaðnir ægilegum sprengikrafti“ Óvirkur alkóhólisti sem þekkir vel til Hilmars segir: „Mér finnst sárgrætilegast að horfa á Hilmar halda áfram drykkju dag eftir dag og öllum er sama. Manninum líður síður en svo vel eins og ástatt er fyrir honum í dag. Hann þarf hjálp og það skjótt“ Vilhjálmur Svan segir við HP: „Brennivín hefur alltaf ver- ið eldsneyti Hilmars. Hann hefur alltaf þurft á því að halda í öllum sínum framkvæmdum þegar til lengdar lætur. Það er hans ógæfa. Eiginlega er hann best geymdur í búri sem hugmyndabanki. I raun og veru er hann fárveikur alkóhólisti. Og þeir sem kalla sig góða vini hans og eru að hjálpa honum að drekka eru sjúkari en hann. Því getur þú skilað til hans með vinarkveðju." Maður sem starfaði lengi með Hilmari í SÁÁ segir: „Hilmar er skólabókardæmi um allt sem okkur er kennt að varast. Hann hellir sér út í alls kyns framkvæmdir rétt eftir meðferð, í stað þess að taka því rólega og átta sig á hlutunum. Hann hefur greinilega farið á hundavaði gegnum meðferðina og hann vildi gleypa heiminn þegar hann sneri til hins nýja lífs. Alls staðar vill hann gerast einvaldur. Hann veit enn ekki hvað lítillæti og auðmýkt er. Eigin- lega er Hilmar Helgason víti til varnaðar fyrir aðra alkóhólista!‘ Gamall vinur Hilmars sem ekki vill láta nafns síns getið segir við HP: „Það mun aldrei gleymast hvað Hilmar hefur gert í málefnum áfengissjúklinga hérlendis. En það sorglega er að þótt hann geti hjálp- að öðrum, hefur hann ekki tök á að hjálpa sjálfum sér. Hann er sjálfum sér verstur. Hvað Hilmar Helgason er að sanna fyrir heiminum, veit ég ekki. En eitt veit ég; hann er hel- sjúkur alkóhólisti og innst inni skammast hann sín að geta ekki hætt drykkju. En hann er of ein- strengingslegur til að viðurkenna það fyrir sjálfum sér og öðrum.“ Hvað er Hilmar Helgason að sanna fyrir sjálfum sér og heimin- um? Hann segir við greinarhöfund: „Móðir mín fór frá mér þegar ég var 7 ára. Ég byrjaði að drekka þegar ég var tólf. Síðar á ævinni komst ég að raun um að unglinga- drykkja mín var öskur á blíðu. Ætli allt mitt brambolt gegnum lífið sé ekki öskur á athygli?" En hvaða framtíð bíður Hilmars Helgasonar? Hvað ætlar hann að taka sér fyrir hendur, þegar rennur af honum? Hilmar veltir þessari spurningu lengi fyrir sér og segir að lokum: „Þegar rennur af mér... Guð minn almáttugur, já, hvað geri ég þá?“ Auðveldari flutningur frá Nú þéttum við norska flutnin«c- netið 7 ft ■Trondheim .'•'.'w iám Bergen Oslo ■ Með fjórum nýjum þjónustuhöfnum í Osló, Bergen, Álasundi og Þrándheimi bætum við vörustreymið, og tryggjum auðveldan vöruflutning til áætlanahafna í Kristiansand og Moss. Samhliða þessu bjóðum við fast flutnings- gjald innanlands í Noregi milli þjónustu-og áætlanahafna, til aukinnar hagkvæmni fyrir viðskiptavini. Umboðsmenn KRISTIANSAND vikulega A. I. Langteldt & Co. Rádhusgaten 8 4601 Krlstlansand S Tel.: 042-22259 Telex: 21818 OSLO vikulega Berg Hansen & Co. A/S Festníngskaien 45, Oslo 1 Tel.: 02-420890 Telex: 11053 l/IOSS vikulega H. Schianders, Eftf. A/S Værlebryggen Postboks 428 1501 Moss Tel.: 032-52205 Telex: 71412 Kristiansanda BERGEN vikulega Grieg Transport Postboks 245 • 5001 Bergen Tel.: (05) 310650 Telev 42094 ÁLESUND/ SPJELKAVIK hálfsmánaðarlega Tyrholm & Farstad A/S Postboks 130 6001 Alesund Tel.: 071-24460 Telex: 42330 TR0NDHEIM hálfsmánaðarlega B. Iversen & Rognes A/S Havnegt. 7 • Postboks 909 7001 Trondheim Tel.: 07-510555 Privat: Turid Thorvaldsen • Tel.: 07-511173 Kjell Evensen • Tel.: 07-976918 Telex: 55419 Flutningur er okkar fag EIMSKIP Sími 27100 Við minnum á gíróreikning Oltnnc ft Hjálparstofnunar kirkjunnar Landsbanki Islands

x

Helgarpósturinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Helgarpósturinn
https://timarit.is/publication/47

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.