Helgarpósturinn - 26.06.1986, Blaðsíða 16

Helgarpósturinn - 26.06.1986, Blaðsíða 16
Hver á bankabókina þína? Þú sjálfur — eða þú og bankinn í sameiningu? Og átt þúaðborgafyrirmistökeðaafglöpstarfsmanna bankans? Kyndug bankaþjónusta í Keflavík: „Þori ekkert að segja um lagastöðu“ — segir útibússtjórinn sem lét taka fé út af reikningi vióskiptavinar vegna skuldar sem varó vegna mistaka í bankanum. Reikningseiganda hvorki tilkynnt um skuldina né úttektina af bankareikningi ,,Þegar ég fár yfir bókina fyrir skemmstu þá var í hermi 5000 króna úttekt sem ég kanriaðist ekki við. I bankanum var mér sagt að þetta vœri vegna þess að þeir hefðu látið mig fá of mikið þegar ég keypti gjaldeyri íjanúar, og það er víst rétt. En ég er ekki viss um að þeir hafi mátt taka einmitt þessa peninga," sagði ungur Keflvíkingur í samtali við HP. Þegar Samvinnubartkinn í Keflavík uppgötvaði að mistök höfðu orðið við afgreiðslu á gjald- eyri var bókfærð skuld viðskiptavin- ar og andvirði hennar tekið út af bankareikningi sem viðkomandi átti hjá bankanum. En er það óvefengjanlega skuld viðskiptavinar þegar starfsmaður banka lætur of mikið fé af hendi fyr- ir mistök? Og er skuldin þá þegar gjaldfallin þannig að bankanum sé heimilt að innheimta hana þegar í stað? I þriðja lagi má svo spyrja þess hvort banka sé heimilt að opna bankabók viðskiptavinar án sam- ráðs við hann og leysa þar út þá pen- inga sem viðkomandi skuldar? HP leitaði svara við þessum spurning- um hjá útibússtjóra viðkomandi banka, lögfræðingi Seðlabankans og framkvæmdastjóra Neytenda- samtakanna. „Það á að staðgreiða gjaldeyri" ,,Eg efast ekkert um að ég hafi átt að borga þetta til baka,“ sagði Kefl- víkingurinn í samtali við HP. „En það er spurning hvort þeir hafi ekki átt að hafa samband við mig eða mitt fólk. Ég keypti þennan gjald- eyri í janúar þegar ég fór erlendis og kom aftur heim í maí. Sjálf varð ég ekkert vör við þessi mistök en þar sem þetta var aílt í ferðatékkum þá er ekkert vafamál að ég skuldaði þessa peninga." „Þetta er nú ekki alveg rétt,“ sagði Hjálmar Stefánsson, útibússtjóri Samvinnubankans í Keflavík, þegar HP bar undir hann sögu Keflvík- ingsins. „En ég veit ekkert hvort ég á að segja þér hvernig þetta var.“ „Þetta voru mistök við afgreiðslu á gjaldeyri," hélt Hjálmar áfram. „Eitthvað um 4000 króna mismun- ur og við vorum búnir að bíða eftir að ná í viðkomandi en hann var þá erlendis. Þá var þetta skuldfært á reikning viðkomandi." — En var reynt að hafa samband við fjölskyldu viðkomandi eða við- komandi tilkynnt þetta þegar harin kom að utan? „Við vissum að viðkomandi var erlendis og honum var svo sagt hvernig þetta var þegar hann kom heim og kom hérna í bankann hjá okkur.” — En ekki tilkynnt bréflega eða á annan hátt? „Eg veit ekki hvernig það var alveg. . . honum var allavega skýrt frá því hvernig þetta var. . ." — Þegar hann leitaði sjálfur skýr- inga? „Ég veit ekki alveg hvernig það var. . — En var þetta óvefengjanlega skuld og ef svo, þá gjaldfallin? „Já, já, auðvitað, hún var gjaldfall- in um leið og viðskiptavinurinn fékk gjaldeyrinn í hendur. Það á að stað- greiða gjaldeyri." — Er það þá óvefengjanlegt að viðskiptavinir eigi að borga fyrir mistök bankamanna í tilfelli sem þessu? „Ja, já, og ef svona mistök hefðu orðið á hinn veginn þá hefðum við greitt upphæðina inn á reikning við- skiptavinar. Auðvitað er alltaf reynt að leiðrétta svona mistök, allir vilja hafa þetta rétt." — En hver er réttur bankans til að opna bankabók viðskiptavinar vegna skuldar við bankann eða aðra sem bankinn hefur umboð fyr- ir? „Sá sem á bókina,. . . það er nátt- úrlega spurning um hvort hann hafi gert samning við bankann um það að bankinn megi greiða út fyrir skuldum sem fram koma, en svo var ekki í þessu tilfelli. Ég þori ekkert að segja um lagastöðu þarna." — Þú ert þú ekki viss um að bank- inn hafi farið að lögurn? „Ja, við teljum okkur hafa farið að lögum. Þetta er óvefengjanleg skuld. En ekki dytti okkur í hug að ákæra viðskiptavininn fyrir þjófn- að. . . Þessi saga er eins og ég er að segja þér og við teljum þetta frekar lítið mál.“ Helgarpósturinn sneri sér til Sveinbjarnar Hafliðasonar, lög- fræðings hjá Seðlabankanum, og bar sömu spurningar um rétt banka og viðskiptavinar undir hann. „Almennt séð myndi ég telja að hér væri um gjaldfallna skuld að ræða en ég ætla ekki að tjá mig um einhverja einstaka bankareikninga eða yfirleitt að tjá mig um þessi mál í gegnum síma. . . Ég get ekki betur séð en þú sért að reyna að búa til einhvern sökudólg úr bankanum," sagði Sveinbjörn Hafliðason, lög- fræðingur Seðlabankans, í samtali við HP. Dálítið einræðis- kennt af bankanum — segir Guðsteinn Guómundarson hjá Neytendasamtökunum „Eg þori ekkert að segja um lagalegu hliðina á þessu máli en það œtti að vera lágmarkskurteisi og siðgœði í viðskiptum að til- kynna fólki um svona skuld, að hún sé til,“ sagði Guðsteinn V. Guðmundarson, framkvœmdu- stjóri Neytendasamtakanna, að- spurður um rétt bankans til þess að innheimta skuld vegna eigin mistaka með því að taka fé af bankabók viðskiptavinar. „Það er kannski þarna sem skil- ur á milli hvaða bankastofnun fólk velur sér, — það fari eftir því hvernig þjónusta og framkoma stofnunarinnar er, þegar kjörin eru mjög svipuð. Það er einmitt alltaf verið að brýna fyrir fólki að það eigi að hafa reiður á sínum fjármálum og þá getur það komið sér illa þegar allt í einu er tekin af reikningi hjá manni skuld sem maður veit ekki einu sinni að er til. Það væru alla- vega mannasiðir af bankanum að gefa ákveðinn frest eða viðvörun. Þetta er dálítið einræðiskennt af bankans hálfu,“ sagði Guðsteinn ennfremur. Rétt er að það komi fram að Guðsteini var ekki kunnugt um hvaða banki það var sem hér átti í hlut. 16 HELGARPÓSTURINN eftir Bjarna Harðarson myndir Jim Smart

x

Helgarpósturinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Helgarpósturinn
https://timarit.is/publication/47

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.