Helgarpósturinn - 17.03.1988, Blaðsíða 40

Helgarpósturinn - 17.03.1988, Blaðsíða 40
Eiinn vinsælasti veislusalur í Reykjavík er Borgartún 6, eða gamla Rúgbrauðsgerðin, og er mikil ásókn í að fá sal þennan lánaðan eða leigðan. Salur þessi var um tíma mikill þyrnir í augum veitinga- manna í Reykjavík, enda misstu þeir spón úr aski sínum þann tíma sem skemmtanir voru tíðar í Borgartúni 6. Fjármálaráðherra, sem ræður salnum, tók á sínum tíma fyrir það, að aðrar samkomur yrðu haldnar í sal þessum en þær sem tengdust beint ráðuneytum eða ráðstefnum sem haldnar væru á þessum stað. Mun það hafa verið í ráðherratíð Al- berts Guðmundssonar sem sú ákvörðun var tekin. Það kom því verulega á óvart, að nýr fjármála- ráðherra, Jón Baldvin Hannibals- son, skuli hafa brugðið út af venj- unni og heimilað afnot af sal þessum til einkaafnota, en hann mun hafa leigt sjónvarpsfréttamanninum Páli Magnússyni salinn ekki alls fyrir löngu undir mikla veislu. Velta menn því nú fyrir sér hvort ekki verður stöðugur straumur á kontór fjármálaráðherra til að fá leigðan þennan vinsæla sal á næstunni úr því hann hefur breytt út af venjunni og sett nýtt fordæmi í nýtingu á sal- arkynnum ráðuneytisins... Þ að gerist ýmislegt skemmti- legt og pínlegt á stórum samkomum eins og á Norðurlandaráðsþing- um. A nýloknu þingi frændþjóð- anna í Osíó bar það m.a. til tiöinda, eins og ailir vita, að Thor Vii- hjálmsson tók á móti bókmennta- verðlaunum Norðurlandaráðs og gerði það með miklum glæsibrag. Sama verður vart sagt um frammi- stöðu ísiensku utanríkisþjón- 40 HELGARPÓSTURINN ustunnar á staðnum. Eftir því sem HP hefur heyrt var gert ráð fyrir því, að sendiherra íslands í Osló, Níels P. Sigurðsson, tæki á móti verð- launahafanum við komiífla til Osló, en hann klúðraði því og mun Thor hafa haft af því nokkur óþægindi og mislíkað mjög. í boði sem sendi- herrann Níels P. hélt Islendingum stöddum í Osló mun Thor hafa kvitt- að fyrir sig með því að mæta hvergi. Mætti þessi ráðstöfun Thors skiln- ingi meðal veislugesta, sem þótti utanríkisþjónustan íslenska alls ekki hafa staðið sig í stykkinu gagn- vart verðlaunahafanum Thor. . . lElkki hefur ennþá verið gengið frá ráðningu ráðuneytisstjóra í fé- lagsmálaráðuneytinu eftir Hall- grím Dalberg, sem lét af störfum um áramót. Heyrst hafði að Jóhanna Sigurðardóttir myndi að öllum líkindum skipa konu í þetta embætti og voru þessar þrjár nefnd- ar til sögunnar, Lára V. Júlíusdótt- ir, aðstoðarmaður félagsmálaráð- herra, Rannveig Guðmundsdótt- ir, bæjarfulltrúi í Kópavogi, og Hóimfríður Snæbjðrnsdóttir. Nú er talið líklegast að tvær þær fyrr- nefndu muni ekki telja sig geta tekið við starfinu, enda nýtt nafn komið inn í umræðuna, Kjartan Jóhanns- son alþingismaður, sem átti von í bankastjórastól fyrir ekki mjög iöngu. Telja menn að Kjartan yrði fyrsta flokks maður í embætti ráðu- neytisstjóra í félagsmálaráðuneyti og benda á að hann sé besti kandídat krata í embætti sem þetta. Það skyldi þá aldrei fara svo að Kjartan settist í ráðuneytisstjórastól í félags- málaráðuneytinu og áðurnefnd Rannveig Guðmundsdóttir kæmi í hans stað sem þingmaður Reyknes- inga... Aðalvinningur á hverju mánudagskvöldi er VOLVO 740 GL frá VELTI að verðmæti kr. 1.200.000.- Nú hafa 9 slíkir bílar fengið nýja eigendur og áfram heldur þessi skemmtilegi fjölskylduleikur. Aukavinningar eru 10 talsins: hljómflutningstæki frá HLJÓMBÆ, PIONEER XZl, hvert að verðmæti kr. 50.000.- Heildarverðmæti vinninga í hverri viku er því: 1.700.000 krónur ALLTAF Á MÁNUDÖGUM KL. 20.30 í ÓTRUFLAÐRI DAGSKRÁ Á STÖÐ 2. UPPLAG BINGÓSPTALDA ER TAKMARKAÐ, AÐEINS 20.000 SPTÖLD Spilaðar eru 2 umferðir í hverjum Bingóþætti: FYRRI UMFERÐ: Spiluð er ein lárétt lína um 10 aukavinninga. SEINNI UMFERÐ: Spilaðar eru 3 láréttar línur (eitt spjald) um bílinn. 1>Ú þarft ekki lykil að Stöð 2 því dagskráin er send út ótrufl- uð. Allt sem þú þarft er BINGÓSPJALD, og það færð þú keypt á aðeins 250 krónur í söluturnum víðsvegar um land. S 'JÓNVARPS

x

Helgarpósturinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Helgarpósturinn
https://timarit.is/publication/47

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.