Skátapósturinn - 01.04.1938, Blaðsíða 1
Skáiapóslurinn
Útgefandi: 2. sveit 3. Væringjadeild Apríl 1938
Oleyst verkefni
Seinasta ár hefir verið mikið og’ gott
starfsár fyrir skátana. Skátum hefir
fjölgað um 50%, svo að nú teljast
virkir skátar hér á landi liðlega 1000.
Fjölgun þessi er svo ör, að nú mun ís-
land vera eitt af þeim löndum í heim-
inum, þar sem skátar eru einna fjöl-
mennastir, miðað við fólksfjölda lands-
ins. Starf skátanna á árinu hefir ver-
ið meir en áður, eins og bezt sést á því,
að á árinu voru tekin 795 próf á móti
471 prófi árið áður.
Til þess að starfið aukist nú enn
meira, þarf B.I.S. að beita sér fyrir
ýmsum verkefnum, sem óleyst eru, og
munu tvímælalaust verða til þess að
efla starfið mjög. Það er engum efa
bundið, að það mál, sem fyrst þarf að
leysast er húsnæðismál Reykjavíkur-
skátanna, þeir eru fjölmennastir, og
þar verður aukningin mest á komandi
árum. Félögin í Reykjavík, að meðtöld-
um kvenskátunum og stjórn B.Í.S.,
munu nú greiða árlega um 3000 krón-
ur í húsaleigu. Því geta menn séð, að
nú verður að hefjast handa um að
byggja eða kaupa hús, þar sem öll
skátastarfsemin í höfuðstaðnum gæti
haft bækistöðvar sínar. Auk æfinga-
herbergja yrðu að vera í húsinu salir
til sveitafunda, stór salur til gönguæf-
inga, lestrarsalur, skrifstofur félag-
anna og B.I.S. o. fl.
Sölubúð fyrir skátabúninga og úti-
leguútbúnað er nauðsynlegt fyrir
skátana, að sé í þeirra eigin höndum. I
slíkri verzlun mætti og væri nauðsyn-
legt að selja ýmislegt annað en það,
sem beinlínis heyrir skátum til, svo
sem almennan útilegu'útbúnað, íþrótta-
tæki, skíðaútbúnað og annað slíkt. Er-
lendis er það svo, að skátaverzlanirnar
eru helzta tekjulind skátastarfsins, svo
gæti og farið hér ef vel er á haldið.
Foringjaskóla þarf B.I.S. að koma
upp, þar sem starfrækt verða nám-
skeið fyrir ylfingaforingja, skátafoi’-
ingja og roverforingja. Til þess að
koma slíkum skóla á fót álít ég heppi-
legast að, hafa samvinnu við norska
skáta, því aðstæður þeirra eru að
mörgu leyti svipaðar og hér hjá okk-
ur. Oð koma slíkum skóla í fast kerfi
og góðan grundvöll, tekur mörg ár og
mikla vinnu, en mjög gæti reynsla er-
lendra skátabræðra létt það starf.
Skóli þessi mundi geta samræmt alla
skátakennsluna í landinu betur en að
verið hefir.
Erindreka, sem ferðast um landið
og stendur fyrir námskeiðum í ýmis-
konar skátakennslu er bráðnauðsyn-
legt að B.I.S. fái sem allra fyrst. Starf
þessa erindreka myndi auk þess verða
að stofna ný félög á þeim stöðum, sem
engin félög eru starfandi. I sambandi
Skátavósturinn
1