Jazzblaðið - 01.06.1951, Blaðsíða 4

Jazzblaðið - 01.06.1951, Blaðsíða 4
ÍSLENZKIR HLJÓÐFÆRALEIKARAR: GUNNAR t Gunnar Ormslev fæddist í Kaup- mannahöfn 22. marz 1928. Faðir Gunn- ars er danskur en móðir hans íslenzk. Ung-lingsár Gunnars er Kaupmannahöfn hersetin af þýzkum her og allt Iíf mjög lamað. Hefði að sjálfsögðu mátt búast við, að jazzlíf væri þá fyrst og fremst ekki neitt, þar sem nazistar bönnuðu allan jazz í Þýzkalandi, og eins þeim löndum, er þeir höfðu hertekið. En svo var ekki í Danmörku. Þeir létu jazz- leikarana í friði með músík sína og hef- ur jazzlíf í Danmörku varla nokkurn tíma verið jafn blómlegt og einmitt á stríðsárunum. Gunnari gáfust þess vegna mörg tæki- færi til að hlusta á jazzhljómsveitir og notfærði hann sér þau eins og hann bezt gat. Hann fékkst samt lítið sem ekkert við hljóðfæraleik áður en hann kom til ís- lands. Hann var þó lítið eitt farinn að leika á altó-saxófón og höfðu nokkrir jafnaldrar hans æft saman í lítilli hljómsveit. Fáum vikum e.ftir að Gunnar kom hingað fór hann að leika á dansleikj- um og þá aðallega skóladansæfingum. Fyrst voru þeir Eyþór Þorláksson guit- arleikari og Guðmundur Steingrímsson trommuleikari með honum. Ennfremur Kristján Magnússon píanóleikari, en í hans stað kom fljótt Steinþór Stein- grímsson og eins bættist Ólafur G. Þór- hallsson við í hljómsveitina með guitar, fór Eyþór um það leyti að Ieika á kontra- bassa. 4 JajMaáiá ORMSLEV Gunnar stóð fyrir hljómsveit þessari, sem nefndist G. O. kvintettinn. Kom hún viða fram og varð nokkuð þekkt i þessa fáu mánuði, er hún var við líði. Léku þeir m. a. um skeið í samkomusal mjólkurstöðvarinnar veturinn 1946— 1947. Gunnar lék á altó-saxófón og þótti leikur hans mjög líflegur. Hann hafði mikla tækni á hljóðfæri sitt, hafði þó aðeins verið með það í nokkra mánuði. Tónn hans var ekki að sama skapi góður. En er Gunnar fór að leika á tenór, urðu mikil umskipti. Tónninn varð mun betri og fór stöðugt batnandi. En ekki lief- ur Gunnar samt hinn mikla tón, sem á sínum tíma var talið nauðsynlegt að hafa, ef maður átti að teljast góður tenór-saxófónleikari, en þá líktu nú líka allir eftir Coleman Hawkins! Nú eru komnir aðrir menn með annan stíl en Hawkins, og þá um leið annan tón. Þeir hafa samt sem áður sannað að þeir gátu engu að síður leikið góðan jazz, meira að segja svo góðan að nokkrir þeirra hafa undanfarin ár hlotið mun meiri vinsældir en gamli snillingurinn. Gunnar gerði lítið af því að hlusta á héidenda jazzleikara fyrsta árið sitt hér. Kvöld eitt var hann fengin til að leika með Birni R. og hljómsveit í forföllum annars manns og komst hann þá að raun um, að hér voru góðir jazzleikarar á ferðinni, þá stundina honum fremri. Haustið 1947 kom Gunnar í hljóm- sveit Björns, tók hann sæti Gunnars Egilsonar, er farið hafði utan til náms.

x

Jazzblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Jazzblaðið
https://timarit.is/publication/722

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.