Morgunblaðið - 28.08.1976, Blaðsíða 1

Morgunblaðið - 28.08.1976, Blaðsíða 1
32 SÍÐUR OG LESBÓK 189. tbl. 63. árg. LAUGARDAGUR 28. ÁGÚST 1976 Prentsmiðja Morgunblaðsins. Barre verður einn- ig fjármálaráðherra Gaullistum fækkað í stjórninni París27. ág. Reuter. NTB. RlKISSTJÓRN Raymond Barre sór ( dag embættiseið sinn eftir að Barre hafði greint frá helztu breytingum sem hann hygðist gera á stjórninni. Það vakti einna mesta athygli að hann hefur ákveðið að gegna sjálfur embætti fjármálaráðherra, en hefur skip- að Michel Durafour aðstoðarfjár- málaráðherra. Fráfarandi fjár- málaráðherra, Jean Pierre Fourcade, hefur sætt gagnrýni vegna þess að ekki hefur tekizt að draga úr verðbðlgunni og styrkja gengi franska frankans. Barre skipaði Louis de Guiring- aud utanríkisráðherra í stað Jean Sauvagnarques. Guiringaud er nú sendiherra Frakklands hjá Sam- einuðu þjóðunum. Hann er 66 ára Framhald á bls. 25 Suður-Afríka: Viðræður svertingja og fulltrúa stjómvalda Jóhannesarborg 27.ág. Reuter. NTB. SUÐUR-afrfska stjðrnin hefur á prjónunum fund með leiðtogum svertingja fljótlega eftir helgi. Verður þá rætt um hinar ægilegu kynþáttaóeirðir sem geisað hafa með litlum hléum frá því þær hófust í bænum Soweto í júnf sl. Var þetta tilkynnt i dag og vakti veikar vonir með mönnum, að einhvers konar samkomulag tæk- ist. Rfkisstjórnin kveðst vilja ræða vandamálin af hreinskilni og einurð, að sögn Krugers doms- málaráðherra, en hann ftrekaði að venju að ekki yrði hvikað frá núverandi apartheid-stefnu. Kruger sagði erlendum frétta- mönnum, að hann teldi það engan veginn rétt að alvarlegt ástand Giscard d’Estaing forseti Frakklands I Elyseehöll f gær ásamt hinum nýja forsætisráðherra sfnum. Raymond Barre. Staðfesta drottningar hefur komið í veg fyrir þjóðarkreppu Skúr í London í gær London 27. ág. Ntb. LUNDtJNARBCAR þustu himin- lifandi út á götur og f skemmti- garða f dag lustu upp fagnaðaróp- um, er allt f einu tók að rigna þar f dag eftir hina langvinnu þurrka, sem valdið hafa ómældum skaða og óþægindum. Á vinnustöðum var víða gefið fri, þegar fréttist um rigninguna og teyguðu menn i sig regndropa með hinni mestu gleði. Skúrin stóð þó skamma hríð og ekki er ljóst af fréttum, hvort því er spáð, að nú fari að bregða til rigingar- áttar á Bretlandi á næstunni. Haag, London 27. ág. Ntb. Reuter FRÉTTUM frá Hollandi í kvöld bar saman um að al- menningur tæki afsögn Bernharðs prins úr. öllum trúnaðarstöðum og upp- ljóstrun á atferli hans mun rólegar en gert hafði verið ráð fyrir. Fréttir greina frá þvf að f fyrstu hafi fólk vart viljað trúa sfnum eig- in eyrum og augum, en er fram kom að Júlfana Hollandsdrottning hugðist ekki segja af sér vegna málsins, heldur standa af sér alla storma, hafi menn lofað staðfestu og vilja- Falsaði tvö þúsund myndir Lundúnum — 27. ágúst — Reuter FYRRVERANDI húsamálari, sem fengizt hefur við viðgerðir á málverkum efndi til fundar með fréttamönnum f Lundúnum f dag, og kvaðst hafa falsað um tvö þúsund myndir, sem sumar hverjar hafa selzt dýrum dómum f virtum málverkaverzlunum. Maðurinn heitir Tom Keating. Hann kvaðst leiður yfir þvf að hafa farið svona að ráði sfnu, en tilgangurinn með málverkafölsuninni hefði verið sá að varpa Ijósi á það hve myndlistarheimurinn væri f raun og veru ómerkilegur. Tom Keating kvaðst hafa byrjað á þessari iðju sinni fyrir aldar- fjórðungi, en samt sem áður segist hann hafa haft minna upp úr krafsinu en hann hefði fengið fyrir að stunda húsamálun. Keating er 59 ára að aldri. Hann stundaði á sinum tíma nám í myndlistar- skóla, en féll tvivegis á prófi. Nýlega seldist landslagsmynd, sem talin var eftir Samuel Palmer, á uppboði í Lundúnum fyrir 15 þúsund sterlingspund, eða sem svarar tæpum tveimur milljónum íslenzkra króna. Nú/iíefur komið í ljós, að myndin var eftir Tom Keating. þrek drottningar og þótt það sýna að hún ætlaði að gegna áfram skyldum sfnum við þegna sfna og land, þrátt fyrir erfiðleika og óþægindi. Blöð i Hollandi og í Evrópu fjölluðu vitanlega um málið með stórum fyrirsögnum á forsiðum og virðist þar gengið út frá því sem gefnu að prinsinn hafi þegið mútugreiðslurnar frá Lockheed að upphæð 1,1 milljón dollarar, enda þótt Bernharður hafi neitað þeim áburði. Allir þingflokkar lýstu í dag ánægju sinni með þá ákvörðun ríkisstjórnarinnar að birta skýrsluna um viðskiptamál Bern- harðs prins og aðeins þrir þing- menn sem eru úr smáflokki lýð- veldissinna hafa varpað fram Framhald á bls. 18 Forseti Bandaríkjanna: Bætt lífskjör og heimsfriður Vail, Colorado — 27. ágúst — Reuter. FORD forseti lýsti þvf yfir f dag, að kosningabarátta hans mundi fara fram um landið allt og auð- Listamaúurinn Tom Keating ávarpar bladamenn á fundi f London f dag, en hann hefur viúurkennt að hafa falsað mál- verk f stórum stfl eins og fram kemur f fréttinni. kennast af sóknarhug. Forsetinn sagði baráttuna, sem framundan er, aðallega miðast við, að heims- friður héldist, bætt lffskjör bandarfskra borgara og meiri at- vinnu, sem hefði raunverulegan tilgang. Ford kvað það skoðun sína, að Bandarikjamenn óttuðust reynsluleysi Jimmy Carters, frambjóðanda demókrata, eink- um á sviði utanrikismála. „Ég er upp fangelsisdóma yfir banda- rfsku eiturlyf jasmyglurunum þremur, sem hafa játað að þeir hafi ætlað að smygla 28 kflóum að herófni frá Malasfu til Amster- j dam f Hollandi gegnum Sovét- ; rfkin. Mennirnir voru dæmdir f | átta, sjö og fimma ára nauðungar- sannfærður um, að Bandaríkja- menn kjósa fremur að maður með reynslu i framkvæmd utanrfkis- stefnu fari með þau mál en mað- ur, sem þeir höfðu ekki heyrt nefndan fyrir ári,“ sagði forset- inn á fundi, sem hann hélt með fréttamönnum í sumarbústað sín- um f Colorado f dag. Við hlið forsetans var John Connally, fyrr- um rikisstjóri I Texas. Spurt var Framhald á bls. 25 búðavinnu. Markaðsverð f Vestur- Evrópu fyrir herófnið mun vera um hálfur milljarður króna. Saksóknari hafði krafizt níu, átta og sjö ára dóms yfir mönnunum, en hámarksrefsing i Sovétrikjunum fyrir eiturlyfja- smyglær tiu ár. Mennirnir þrir heita Gerald Framhald á bls. 25 Sovét: Bandarísku eiturlyfja- smyglararnir dæmdir — fengu 5—8 ára vinnubúðadóm Moskva 27. ág. Reuter Ntb. SOVÉZKUR dómstóll kvað f dag

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.