Morgunblaðið - 11.08.1977, Blaðsíða 26

Morgunblaðið - 11.08.1977, Blaðsíða 26
26 MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 11. ÁGÚST 1977 + Sonur okkar, unnusti, faðir og bróðir ÍVAR ANDRÉSSON vélstjóri, Hvassaleiti 33 lést af slysförum mánudaginn 8 ágúst Andrés Guðjónsson, Ellen Guðjónsson, Gunnþóra Jónsdóttir Andrés ívarsson Jens Andrésson, Grfmur Andrésson, t Útför JÓNS EYJÓLFSSONAR Otrateig 14, verður gerð frá Fossvogskirkju. föstudaginn 1 2 ágúst kl 10 30 GuSrún Auðunsdóttir. t Útför móður okkar, tengdamóður og ömmu KRISTJÖNU E. GUÐJÓNSDÓTTUR verður gerð frá Súðarvíkurkirkju föstudaginn 12 ágúst kl 2.00 fyrir okkar hönd og annarra vandamanna Reynir Jónsson, Gréta Jónsdóttir, Helgi Hermannsson Jarðarför mannsins míns INGVARSÁRNASONAR Bjalla, Landssveit fer fram frá Skarðskirkju laugardaginn 13 ágúst kl 2 síðdegis Ferð frá Umferðamiðstöð kl 1 1 30 sama dag Málfríður Árnadóttir. t Ástkæri sonur okkar og bróðir, KRISTJÁN sem andaðist að heimili okkar Tóftum. 5 ágúst sl . verður jarðsettur frá Stokkseyrarkírkju. laugardaginn 13 ágúst kl 2 e.h. Þórey Kristjánsdóttir, Bjarkar Snorrason og bræður Útför GUÐRÚNAR HALLDÓRSDÓTTUR, Ijósmóður Rauðarárstig 40 fer fram frá Fossvogskirkju föstudaginn 12 þ m kl 1 3 30 e h Þeir sem vildu minnast hinnar látnu, er bent á minningarsjóð hennar sem liggur frammi i bókabóð Lárusar Blóndahl Skólavörðustig og hjá Eymundsson Austurstræti Anna Guðmundsdóttir, Gunnar Guðmundsson, Steinþór Guðmundsson. Anna Georgsdóttir. Oddný Halldórsdóttir. t Þökkum auðsýnda samúð vegna fráfalls eiginmanns míns og föður, LARUSAR ÓLAFSSONAR Melgerði 29 Reykjavfk Kristfn Bernburg Anna Lára Lárusdóttir. t Þökkum af alhug auðsýnda samúð við fráfall og jarðarför eiginmanns mins og föður okkar. FINNBOGA SIGURÐSSONAR lögregluvarðstjóra. Skaftahlið 33. Sérstakar þakkir færum við félögum hans í lögreglunni og lögreglu- kórnum Þorgerður Finnbogadóttir og börn. t Þökkum innilega auðsýnda samúð við andlát og útför móður okkar, tengdamóður, ömmu og langömmu RAGNHEIÐAR SÖEBECH Sigríður Hallgrímsdóttir Ólafur Benediktsson Karólína Hallgrfmsdóttir Haraldur Árnason Halla Hallgrímsdóttir Óli Kr. Guðmundsson barnabörn og barnabarnabörn. Minning - Karl Sœvar Benediktsson tónskáld Fæddur 20. mai 1913 Dáin 3. ágúst 1977. Sunnudagurinn 31. júlí verður minnisstæður i mínum huga, þvi þann dag lá ieið min til Svavars en hann hafði dvalið í nokkra daga á sjúkrahúsi vegna veikinda sem höfðu þjáð hann. Þegar ég kom inn á stofu þar sem hann átti að liggja var hann ekki þar. Ég settist og beið eftir að hann kæmi en ekkert gerðist. Allt i einu mundi ég eftir að á fyrstu hæð sjúkrahússins er pianó, ég snarað- ist niður og auðvitað var hann þar að spila. Hvar ætti hann að vera annarsstaðar? Tónlistin var hans líf og í henni lifði hann og naut þeirrar gleði og sorgar er hún veitir þeim er skil- ur. Ég hlustaði andartak á hann spila áður en við hittumst. Hann stóð upp frá hljóðfærinu, faðmaði mig að sér og hlæjandi sagðist hann vera kominn á fyrstu hæð á leiðinni heim. Þetta lýsir því að- eins hvernig hann tók þvi sem að höndum bar, alltaf með þeirri spaugsemi sem honum var gefin, í svo ríkum mæli. Fyrir framan mig stóð sá sami Svavar sem ég hef þekkt frá þvi ég fór að muna eða um 37 ár. Við spjölluðum saman i hálftíma hann lék á als oddi, sagði sögur og naut þess að vera til, og sagðist hitta mig heima næst. Við kvödd- umst, og hann bað að heilsa öllum sem mér væru nánastir. Við fylgd- umst að lyftunni, horfðumst í augu og skildum í siðasta sinn. Aðeins þremur dögum seinna var hann allur. A heiðríkum og fallegum degi dró ský fyrir birtu, en lífið heldur áfram í breyttri rás. A uppvaxtar- árum mínum og okkar bræðr- anna, var Svavar sá maður sem við dáðum mest, hann þessi mikli maður sem lagði heiminn að fót- um sér, hann kom og spilaði fyrir okkur þegar við áttum afmæli á jólum og á öllum hátíðisdögum kom hann með nikkuna. Hann fór að lofa okkur að heyra eitt og eitt lag sem hann samdi, löngu áður en þau urðu þjóðkunn, og mikið var hlustað þegar útvarpað var frá danslagakeppni S.K.T. en þar átti hann sín lög sem þá strax slógu í gegn eins og sagt er. Ekki á þessi kveðja að verða nein úttekt á lifi þessa manns, en hann var ekki allra, átti ótal kunningja, mjög fáa vini, og var einn í fjöldanum, fyrirleit alla hræsni, sagði umbúðalaust þar sem hann þurfti ef þvi var að skipta, var sama hvort fólk fyrtist við, sá ætíð skoplegu hliðarnar á öllum hlutum, gisti þá sali sem gleðin heldur, og einnig þá er sorgin ræður. Fallegt stef úr lagi eða ljóði gat kallað fram á hvar- mana tár og einnig bros. Hann var einstaklega góður við allt smátt og þá sem voru minni máttar, en hafði á þeim það lag sem ekki er öllum gefið. Hann gat á auga- bragði breytt sorg barnsins í gleði og kallað fram hlátur sem þó virt- ist svo fjarri. Mér finnst nú þegar leiðir skilja að Svavar hafi alltaf verið sá sami í gegnum öll árin, aldrei elst neitt, alltaf ungur og léttur á fæti og fáir hefðu trúað að þar færi maður sem hafði fjóra um sext- ugt. Hann var fæddur í faðmi austfirskra fjalla, þangað fór Fædd 8. júlí 1894 Dáin 2. ágúst 1977 Hún amma er búin að fá hvíld- ina. Löngum starfsdegi er lokið, og lögð er hún upp í sína hinztu för, yfir móðuna miklu. Ekki er ég í vafa um að ömmu minni verður tekið opnum örmum, af ástvinum sem á undan eru farnir. Ekki er ætlun min að rekja ætt- ir þeirrar sómakonu sem við kveðjum nú, reyna aðeins að skrifa örfá kveðjuorð. Hallfríður Sigurðardóttir var fædd sem fyrr segir hinn 8. júli 1894 að Tobbakoti í Þykkvabæ, foreldrar hennar voru hjónin Ulf- heiður Benediktsdóttir og Sigurð- ur Jóhannesson. Einn bróður átti hún Guðjón Sigurðsson, en hann er látinn fyrir hálfu öðru ári sið- an. Þau systkinin voru mjög sam- rýmd, og héldu nær alla tíð saman heimili. Ung að árum giftist Hall- fríður Sigurgeiri Gíslasyni, en hann Iézt eftir skamma sambúð. Með honum eignaðist hún tvö börn, Guðbjörgu og Sigurgeir Óskar, en Sigurgeir Óskar var ófæddur er faðir hans lézt. Má nærri geta að þetta hefur verið erfiður timi fyrir ömmu, og mikil reynsla fyrir unga stúlku. Nokkr- um árum síðar gekk hún að eiga eftirlifandi mann sinn Sigurð Björnsson og eignuðust þau einn son, Sigurbjart. Ekki gerði amma víðreist um æfina, bjó alla tið i Tobbakoti að undanskiidu rúmu einu ári sem hún bjó með fyrri manni sínum að Húnakoti í sömu sveit. Amma var róleg kona að eðlis- fari, og gerði ekki mikið af því að tala um sjálfa sig. Það sagði mér eitt sinn starfsstúlka á sjúkra- húsi, þar sem amma dvaldist fyrir nokkrum árum, að hún hefði sjaldan annast eins þakklátan sjúkling sem hana, hún var ekki að ónáða starfsfólkið að óþörfu, beið heldur þangað til einhver átti leið inn á stofuna, ef hana vanhagaði um eitthvað. Já, svona var hún blessuð gamla konan. Á minum bernskuárum dvaldi ég nokkrum sinnum tíma og tíma á heimili ömmu, afa og Guðjóns. Það var á meðan þau öll höfðu heilsu til að annast búskap, og alltaf var nóg að starfa. Oft var vinnudagurinn langur eins og titt er til sveita, oftast var það amma sem fyrst fór á fætur og seinust í rúmið á kvöldin. Alltaf hafði hún gaman af að heyra lesna „fallega“ sögu eins og hún sagði jafnan, á meðan hún sat og prjónaði eða stoppaði í sokka. Vel man ég hvað það var mér mikils virði hve störf mín, hversu litil sem þau voru, voru vel þökkuð. Og oft fékk ég hann á hverju sumri og sótti sinn lífskraft. En er nú þeirri sókn lokið? Nei, aldeilis ekki. Öll þau lög sem hann skildi eftir munu minna á þann sem skóp þau. I hvert sinn sem harmonikkan ómar munu vinir hans minnast hans og segja: Þetta lag spilaði Svavar einu sinni fyrir mig. Hann hefði kosið að falla eins og það gerðist. í fullu fjöri, þvi aldrei hefði hann viljað íþyngja öðrum, aldrei verða öðrum háður, alltaf frjáls eins og vindurinn Dóttur Svavars, Ellen Sigriði, og litlu afabörnunum hans, Önnu og Frey, sendi ég mínar bestu hugsanir á þessum dögum, og veit að þau taka undir með að hann hafi verið b’esti afí í heimi. Ég þakka elskulegum vini allt. Farðu i friði. S.S. óverðskuldað hól, sem yljaði litilli stúlku um hjartaræturnar. Atvikin höguðu því þannig að fundum okkar bar sjaldan saman á síðustu tveim árum. En þeim mun ljósari standa mér þessar löngu liðnu samverustundir fyrir hugskotssjónum. Er árin tóku að færast yfir fór heilsunni að hnigna, og sjúkra- húslegur urðu fleiri og fleiri. Þó fékk hún að dveljast á heimili sinu nú þar til síðasta hálfa mán- uðinn áður en hún lézt. Ekki get ég látið hjá líða að minnast á hversu vel afi hugsaði um ömmu, og hefðu ekki margir gert betur. Og var það fyrir hans dugnað og aðstoð góðra vina sem amma gat dvalist svo lengi heima. 1 eigingirni okkar finnst okkur dauðinn ekki alltaf timabær, en eitt er vist að þessi aldurhnigna kona var hvildinni fegin og hafði lengi þráð að fá að sofna svefnin- um langa. Að lokum vil ég fyrir hönd fjöl- skyldu minnar, foreldra og syst- ur, þakka ömmu fyrir allt og ég bið guð að styrkja afa minn í sinni miklu sorg. Blessuð sé minning Hallfríðar Sigurðardóttur. Vertu, ku<> fartir. faðir minn. í frelsarans Jesú nafni. Hönd þin leiði mij» út inn. svo allri svnd ég hafni. (H. Pétursson) Birting afmælis- og minning- argreina ATHYGLI skal vakin á þvf, að afmælis- og minningargreinar verða að berast blaðinu með góðum fyrirvara. Þannig verð- ur grcin, sem birtast á í mið- vikudagsblaði, að berast f sfð- asta lagi fyrir hádegi á mánu- dag og hliðstætt með greinar aðra daga. Greinar mega ekki vera f sendibréfsformi eða bundnu máli. Þær þurfa að vera vélritaðar og með góðu lfnubili. Fósturmóðir mín. + VALGERÐUR MATTHÍASDÓTTIR frá Háholti verður jarðsungin frá Hrunakirkju laugardaginn 13. ágúst kl 2.00 e h Guðmundur Guðnason. Hallfríður Sigurðar- dóttir — Kveðja

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.