Morgunblaðið - 14.10.1987, Blaðsíða 19
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 14. OKTÓBER 1987
19
Söluskattur á útgáfu-
þjónustu - og fleira
Svar til Þrastar Haraldssonar
eftir Jón Baldvin
Hannibalsson
Kæri Þröstur.
Þú beinir til mín skrifum í Morg-
unblaðinu 1. október sl. Efnislega
eru spurningar þínar og vangavelt-
ur þær að skattstjóri gæti leyst úr
þeim án teljandi vandræða, en úr
því sem komið er skal ég skýra
málin frá mínum bæjardyrum séð.
Söluskattur
Þú hefur áhyggjur af söluskatti.
Skiljanlega. Þú veizt líklega að sölu-
skattskerfið með öllum sínum
undanþágum og sérreglum hefur
verið í molum. Undandráttarleiðim-
ar eru mýmargar, erfitt er um
eftirlit og þetta megintekjuöflunar-
tæki ríkissjóðs hefur gersamlega
brugðizt. Undanþágumar, sem
veittar vom óspart undir merkjum
manngæzku og göfuglyndis, hafa
reynzt mesti bjamargreiði sem
íslenzkum skattgreiðendum hefur
verið gerður. Þær ýta undir undan-
drátt, tilfærslu og tilfæringar sem
aftur leiða af sér hækkandi sölu-
skattsstig til að ná inn þeim tekjum
sem skattinum er ætlað. 25% sölu-
skattur er með því hæsta sem
þekkist í heiminum.
í fjármálaráðuneytinu er verið
að breyta þessu. Fyrsta skrefið var
stigið í fyrstu aðgerðum ríkisstjóm-
arinnar með sérstökum 10% sölu-
skatti á t.d. matvöm og ýmsa
þjónustu. Um næstu áramót verður
gengið enn lengra og skattstofninn
breikkaður enn frekar. Samhliða
því verður einungis ein söluskatts-
prósenta, lægri en sú sem nú er
notuð, sem þá leggst jafnt á allar
vömr og þjónustu.
Lykilorðin em: undanþágumar
burt. Öðmvísi gengur kerfið ekki
upp. Öðmvísi verður ekki tekið fýr-
ir undandrátt. Öðmvísi verður
skattkerfið ekki réttlátara.
Misskilinn náungakærleikur, sem
felst í veitingu undanþága hist og
her, er ekki hluti af lífsfílósófíu
þess jafnaðarmanns sem hér heldur
á penna.
Skattameöferð
útgáfuþjónustu
En verkinu er fráleitt lokið enn.
Á þeim mánuðum og missemm sem
breytingar standa yfir þarf margt
að skýra og ýmislegt getur gert
breytingarnar flóknar í fram-
kvæmd. Og þá komum við að þínu
hugðarefni, nefnilega sérstökum
söluskatti á ráðgjafar- og útgáfu-
þjónustu.
Þessi starfsemi var til skamms
tíma undanþegin söluskatti. Þegar
þjónusta auglýsingastofa var und-
anskilin söluskatti var ákveðið að
hið sama skyldi gilda um útgáfu-
þjónustu. Þetta em að vísu ekki
sömu atvinnugreinar, en í skatta-
legu tilliti hafa þær verið með-
höndlaðar eins.
Því er það að þegar sérstakur
söluskattur var í sumar lagður á
þjónustu auglýsingastofa þá var
reglunni haldið og útgáfuþjónusta
skattlögð á sama hátt. Þótt ekki sé
í lögum talað beinum orðum um
útgáfuþjónustu leikur enginn vafí á
því að sú starfsemi fellur undir
sama hatt og auglýsingaþjónusta í
skattalegu tilliti.
Hins vegar er umdeilanlegt hvort
þessi samtenging er eðlileg eða
ekki. Ég býst við að þér þyki sem
blaðamanni nokkuð hallað á orðsins
list í þeim samanburði, en það em
fagurfræðilegar vangaveltur sem
skattalögin láta sig litlu varða. Þó
er rétt að benda á í því sambandi
að ef útgáfuþjónusta er ekki með-
höndluð á sama hátt og auglýsinga-
þjónusta, þá liggur beint við að
álykta sem svo að hún eigi að bera
venjulegan 25% söluskatt, enda er
hvergi kveðið sérstaklega á um að
þessi starfsemi sé undanþegin hon-
um.
Niðurstaðan er þvf sú að þér
beri sem fagmanni í útgáfuþjónustu
að leggja sérstakan 10% söluskatt
á þá þjónustu sem þú selur, rétt
eins og auglýsingastofur gera,
hvort sem það em skriftir á tölvu
eða ritvél, augiýsingagerð, mark-
aðskönnun eða heildarumsjón með
útgáfu. Tilskrif á borð við bréf þitt
í Morgunblaðinu em hins vegar
söluskattsfijáls.
Fleiri vandamál
Þú nefnir fleira sem þér sé óljóst
varðandi lög um söluskatt. Eitt er
tvísköttunarvandamálið sem lýsir
sér t.d. í því að einn aðili selur öðr-
um vöm eða þjónustu með sölu-
skatti og sá selur aftur þeim þriðja
sama hlutinn með einhveijum
breytingum. Á að leggja söluskatt
BÖRKUR Hansen hefur varið
doktorsritgerð í stjórnsýslufræði
menntamála (Educational Adm-
inistration) við Alberta-háskóia í
Edmonton, Kanada. Ritgerðin
nefnist Secondary School Reorg-
anization in Iceland: A Policy
Analysis.
Ritgerðin fjallar um stefnu-
mótun á starfi og hiutverki
framhaldsskóla á íslandi. í rit-
gerðinni er gerð greining á
þeirri menntastefnu sem fram
kemur í frumvörpum til laga um
framhaldsskóla sem itrekað hafa
verið borin fram á Alþingi án
samþykkis. Lýkur ritgerðinni
með úttekt á helstu atriðum sem
heftu framgang frumvarpsins,
ásamt tillögum um úrbætur.
Börkur Hansen er fæddur 1954,
uppalinn í Njarðvík. Hann er sonur
Hauks Hansen og Erlu Svafars-
dóttur. BA-prófi lauk Börkur frá
Háskóla íslands árið 1982 og hóf
þá þegar framhaldsnám við Al-
berta-háskóla. Hann lauk meist-
aragráðu í stjómsýslufræði
menntamála í mars 1984.
á vöruna í báðum tilfellum? Hvem-
ig má komast hjá slíkri tvísköttun?
Um þetta gilda sérstakar reglur
sem miða að því að koma í veg
fyrir tvísköttun. Þær duga þó ekki
alltaf til. Þetta vandamál er sérleg-
ur fylgifiskur söluskatts og ein af
meginástæðum þess að skynsam-
legt er að leggja hann niður. Með
upptöku virðisaukaskatts verður
þetta vandamál úr sögunni.
Önnur furðuleg tilhögun er mis-
munandi söluskattsskylda blaða og
tímarita, sem þú nefnir. Þetta er
annað dæmi um undanþáguveiru
sem plagað hefur söluskattinn árum
saman án þess að. nokkurt sam-
hengi eða rökrétt regla sé þar á.
Slík mismunun er óréttlát, þjónar
ekki nokkrum sýnilegum tilgangi
og er til þess eins fallin að grafa
undan tiltrú fólks á skattlagningu
sem réttlátu og óhlutdrægnu tekju-
öflunartæki. Þeirri vitleysu verður
að linna.
Doktor í stjómsýslu-
fræði menntamála
Jón Baldvin Hannibalsson
„Þetta er einhver mesta
hreingerningaraðgerð í
íslensku skattakerfi frá
upphafi og í samræmi
við málefnabaráttu
okkar jafnaðarmanna
mörg undanfarin ár.
Verkið tekur tíma og
þarfnast rækilegs und-
irbúnings, en því á að
vera lokið um mitt
kjörtímabil.“
Að lokum
í fjármálaráðuneytinu er nú unn-
ið að heildarendurskoðun skatta-
kerfísins eins og henni er lýst í
stefnuyfírlýsingu ríkisstjómarinn-
ar. Þetta starf tekur til söluskatts
og virðisaukaskatts, tolla og að-
flutningsgjalda, skattlagningar
fyrirtækja, skattmeðferð eigna- og
fjármagnstekna, auk ýmissa atriða
varðandi staðgreiðslu tekjuskatta
einstaklinga.
Þetta er einhver mesta hrein-
gemingaraðgerð í íslensku skatta-
kerfi frá upphafí og í samræmi við
málefnabaráttu okkar jafnaðar-
manna mörg undanfarin ár. Verkið
tekur tíma og þarfnast rækilegs
undirbúnings, en því á að vera lok-
ið um mitt kjörtímabil.
Orðslag um undirbúningsleysi er
því ótímabært. Undir hitt skal tekið
að söluskattslöggjöfín er víða flókin
og óskýr. Ekki verður við undirrit-
aðan sakazt um það, enda er hann
einn helzti gagnrýnandi þess sama
kerfís ámm saman. Það er hins
vegar forgangsverkefni næstu
mánuða og missera að koma þeim
málum fyrir með sæmilega óbrjál-
uðum hætti.
Höfundur er fjirmálaráðherra.
Börkur Hansen
Börkur er kvæntur Guðrúnu
Björk Guðsteinsdóttur og eiga þau
tvö böm, Silju Hmnd, 12 ára, og
Guðstein Hauk, 11 ára. Börkur
stundar nú kennslu við Kennarahá-
skóla íslands og Háskóla íslands.
HEILSIM HOTEL ARKAR
Nú bjóðum við á HÓTEL ÖRK fimm daga
hressingardvöl, frá sunnudegi til föstudags. Á
HÓTEL ÖRK getur þú horfið frá annríki
hversdagsins, slakað á og komið nýr og betri
maður til starfa á eftir.
VILTU
HVÍLAÞIG
OG
HRESSA
UPPÁ
LÍKAMA
OG SÁL.
í nágrenni
Hótel Arkar eru
mjög
Við bjóðum upp
læknisskoðun,
sj úkraþj álfun,
leikfimi með
þjálfara, nudd, ljós,
leirböð og margt
fleira. Á Hótel Örk
er ein besta að-
staða til hvíldar
og hressingar á
landinu. Þú lætur
stjana við þig í
fimm heila daga
og ert eins og
nýsleginn túskild-
ingur á eftir, til-
búinn í hvað sem er.
Verð frá kr. 12.250,-
(miðað við tveggja manna herbergi)
Innifalió í veröi
Morgunverðurog leirböð og víxlböð
hódegisverður Leikfimi, Ljós, Sund
Lœknisskoðun og heitir pottor
Þolmœling Snyrtimeöferð
Sjúkroþjólfun Nudd Sauna
Pantanir og nánari uppl. ( slma 99-4700
«"951
Œ2K
Breiðumörk Hverageröi