Morgunblaðið - 16.03.1988, Blaðsíða 1

Morgunblaðið - 16.03.1988, Blaðsíða 1
72 SÍÐUR B Samskipti Bandaríkjanna og Panama: Tilskipanir Nor- iega hundsaðar Panamaborg, Reuter. STJÓRN Manuels Antonio Noriega, herforingja í Panama, tílkynnti í gær að bandarískum stjórnarerindreka hefði verið vísað úr landi. Stjórnvöld í Bandaríkjunum skýrðu hins vegar frá þvi að tilskipun þessi yrði virt að vettugi þar eð hún hefði ekki borist frá lögformleg- um yfirvöldum í Panama. Panamastjóm fyrirskipaði yfir- manni fjölmiðladeildar bandaríska sendiráðsins að hafa sig á brott úr landinu innan tveggja sólarhringa og var hann sagður hafa gerst sek- ur um athæfi sem ekki sæmdi stöðu hans en það orðalag er yfirleitt notað er erlendir sendiráðsmenn eru sakaðir um njósnir. Bandaríkja- stjóm tilkynnti hins vegar að fyrir- mæli þessi yrðu höfð að engu þar eð þau hefðu ekki borist frá stjóm Erics Delvalle, fyrrum forseta Bandaríkin: Jesse Jack- son spáð sigrí Chicago, Reuter. Biökkumapnaleiðtoginn Jesse Jackson spáði því í gær að hann myndi fara með sigur af hólmi í forkosningum Demókrata- flokksins i Illinois-ríki i Banda- ríkjunum, sem fram fóru í gær. Kjörstöðum hafði ekki verið lok- að er Morgunblaðið fór í prentun í gærkvöld en talið var mjög líklegt að spá Jacksons myndi rætast. Samkvæmt skoðanakönnunum sem gerðar vom í Illinois í gær benti alit til þess að George Bush varafor- seti bæri sigurorð af helsta keppi- naut sínum, öldungadeildarmannin- um Robert Dole í forkosningum repúblikana. Var gert ráð fyrir því að Bush sigraði með allt að 30 pró- senta mun. Dole sagði að enn væri eftir að kjósa í fjölmörgum ríkjum og baráttan væri ekki úti enn. Stjómmálaskýrendur vestra em hins vegar almennt þeirrar skoðun- ar að staða hans sé orðin næsta vonlítil. landsins, sem Noriega setti af ekki alls fyrir löngu. Spennan í samskiptum Panama og Bandaríkjanna fór enn vaxandi er tilkynnt var í New York í gær að tímabundið lögbann hefði verið sett á eigur stjómar Noriega í bandarískum bönkum. Delvalle fyrmrn forseti hefur hvatt til þess að eigur stjómarinnar verði „fryst- ar“ í Bandaríkjunum þar til Noriega hefur verið komið frá völdum. Bandaríkjastjóm hefur þegar gripið til efnahagsþvingana í þessu skyni en Noriega hefur verið ákærður fyrir að standa að baki skipulegri dreifingu eiturlyfja í Bandaríkjun- um. í gær hótaði stjóm Noriega að hætta raforkusölu og annarri þjón- ustu við Bandaríkjamenn sem em að störfum við Panamaskurðinn á þeim forsendum að þeir hefðu ekki staðið við greiðsluskuldbindingar sínar. Stjómarandstæðingar efndu til mótmæla í Panamaborg í gær og beittu lögreglumenn táragasi til að dreifa mannfjöldanum. Reuter Mynd þessi var tekin í Búdapest í gær er stjórnarandstæðingar fóru um götur borgarinnar og kröfðust lýðræðis og frelsis. Meðal annars var lagður blómsveigur að minnismerki um Lajos Btthyany, sem fyrstur manna gegndi embætti forsætisráðherra Ungverjalands. Norðurslóðir: Eyðing ós- onlagsins uggvænleg Ósló, Washington, NTB, Reuter. ÓSONLAGIÐ yfir Noregi og norðurslóðum hefur minnkað um sex til sjö prósent yfir vetrarmán- uðina á undanförnum sextán árum. Kom þetta fram i gær á ráðstefnu vísindamanna, sem haldin er i Washington i Banda- rikjunum. Að sögn norska jarðeðlisfræðings- ins Frode Stordal eyðist ósonlagið mun hraðar á þessum slóðum en talið hafði verið og segir hann ástæðu til að hafa verulegar áhyggj- ur af þessari þróun. Ósonlagið liggur í um 40 kíló- metra hæð yfir jörðu og ver menn fyrir útfjólubláum geislum Sólar en of mikil geislun getur orsakað húð- krabbamein. Eyðing ósonlagsins or- sakast fyrst og fremst af notkun ýmissa efna og er því mannanna verk. Kváðust vísindamennirnir ætla að samdráttur í ósonlaginu gæti haft mjög víðtæk áhrif, meðal ann- ars á uppskeru og fiskistofna. Frode Stordal sagði í gær að bandaríska geimvísindastofnunin NASA hefði ákveðið að senda sér- fræðinga til Noregs á næsta ári til að fylgjast með þróuninni yfir norð- urheimskautssvæðinu. Fjölmennustu mótmæli í Ungverjalandi frá 1956: Þúsundir manna krefj- ast frelsis og lýðræðis Búdapest, Reuter. RÚMLEGA tlu þúsund manns tóku þátt í kröfugöngu á götum Búdapest í gær og kröfðust sjálf- stæðis, lýðræðis og umbóta. Eru þetta fjölmennustu mótmæli i landinu frá árinu 1956 er sov- Fjárlög á Bretlandi: Mikill hagnaður af rekstri ríkissjóðs London, Reuter. NIGEL Lawson, fjármálaráðherra Bretlands, kynnti frumvarp fyr- ir næsta fjárlagaár á þingi í gær. Gert er ráð fyrir að hagnaður verði af rekstri rikissjóðs í fyrsta skipti frá árinu 1969. Lægsta tekjuskattsþrep lækkar Elstu menn á Bretlandi muna ekki um tvö prósent og verður 25 pró- sent en hæsta skattþrepið verður nú 40 prósent í stað 60 áður. Þing- menn Verkamannaflokksins gerðu hróp að Lawson er hann skýrði frá þessu og varð hann að gera tíu mínútna hlé á ræðu sinni. Áður hafði Lawson þurft að gera 15 mínútna hlé á raeðuflutningnum er greidd voru atkvæði um hvort vísa bæri Alex Salmond, þingmanni Skoska þjóðemisflokksins, út úr þingsalnum eftir að hann hafði ítrekað truflað fjármálaráðherrann. eftir viðlíka uppákomu við flutning ræðu fjármáJaráðherra á þingi. Samkvæmt frumvarpinu verða fjárframlög til heilbrigðisþjón- ustunnar ekki aukin þrátt fyrir verkföll starfsmanna og áköf til- mæli stjómarandstæðinga um að gripið verði til róttækra ráðstafana til að bæta hana. Áætlað er að tekjuafgangur ríkissjóðs á næsta fjárlagaári, sem hefst í næsta mánuði, verði um þrír milljarðar punda (um 210 millj- arðar ísl. kr.). Reuter Nigel Lawson smellir kossi á kinn eiginkonu sinnar í gær. Taskan lúna geymdi fjárlaga- frumvarpið samkvæmt gamalli hefð. éskar hersveitir brutu á bak aftur uppreisn alþýðu manna þar. Fyrr um daginn höfðu öryggislög- reglumenn handtekið fjóra þekkta andófsmenn og var því ákaft mótmælt á fjöldafundi, sem efnt var til i lok kröfugöngunnar í Búdapest. í gær voru 140 ár liðin frá því Ijóðskáldið Sandor Petöfi leiddi upp- reisn Ungveija gegn Austurríkis- mönnum, sem í þá daga voru herra- þjóð landsmanna. A síðasta ári leyfðu stjómvöld í fyrsta skipti frá árinu 1956 að þessa dags yrði minnst í Ungverjalandi og tóku þá um tvö til þrjú þúsund manns þátt í fundahöldum í Búdapest af því tilefni. Árið 1986 voru mótmæli andófsmanna hins vegar brotin á bak aftur með lögregluvaldi. „1948, 1918 og 1956 reyndum við að gera drauma okkar um frelsi, jafnrétti, sjálfstæði og stöðu meðal þjóða hins siðmenntaða heims að veruleika," sagði heimspekingurinn og andófsmaðurinn Gaspar Miklos Tamas er hann ávarpaði fólksfjöld- ann í gær. „Enn fer því fjarri að þessum markmiðum hafi verið náð,“ bætti hann við. Hvatti hann leiðtoga sem „glatað" hefðu „trausti þjóðar- innar“ til að segja af sér og fór ekki á milli mála að þessari áskorun var beint til Janos Kadars, sem hef- ur stjómað ungverska kommúnista- flokknum frá 1956. Undanfamar tvær vikur hafa kröfur um ritfrelsi orðið sífellt há- værari í Ungvetjalandi eftir að stjómvöld höfnuðu beiðni um 150 blaðamanna og 50 menntamanna um leyfi til að stofna samtök í anda „glasnost“-stefnu Míkhaíls Gorb- atsjovs Sovétleiðtoga til að stuðla að bættri upplýsingamiðlun í landinu. Hafa öryggisverðir skorið upp herör gegn sjálfstæðum út- gáfufyrirtækjum í kjölfar þessa. Gaspar Tamas sagði í ávarpi sínu að lýðræði yrði aldrei komið á í landinu á meðan lögregluaðgerðir sem þessar væru látnar viðgangast. Vitnaði hann einnig til þess að fjór- ir andófsmenn hefðu verið hand- teknir fyrr um daginn. Þessu svar- aði mannfjöldinn með því að hrópa: „Við mótmælum, við mótmælum." Lögreglusveitir höfðu sig ekki í frammi á meðan á mótmælunum stóð. Að sögn heimildarmanna Reuters-fréttastofunnar í Búdapest tóku ekki færri en tíu þúsund manns þátt í fundahöldunum og sagði einn þeirra þetta sýna að styrkur stjóm- arandstæðinga færi ört vaxandi.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.