Dagblaðið Vísir - DV - 26.03.1996, Blaðsíða 18

Dagblaðið Vísir - DV - 26.03.1996, Blaðsíða 18
18 ÞRIÐJUDAGUR 26. MARS 1996 ÞRIÐJUDAGUR 26. MARS 1996 23 íþróttir íþróttir Opna íslenska mótið í badminton: Broddi kom fram hefndum gegn Tryggva DV, Akureyri: Sterkir erlendir keppendur settu mark sitt á opna íslenska mótið í badminton sem fram fór á Akur- eyri um liðna helgi. Allir íslensku keppendurnir, þeir bestu í grein- inni, stóðu sig mjög vel og unnu marga glæsilega sigra. Eftirtektarverður var úrslita- leikur Brodda Kristjánssonar og Tryggva Nielsen, en þar kom Broddi fram hefndum frá íslands- mótinu á dögunum, er hann sá á eftir titlinum til Tyrggva. Leikur- inn var mjög hraður og fastur og lauk með sigri Brodda, 15-0 og 15-^9. I einliðaleik kvenna töpuðu þær Elsa Nielsen og Islandsmeistarinn Vigdís B. Ásgeirsdóttir í undanúr- slitum gegn sænskri og norskri stúlku. í tvíliðaleik karla komust þeir Broddi Kristjánsson og Ámi Þór Hallgrímsson í úrslit gegn Eng- lendingunum Julian Robertson og Nathan Robertson en töpuðu. Lokatölur urðu 15-9 og 15-9. íslenskur sigur leit dagsins ljós í tvíliðaleik kvenna. Þar sigruðu þær Elsa Nielsen og Vigdís B. Ás- geirsdóttir stöllur sínar Guðrúnu Júlíusdóttur og Brynju Kolbrúnu Pétursdóttur, 15-12 og 15-10. Elsa Nielsen og Broddi Krist- jánsson áttu í hörðum slag gegn Johönnu Holgerson og Johan Thol- inson frá Svíþjóð. Svíarnir unnu fyrstu hrinuna mjög naumlega, 17-14 og þá síðari 15-8. -KG íslandsmótið í kata 1996: Ásmundur og Edda meistarar Sklði: Brynja þriðja í Noregi Brynja Þorsteinsdóttir, SRA, háfnaði í þriðja sæti í stórsvigi og vann til bronsverðlauna á norska unglingameistaramótinu sem fram fór í Grong um síðustu helgi. Brynja kom í mark á 2:09,34 mín. en sigurvegarinn fékk tím- ann 2:05,68 mín. Loks varð Brynja í 5. sæti í svigi á sama móti. Brynja er að bæta punkta- stöðu sína verulega í báðum greinum og verður fróðlegt að sjá til hennar á skíðamóti ís- lands um páskana. -SK Júdó: Bjarni lagði meistarann á ippon Bjarni Friðriksson júdókappi hafnaði í 7. sæti á alþjóðlegu júdómóti í Róm eins og greint var frá í DV í gær. Ein glíma Bjarna var sérlega glæsileg en þá vann hann ólymp- íumeistarann frá Barcelona 1992, Ungverjann Kovacs, á ippon sem er fullnaðarsigur. Náði Bjami ólympíumeistaranum í gólfið og hélt honum fóstum í tilskilinn tíma. Að sögn kunnugra var þetta ein besta glíma Bjarna á löngum ferli hans. -SK Knattspyrna: United fær einn milljarð Forráðamenn Manchester United skrifuðu um helgina und- ir auglýsingasamning við íþróttavörufyrirtækið Umbro. Samningurinn er til ársins 2002 og gefur Man. Utd um einn milljarð í aðra hönd árlega. „Þetta er stærsti auglýsinga- samningur sem hefur verið gerð- ur til þessa í knattspymunni,“ sagði Peter J. Draper, markaðs- stjóri Umbro, á blaðamanna- fundi í MUnchen um síðustu helgi. -SK Fer Yeboah Strax og Leeds hafði tapað deildabikarnum enska til Aston Villa, komst sá orðrómur á kreik að Ganamaðurinn Anthony Ye- boah væri á leið til Chelsea. Nokkrar líkur eru taldar á að af sölu hans verði enda er vitað að á meðal mestu áhangenda Ye- boahs er enginn annar en Glen Hoddle, framkvæmdastjóri Chel- sea. -SK Stakar árásir á LeTissier Enn einu sinni hefur ásökun- um rignt yfir Matthew Le Tissi- er, leikmann Southampton i ensku knattspymunni. Southampton er í bullandi fall- hættu og Le Tissier er kennt um allt saman. Francis Benali, varnarmaður Southampton, kom Le Tissier til vamar í gagr er hann sagði: „Knattspyrna er ekki einstak- lingsgrein heldur hópíþrótt. Það er ekki Le Tissier að kenna hvar við stöndum í úrvalsdeildinni í dag.“ -SK Ásmundur ísak Jónsson, Þórs- hamri, tryggði sér um helgina ís- landsmeistaratitilinn í- kata karla en íslandsmótið fór fram í Hafnar- firði. Ásmundur ísak og Atli Erlends- son, Karatefélagi Reykjavíkur, voru efstir og jafnir eftir keppnina í karlaflokki með 26,2 stig en Ás- mundur vann á betri stigafiölda í undanúrslitum. í kata kvenna sigraði Edda Blön- dal, Þórshamri, og hlaut hún 25,8 stig. Önnur varð Dagný Ósk Ás- geirsdóttir, Hamri frá Hveragerði, meö 25,5 stig. í hópkata kvenna sigraði a-lið Þórshamars og hlaut 25,5 stig. Leikmenn ensku úrvalsdeildar- ( innar í knattspyrnu kusu í síðustu viku lið ársins i deildinni. Um helg- ina var talið upp úr kössunum og kom þá í ljós hvaða ellefu menn fengu flest atkvæði. Fyrir marga kemur kannski á óvart að aðeins einn leikmaður kemur frá Manchester United og hins vegar eru fiórir leikmenn frá Newcastle United. Brolin óhress og vill fara Sænski landsliðsmaðurinn Tomas Brolin er mjög óánægður með vistina hjá Leeds og vill losna þaðan hiö bráðasta. Það sem fyllti mælinn hjá Brolin var að hann var ekki valinn í byrj- unarliðið í úrslitaleiknum gegn Aston Villa í fyrradag. Howard Wilkinson, stjóri Leeds, sem keypti Brolin frá Parma fyrir 450 milljónir, virðist hafa misst álitið á Brolin og hef- ur haft Svíann meira og minna á bekknum í undanförnum leikj- um. Wilkinson hefur mætt mik- illi gagnrýni hjá stuðningsmönn- um Leeds og létu þeir hann óspart heyra það í fyrradag. -GH Karatefélag Reykjavíkur varð í öðru sæti með 25,2 stig. Sigurlið Þórs- hamars skipuðu þær Edda Blöndal, Eydís Líndal og Ingibjörg Júlíus- dóttir. í hópkata karla sigraði einnig a- lið Þórshamars og hlaut 26,1 stig. í öðru sæti kom svo lið Karatefélags Reykjavíkur með 25,9 stig. Ásmund- ur ísak Jónsson, Árni Þór Jónsson og Jón Ingi Þorvaldsson skipuðu sigurlið Þórshamars. Um 300 áhorfendur sóttu mótið sem var mjög skemmtilegt og spenn- andi. Raffi Liven var með magnaða sýningu fyrir úrslitakeppnina þar sem hann braut múrsteina og girð- ingarstaura. -SK Lið ársins lítur annars þannig út: David James, Liverpool, Gary Neville, Manchester United, Tony Adams, Arsenal, Efan Ehiogu, Aston Villa, Alan Wright, Aston Villa, David Ginola, Newcastle, Ro- bert Lee, Newcastle, Steve Stone, Nottingham Forest, Ruud Gullit, Chelsea, 'Les Ferdinand, Newcastle, og Alan Shearer, Blackburn. Komast Víkingar í Evrópukeppnma? Það skýrist ekki fyrr en eftir úrslitaleiki KA og Vals hvaða fé- lög taka þátt á Evrópumótunum í handknattleik á næsta tímabili. Verði Valur meistari tekur liö- ið þátt í Evrópukeppni meistara- liða, KA í Evrópukeppni bikar- hafa, Stjaman í EHF-keppninni og Haukar i borgakeppni Evr- ópu. Verði KA hins vegar meistari fer liöið í Evrópukeppni meist- araliða, Víkingur í Evrópu- keppni bikarhafa sem yrði í fyrsta sinn sem 2. deildarlið tek- ur þátt í Evrópukeppni, Valm- í EHF-keppnina og Stjarnan í borgabkeppni Evrópu. -GH Þrír frá Newcastle í úrvalsliði ársins Southampton vann Southampton vann mikilvæg- an sigur á Coventry í botnbar- áttu ensku úrvalsdeildarinnar í knattspyrnu í gærkvöldi. Sigur- markið skoraði Jason Dodd með skalla eftir hornspyrnu frá Matt- hew Le Tissier strax á 2. mínútu. Fowler fær tækifæri Robbie Fowler fær tækifæri í byrjunarliði enska landsliðsins annað kvöld þegar Englendingar taka á móti Búlgörum. Fowler tekur stöðu Alans Sheares sem er meiddur. -GH Landi Weahs með Val? - Alex Badio frá Líberíu kemur til Vals í dag Knattspyrnumaður frá Afríkurík- inu Líberíu, Alex Badio að nafni, kemur til landsins í dag og verður til reynslu hjá 1. deildarliði Vals næstu vikurnar. Ef útlit verður fyr- ir að af samningum verði fer hann með Valsliðinu í æfingaferð um páskana. Alex Badio er 23 ára gamall sókn- armaður, lítill og snöggur, og hefur leikið með liðum í Hollandi og Grikklandi, þó ekki í efstu deild. Leikmenn frá Líberíu hafa ekki gert garðinn frægan í heimsknatt- spyrnunni, með einni góðri undan- tekningu þó, því frá þessu litla Afr- íkuríki kemur knattspyrnumaður ársins í heiminum 1995, George Weah, leikmaður AC Milan. Ef Badio býr yfir einhverju broti af snilli landa síns verður hann Hlíð- arendaliðinu góður styrkur. Badio er annar erlendi leikmað- urinn sem Valsmenn fá til sín 'til reynslu í vetur. Rússneski sóknar- maðurinn Alexander Pateev dvaldi hjá þeim um tíma en ekkert varð úr samningum við hann. Ef Badio uppfyllir þær vonir sem við hann eru bundnar verður hann fyrsti afríski knattspyrnumaðurinn sem leikur í 1. deildinni hér á landi. -VS Rondey Robinson á förum frá Njarðvík: „Ég á eftir að sakna fólksins" DV, Suðurnesjum: Rondey Robinson, sem leikið hef- ur með körfuknattleiksliði Njarð- víkinga sex undanfarin ár, heldur af landi brott á mánudaginn kemur og er orðið ljóst að hann kemur ekki til baka. Njarðvíkingar þurfa því fljótlega að fara að líta í kringum sig í leit að erlendum leikmanni fyrir næsta tímabil. „Já, þar er komið á hreint að Rondey Robinson kemur ekki til með að leika með okkur meira. Rondey heldur utan til Bandaríkj- anna á mánudaginn kemur. Það er því ljóst að við verðum að fara að líta i kringum okkur en það verður erfitt að fylla það skarð sem Rondey skilur eftir sig. Það verður engu að síður spennandi verkefni," sagði Ólafur Eyjólfsson, formaður Körfuknattleiksdeildar Njarðvíkur, í samtali við DV í gær. „Erfitt að fara frá Njarðvík“ „Það verður mjög erfitt að fara frá Njarðvík. Ég á eftir að sakna fólksins í bænum og liðsins sem ég hef leikið með síðustu sex árin. Það er ekki ákveðið hvað ég tek mér fyr- ir hendur þegar ég kem til Chicago en ég er spenntur fyrir að ganga í lögreglulið borgarinnar," sagði Rondey Robinson í stuttu spjalli við DV. -ÆMK NBA-deildin í körfuknattleik í nótt og fyrrinótt: Stórbrotinn leikur hjá nýliða Stoudamire - og nýliðarnir í Toronto unnu sinn fyrsta sigur gegn toppliði Chicago San Antonio Spurs er enn á fleygiferð í NBA-deildinni í körfuknattleik og í nótt vann liðið 14. leik sinn í röð. Andstæðingurinn í nótt var NJ Nets. Sean Elliott átti stórleik og skoraði 35 stig fyrir Spurs og David Robinson var enginn eftirbátur hans, skoraði 19 stig og tók 17 frá- köst. Met Spurs er 15 sigurleikir í röð frá í fyrra. Úrslit leikja í nótt: NJ Nets-SA Spurs............88-95 Utah Jazz-Dallas...........103-86 Portland-76ers ..............94-71 Karl Malone skoraði 29 stig fyrir John Stockton og félagar í Utah Jazz voru í miklu stuði í nótt og unnu mjög gegn uauas 0g 12 fráköst. sannfærandi sigur á liði Dallas Mavericks. ____________________________________ Jeff Hornacek skoraði 17 stig og gaf 8 stoðsendingar. Úrslit leikja í fyrrinótt: Cleveland-Vancouver.......90-85 Dallas-NY Knicks..........79-85 Indiana-SA Spurs.........88-100 Milwaukee-NJ Nets ........80-84 Toronto-Chicago.........109-108 Washington-Denver.........92-90 Boston-Miami.............95-111 Phoenix-LA Clippers......103-92 Sacramento-Seattle......110-112 LA Lakers-Charlotte......94-103 Nýliðinn í Toronto, Damon Stou- damire, fór á kostum gegn Chicago og Toronto vann mjög óvæntan sig- ur. Stoudamire skoraði 30 stig, gaf 11 stoðsendingar og setti nýtt met í þriggja stiga skotum af nýliða en hann hefur nú skorað úr 127 slíkum skotum í vetur og nýliði hefur aldrei gert betur. Michael Jordan skoraði 36 stig fyrir Chicago. Þetta var aðeins fiórði sigur Toronto í nítján Jeikjum og fyrsti sigur Toronto gegn Chicago frá upphafi í fiórum tilraunum. „Sóknin var í lagi hjá okkur en vörnin ekki. Við létum þá taka alltof mörg sóknarfráköst," sagði Michael Jordan eftir leikinn en hann skoraði 13 síðustu stig Chicago. SASpurs er í miklu stuði þessa dagana og liðið vann 13. sigur sinn í röð gegn Indiana í fyrrinótt. David Robinson skoraði 22 stig og hirti 13 fráköst. Reggie Miller í liði Indiana var rekinn í sturtu eftir að hafa fengið tvær tæknivillur um miðjan þriðja leikhluta. Gary Payton var i miklu stuði þegar Seattle vann nauman sigur gegn Sacramento. Payton skoraði 38 stig í leiknum og þar af sigurkörf- una á síðustu sekúndu leiksins. Payton jafnaði met sitt í deildinni og tók 11 fráköst og gaf 9 stoðsend- ingar að auki. Patrick Ewing skoraði 36 stig fyr- ir Knicks sem vann Dallas. -SK Rondey Robinson - á förum frá Njarðvík. Handbolti kvenna: Stjarnan í úrslit DV, Eyjum: Annað árið í röð lagði Stjarnan ÍBV að velli í undanúrslitum með tveimur vinningum gegn engum. Sfiaman er magnað lið, eins og skriðdreki sem fer sína eigin leið, sama hvað á gengur, og hendir sprengjum í andstæðingana þegar þess er þörf. Sprækar Eyjastúlkur höfðu ein- faldlega ekki roð í skriðdrekann frá Garðabæ því Stjarnan sigraði nokkuð örugglega í bráðfiörugum en grófasta kvennahandboltaleik sem sést hefur í Eyjum, 22-16, eftir að staðan í hálfleik var 10-8 fyrir ÍBV. ÍBV náði mest þriggja marka for- ystu undir lok fyrri hálfleiks. Ragn- heiöur og Herdís gerðu öll mörk Sfiörnunnar í fyrri hálfleik og vörn liðins var lek. Vörnin hrökk í gang í síðari hálfleik og eftir það sá ÍBV aldrei til sólar. Ragnheiður, Herdís, Sóley og Margrét voru bestar hjá Stjörn- unni. Fátt fær stöðvað Stjörnuna í að verja titilinn og sigra þrefalt í ár. ÍBV kom á óvart í vetur og á framtíðina fyrir sér. Mörk ÍBV: Malin 7/5, Andrea 4, Sara Ó. 3, María 1, Elísa 1, Helga 1. Varin skot: Þórunn 9. Mörk Stjörnunnar: Ragnheiður 9/5, Herdís 5, Guðný 3, Hrund 2, Rut 1, Inga 1, Nína 1. Varin skot: Sóley 14/1, Fanney 2. -ÞoGu Ragnheiður Stephensen var markahæst í Stjörnuliðinu í Vestmannaeyjum í gær og skoraði 9 mörk. Með sigrinum er Stjarnan komin í úrslit og mætir þar annaðhvort Fram eða Haukum. Milan vill fá Georgíumanninn Mörg af stóru liðunum í Evr- ópu eru nú farin að renna hýru auga til Georgíumannsins Kinkladze sem hefur átt hvern stórleikinn með Manchester City á keppnistímabilinu. Eitt þeirra liða sem vilja fá þennan skemmtilega leikmann er ítalska stórliðið AC Milan og hefur félagið boðið 750 milljónir í kappann. Svara er að vænta frá City-mönnum í þessari viku um tilboðið en vitað er að spænsk fé- lög eru að íhuga tilboð í leikmanninn. -GH Knattspyrna: Logi njosnar í Makedóníu Logi Ólafsson, lands- liðsþjálfari í knattspyrnu, fór utan til Makedóníu í gær í þeim tilgangi að njósna um Makedóníu- menn sem verða mótheij- ar íslendinga í riðla- keppni heimsmeistara- mótsins í sumar. Frumraun íslenska liðsins í keppninni verð- ur gegn Makedóníu á Laugardalsvellinum 1. júní í sumar. Makedónía mætir Möltu í vináttulandsleik í Skopje annað kvöld en í dag mætast 21 árs lið þjóðanna og fylgist Logi með báðum þessum leikj- um. Líka til Englands Logi lætur ekki þar við sitja og mun í framhald- . inu halda til Englands og skoða og ræða við ís- lensku landsliðsmennina sem leika með enskum fé- lagsliðum. Hér er átt við þá Guðna Bergsson, Bolton, Þorvald Örlygs- son, Oldham, og Lárus Sigurðsson hjá Stoke City. Þessir leikmenn hafa verið að leika vel með liðum sínum í vetur svo líklegt má telja að Logi hafi not fyrir þá alla í sínu liði. Þess má geta að viður- eign Manchester City og Bolton verður í beinni út- sendingu ríkissjónvarps- ins á laugadaginn kemur og ætlar Logi að fylgjast þar með Guðna Bergs- syni. -JKS Eiður hefði getað ráðið úrslitum DV, HoUandi: Eiður Smári Guðjohnsen fékk mikla umfiöllun á íþróttasíðum hollensku dag- blaðanna í gær. Ástæðan er að hann, sem tiltölulega óþekktur 17 ára leikmað- ur hefur undanfarna 2 leiki PSV gegn Barcelona og Groningen haft örlög PSV liðsins í hendi sér. Gegn Barcelona átti hann tvö af bestu marktækifærunum í seinni hálfleik og gegn Groningen á sunnudaginn, þar sem sem hann lék frá byrjun, átti hann besta færi PSV en tókst ekki að skora. Aðspurður eftir leikinn sagði Dick Advocaat, þjálfari PSV og fyrrum landsliðsþjálfari Hollendinga, að það væri á engan hátt hægt að kenna Eiði um tapið. Hann sé ungur og þó svo að honum hafi ekki tekist að skora þá sé ljóst að mikils sé af honum að vænta í framtíðinni. -EE

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.