Morgunblaðið - 29.03.2005, Blaðsíða 28

Morgunblaðið - 29.03.2005, Blaðsíða 28
Morgunblaðið/Golli Krakkar í Ingunnarskóla, 7.–8. bekk Þ.E. blaðið og fylgjast með því hvernig nútímadagblað er búið til. Kærar þakkir fyrir komuna, krakkar! Morgunblaðið. ÞESSIR nemendur heimsóttu Morgunblaðið í tengslum við verk- efnið Dagblöð í skólum. Dagblöð í skólum er samstarfsverkefni á vegum Fræðslumiðstöðvar Reykjavíkur sem Morgunblaðið tekur þátt í á hverju ári. Að lok- inni verkefnaviku þar sem nem- endur vinna með dagblöð á marg- víslegan hátt í skólanum koma þeir í kynnisheimsókn á Morgun- Morgunblaðið/ÞÖK Krakkar í Langholtsskóla, 7. bekk S.Á. 28 ÞRIÐJUDAGUR 29. MARS 2005 MORGUNBLAÐIÐ Raðauglýsingar 569 1111 Til sölu Upplýsingar í síma 820 1728 og 820 1790 Fyrirtæki - Einstakt tækifæri Vegna breytinga eru tvö glæsileg bogadregin afgreiðsluborð úr eik nature til sölu. Lengd: 3,80 m. Hæð: 110 cm. Mesta dýpt 110 cm. Einnig er til sölu sporöskjulagað fundarborð úr mahóní, mesta breidd 1,7 m og lengd 5 m. Ennfremur eru nokkur skrifborð til sölu á sama stað. Tilboð óskast. Fundir/Mannfagnaðir Náttúrufræðingar ath! Kynningarfundir um nýgerðan kjarasamning FÍN við ríkið verða haldnir á þremur stöðum í Reykjavík í dag, þriðjudaginn 29. mars:  Hafrannsóknastofnuninni 1. hæð kl. 11:00. Kynnir verður Þorsteinn Sigurðsson, vara- formaður FÍN.  Grand Hóteli, Hvammi á 1. hæð, kl. 11:00. Kynnir verður Ína Björg Hjálmardóttir, formaður FÍN.  Orkustofnun, 3. hæð, kl. 10:30. Kynnir verður Þrúður G. Haraldsdóttir, framkvæmdastjóri FÍN. Hvetjum ykkur til að mæta vegna atkvæðagreiðslu um kjarasamninginn sem hefst föstudaginn 1. apríl. Aðalfundur Ágæti hluthafi! Aðalfundur Fiskmarkaðs Íslands hf. verður haldinn 8. apríl 2005 kl. 20.00 í þingsal nr. 8 á Hótel Loftleiðum. Dagskrá: 1. Aðalfundarstörf skv. 15. gr. samþykkta félagsins. 2. Tillaga stjórnar um að félaginu verði heim- ilað að kaupa eigin hluti, sbr. 2. og 3. mgr. 55. gr. laga nr. 2/1995 um hlutafélög 3. Önnur mál löglega upp borin. Stjórn Fiskmarkaðs Íslands hf. SVEIT Ferðaskrifstofu Vestur- lands sigraði með yfirburðum í úrslitakeppni Íslandsmótsins í brids sem fram fór um bænadag- ana og lauk sl. laugardag. Hlaut sveitin 256 stig en sveit Eyktar, meistaranna frá í fyrra, varð önn- ur með 238 stig. Sveit Grant Thornton varð í þriðja sæti með 236 stig og Reykjavíkurmeistar- arnir urðu fjórðu með 216 stig. Í sigursveitinni spiluðu Magnús E. Magnússon, Sævar Þorbjörnsson, feðgarnir Karl Sigurhjartarson og Snorri Karlsson og hjónin Matth- ías Þorvaldsson og Ljósbrá Bald- ursdóttir en Ljósbrá er fyrsta konan sem sigrar í opnum flokki í sveitakeppni á Íslandsmótinu í brids. Úrslitakeppnin hófst með þátt- töku 12 sveita og hafði sveit Ferðaskrifstofu Vesturlands tögl- in og hagldirnar í þeirri keppni og hlaut samtals 200 stig. Sveit Eyktar varð önnur með 197 stig eftir lélegt start í mótinu. Sveit Garða og véla ehf. þriðja með 185 og sveit Grant Thornton fjórða með sömu stigatölu. Þrjár aðrar sveitir áttu möguleika á að kom- ast í úrslitin, þ.e. Sparisjóður Siglufjarðar sem endaði með 178 stig, Vinabær sem fékk 175 stig og sveit Skeljungs sem hlaut 163 stig. Fjórar efstu sveitirnar spiluðu svo til úrslita um Íslandsmeist- aratitilinn. Leikreglur eru þær að sveitirnar fara með stigin sín úr úrslitakeppninni þannig að sveitir Ferðaskrifstofunnar og Eyktar voru mun líklegri til sigurs með 12 og 15 stiga forskot. Ferðaskrif- stofan spilaði fyrsta leikinn gegn Grant Thornton og sigraði með 25 gegn 4 á meðan sveit Eyktar vann „aðeins“ 19-11. Eitthvað hef- ur það farið illa/vel í sveit Grant Thornton þetta stórtap því þeir gjörsigruðu sveit Eyktar í annarri umferðinni 23-7. Sveit Ferðaskrif- stofunnar vann sveit Garða og véla 16-14 og botninn var alveg úr keppninni. Í lokaumferðinni spiluðu topp- arnir, Eykt og Ferðaskrifstofan og Grant Thornton gegn sveit Garða og véla. Eykt þurfti að vinna leikinn a.m.k. 24-6 til að vinna mótið. Leikurinn var hins vegar aldrei spennandi og um tíma leit út fyrir stórsigur Ferða- skrifstofunnar og að sveit Grant Thornton sem tapaði svo illa í fyrstu lotunni myndi ná öðru sæt- inu í mótinu með stórsigri á sveit Garða og véla 24-6. Sveit Eyktar malaði hins vegar inn í síðustu spilunum og hélt öðru sætinu en lokastaðan varð þessi: Ferðaskrifstofa Vesturl. 256 Eykt 238 Grant Thornton 236 Garðar og vélar Ehf. 216 Sigurvegararnir voru vel að sigrinum komnir en margir þeirra hafa verið lengi að. Sveitarforing- inn, Karl Sigurhjartarson, hefur 9 sinnum áður orðið Íslandsmeistari í sveitakeppni fyrst 1969 eða fyrir 36 árum. Sævar Þorbjörnsson var að vinna sinn sjötta titil en hann varð fyrst meistari 1982. Matthías Þorvaldsson var að vinna sinn fjórða titil en hann vann fyrst 1992. Magnús E. Magnússon vann titilinn 1997 en Ljósbrá og Snorri eru að vinna sinn fyrsta titil. Símon Símonarson, fyrirliði Garða og véla ehf., náði ekki að stýra liði sínu í verðlaunasæti að þessu sinni. Símon varð fyrst Ís- landsmeistari 1958 og hefur því verið í toppbaráttunni í 47 ár eða tæpa hálfa öld. Þá var Ásmundur Pálsson með í slagnum. Hann náði reyndar ekki í fjögurra manna úrslit að þessu sinni en Ásmundur varð fyrst meistari 1962, eflaust eftir harða keppni við Símon. Mótsblað var gefið út á meðan úrslitakeppnin fór fram. Það var Ómar Olgeirsson sem hafði veg og vanda af þessu góða framtaki sem setti mótið á hærra plan. Þá var hægt að fylgjast með mótinu á vef Bridssambandsins og horfa beint á Bridge base á tvo leiki. Keppnisstjórinn, Björgvin Már Kristinsson, stýrði liðinu og gerði það vel að vanda. Dauf lokabarátta Íslandsmeistararnir í sveitakeppni í opnum flokki 2005. Frá vinstri: Sævar Þorbjörnsson, Magnús E. Magn- ússon, Snorri Karlsson, Ljósbrá Baldursdóttir og Matthías Þorvaldsson. Í miðju situr svo sveitarforinginn Karl Sigurhjartarson sem var að vinna sinn 10. titil í opna flokknum. Arnór Ragnarsson Bridsfélag Borgarfjarðar Mánudaginn 21. mars lauk þriggja kvölda tvímenningskeppni félagsins. Heldur slakari mæting var síðasta kvöldið og því var spilað í einum 14 para riðli. Nokkuð mörg pör gátu hampað verðlaunum fyrir bestan ár- angur þessara þriggja kvölda og því spenna í lofti. Sumir höfðu jafnvel enn meiri áhuga á verðlaunum en aðrir og sendu menn fyrir sig síðasta kvöldið til að tryggja stöðu sína. Eins og oft áður var gestrisni okkar Borgfirðinga helst til mikil og það fór svo að lokum að Skagamennirnir Einar Guðmunds- son og Óli Björn höfðu sigur í mótinu. Heimamenn komu í humátt á eftir í næstu þremur sætum en Borgnesing- ar gerðu sér fimmta sætið að góðu. Lokastaðan í mótinu varð þessi: Einar Guðmundsson – Óli Björn 59,5% Guðm. Þorsteinss. – Flemming Jessen 57,4% Eyjólfur Sigurjónss. – Jóhann Oddss. 56,2% Ingim. Óskarss. – Hrannar Magnúss. 55,5% Anna Einarsdóttir – Jón H. Einarsson 54,1% Úrslit síðasta kvöldsins urðu sem hér segir. Sveinbjörn Eyjólfss. – Lárus Péturss. 72,1% Einar Guðmundsson – Óli Björn 63,5% Eyjólfur Sigurjss. – Jóhann Oddsson 57,1% Jón Eyjólfsson – Baldur Björnsson 55,8% Næsta keppni á svæðinu er sam- starfsverkefni bridsfélaganna í Borg- arfirði, Akranesi og Borgarnesi, Opna Borgarfjarðarmótið. Það er tvímenn- ingur sem verður spilaður á Akranesi 7. apríl, í Logalandi 11. apríl og aftur í Logalandi 18. apríl. Mótið er öllum opið og eru spilarar hvattir til að fjöl- menna. Þá er í lokin rétt að minna á Vest- urlandsmótið í tvímenningi sem spil- að verður á Akranesi 2. apríl nk. BRIDS Umsjón Arnór G. Ragnarsson

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.