Tíminn - 09.11.1988, Blaðsíða 7

Tíminn - 09.11.1988, Blaðsíða 7
Miðvikudagur 9. nóvember 1988 Tíminn 7 Fisksölur á Bretlands- og Þýskalandsmarkaði vikuna 31. október til 4. nóvember: Heildarverðmæti um 174 milljónir Ríflega 2710 tonn voru seld af flski á Bretlands- og Þýskalands- markaði í síðustu viku. Heildarverð- mæti aflans var um 174 milljónir króna. Þar af voru um 1403 tonn seld úr gámum eða fyrir sem svarar um 97 milljónir króna. Fjórir bátar seldu afla á Bretlandi í liðinni viku, samtals 631 tonn. Það voru Sléttanes IS (220 tonn), Gullver NS (155 tonn), Sigurey BA (137 tonn) og Þórhallur Danielsson SF (117 tonn). Heildarverðmæti aflans var tæpar 42 milljónir króna. Aflinn var þannig samsettur að 558 tonn voru af þorski, meðalverð 65 krónur, 54 tonn af ýsu, meðalverð 81,51 króna, 7,9 tonn af ufsa, meðalverð 44,43 króna, karfi 1,1 tonn, meðal- verð 40,43 krónur, 2,7 tonn voru seld af grálúðu, meðalverð 92,12 tonn og 6,6 tonn voru af blönduðum afla og fékkst 51,87 meðalverð á kílóið. 1.403 tonn voru seld á Bretlands- markaði í síðastliðinni viku. Þar af var þorskur 733 tonn, meðalverð 65,07 krónur, 340,6 tonn af ýsu, meðalverð 75,44 króna, 28 tonn af ufsa, meðalverð 48,78 krónur, 14 tonn af karfa, meðalverð 49,45 krónur, 189 tonn af kola, meðalverð 72,58 krónur, 14,8 tonn af grálúðu, meðalverð 58,84 krónur og 82,8 tonn af blönduðu og fékkst 86,24 króna meðalverð á kíló. Heildar- verðmæti gámasölunnar var rúmar 97 milljónir. í Þýskalandshöfnunum Cuxhaven og Bremerhaven lönduðu fjórir bát- ar í liðinni viku, samtals676 tonnum. Heildarverðmæti aflans var 34,8 ísað í gáma. milljónir króna. Ögri RE landaði 167 tonnum, meðalverð fyrir aflann var 59,66 krónur, Happasæll KE landaði 98 tonnum, meðalverð 40,37 krónur, Snæfugl SU landaði 212,8 tonnum og fékk 49,92 króna meðal- verð og Barði NK landaði 197 tonn- um og fékk 51,90 króna meðalverð. Aðaluppistaðan í aflanum var karfi (354,7 tonn) og ufsi (247 tonn). Meðalverðið fyrir karfann var 62,65 krónur og fyrir ufsann 39,24 krónur. -ABÓ Fjárlagafrumvarpið: Heimildir til ráðherra um kaup og sölur eigna í fjárlagafrumvarpi fyrir árið 1989 sem lagt hefur verið fram á Alþingi, er fjármáíaráðherra veittar heimildir til ráðstöfunar á ákveðnum fasteignum í eigu ríkisins. Þá er ráðherra einnig veitt heimild til að kaupa fasteignir og heimild til lántöku sem standa eigi straum af þeim kaupum, svo dæmi séu tekin. í 6. grein fjárlagafrumvarpsins kemur fram að ríkisstjórninni er heimilt: Að breyta fjárhæðum tekju- og gjaldamegin ef lög verða staðfest frá Alþingi 1989 sem hafa í för með sér tekjur eða gjöld fyrir ríkissjóð. Þá eiga allar fjárveitingar, sem ekki eru ákveðnar í lögum öðrum en fjárlög- um, forsetaúrskurðum eða öðrum gildandi ákvörðunum að gilda aðeins fyrir fjárhagstímabilið. Að ákveða að Landsíminn inn- heimti ekki stofngjöld síma árið 1989 hjá allt að 50 blindum einstakl- ingum, eftir tilnefningu Blindrafé- lagsins í Reykjavík. Tilskilið er að þessir einstaklingar séu fyrirvinnur heimilis eða vinni einir á vinnustað. Að ákveða að Landsíminn inn- heimti ekki stofngjöld og afnota- gjöld síma árið 1989 hjá allt að 50 fötluðum einstaklingum, eftir til- nefningu Sjálfsbjargar, landsam- bands fatlaðra. í sömu grein fjárlagafrumvarpsins kemur fram að fjármálaráðherra sé heimilt: Að stofna til tímabundins yfir- dráttar á viðskiptareikning ríkis- sjóðs í Seðlabankanum á árinu 1989 vegna árstíðabundinna sveiflna í fjármálum ríkisins og semja ef með þarf um greiðslu yfirdráttarskuldar og um lánskjör. Um eftirgjöf annarra gjalda en aðflutningsgjalda og sölugjalds segir að fjármálaráðherra sé heimilt: Að endurgreiða upphæð jafnháa skemmtanaskatti af fé sem aflað er með samkomum og rennur til efling- ar slysavörnum hér við land og til byggingar dvalar- og hjúkrunar- heimila aldraðra. Að fella niður eða endurgreiða stimpilgjöld af skuldabréfum sem skipasmíðastöðvar eða útgerðaraðil- ar gefa út til viðskiptabanka vegna endurlána bankanna á erlendum lán- um sem tekin eru með samþykki Fiskveiðasjóðs til nýsmíði fiskiskipa, endurbóta hvers konar, þar með talin tækjakaup og vélaskipti. Að fella niður stimpilgjöld af veðskuldabréfum sem út kunna að verða gefin vegna skipakaupa, enda veiti Fiskveiðasjóður ekki lán til kaupanna. Hámarksfjárhæð þeirra skuldabréfa, sem heimilt er að fella niður stimpilgjöld af, skal miðast við sama hlutfall af verði skips og Fisk- veiðasjóður lánar út á við kaup á skipum er falla undir almennar út- lánareglur hans. Heimild fjármálaráðherra til ráðstöfunar á eignum Um ráðstöfun eigna í sjöttu grein fjárlagafrumvarpsins segir að fjár- málaráðherra sér heimilt: Að selja fasteignina að Skútuvogi 7, Reykjavík. Að selja húseignina Hrísholt 8, Selfossi. Að selja eignarlóð Rafmagns- veitna ríkisins sem liggur að Gránu- félagsgötu og Grímseyjargötu á hafnarsvæði Akureyrar. Að selja fasteignina Hafnargötu 11, Seyðisfirði. Að selja húseignina Laugar- brekku 22, Húsavík. Að selja bóknámsdeildarhús Iðn- skólans í Hafnarfirði við Reykjavík- urveg. Að selja eignarhlut ríkisins í fast- eigninni að Hafnarstræti 6 á ísafirði. Að selja grænfóðurverksmiðjuna Fóður og fræ í Rangárvallasýslu. Að selja verksmiðjuhúsnæði, ásamt vélbúnaði og tækjum í eigu Síldarverksmiðja ríkisins á Húsavík. Að selja íbúðarhúsnæðið að Sig- túni, Grímsey, Eyjafjarðarsýslu. Að selja gamla skólastjórabústað- inn á Bíldudal. Að selja íbúð ríkisins í húseign- inni að Bröttuhlíð 5, Hveragerði. Að selja húseignina að Bæ III, Andakílshreppi, Borgarfjarðar- sýslu. Að selja skrifstofuhúsnæði skatt- stofunnar og bæjarfógetans á ísa- firði, en eins og kunnugt er hafa þessir aðilar nýlega flutt í nýtt stjórn- sýsluhús sem byggt hefur verið staðnum. Að selja húsnæði ÁTVR að Eyr- argötu 25 á Siglufirði. Að selja húsnæði ÁTVR við Laugarásveg f Reykjavík, en sem kunnugt er hefur ÁTVR opnað nýja útsölustaði í Mjódd og Kringlunni. Að afhenda hlutaðeigandi sveitar- félagi eða sveitarfélögum eignir landshafnanna á Rifi, Þorlákshöfn og f Keflavík og Njarðvík. Að selja Reykjavíkurborg allt að 57 ha af landi Póst- og símamála- stofnunarinnar í Gufunesi. Að selja hlut Póst- og símamála- stofnunarinnar í húseigninni Arnar- bakka 9 í Reykjavík og húseign stofnunarinnar að Blöndubyggð 10 á Blönduósi. Að selja húseign Rafmagnsveitna ríkisins við Grundargerði í Ólafsvík. Að selja húseignina Seljaveg 32 í Reykjavík þar sem Vitamálaskrif- stofan var til húsa og verja hluta andvirðisins til að byggja upp að- stöðu Vita- og hafnarmálastofnunar í Kópavogi. Að lokum er þess getið í þessum kafla fjárlagafrumvarpsins að ráð- herra sé heimilt að selja íbúðir í eigu ríkissjóðs við Grænás á Keflavíkur- flugvelli. Fasteignakaup og lántökuheimildir í sjöttu grein fjárlagafrumvarpsins kemur einnig fram hvaða fasteignir og lántökur eru fjármálaráðherra heimilar. Fjármálaráðherra erheim- ilt: Að kaupa húnæði fyrir Skattstofu Norðurlands eystra og taka til þess nauðsynleg lán. Að kaupa jörðina Gunnólfsvík I og II í Skeggjastaðahreppi í N-Múla- sýslu og taka til þess nauðsynleg lán. Að kaupa húsnæði til nota fyrir lögreglustöð á Raufarhöfn og taka til þess nauðsynleg lán. Að kaupa Hótel Valhöll á Þing- völlum og taka til þess nauðsynleg lán. Að kaupa húsnæði eða semja um aðild að byggingu stjórnsýsluhúss á Akranesi til nota sem skrifstofu- húsnæði fyrir ýmsar stofnanir ríkis- ins og taka til þess nauðsynleg lán. Að kaupa lóð og útihús við Nes- stofu á Seltjarnarnesi og taka til þess nauðsynleg lán. Að kaupa húsnæði fyrir heilsu- gæslulækni í Ólafsvík og taka til þess nauðsynleg lán. Að kaupa húsnæði fyrir heilsu- gæslustöð í Grindavík og taka til þess nauðsynleg lán. Að kaupa skrifstofuhúsnæði fyrir Stjórnarráð fslands og taka til jsess nauðsynleg lán. Að kaupa húseignir í nágrenni við Menntaskólann í Reykjavík og taka til þess nauðsynleg lán. Áð kaupa húsnæði fyrir ríkisstofn- anir og taka til þess nauðsynleg lán ef fullreynt þykir að ekki fáist fyrir þær leiguhúsnæði á viðunandi leigu- kjörum að mati fjárlaga- og hag- sýslustofnunar. Að kaupa kennarabústað á Eið- um, svonefnt Þórarinshús, og taka til þess nauðsynleg lán. Áð kaupa húsnæði á Höfn í Hornafirði til nota fyrir sóknarprest Bj arnanesprestakalls. Að lokum er gert ráð fyrir að fjármálaráðherra sé heimilt að kaupa lóð í Mjódd í Reykjavík og taka til þess nauðsynleg lán. Ýmsar heimildir í sjöttu grein fjárlagafrumvarpsins er einnig getið ýmissa heimilda fj ármálaráðherra. Fj ármálaráðherra er heimilt: Að heimila Heyrnar- og talmeina- stöð íslands að taka lán hjá Atvinnu- leysistryggingasjóði vegna kaupa á búnaði og tækjum til hávaðamælinga á vinnustöðum í samræmi við reglu- gerð. Að ábyrgjast lán að fjárhæð allt að 14.000 þús. kr. eða veita veð- heimildir að sama marki í fasteign- um ríkissjóðs á Bernhöftstorfu í Reykjavík til minjaverndar í því skyni að ljúka byggingaframkvæmd- um á Bernhöftstorfu. Að kaupa dagblöð fyrir stofnanir ríkisins allt að 250 eintökum af hverju blaði umfram það sem veitt er til blaðanna í 4. gr. frumvarpsins. Að fella niður eða endurgreiða aðflutningsgjöld og söluskatt af sjálf- virkum símstöðvum, fjölsímum, jarðsímum og radíótækjum sem flutt eru til landsins á vegum Póst- og símamálastofnunarinnar. Tekið er fram að fjármálaráðuneytið setji nánari reglur um framkvæmd þessa ákvæðis. Að fella niður allt að 10 m. kr. af vanskilum Grindavíkurhafnar að lokinni frekari athugun á fjármálum hennar og að fengnu samþykki fjár- veitinganefndar Alþingis. Að ábyrgjast með einfaldri ábyrgð lán sem Seyðisfjarðarkaupstaður kann að taka að upphæð allt að 24 m. kr. til byggingar dráttarbrautar. Að greiða bætur til þeirra sem sýkst hafa af alnæmi við blóðgjöf hér á landi fyrir 1986. Tekið er fram að bæturnar ákveðist af fjármálaráð- herra í samráði við heilbrigðisráð- herra. Að greiða mismun á trygginga- verði áburðarflugvélar og kaupverð annarrar áburðarflugvélar. Að semja við sóknarnefnd Naut- eyrarkirkju um uppgjör vegna af- hendingar kirkjunnar. Að semja við Grýtubakkahrepp um uppgjör skuldar vegna yfirtöku ríkisins á eignarhluta hreppsins ( Stórutjarnarskóla. Að ábyrgjast lán með einfaldri ábyrgð, að höfðu samráði við heil- brigðisráðherra, sem sveitarfélög óska að taka til þess að ljúka brýnum verkþáttum á sviði heilbrigðismála, enda liggi fyrir samþykki fjárveit- inganefndar. Að semja um greiðslu á ógreidd- um hlut ríkisins vegna framkvæmda við heilsugæslustöðvar fyrir Reyk- víkinga að tilskildu samþykki fjár- veitinganefndar. Að hafa makaskipti á hlut ríkis- sjóðs í heilsugæslustöðinni í Vogum og sambærilegri eign. -ABÓ

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.