Morgunblaðið - 21.01.2006, Blaðsíða 1

Morgunblaðið - 21.01.2006, Blaðsíða 1
STOFNAÐ 1913 20. TBL. 94. ÁRG. LAUGARDAGUR 21. JANÚAR 2006 PRENTSMIÐJA MORGUNBLAÐSINS mbl.is ÚTSALA ENN MEIRI VER‹LÆKKUN ÚTSALA Jafnræði á saumanámskeiði Karlarnir sauma sjálfir sinn búning | Daglegt líf Lesbók, Börn og Íþróttir Lesbók | Leitin að meistaraverkinu Leiksoppar sagnamanns Börn | Sigga og skessan á fjallinu  Sögurnar Gráni gamli og Heillastjarnan Íþróttir | Vildi fá Eið Smára til United  Viggó lofar betri leik hjá landsliðinu í dag Bagdad. AP, AFP. | Bandalag trúar- legra stjórnmálaflokka sjíta, Íraska bandalagið, fékk flest þingsæti í kosningunum í Írak 15. desember en þó ekki nógu mörg til að geta mynd- að stjórn án stuðnings annarra flokka, samkvæmt kjörtölum sem birtar voru í gær. Íraska bandalagið fékk 128 þing- sæti af 275, 18 þingsætum færri en í kosningum til bráðabirgðaþings fyr- ir ári. Bandalagið vantar tíu sæti til að ná meirihluta. Flokkar súnní-araba fengu þrefalt fleiri þingsæti en í janúar á liðnu ári þegar margir súnnítanna sniðgengu kosningarnar. Bandalag tveggja stærstu flokka Kúrda fékk 53 þingsæti, 22 færri en í fyrri kosningum. Bandalag Iyads Al- lawis, fyrrverandi forsætisráðherra, missti einnig þingsæti, fékk 25 en var með 40. Flokkarnir hafa nú fjóra daga til að gera athugasemdir við kjörtöl- urnar. Búist er við að þær verði stað- festar innan tíu daga. Bandalag sjíta náði ekki þingmeirihluta í Írak ENSK tunga verður sífellt fyr- irferðarmeiri í starfsemi svokall- aðra útrásarfyrirtækja. Stjórn- arfundir, hluthafafundir og samskipti með tölvupósti fara að stórum hluta fram á ensku. „Enskan er í rauninni orðin tungumál KB banka og er búin að vera það í nokkurn tíma,“ segir Jónas Sigurgeirsson, fram- kvæmdastjóri samskiptasviðs hjá KB banka. Jónas segir að allir stjórn- arfundir fari fram á ensku, enda nokkrir stjórnarmenn erlendir, og ársskýrslurnar eru eingöngu gefn- ar út á ensku. „Þar sem við erum orðin alþjóðlegur banki gefur auga- leið að upplýsingar þurfa að vera á ensku.“ Jónas segir og enn fremur: „Þeir Íslendingar sem vinna í al- þjóðlegu bankaumhverfi verða að vera tvítyngdir.“ Sífellt meira er kennt á ensku í háskólum landsins, mestallt MBA- og MA-nám í viðskiptadeild Háskól- ans í Reykjavík fer til að mynda fram á ensku. Háskóli Íslands er hins vegar eini skólinn sem hefur mótað sér málstefnu. | Lesbók Enskan verður stöð- ugt fyrir- ferðarmeiri ÁVÖXTUN hjá Lífeyrissjóði verzl- unarmanna var 20,9% á síðasta ári sem samsvarar 16,1% raunávöxtun. Þorgeir Eyjólfsson, forstjóri LV, segir við Morgunblaðið að nýliðið ár hafi verið langbesta rekstrarárið í 50 ára sögu sjóðsins. „Við fáum mögu- leika á að hækka lífeyrisréttindin um 4%,“ segir hann. Stjórn sjóðsins hefur tekið ákvörðun, m.t.t. til góðrar ávöxtunar og tryggrar stöðu sjóðsins, um að leggja til við aðildarsamtök LV að lífeyrisréttindi sjóðfélaga og greiðsl- ur til lífeyrisþega verði hækkaðar um 4% frá síðustu áramótum. Eignir LV námu 191 millj- arði kr. í árslok 2005 og hækkuðu um liðlega 40 milljarða á árinu eða um 26,7%. Alls greiddu tæp- lega 48 þúsund sjóðfélagar til sjóðsins í fyrra og námu iðgjaldagreiðslur 11 milljörð- um. Þá greiddu 6.800 fyrirtæki til sjóðsins vegna starfsmanna sinna. Nutu 7.400 lífeyrisþegar alls 2,9 milljarða kr. lífeyrisgreiðslna hjá sjóðnum í fyrra. Innlend hlutabréf skiluðu hæstu ávöxtun eignaflokka LV í fyrra eða 71,8% nafnávöxtun. Til samanburðar hækkaði Úrvalsvísitala Kauphallar- innar um 64,7% á sama tímabili. Rekstrarkostnaður sjóðsins var 0,06% af eignum eða sem nemur 64 aurum fyrir hverjar 1.000 krónur. Eignir metnar 6,1% umfram skuldbindingar sjóðsins Tryggingafræðileg úttekt sem miðast við árslok seinasta árs leiðir í ljós að eignir eru 6,1% eða 20,7 millj- arðar kr. umfram skuldbindingar. Eignir sjóðsins umfram áfallnar skuldbindingar nema 27,4%. Þrátt fyrir 4% hækkun lífeyrisréttinda frá 1. janúar sl. munu skv. upplýsingum LV, eignir sjóðsins umfram skuld- bindingar nema 4,3% eða 14,7 millj- örðum kr. að hækkuninni afstaðinni. LV ráðstafaði 46,3 milljörðum í fyrra til lánveitinga og hlutabréfa- kaupa. Lánveitingar til sjóðfélaga voru 8,6 milljarðar og voru þær 60% hærri en á árinu á undan. Innlend hlutabréfakaup námu 12,7 milljörð- um og sala hlutabréfa 13,1 milljarði. Erlend verðbréfakaup námu 13,3 milljörðum. Inneignir sjóðfélaga séreigna- deildar voru 4,1 milljarður í árslok og höfðu aukist um 39% frá fyrra ári. Ávöxtun séreignadeildar var 20,9%. Að mati Þorgeirs skýrist góð af- koma sjóðsins að stórum hluta af hagstæðri þróun á innlendum hluta- bréfamarkaði samhliða ágætri ávöxtun annarra verðbréfa. 20,9% ávöxtun Lífeyrissjóðs verzlunarmanna sú besta í sögu sjóðsins Tillaga um að réttindi sjóðfélaga hækki um 4% Eftir Ómar Friðriksson omfr@mbl.is Þorgeir Eyjólfsson „ÞETTA var hræðilega erf- itt, en það veitti okkur mik- inn styrk að minnast hennar með þessum hætti,“ segir Helga Margrét Marzellíus- ardóttir, sem var ein þeirra sem stóð að minningarathöfn síðdegis í gær á Hnífsdals- vegi um Þóreyju Guðmunds- dóttur, sem lést í bílslysi á veginum sl. fimmtudag. Fyrr um morguninn hafði verið minningarathöfn í Menntaskólanum á Ísafirði, þar sem Þórey stundaði nám. Að sögn Helgu Margrétar hefur verið ákveðið að fella niður þorrablót Mennta- skólans á Ísafirði sem halda átti nk. föstudag. Í staðinn er búið að skipuleggja kerta- fleytingu á Pollinum á Ísa- firði til minningar um Þór- eyju. Morgunblaðið/Halldór Sveinbjörnsson Minning- arathöfn á Hnífs- dalsvegi Jerúsalem. AFP. | Stjórnvöld í Ísrael kenndu í gær Írönum og Sýrlend- ingum um sjálfsmorðsárás Palest- ínumanns í Tel Aviv í fyrradag. Að minnsta kosti nítján Ísraelar særðust í tilræðinu. Shaul Mofaz, varnarmálaráðherra Ísraels, sagði að Ísraelar hefðu „óyggjandi sannanir“ fyrir því að Ír- anar hefðu „fjármagnað tilræðið, Sýrlendingar skipulagt það og Pal- estínumenn annast framkvæmdina“. Íslamskt Jíhad, herská hreyfing sem er með höfuðstöðvar í Sýrlandi, lýsti tilræðinu á hendur sér. Forseti Írans er í heimsókn í Sýrlandi og ræddi í gær við leiðtoga Íslamsks jí- hads og níu annarra róttækra hreyf- inga Palestínumanna. Kenna Íran og Sýrlandi um tilræði ♦♦♦
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.