Morgunblaðið - 13.05.2006, Blaðsíða 42

Morgunblaðið - 13.05.2006, Blaðsíða 42
Bærinn Potsdam er umluktur vatni á alla kanta og er því eins og eyja í sjálfu sér. Höfuðstöðvar sovésku leyniþjónustunnar KGB og austur-þýsku lögregl- unnar Stasi voru í Pots- dam, sem nú hefur ratað á heimsminjaskrá UNESCO. Jóhanna Ingvarsdóttir skoðaði m.a. fagrar hallir og fína garða í Potsdam. Potsdam kemur svo sann-arlega á óvart. Ólíkt þeimvæntingum, sem íslensk-ur ferðamaðurinn hefur fyrirfram byggt upp í huga sér af þessum fyrrverandi höfuðstöðvum Stasi og sovésku KGB-leyniþjón- ustunnar í Austur-Þýskalandi, tek- ur við fegurð, gróandi, hallir og ríkidæmi hvert sem litið er þegar ekið er inn í bæinn. Potsdam er rétt suðvestur af Berlín og þar búa um 144 þúsund íbúar. Aðeins er t.d. um hálftíma akstur frá Ól- ympíuleikvanginum í Berlín til Potsdam og því er ekkert því til fyrirstöðu að áhugamenn um knattspyrnu staðsetji sig þar með- an á heimsmeistarakeppninni stendur, en jánbrautarsamgöngur eru á milli staðanna. Háskólinn kennir gyðingafræði Kyrrð og afslappað andrúmsloft kúrir yfir umhverfinu á laug- ardagsmorgni. Nokkrir Íslend- ingar koma sér fyrir á NH Vol- taire Potsdam, nútímalegu fjögurra stjörnu hóteli í mið- bænum með öllum þægindum, og halda svo á vit sögunnar í fylgd Reginu Ebert, sem greinilega er öllum hnútum kunnug á svæðinu þegar hún hefur upp raust sína. Potsdam er höfuðborg Brand- enborgar, eins af sextán fylkjum Þýskalands. Ferðaþjónusta skipar stærstan sess í tekjuöflun íbúanna, en um fimm milljónir gesta sækja Potsdam nú heim á ári hverju. Smærri iðn- og tæknifyrirtæki er að finna í bænum auk þess sem tuttugu þúsund nemenda háskóli er þar til staðar, Potsdam Uni- versity, sem settur var á laggirnar eftir fall Múrsins 1989. Hann er sagður vera eini háskólinn, sem býður upp á nám í gyðingafræð- um. Þegar spurt er út í atvinnu- leysi svarar Regina því til að op- inberar tölur sýni 12% atvinnuleysi í Potsdam og allt að 20% atvinnuleysi í Brandenborg- arfylki öllu. En segja má að Potsdam sé hálfgerð eyja í sjálfu sér, umlukt vötnum á alla kanta. Tvær ár, Havel og Elbe, renna um borgina og við Aldi-matvörumarkaðinn, sem er í fínni kantinum og stendur við annan árbakkann, er ekki að- eins að finna bílastæði, heldur eru þar líka sérstök stæði fyrir báta til að auðvelda bátaeigendum aðgengi að versluninni. Ríka og fína fólkið býr í bænum „Potsdam virkar eins og út- hverfi frá Berlín og þar þykir nú orðið mjög fínt að búa. Hérna býr ríka og fína fólkið, en borgin er einkum fræg fyrir hallir og garða og hér er einkum skemmtilegt að fara í bátasiglingar og annað vatnasport, göngu- og hjólreiða- túra eða skoða einhverja af þeim 22 köstulum, sem hér eru til stað- ar og opnir eru almenningi. Þar sem bæði fegurðin og sagan á sér ítök í bænum er Potsdam nú á lista yfir menningarsöguleg verð- mæti UNESCO,“ segir Regina þegar við leggjum í’ann í þægi- legri rútunni þennan dag og stefnum fyrst í áttina að Cecilien- hof-höll, sem er ein af níu höllum Sanssouci-garðsins, sem nær yfir heila 290 hektara og er með um 70 km samfelldu göngustígakerfi. Í garðinum starfa að staðaldri um fimmtíu garðyrkjumenn. Hallirnar eru eins og risastór listaverk í sjálfu sér með allt að tvö hundruð herbergi hver. Það á ekki síst við um sjálfa Sanssouci- höllina, sem Friðrik mikli lét reisa sem sumarhús fyrir sjálfan sig um miðja átjándu öld, en þar vildi hann áhyggjulaus geta sinnt heim- spekilegum og tónlistarlegum hugðarefnum sínum. Þjóðhöfðingjar í Cecilienhof Gaman er að ganga um Cecilien- hof, sem byggt var 1913–16, og virða fyrir sér þá innanstokks- muni, sem þjóðhöfðingjar Banda- ríkjanna, Breta og Sovétmanna notuðust við þegar þeir komu þar saman til fundar 17. júlí til 2. ágúst 1945 til að ákveða framtíð Þýskalands, en þarna var einmitt hið fræga Potsdam-samkomulag undirritað af Truman, Attlee og Stalín. „Og Harry Truman var ein- mitt staddur í Cecilienhof þegar hann fékk skeytasendinguna „Barnið er fætt“. Í kjölfarið voru boð send frá Potsdam um að varpa fyrstu kjarnorkusprengjunni á Hi- roshima,“ segir Regina þar sem við virðum fyrir okkur fundarsal- inn, þar sem þjóðarleiðtogarnir sátu ásamt ráðgjöfum sínum fyrir rúmum sextíu árum. Á þessum sögufræga stað í Cecilienhof er m.a. að finna safn, veitingastað og hótel, þar sem m.a. má fá brúð- arsvítur í fögru umhverfi við ár- bakkann. Sovéskir hermenn heim 1994 Þótt kalda stríðinu svokallaða hafi formlega lokið með falli Múrs- ins árið 1989 hurfu síðustu sov- ésku hermennirnir ekki á braut frá Potsdam fyrr en fimm árum síðar eða í ágúst árið 1994. Mynd- arlegar endurbætur hafa aug- ljóslega farið fram á öllum húsa- kosti þarna síðan, en að sögn Reginu tóku hermennirnir allt til- tækt með sér úr húsunum og skildu þau eftir í mjög slæmu ástandi. Nú hafa þessi stóru vold- ugu hús fengið mikla andlitslyft- ingu. Götunöfn, sem áður voru rússnesk, eru nú orðin þýsk og nú þykir efnameiri Þjóðverjum orðið eftirsóknarvert að búa í Potsdam. Borgin virkar eins og segulstál á sífellt fleiri ferðamenn, sem ættu endilega að taka dagpart í að spóka sig á hollenska torginu svo- kallaða sem arkitektinn Boumann byggði upp á árunum 1737–42 í hollenskum stíl fyrir hollenska innflytjendur. Þar er m.a. hægt að virða fyrir sér stæðilega og vel klædda varðmenn, sem leika kúnstir, kíkja inn í litlar sætar verslanir og snæða snitsel og sötra dökkan bjór úr bjórtönkum Hof Bräuerei.  ÞÝSKALAND | Fimm milljónir ferðamanna sækja Potsdam heim á ári hverju Rólegheit og ríkidæmi Morgunblaðið/JI Mara Zanghirella, starfsmaður þýska Ferðamálaráðsins, nýtur hér vernd- ar stæðilegra varðmanna á hollenska torginu í Potsdam. TENGLAR ..................................................... www.potsdam.de www.nh-hotels.com www.relexa-hotels.de Í Cecilienhof komu þjóðhöfðingjar Bandaríkjanna, Bretlands og Sovétríkj- anna saman árið 1945 til að funda um framtíð Þýskalands. 42 LAUGARDAGUR 13. MAÍ 2006 MORGUNBLAÐIÐ DAGLEGT LÍF Í MAÍ Góð gisting í Kaupmannahöfn Hótel í miðbænum. Snyrtileg herbergi. 295 danskar kr. fyrir manninn í 2ja manna herb. með wc og sturtu. Tökum einnig á móti hópum. Løven Hotel, Vesterbrogade 30, DK-1620 Cph. V. Sími +45 33 79 67 20. www.loeven.dk • loeven_bb@hotmail.com Sími: 50 50 600 • www.hertz.is Bókaðu bílinn heima - og fáðu 500 Vildarpunkta Vika í Evrópu ÍS LE N SK A A U G LÝ SI N G A ST O FA N /S IA .I S H ER 3 25 46 05 /2 00 6 16.600 Ítalía * kr. - ótakmarkaður akstur, kaskó, þjófavörn, flugvallargjald og skattar. 13.200 Spánn kr. - ótakmarkaður akstur, kaskó, þjófavörn, flugvallargjald og skattar. 19.400 Holland kr. - ótakmarkaður akstur, kaskó, þjófavörn, flugvallargjald og skattar. 17.900 Bretland kr. - ótakmarkaður akstur, kaskó, þjófavörn, flugvallargjald og skattar. 24.200 Danmörk kr. - ótakmarkaður akstur, kaskó, þjófavörn, flugvallargjald og skattar. * Verð miðast við gengi 1. maí 2006. * * * *
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.