Morgunblaðið - 08.09.2008, Blaðsíða 9
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 8. SEPTEMBER 2008 9
Opið virka daga frá kl. 10-18 laugardaga frá kl. 10-16
• Engjateigur 5
• Sími 581 2141
Hversdagskjólar
BRIDS
SKÓLINN
- - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - -
Byrjendur ... 22. september ... tíu mánudagar frá 20-23
Framhald ... 24. september ... tíu miðvikudagar frá 20-23
- - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - -
• Bridsskólinn hefur starfað í rúm 30 ár og býður jafnaðar-
lega upp á námskeið fyrir byrjendur og fjölbreytt fram-
haldsnámskeið fyrir þá sem vilja auka kunnáttuna.
• Hvert námskeið stendur yfir í 10 kvöld, einu sinni í viku,
þrjár klukkustundir í senn.
• Hægt er að mæta stakur, í pari eða í hóp.
• Námskeið skólans eru haldin í húsnæði Bridssambands
Íslands, Síðumúla 37 í Reykjavík.
• Mörg stéttarfélög styrkja þátttöku félagsmanna sinna.
• Sjá ennfremur á Netinu undir bridge.is/fræðsla.
- - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - -
Uppl. og innritun í síma 564-4247 frá 13-18 daglega.
♦
♦
♦
♦
♦
♦
♦
♦
♦
♦
♦
♦
♦
! "#! $%#& '& () '*+#$$,)) #$ '#-)#. /
,!#0 +0& 0$ 1 2- -)#- 34 35661
3333367748
#$!'!- 2 9 ! )#- #$ '#-)#. ! 8333333333 )!1 :!
2 '!- '!!! ##&! ! 7333333 )!
*+$!#! ',! &#! 9 66 .2"! ;33< *+#$$# ! 57= ( ->$?
!@&&- ! ,& &!#-# / $ # "!A 9& / $,)&B$& '*+$
66 .2"! ;334
'(+ ! & )(! 2 ##$ ! #22 '!>.)
") * B( 2 $ ($$ 2 ,& / B/!! 6;7= :/() * C)) / )(!?
# D..&&# )(! ! ! 633 D#!$#&&B# A$(& ! ,@$ E)
,
0,$ !, . .$01 +#
1 ,22!F") 1 ,! E ,& 0
E) #- ..&B(! '*+#$# '#- &&# )(! ! / $,)&B$&
,!#0 +0& 0$ 2 ) "!A# #$ '#-)#. 4 .2"!
;334
D2B> 2- ($ '*+$ ,& () #$ '#-)#. / ,!#0 +0& 0$ ! $##!
")# 1 #!)B # ;1 677 @)B'*) %#& ,& ( ! &(& 2 '#- ! #$ * # !
C& - /$& B/ # 1 @$$( 51 66; @)B'*) ,& / #2*- 1
GGG$#1 !2 #$ $,)& '*+$
@)B'*)1 4 .2"! ;334
D D H Eftir Svanhildi Eiríksdóttur
Reykjanesbær | Það varð uppi fótur og fit á
Ljósanótt þegar tröll og jötnar komu
þrammandi eftir Ægisgötu í veg fyrir sviðið,
þar sem megnið af dagskránni fór fram. Þau
voru komin alla leið frá Vestmannaeyjum til
þess að aðstoða við að koma lífi í skessuna í
Skessuhelli. Ljósanæturgestir þustu á eftir
enda hefur mikil eftirvænting legið í loftinu
vegna flutninga skessunnar til Reykjanes-
bæjar. Hún kom íbúum bæjarins í 14.214.
Skessan er hugverk Herdísar Egilsdóttur
og í marga áratugi hafa Íslendingar skemmt
sér við lestur á bókunum um Siggu og
skessuna. Sú nýjasta leit dagsins ljós í upp-
hafi ljósanætur, Sigga og skessan á Suður-
nesjum, en þar fær almenningur skýringu á
því hvers vegna skessan er flutt til Reykja-
nesbæjar. Herdís afhjúpaði skilti við aðkom-
una að Skessuhelli þar sem finna má allar
upplýsingar um verkið, stuðningsaðila og
listamenn, en það er Norðanbál sem á hug-
myndina að verkinu og framkvæmd þess.
Hópnum var þakkað fyrir að hafa unnið verkið
hér. Að því loknu var gestum hleypt inn í hell-
inn í hollum og í langa stund var dágóð biðröð
eftir stígnum að hellinum.
Skessuhellir verður að teljast hápunktur
þessarar Ljósanætur enda var kynt undir
stemningunni nokkrum dögum fyrir hátíðina
með dularfullum og risaxöxnum fótsporum
víðsvegar um bæinn. Flugeldasýningarinnar
var ekki síður beðið með eftirvæntingu, enda
mikill metnaður í að gera hana vel úr garði ár
hvert. Skotið hefur verið á töluna 50 þúsund
yfir þá gesti sem fylgdust með.
Lista- og vísindasmiðja
Annars hefur þróun Ljósanætur orðið sú að
dagskráin dreifist jafnt og þétt frá fimmtudegi
til sunnudags, bæjarbúum til ánægju. Bæði
voru opnaðar sýningar á fimmtudegi og föstu-
degi, boðið var upp á fjölskyldudagskrá á svið-
inu við Ægisgötu og leiktæki voru víðsvegar
um bæinn. Á laugardeginum hefur árganga-
gangan verið vinsæl, gestir fylgjast af áhuga
með fornbílunum sem aka niður aðalgötuna og
í ár fóru hálandaleikarnir fram í Reykjanesbæ.
Þá kynnti Karlakór Keflavíkur nýútkomna
plötu sem þeir unnu ásamt poppgoðum Suður-
nesja, Þú lýgur því, og í gær leiddu Léttsveit
Tónlistarskóla Reykjanesbæjar og hljóm-
sveitin Hjaltalín saman hesta sína í Andrew’s
Theater.
Ein athyglisverðasta nýjungin þessa Ljósa-
nótt var lista- og vísindasmiðja sem leikskólinn
Holt bauð upp á í porti við Tjarnargötu og
skemmtu margir sér þar löngum stundum, auk
þess sem fjöldi skemmtilegra verka leit dags-
ins ljós.
Fjölmargir gestir lögð leið sína til bæjarins
og mátti sjá mikinn fjölda af húsbýlum á opn-
um svæðum. Einstök veðurblíða var alla dag-
ana, sem breytti öllu varðandi skemmtilega
stemningu í bænum. | 37
Áhugi Ljósanæturgestir, ungir sem aldnir, hópuðust á eftir jötnum og tröllum til að halda til fundar við skessuna.
Hápunktur Ljósanætur var þegar
skessan flutti úr Eyjum í Reykjanesbæ
Kíkt Skessan kíkir á gesti gegnum rimla.
Morgunblaðið/Svanhildur Eiríksdóttir
Hugmyndasmiður Herdís Egilsdóttir afhjúp-
aði upplýsingaskilti við aðkomuna að hellinum.