Stúdentablaðið

Árgangur

Stúdentablaðið - 01.05.1998, Blaðsíða 18

Stúdentablaðið - 01.05.1998, Blaðsíða 18
B œ k u r Ll d: Stúdentablaðið Glímt við Njálu og Laxness I etjan og höfundurinn, brot úr íslenskri menningarsögu, eftir Jón Karl Helgason er að koma út frá Heimskringlu, Háskólaforlagi I Máls og menningar. Bókin er afrakstur af rannsóknum á viðtökum á Njáls sögu sem Jón Karl hóf samhliða framhaldsnámi í samanburðar- bókmenntum í Bandaríkjunum. Jón Karl fjallar í þessu geysiáhugaverða verki um viðhorf íslensku þjóðarinnar til íslendingasagna og einkum áhuganum á Njálu sem listaverki mikilhæfs en óþekkts höfúndar. Hetjan og höfundurinn er leiftrandi innlegg í þá miklu umræðu um Is- lendingasögurnar sem fram fer nú um stundir. Ekki einatt eru efnistök- in bæði nýstárleg og skemmtileg heldur leiftra skrif Jóns Karls af fjöri. Bókin er einkar læsileg og auðveld aflestrar enda stíll Jóns Karls meitl- aður. Þessa bók ætti enginn áhugamaður um íslenska menningu að láta fram hjá sér fara né heldur þeir sem unun hafa af lestri fornsagnanna. Þetta er fræðimennska eins og hún gerist best og skemmtilegust og höfðar bókin jafiit til lærðra sem leikmanna. Jón Karl fer á kostum þar sem hann beinir sjónum að rétt- __.— ^ \ arhöldum íslenskra skálda yfir Hallgerði langbrók svo og í um- fjöllun um umdeilda út- gáfu Halldórs Laxness á fornsögunum um mið- bik aldarinnar. I niður- íagi bókarinnar eru , -Nóbelsverðlaun Halldórs ‘túlkuð í ljósi þeirrar hug- myndar að höfundurinn hafi leyst hetjuna af hólmi sem aðalpersóna íslenskrar *' menningarsögu. Jón Karl glímir hér við skilning á sjálfsmynd íslendinga af mik- illi leikni og tengir saman ólíka menningarsögulega »þætti úr ólíkum áttum. Jón Karl segir í inngangi bók- arinnar að lykilhugtök hennar séu hetjan og höfundurinn, líkt og merkja má af titilinum. Með hetjunni vísar hann til persónu fornsagnanna, einkum til þeirra kappa sem Islend- ingar hafa dáð í gegnum tíðina fyrir líkamsburði eða andlegt atgervi. Höf- undarhugtakið segir Jón að beri að taka með ögn meiri fyrirvara. Það vísi í senn til hinna dularfullu höfunda fornsagnanna og þeirra höfunda sem hafa mótað íslenska menningu nútímans. Meginmarkmið Jóns Karls er að lýsa með hvaða hætti höfundurinn tekur í rauninni við af hetjunni sem aðalpersóna menningarsögunnar. Að baki bókinni segir Jón Karl að búi löngunin til að skilja betur sjálfsmynd Islendinga og glímu okkar við hana. En bæði hetjan og höfúndurinn hafi hvor með sínum hætti átt þátt vi að skapa þjóðinni farveg eða markmið á nítjándu og tuttugustu öld. bgs Samræður Vésteins Vésteinn Ólason er að góðu kunnur eftir áralangt fræðastarf við Há- skóla íslands. Heimskringla, bókaforlag Máls og menningar, sendi á dögunum frá sér nýtt verk eftir Véstein og ber það nafnið Sam- ræður við söguöld, frásagnalist Islendingasagna í fortíðarmynd. Vé- steinn heldur því fram að íslend- ingasögur séu samræður höf- unda þeirra við fortíð sína, samræður miðalda við sögu- öld. Þar leiti sagnamenn að skilningi á heimi fyrri tíða og sjálfum sér í leiðinni. Hinsvegar ijallar Vésteinn um samræður nútímales- enda við fortíðina og tíl- raunir þeirra til að taka þátt í orðaskiptum þeirra eldri frá eigin sjónar- miði. Samræður við söguöld er nauðsyn- legt og gott innlegg í umræðu manna um íslendingasögurnar enda áhugi almenn- ings á þeim mikill um þessar mundir. bgs Ólíkar leiðir • einsögunnar Einsagan - ólíkar leiðir, átta ritgerðir og eitt mynd- listarverk er ný bók sem var að skella í hillum bókabúða. Á ferðinni eru einsögur sem er ný rannsóknaraðferð í sagnfræði. Sá hópur fræðimanna sem skrifar þær ellefu einsögur sem er að finna í verk- inu hefur leitast við að tileinka sér aðferðir einsögunn- ar með einum eða öðrum hætti. Rannsóknir þeirra ungu fræðimanna sem einsögurnar rita þykja leiða vel í ljós möguleika hennar í ljölbreytilegri nálgun á við- fangsefni í sagnfræði og þarna leggja skáldskapur og listir sitt af mörkum tíl að gæða sagnfræðina nýju lífi. Meðal höfunda efnis eru Erla Hulda Halldórsdóttir, Inga Huld Hákonardóttir, Jón Aðalsteinn Bergsveins- son og Sigurður Gylfi Magnússon. I verkinu stíga í fyrsta sinn fram á sviðið ungir fræðimenn, ásamt nokkurra gamalreyndra, og gekk vinnan þannig fyrir sig að hópurinn hittíst einu sinni í mánuði í eitt og hálft ár til að ræða mikilvægi og þýðingu persónu- legra heimilda í sagnfræði. Einsagan er rannsóknaraðferð sem á ensku kallast microhistory og er kjarni aðferðarinnar sá að nýttar eru persónulegar heimildir við rannsóknina. Ritgerð- irnar eru afrakstur umræðu og rökræðna hópsins og eru fyrir margra hluta sakir einstaklega forvitnileg lesning, enda tæpt á mörgu. Til að mynda skrifar Jón Aðalsteinn leiftrandi snjalla ritgerð um sjálfsævisögu Matthíasar Jochumssonar og Svavar Hávarsson ritar góða grein um glímu Björns Halldórssonar í Loð- mundarfirði við líf og dauða, svo eitthvað sé nefiit. Einsagan, ólíkar leiðir er verðskuldaður vitnisburður þeirrar grósku sem er í fræðastundi á Islandi nú um stundir. Þrælskemmtíleg lesning sem enginn áhuga- maður um húmanísk fræði ætti að láta fram hjá sér fara. Bókin er á afslættí í Bóksölu stúdenta á 1599. / Ein athyglisverðasta Ijóðabók seinni missera er að ar Hafsfeinsson sem hannar útlitið og brýtur hana um. lífa dagsins Ijós nú um múnaðamótin. Það er Nýund Hrafn Jökulsson ó veg og vanda að útgófu bókarinn- eftir Geirlaug Magnússon. Geirlaugur hefur sent fró sér ar en hann gaf út nokkuð af Ijóðabókum fyrir nokkrum nokkurn fjölda Ijóðabóka í gegnum fíðina og hefur þóft órum þegar hann'rak bókaforlagið Flugur. Hér fer ó eiff af okkar bestu skóldum. Útlit bókarinnar er ekki af eftir eitt af Ijóðum Nýundar. verri endanum enda er það galdramaðurinn Jón Ósk- þá nótt kom ég ekki heim og það hefur hent margan ungan mann og konu - og heim hvert er það og hvar er það - að endingu komumst við öll heim eða enginn kemst heim eða heiman en þessa nótt komst ég ekki úr nóttinni sem var þó í engu markverð nótt hvorki ilmandi dísæt júnínóttin seiðandi haustnótt né vetrarnótt alsett stjörnum með norðurljósa- hárbandið - nei aðeins nótt ekki sú eina né sú sanna aðeins nótt og þar er ég

x

Stúdentablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Stúdentablaðið
https://timarit.is/publication/350

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.