Morgunblaðið - 10.06.2009, Blaðsíða 29

Morgunblaðið - 10.06.2009, Blaðsíða 29
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 10. JÚNÍ 2009 Á tímum þar sem fólk upplifirástina í sýndarveruleik-anum, segist vera hætt að trúa á hana eða hafa engan tíma til að finna hana er Ástin á tímum ömmu og afa yndisleg lesning. Bók- in er engin upphafin skálduð ást- arsaga heldur saga manns og konu sem fella hugi saman í Húnaþingi í byrjun 20. aldar. Hún er ástarsaga sem átti sér stað í íslenskri sveit, saga sem er byggð á staðreyndum, bréfum og bókum.    Ástin á tímum ömmu og afa erlokaverkefni Önnu Hinriks- dóttur menningarmiðlara í meist- aranámi í hagnýtri menningar- miðlun við Háskóla Íslands og kom nýverið út í ritröðinni Sýnisbók ís- lenskrar alþýðumenningar. Bókin fjallar um tilhugalíf og fyrstu árin í hjónabandi afa hennar og ömmu, Bjarna Jónassonar og Önnu Sig- urjónsdóttur. Bókina byggir hún á bréfum og dagbókum afa síns sem starfaði sem kennari, fræðimaður og bóndi. Markmið Önnu er að skyggnast inn í ástarsamband tveggja ein- staklinga og samfélagið sem mótaði þá. Bókin veitir ekki aðeins innsýn í ástarlíf Bjarna og Önnu heldur gef- ur hún góða mynd af íslensku sam- félagi í upphafi seinustu aldar en Bjarni hélt dagbók og skráði í hana það sem á daga hans dreif í hvers- dagslífinu.    Yndislegt er að lesa eldheitar til-finningar Bjarna til Önnu, á tímum sem maður ímyndar sér að orðið ást hafi ekki oft verið nefnt. Á tímum sem maður hélt að hjóna- bönd hefðu frekar verið byggð á vinskap eða hagsmunum en ást. Bónorðsbréf Bjarna til Önnu geta ekki látið neinn ósnortin, þar fær lesandinn að skyggnast inn í hugarheim ungs manns um 1920 og þar er mikinn eldhug að finna. Bjarni er mjög vel máli farinn og ljóðrænn í skrifum sínum. Hann er feiminn og segist verða eins og feiminn unglingur innan við tvítugt í návist Önnu en í bréfum sínum opnar hann sig og segir henni allan hug sinn. Anna neitar fyrsta bón- orði Bjarna, sem hann ber upp bréf- leiðis, en hann gefst ekki upp og stefnir að settu marki af einlægni, einurð og ást eins og segir í bókinni og skrifar Önnu sextán síðna bréf. Er það þriðja bréfið sem hann biður um hönd hennar í á tveimur árum. Allt er þegar þrennt er. Skömmu síðar fær Bjarni bréf frá Önnu þar sem hún játast honum og játar hon- um ást sína. Notar Bjarni blað og penna til að tjá tilfinningar sínar við þessar gleðifréttir. „Hún elskar mig. Ó!, hvað þessi orð hljóma yndislega, og sál mín endurómar þau frá insta hjartans grunni. Mjer finst nú sem öll nátt- úran hafi fengið mál, og alt hefir sömu söguna að segja: Hún elskar þig,“ skrifar Bjarni. Bókarhöfundur segir í eftirmál-anum að hún telji að þetta inn- lit í einkalíf ömmu sinnar og afa beri þeim mjög fagran vitnisburð og haldi minningu þeirra á lofti um leið og það geti hvatt aðra til að rækta góðar og fallegar tilfinn- ingar í sjálfum sér. Tel ég það rétt hjá henni því saga Önnu og Bjarna getur ekki annað en snert við þeim sem les. Svo var það með undirrit- aða sem varð mjög snortin af til- finningum og hversdagslífi ókunnugs fólks sem var uppi á of- anverðri tuttugustu öld. ingveldur@mbl.is Ástarsaga úr íslenskri sveit AF LISTUM Ingveldur Geirsdóttir » Bókin er engin upp-hafin skálduð ást- arsaga heldur saga manns og konu sem fella hugi saman í Húna- þingi í byrjun 20. aldar. Ástin á tímum afa og ömmu Bjarni Jónasson gafst ekki upp. Í tilefni af útkomu bókarinnar býð- ur Anna Hinriksdóttir til dagskrár í félagsheimilinu Húnaveri sunnu- daginn 14. júní kl. 15. Þar fer fram upplestur, sýning byggð á umfjöll- unarefni bókarinnar, sýnd stutt- myndin Hjónin í Hólum - mynd af ömmu og afa, sýnd myndverk eftir Bjarna Hinriksson og á staðnum verður kaffisala á vegum Kven- félags Bólstaðarhlíðarsóknar. BENNI okkar Hemm Hemm er búin að koma sér vel fyrir í Edinborg en í gær birt- ist við hann flennistórt viðtal í The Her- ald, virtasta dagblaði Skotlands. Í upphafi lýsir Benni fyrir blaðamann- inum muninum á að keyra brassbands- útgáfuna af Benna Hemm Hemm og niðurstrípaða „skoska“ útgáfu. Hann lýsir svo smágerðu og þéttu tónlistar- lífinu hér á landi, þar sem allir hjálp- ast að. Blaðamaður lýsir í framhaldinu í hrifningu hvernig tveir meðlimir úr Hjaltalín hoppuðu upp á svið með Benna óforvarandis á dögunum er hann hitaði upp fyrir hana í maí síðastliðnum. Í „skosku“ útgáfunni af Benna Hemm Hemm eru þau Emily Scott, söngkona og kontrabassa- leikari og trymbillinn Owen Williams úr hljóm- sveitinni Pinapple Chunks. Benni segist uppnuminn af hinni ótrúlegri grósku sem er í Edinborg, honum hafi verið sagt að hlutirnir væru að gerast í Glasgow, en það sé greinilega ekki málið og hann nefnir til sveitir eins og Withered Hand, Eagleowl og Found. Þá kemur fram að Benni hefur nýlokið við að semja tónverk fyrir blást- urssveit og tvo söngvara. Annar mun syngja á ís- lensku en hinn á skoskri ensku. Benni er nú á leið í túr um Þýskaland, Austurríki og Tékk- land og í gær hélt hann tónleika á Electric Circus þar sem hann fagnaði Evr- ópuútgáfu þriðju plötu sinnar, Murta St. Calunga. Sáttur Benni Hemm Hemm finnur sig í Edinborg. Uppnuminn af gróskunni Morgunblaðið/G.Rúnar 568 8000 – borgarleikhus.is – midasala@borgarleikhus.is Söngvaseiður (Stóra sviðið) Sannleikurinn (Stóra sviðið) Djúpið – HHHHH PBB, FBL Við borgum ekki (Nýja sviðið) Uppsetning Nýja Íslands. Söngvaseiður. Sala hafin á sýningar í haust. Djúpið (Litla sviðið) Munið afslátt fyrir viðskiptavini Vodafone! Lau 20/6 kl. 19:00 stóra svið Lau 27/6 kl. 19:00 stóra svið Fös 3/7 kl. 19:00 stóra svið Lau 11/7 kl. 19:00 stóra svið Fim 11/6 kl. 20:00 U Fös 12/6 kl. 20:00 U Lau 13/6 kl. 14:00 U Lau 13/6 kl. 18:00 Ný aukasÖ Sun 14/6 kl. 16:00 U Fös 4/9 kl. 19:00 Ö Lau 5/9 kl. 19:00 Ö Sun 6/9 kl. 19:00 Ö Mið 9/9 kl. 19:00 U Fim 10/9 kl. 19:00 Ö Fös 18/9 kl. 19:00 Ö Lau 19/9 kl. 19:00 Ö Fim 11/6 kl. 20:00 Fös 12/6 kl. 20:00 Fim 18/6 kl. 20:00 Fös 19/6 kl. 20:00 Mið 10/6 kl. 20:00 Ö Fim 11/6 kl. 20:00 Ö Lau 12/6 kl. 19:00 Ö Lau 13/6 kl. 19:00 Ö Sun 14/6 kl. 20:00 Ö Fim 18/6 kl. 20:00 GREASE – Vinsælasti rokksöngleikur allra tíma! Mið 10/6 kl. 20:00 forsýn.U Fim 11/6 kl. 20:00 frums. U Fös 12/6 kl. 20:00 2. sýn Ö Lau 13/6 kl. 20:00 3.sýn U Sun 14/6 kl. 16:00 4. sýn Ö Lau 20/6 kl. 16:00 5. sýn Ö Sun 21/6 kl. 16:00 6.sýn Ö Fös 26/6 kl. 20:00 7.sýn Lau 27/6 kl. 20:00 8.sýn Sun 28/6 kl. 16:00 9.sýn Leikfélag Akureyrar Miðasölusími: 4 600 200, netfang: midasala@leikfelag.is Fúlar á móti ATH! sýnt í Íslensku Óperunni Sími 511 4200 Sýningum lýkur í júní Fim 11/6 kl. 20:00 Ný aukas. Fös 12/6 kl. 20:00 Ný aukas ■ Fimmtudaginn 11. júní kl. 19.30 Söngperlur Stjórnandi: Hannu Lintu Einsöngvari: Emma Bell W. A. Mozart: Exsultate, jubilate Ludwig van Beethoven: Sinfónía nr. 2 Samuel Barber: Knoxville & School for Scandal Giacomo Puccini: Intermezzo úr Manon Lescaut Franz Lehár: Meine Lippen sie küssen so heiss Johann Strauss: So elend und so treu Hvað er betra en að heyra yndislegar söngperlur fluttar af listamanni sem hefur hvarvetna hlotið lof fyrir næma og fágaða túlkun sína? Á síðustu áskriftartónleikum starfs- ársins syngur ein frægasta unga sópransöngkona okkar tíma. Tryggið ykkur miða á þessa einstöku tónleika. Miðasala S. 545 2500 www.sinfonia.is ÞJÓÐLEIKHÚSIÐ Sími 551 1200 / midasala@leikhusid.is / www.leikhusid.is Teach us to outgrow our madness (Stóra sviðið) Frida... viva la vida (Stóra sviðið) Vínland - athyglisverðasta áhugaleiksýningin 08/09 (Stóra sviðið) Kardemommubærinn (Stóra sviðið) Fös 19/6 kl. 20:00 Fös 11/9 kl. 20:00 Frums. U Lau 12/9 kl. 20:00 2. sýn. Ö Fös 18/9 kl. 20:00 3. sýn. Ö Fös 12/6 kl. 20:00 Ö Lau 19/9 kl. 20:00 4. sýn. Ö Fös 25/9 kl. 20:00 5. sýn. Lau 26/9 kl. 20:00 6. sýn. Fös 2/10 kl. 20:00 7. sýn. Lau 3/10 kl. 20:00 8. sýn. Sun 30/8 kl. 17:00 Ö Sun 6/9 kl. 14:00 Ö Sun 6/9 kl. 17:00 Ö Sun 13/9 kl. 14:00 Ö Sun 13/9 kl. 17:00 Ö Lau 13/6 kl. 14:00 Ö Lau 13/6 kl. 17:00 Ö Sun 14/6 kl. 14:00 Ö Sun 14/6 kl. 17:00 Ö Sun 30/8 kl. 14:00 Ö Sun 20/9 kl 14:00 Ö Sun 20/9 kl 17:00 Ö Sun 27/9 kl 14:00 Ö Aðeins ein sýning, tryggið ykkur sæti í tíma Sýningar haustsins komnar í sölu Sýningar haustsins komnar í sölu Erna Ómarsdóttir með magnaða danssýningu. Aðeins ein sýning.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.