Morgunblaðið - 21.08.2009, Blaðsíða 1

Morgunblaðið - 21.08.2009, Blaðsíða 1
ÍSLENSKA kvennalandsliðið í fótbolta hélt til Finnlands í morgun þar sem úrslitakeppni Evrópumótsins hefst á sunnudag. Síðasta æfing liðsins á Ís- landi fór fram í gær en fyrsti leikur liðsins er gegn Frökkum á mánudag. Ísland er í sterkum riðli en Ísland leikur gegn Noregi fimmtudaginn 27. ágúst og gegn Þjóðverjum sunnudaginn 30. ágúst. Tvö efstu liðin í hverjum riðli komast í átta liða úrslitin ásamt þeim tveimur sem ná besta árangri í þriðja sæti. | Íþróttir Einbeittar íslenskar landsliðskonur á leið á EM Morgunblaðið/Eggert Stóra stundin nálgast DAGLEGT LÍF F Ö S T U D A G U R 2 1. Á G Ú S T 2 0 0 9 STOFNAÐ 1913 225. tölublað 97. árgangur Landsprent ehf. MBL.IS Morgunblaðið hvar sem er hvenær sem er 95 ára mbl.is NÖRDAGLERAUGUN, STERKIR STRAUMAR Í FÖRÐUN, GRILLAÐ BRAUÐ, HEITASTI KRIMMINN  Framkvæmda- stjóri Atlants- hafsbanda- lagsins, Anders Fogh Rasmussen, segir menn meta mikils framlag Íslands til NATO. Hann álíti ekki að vilji ráða- manna hér til að taka áfram þátt í samstarfinu hafi dvínað. „Við vitum að sem stendur eiga Íslendingar við mikla efnahags- erfiðleika að stríða, eins og fleiri þjóðir. En ríkisstjórn Íslands hef- ur staðfest í samtölum við mig í dag að þið munuð sem fyrr leggja fram ykkar skerf til NATO og það nægir mér.“ »14 Fogh er sáttur við framlag Íslands til NATO Anders Fogh Rasmussen Eftir Þórð Snæ Júlíusson thordur@mbl.is FJÁRMÁLARÁÐUNEYTIÐ leitar nú allra leiða til að tryggja opinbera eigu á eignarhlut Orkuveitu Reykja- víkur (OR) í HS orku, samkvæmt heimildum Morgunblaðsins. Meðal annars hefur verið rætt um að Reykjavíkurborg, íslenska ríkið og RARIK ohf. kaupi saman um 22 pró- sent af eignarhlut Orkuveitu Reykjavíkur (OR) í HS orku. Auk þess hefur verið rætt um að opinber- ir aðilar nýti með einhverjum hætti forkaupsrétt sinn, í gegnum OR, á þeim hlut í HS orku sem Reykjanes- bær seldi Geysi Green Energy (GGE) og Magma Energy fyrr í sumar, en forkaupsrétturinn rennur út 24. september. Málið verður að öllum líkindum rætt á ríkisstjórnar- fundi í dag en þröng fjárhagsstaða hins opinbera flækir það enn frekar. Fundað á miðvikudag Guðlaugur Gylfi Sverrisson og Hjörleifur Kvaran, stjórnarformað- ur og forstjóri OR, gengu á fund Steingríms J. Sigfússonar fjármála- ráðherra síðdegis á miðvikudag ásamt Hönnu Birnu Kristjánsdóttur, borgarstjóra í Reykjavík. Ekki hefur verið upplýst opinberlega um hvað var rætt á fundinum en heimildir Morgunblaðsins herma að þar hafi verið ræddar mögulegar leiðir til að halda 32 prósenta hlut OR og Hafn- arfjarðar í HS orku í opinberri eigu, en kanadíska jarðvarmafyrirtækið Magma Energy hefur lagt fram til- boð í hlutinn. Ein þeirra leiða sem skoðuð er í fjármálaráðuneytinu er að OR haldi eftir tíu prósenta hlut sínum í HS orku, en OR má ekki eiga meira í fyrirtækinu samkvæmt úr- skurði Samkeppniseftirlitsins frá því í fyrra. Hin 22 prósentin gætu þá mögulega orðið í eigu Reykjavíkur- borgar, stærsta eiganda OR, ís- lenska ríkisins og RARIK ohf., sem er í opinberri eigu. Vert er að taka fram að um hug- myndir var að ræða en ekki tillögur. Niðurstaða fundarins varð þó sú að óska eftir svarfresti við tilboði Magma Energy til 31. ágúst. Sá frestur fékkst í gær. Ríkið, borg og RARIK eign- ist hlut OR Vilji hjá Vinstri grænum til að tryggja opinbert eignarhald á HS orku Í HNOTSKURN » Geysir Green Energy ogMagma Energy keyptu hluti í HS orku af Reykja- nesbæ fyrr í sumar. » Hafnarfjarðarbær og OReiga enn um 32 prósenta hlut í HS orku, sem Magma hefur áhuga á að kaupa.  VG vill tryggja | 4 FORSENDURNAR sem áætlanir stjórnenda Straums- Burðaráss miðuðu við í tengslum við endurskipulagn- ingu bankans einblíndu um of á erlendar aðstæður, segir Óttar Pálsson, forstjóri Straums-Burðaráss, í grein sem hann skrifar og birt er í Morgunblaðinu í dag. Þær voru ekki „í nægjanlegum tengslum við þann veruleika sem við Íslendingar búum nú við sem þjóð,“ segir í greininni. Óttar kveðst engra persónulegra hagsmuna hafa að gæta í tengslum við launafyrirkomulag, þar sem hann mun ekki starfa fyrir fyrirtækið að endurskipulagningu lokinni. „Sem starfandi forstjóri ber ég hins vegar ríka ábyrgð á því sem frá félaginu kemur og biðst afsökunar, fyrir eigin hönd og félagsins.“ | 21 Biðst afsökunar fyrir Straum  „Það blasir við að þetta var kom- ið langt út fyrir öll velsæmismörk, svo ekki sé dýpra í árinni tekið,“ segir Gylfi Magn- ússon, viðskipta- ráðherra, um stórar lánveit- ingar til eign- arhaldsfélaga án ábyrgðar. Hann segir að full ástæða sé til að skoða lagaumhverfi um einkahlutafélög með það fyrir augum að auka gagnsæi í íslensku viðskiptalífi, en skúffufyrirtæki eru tæplega helm- ingur alla skráðra félaga. »16 „Þetta var komið langt út fyrir öll velsæmismörk“ Gylfi Magnússon Við höldum með stelpunum okkar Það sést hverjir drekka Kristal EM 2009

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.