Bændablaðið - 20.11.2007, Blaðsíða 27
Bændablaðið | Þriðjudagur 20. nóvember 2007
Flugsafn Íslands á Akureyrar
flugvelli var formlega opnað á
dögunum. Þar er að finna all
nokkrar flugvélar af ýmsum
stærðum og gerðum og fjölda
ljósmynda og gagna sem áhuga
menn um flugminjar hafa haldið
til haga.
Akureyringarnir Arngrímur
Jóhannsson og Svanbjörn Sigurðs-
son hafa haft veg og vanda af því
að koma safninu upp og sagði Arn-
grímur í ávarpi sínu við opnunar-
athöfn að Svanbjörn hefði verið
óþreytandi við að tala fyrir því að
slíku safni yrði komið upp. Þá þakk-
aði hann þeim fjölmörgu opinberu
aðilum og einkaaðilum sem hafa
stutt safnið fjárhagslega og á annan
hátt. Flutt voru nokkur ávörp og
kveðjur við opnun safnsins en það
var Sigrún Björk Jakobsdóttir bæj-
arstjóri sem opnaði safnið formlega.
Stærsta samgöngusafnið
Arngrímur Jóhannsson segir að
flugsafnið sé stærsta samgöngusafn
landsins en það sérhæfir sig í flug-
minjum og er gólfflötur safnsins
2.200 fermetrar. Unnt er að reisa
annað eins hús við suðurenda safn-
sins þegar stækkunar verður þörf.
Arngrímur segir kostnað við bygg-
inguna vera í kringum 150 milljónir
króna og sé fjármögnun að miklu
leyti lokið.
Stefna Flugsafnsins á Akureyri
er sú að taka við flugvélum til
varðveislu, svo og gögnum og ljós-
myndum, og verður unnið að því að
setja þau fram á aðgengilegan hátt.
Segir Arngrímur að við það verk
muni menn sækja ráðgjöf og aðstoð
til sérfræðinga hjá Þjóðminjasafni
Íslands.
Framsýnir og dugandi menn
„Þar voru framsýnir og dugandi
menn á ferð sem sáu að flugið gat
skipt sköpum í samgöngumálum
þjóðarinnar,“ sagði Kristján Möller
samgönguráðherra í ávarp sínu við
opnun safnsins og vísaði til þess að
um þessar mundir eru 70 ár liðin
frá því íslensk flugsaga hófst með
stofnun Flugfélags Akureyrar.
„Stofnun Flugfélags Akureyrar
lagði grunninn að því atvinnuflugi
sem nú er stundað á Íslandi. Þeir
framsýnu og dugandi menn sem
hófu sig til flugs létu ekki bugast
þótt flugskilyrðin væru ekki alltaf
góð. Þeir fundu ávallt leiðir til að
halda áfram rekstri og sinna þeirri
mikilvægu þjónustu sem þeir stofn-
uðu til og íslenskur almenningur var
fljótur að notfæra sér. Það gat þurft
að breyta rekstrarformi, stofna nýtt
félag og fá hentugri vélar allt eftir
því hvernig viðraði hverju sinni og
þannig hefur það alltaf verið.“ MÞÞ
Flugsafn Akureyrar opnað í 2.200 m2
húsnæði við Akureyrarflugvöll
Akureyringarnir Svanbjörn Sigurðs
son (t.v.) og Arngrímur Jóhanns
son höfðu veg og vanda að því að
koma safninu upp, sá síðarnefndi
sagði að Svanbjörn hefði verið
óþreytandi að tala fyrir því að slíku
safni yrði komið upp.
Flugsafn Íslands á Akureyrarflugvelli var formlega opnað á dögunum. Þar
er að finna allnokkrar flugvélar af ýmsum stærðum og gerðum og fjölda
ljósmynda og gagna sem áhugamenn um flugminjar hafa haldið til haga.
Hér sjást gestir hlýða á setningarávarp við opnunina.
Húnn Snædal, flugmaður, Sigurður
Hermannsson stöðvarstjóri á
Akureyrarflugvelli og Svanbjörn
Sigurðsson, framkvæmdastjóri
Flugsafnsins á góðri stundu við
opnun safnsins á dögunum.
Flugsafnið er stærsta samgöngu
safn landsins og er gólfflötur þess
2.200 m2. Kostnaður við bygging
una nam um 150 milljónum króna.
Smíðum sérlega vandaðar bílskúrs og iðnaðarhurðir eftir
málum. Þær eru léttar og auðveldar í notkun. Einangrun er á
öllum köntum. Fáanlegar í mörgum stærðum og gerðum, með
eða án glugga. Einnig fáanlegar með mótordrifi.
Bílskúra- og
iðnaðarhurðir
Vagnar & þjónusta ehf
Tunguháls 10, 110 Reykjavík
Sími: 5673440, Fax: 5879192
Samtök um náttúruvernd á
Norðurlandi hafa skorað á
bæjarstjórn Fjallabyggðar
að hún beiti sér fyrir friðlýs
ingu Héðinsfjarðar sem frið
lands eða fólkvangs. Fjallað var
um málið á fundi bæjarráðs
Fjallabyggðar nú fyrir skömmu
en á fundinn mættu fulltrúar
landeigenda í Héðinsfirði.
Í máli forsvarsmanna landeig-
enda kom fram að þeir landeig-
endur sem hefðu tjáð sig væru
mótfallnir friðlýsingu. Fyrir
fundinn hafði borist yfirlýsing frá
Jóni G. og Guðmundi Pálssonum,
landeigendum í Vík í Héðinsfirði,
um það að þeir væru andvígir
friðlýsingu Héðinsfjarðar. Einnig
frá Elínu Henriksen fyrir sig og
sín systkin, Sigrúnu, Ástu og Ólaf
Henriksen, þar sem fram kemur
að þau eru alfarið á móti friðlýs-
ingu Héðinsfjarðar. Magnús B.
Jónasson, fyrir hönd eigenda að
Grundarkoti í Héðinsfirði, er á
móti þeirri hugmynd að friðlýsa
Héðinsfjörð.
Í ljósi afstöðu landeigenda
sér bæjarráð Fjallabyggðar ekki
ástæðu til að halda áfram með
málið að svo stöddu.
Landeigendur á
móti friðlýsingu