Fjarðarpósturinn


Fjarðarpósturinn - 20.02.1992, Blaðsíða 1

Fjarðarpósturinn - 20.02.1992, Blaðsíða 1
Frí heimsendingar■ þjónusta á 12 og 16 tommu pizzum. SÍMI 652525 J FJflRDflR ptótunm 5. TBL. 1992 - 10. ARG. FIMMTUDAGUR 20. FEBRÚAR VERÐ KR. 100,- Frí heimsendingar- þjónusta á 12 og 16 tommu pizzum. SÍMI 652525 Skýrsla Umferðarráðs um umferðarslys á sl. ári sýnir mikla fjölgun umferðarslysa á milli ára: Næstflest umferðarslysin urðu í Hafnarfirði - Þar af þrju dauðaslys, þar sem fjórir létust. I langflestum slysunum urðu einvörðungu eignatjón Skýrsla Umferðarráðs um umferðarslys á árinu 1991 í samanburði við árin þar á undan sýnir, að umferðarslysum hefur fjölgað umtalsvert á landinu. I skýrslunni kemur fram, að um- ferðarslysum fækkaði í Hafnar- firði milli áranna 1990 og 1991, en samt sem áður slösuðust fleiri 1991. Hafnarfjörður skipar annað sætið á landinu hvað varðar fjölda umferðarslysa, aðeins urðu fleiri umferðarslys í Reykjavík á sl. ári. Umferðarslys í Hafnarfirði á sl. ári eru þó nokkuð fleiri en í sam- bærilegu sveitarfélagi að stærð og staðsetningu, þ.e. í Kópavogi. Garðabær er ekki inni í þessum tölum, einvörðungu Bessastaða- hreppur. Umferðarslys urðu alls 351 í Hafnarfirði á sl. ári, fækkaði úr 402 á árinu 1990. Slys með meiðslum urðu 57 en 55 árið 1990. Þá urðu þrjú dauðaslys þar sem fjórir létust á sl. ári, en einn lést í umferðarslysi árið 1990. Meiri háttarmeiðsli urðu 13 á sl. ári en 9 árið áður og minni háttar meiðsli 79, en 62 árið 1990. I Kópavogi varð 201 umferðar- slys á sl. ári. Fjöldi slysa með meiðslum urðu fleiri í Kópavogi en Hafnarfirði, eða 62, en fleiri ein- staklingar slösuðust í Hafnarfirði. þ.e. 92 á móti 87 í Kópavogi. Hafnarfjörður er í öðru sæti hvað varðar umferðarslysatíðni á landinu og Kópavogur í þriðja sæti. Slysa- tíðnin er hæst í Reykjavík. Þar var fjöldi slysa árið 1991 1.937. Samtals urðu umferðarslys á landinu á sl. ári 4.324 þar af 351 í Hafnarfirði, eins og fyrr segir. I 291 tilfelli varð aðeins eignatjón í Hafnarfirði. Fjórar manneskur létust í um- ferðarslysum í Hafnarfirði á árinu 1991, eins og að framan greinir, en samtals á landinu 27. Tölur þessar eru áhyggjuefni, segir í fréttatilkynningu frá Um- ferðarráði, og virðist aðgát í um- ferðinni fara minnkandi. Slös- uðum bömum á aldrinum 7 til 14 ára fjölgaði milli ára á landinu úr 84 í 124. Karlar vom í meirihluta meðal þeirra sem slösuðust eða705, en konumar 448. 285 ungmenni á aldrinum 17 til 20 ára slösuðust á síðasta ári, en voru 218 árið 1990. Gatnamót Asbrautar, Hringbrautar og Suðurbrautar. Jeppinn, sem við sjáum aftan á, beygði upp Suðurbraut til vinstri, en það er önnur af tveimur hœttulegum beygjum á gatnamótunum. Slysagildra á „faraldsfæti“ Umferðarljósin, sem voru tekin niður nýlega á gatnamótum Reykjavíkurvegar og Hjallabrautar, voru flutt á gatnamót As- brautar, Hringbrautar og Suðurbrautar. Að sögn Sigurðar Gísla- sonar, ökukennara, er þarna stórfelld slysahætta sem full ástæða er til að vara bæjarbúa við, enda eykst umferð þarna dag hvern. Að sögn Kristins O. Magnússonar hjá bæjarverkfræðingi hefur þegar verið ákveðið að lagfæra þetta; taka niður beygjuljósin, þannig að slysahættan ætti að vera liðin hjá alveg á næstu dögum. Athyglisvert við mál þetta er að umferðarljósin voru tekin niður á gatnamótum Reykjavíkurvegar og Sparisjóður Hafnarf jarðar: Býður eldri borgurum til fagnaðar á sunnudag Sparisjóður Hafnarfjarðar býður bæjarbúum, 60 ára og eldri, til fagnaðar n.k. sunnudag 23. febrúar.. Tilefnið er 90 ára afmæli Sparisjóðs Hafnarfjaðar, sem erá árinu. Afmælisfagnaðurinn verður í Iþróttahúsinu við Strandgötu og hefst kl. 15. Á dagskrá er ávarp, söngur, hljóðfæraleikur, danssýning, kaffi- veitingar og dans. Húsið verður opnað kl. 14.45. Hjallabrautar vegna þess hversu slysatíðni var mikil, sem rakin var til þessara ljósa. Sigurður Gíslason bauð ritstjóra Fjarðarpóstsins í ökuferð og kynnti honum „slysagildruna“. Stórhætt- ulegt virðist vera að taka vinstri beygjur, bæði af Hringbraut upp Ásbrautina og af Ásbrautinn upp til vinstri á Suðurbraut. Á þessum ökuleiðum eru ekki vinstribeygj- uljós, en það er beygjuljósastýr- ingamar hjá gagnstæðri umferð sem virðist skapa hættumar. Hættan felst í eftirfarandi stað- reynd: Bílstjórinn okkar ekur inn á gatnamótin á grænu ljósi og bíður þar á meðan umferðin úr gagn- stæðri átt, sem einnig er á grænu ljósi, fer yfir gatnamótin. Á hefð- bundnum umferðarljósum, þegar umferðin er mikil, hafa bílstjórar í þessari stöðu það til siðs að gefa í og koma sér yfir - „hreinsa" gat- namótin - um leið og rauða ljósið kviknar. Það er gert í þeirri trú, að rauða ljósið hafi kviknað á sömu sekúndunni á móti, hjá gagnstæðri umferð. Þarna gerist þetta ekki. Græna ljósið heldur áfram að loga vegna vinstri beygjuljóssins í nokkrar sekúndur, eftir að það rauða kviknar í mót bílstjóranum okkar. Ökmennirnir á móti stöðva því oft ekki fyrr en inni í hlið okkar ólánsama bílstjóra, sem trey st hefur á að umferðarljósin þama séu eins og þau gerast flest. Þetta á að lagfæra strax á næstu dögum, eins og að framan greinir. Það má þó teljast furðulegt að „slysagildra" sem þessi sé flutt á milli hverfa í bænum að íenginni slæmri reynslu. „Að klífa hjallann“ - Hafnfirskt myndband frumsýnt „Að klífa hjallan - ný leið í leikskólastarFi“ er heiti á 27 mínútna myndbandi um nýjungar í starfsemi leikskólans Garðavalla við Hjallabraut. Myndbandið verður frumsýnt í Holiday Inn á laug- ardag. Myndin verður til sýnis fyrir almenning í Hafnarborg á sunnudag. Nánar er sagt frá útkomu myndbandsins í frétt á bls. 7. Myndasýn- ingarnar í Hafnarborg eru auglýstar á bls. 3 og er foreldrum og for- ráðamönnum bama við leikskólann bent á að kynna sér tímasetningar sýninganna. Hraunbúar fagna 67 áraafmæli ogskáta- hreyfingin 80 árum Sjá bls. 2 „Góð leið til þess að láta sér líða vel“ - andlitsbaði hjá Rósu - Sjá bls. 4 og 5 Ný sérverslun fyrir stangaveiðimanninn í Miðvangi -Sjá bls. 7

x

Fjarðarpósturinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fjarðarpósturinn
https://timarit.is/publication/945

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.