Fréttablaðið - 23.07.2015, Blaðsíða 28
FÓLK|TÍSKA
Þessi sýning kom þannig til að stjórn Mótorhjólasafnsins óskaði eftir því að konu-
klúbb arnir á Akureyri tækju að sér
að búa til sýningu í tilefni af hundr-
að ára kosningaafmæli kvenna,“
segir Ragnhildur Arna Hjartardóttir
sem heldur utan um sýninguna
Konur og mótorhjól, sem var opn-
uð í Mótorhjólasafni Íslands þann
14. júní og stendur til 30. ágúst.
Ekki reyndist þrautalaust að
safna saman munum og upplýsing-
um fyrir slíka sýningu enda hefur
saga íslenskra mótorhjólakvenna
ekki verið skráð. „Við hóuðum
saman hópi af konum og vorum
sex í nefnd. Við vorum með lítið
fé á milli handanna en biðluðum
til mótorhjólakvenna um allt land
að senda okkur myndir, upplýs-
ingar og muni,“ segir Ragnhildur.
Á sýningunni er að finna fjöldann
allan af myndum en einnig ýmsar
upplýsingar, sögur og muni. „Við
komumst að því með góðri hjálp
að fyrsta konan sem átti mótorhjól
á Íslandi var Helga Níelsdóttir ljós-
móðir árið 1939. Hún notaði það til
að aka til vinnu, en gafst reyndar
fljótt upp á því þar sem þungt var
að vera á því og af því að vegir
voru að mestu malarvegir þurfti
hún iðulega að skipta um alklæðn-
að eftir hverja ferð vegna ryks og
drullu. Síðan er vitað um aðra konu
rétt eftir stríð sem var á hjóli sem
hún fékk hjá hernum. Lítið er vitað
um fleiri konur fyrr en stelpur fóru
að vera á skellinöðrum á áttunda
áratugnum og síðan þegar kon-
ur fóru að sjást meira á hjólum á
níunda áratugnum,“ upplýsir Ragn-
hildur. Hún segir þróunina hraðari
upp á síðkastið. „Konur á öllum
aldri eru farnar að láta gamlan
draum rætast og taka mótorhjóla-
próf sem er frábært.“
Litlar tölulegar upplýsingar eru
til um konur og mótorhjól. „Við vit-
um þó að frá 1980 hafa 2.930 kon-
ur verið skráðar eigendur þungra
bifhjóla.“
Við erum með myndir og brot úr
sögu, mótorhjól og klúbbatengdan
fatnað. Svo erum við með konur
í mótorhjólalögreglunni. Guðrún
Jack var svo dásamleg að lána
okkur hluta af fatnaði og myndir af
sér og upplýsingar.
Sýningin Konur og mótorhjól er
opin alla daga frá kl. 10 til 17.
ÁHUGAMÁLIÐ Jónína
Baldursdóttir er dugleg
að hjóla og hefur átt þátt
í að skipuleggja nokkrar
ferðir á vegum Tíunnar,
Bifhjólaklúbbs Norður-
amts, og er nýkjörin
stjórnarmeðlimur þar.
MYND/EINKASAFN
Í RÖÐ Mótorhjól í röðum við útsýnispall á Vaðlaheiði. Myndin var tekin eftir hópakstur
kvenna á alþjóðlegum mótorhjóladegi kvenna 2. maí í fyrra. MYND/DÍANA HERMANNSDÓTTIR
HRÖÐ ÞRÓUN Ragnhildur Arna Hjartar-
dóttir heldur utan um sýninguna.
LJÓSMÓÐIR Helga Marín Níelsdóttir
ljósmóðir er fyrsta íslenska konan sem
vitað er til að hafi átt mótorhjól.
HARLEY Luna hjólar í Danmörku í fyrra á Harley Davidson Servicar 1973 módeli.
MYND/ÞORMAR ÞORKELSSON
SÝNING UM KONUR
OG MÓTORHJÓL
MÓTORHJÓLASAFN Myndir af konum á mótorhjólum, sögubúta og ýmsa
muni sem minna á tengsl kvenna og mótorhjóla má finna á sýningu sem
stendur yfir í Mótorhjólasafni Íslands á Akureyri í sumar.
Skeifunni 8 • 108 Reykjavík • Sími: 517 6460 • www.belladonna.is
Verslunin Belladonna
Stærðir 38-58
ÚTSALAN Í FULLUM GANGI
30-50% afsláttur
af öllum útsöluvörum
Flott föt, fyrir flottar konur
Bæjarlind 6 • S. 554 7030Við erum á Facebook
Kjólar á útsölu
30-50% afsláttur
Allar buxur á útsölu
50% afsláttur
ÚTSALA - ÚTSALA
Nýtt kortatímabil
2
2
-0
7
-2
0
1
5
2
2
:3
9
F
B
0
5
6
s
_
P
0
4
0
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
5
6
s
_
P
0
2
9
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
5
6
s
_
P
0
1
7
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
5
6
s
_
P
0
2
8
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
1
5
8
9
-D
C
8
C
1
5
8
9
-D
B
5
0
1
5
8
9
-D
A
1
4
1
5
8
9
-D
8
D
8
2
8
0
X
4
0
0
4
A
F
B
0
5
6
s
C
M
Y
K