Dagblaðið Vísir - DV - 29.10.2015, Blaðsíða 70

Dagblaðið Vísir - DV - 29.10.2015, Blaðsíða 70
Helgarblað 29. október–2. nóvember 201562 Menning M ynd Spielbergs um Lincoln fjallaði ekki um manninn heldur um tilraunir hans til að koma máli í gegnum þingið. Að sama skapi er hér ekki um að ræða sögu Jóhönnu, held- ur lokametra stjórnarskrármálsins. Sá munur er þó á að Lincoln tókst að lokum að afnema þrælahald í Bandaríkjunum en Íslendingar hafa enn ekki fengið nýja stjórnarskrá. Stutt yfirlit er þó yfir feril Jóhönnu, sem hvað sem öðru líður er ein af áhugaverðari persónum íslenskr- ar stjórnmálasögu. Jóhanna kemur fram sem gegnheil í því að standa gegn einkavæðingaráformum fyrstu ríkisstjórnar Davíðs, en síðan er hratt farið yfir sögu þar til kemur að síðustu orrustunni. Sagnfræðingar munu líklega lengi velta fyrir sér fyrstu raunveru- legu vinstristjórninni, en ljóst var að hún varð mörgum vonbrigði. Kannski færðist hún of mikið í fang, eða kannski of lítið. Jóhanna kom satt að segja sjaldnast vel út í fjöl- miðlum, og því veltir maður fyrir sér hvað hún aðhafðist bak við tjöldin. Hér er komin mynd til að svara þeim spurningum. Aðgangur höfundar að innvið- um íslenskrar stjórnskipunar er hreint ótrúlegur, og líklega höf- um við aldrei fengið jafn nána sýn á hana. Ef til vill vissi Jóhanna að hún myndi tapa málinu og vildi því skrásetja hvað hefði gerst. Margt er reyndar eins og búist var við, enda sjónarhóllinn hennar. Steingrímur og Össur eru traustir bandamenn en Ögmundur úti á kanti. Simmi og Bjarni gera það sem þeir gera, en það er ljóst að skúrkur verksins hér er Árni Páll. Og Þór Saari er í hlut- verki trúðsins. Stjórn landsins er ótrúlega óformleg (sumir myndu kannski segja kæruleysisleg), eins og annars staðar á Íslandi mæta menn seint og illa og halda árshátíðir og spjalla við skrifstofufólk. Þetta er hvorki West Wing né Borgen. Og blessunar- lega er þetta ekki eins og að horfa á Alþingisrásina heldur, hin mikla nærvera gerir myndina á köflum spennandi þó að maður viti hvern- ig fer. Hin endanlega saga búsáhalda- byltingarinnar, vinstristjórnarinn- ar eða Jóhönnu er ekki sögð hér, en sem innsýn í íslenskt stjórnkerfi og endalok hinna sögulegu tíma sem hófust haustið 2008 er myndin stór- merkileg. Og sögunni er ekki lok- ið, „raunsæisleið“ Árna Páls að láta málið niður falla hefur ekki skil- að honum mörgum atkvæðum, en minnir á tilraunir Jóhönnu til að standa gegn „raunsæisleið“ Jóns Baldvins í ríkisstjórnartíð Davíðs. Sagan endurtekur sig á marga vegu. Kannski verður stjórnarskrármálið tekið upp á ný, og líkur á að mynd þessi sé ekki ekki aðeins heimild um söguna heldur innlegg í hana líka. n Sími 568-5556 www.skeifan.is Eysteinn Sigurðsson Löggiltur fasteignasali / Sími: 896-6000 eysteinn@skeifan.is / skeifan.is Magnús Hilmarsson Sölumaður / Sími: 896-6003 magnus@skeifan.is / skeifan.is Sigurður Hjaltested Löggiltur fasteignasali / Sími: 821-5400 sigurdur@skeifan.is / skeifan.is Föst söluÞÓKNuN 1% með vsk.Vegna mikillar sölu vantar allar stærðir eigna á skrá Eysteinn Sigurðsson Löggiltur fasteignasali / Sími: 896-6000 eystei n@skeifan.is / skeifan.is Magnús Hilmarsson Sölu aður / Sími: 896-6003 magnus@skeifan.is / skeifan.is Sigurður Hjaltested Löggiltur fasteignasali / Sími: 821-5400 sigurdur@skeifan.is / skeifan.is Þegar þjóðin var rænd … aftur„Kannski verður stjórnarskrármál- ið tekið upp á ný, og líkur á að mynd þessi sé ekki ekki aðeins heimild um söguna heldur innlegg í hana líka. Valur Gunnarsson valurgunnars@gmail.com Kvikmyndir Jóhanna: Síðasta orrustan Leikstjóri: Björn B. Björnsson 90 mínútur H rellirinn er fimmta spennubók Lars Kepler, en bak við nafnið standa hjón- in Alexandra og Alexander Ahndoril. Bókin var sölu- hæsta bók ársins í Svíþjóð árið 2014, en bækur þeirra hjóna hafa slegið í gegn víða um heim. Söguþráðurinn er í mjög stuttu máli sá að kon- ur eru myrtar á afar hrotta- legan hátt og morðun- um svipar til morðs sem var framið allnokkrum árum fyrr. Prestur var dæmdur fyrir það morð og situr inni, en er einhver að líkja eftir morði hans eða á hann sér aðstoðarmann? Margot rannsóknarfulltrúi er með- al þeirra sem rannsaka morðin. Erik Maria Bark, geðlæknir og dávald- ur, leggur sitt lóð á vogarskálar með þeim afleiðingum að hann kemst í stórhættu. Við sögu komu allmargar persónur, þar á meðal lögreglumað- urinn Joona Linna sem lesendur framhaldsbókanna eiga að þekkja. Eins og títt er í framhaldsbókum af þessari gerð er fjallað um liðna at- burði í lífi persóna. Þetta verður ansi þvælukennt fyrir þá lesendur sem ekki þekkja vel til fyrri bókanna og kann að virka endurtekningar- samt fyrir að- dáendur bóka- flokksins. Bókin verð- ur seint talin vel skrifuð. Sam- töl eru oft bein- línis kjánaleg og höfundar eru óþarflega lang- orðir. Þeir teygja lopann um of og eru mikið fyrir að útskýra smá- atriði sem litlu máli skipta fyrir framvinduna. Þarna er þó að finna spennandi kafla og lýs- ingar á morðunum eru ansi hrollvekj- andi. Eins og oft vill verða í bókum af þessari gerð verða lokakaflarnir æði reyfarakenndir og reyna mjög á trú- girni lesenda. Það má þó hrósa höf- undunum fyrir það að þeim tekst að koma lesendum á óvart þegar kem- ur að því að afhjúpa hinn miskunnar- lausa morðingja. n Lopinn teygður Kolbrún Bergþórsdóttir kolbrun@dv.is Bæk r Hrellirinn Höfundur: Lars Kepler Þýðandi: Nanna B. Þórsdóttir Útgefandi: JPV 558 blaðsíður Hátíðin hefst Iceland Airwaves hefst á miðvikudag Á miðvikudag hefst stærsta tón- listarhátíð ársins, árshátíð og jólaball íslenskra tónlistarmanna, Iceland Airwaves. Íslenskar sveit- ir rembast nú við að koma nýj- um plötum út og æfa síðustu hljómana áður en hátíðin geng- ur í garð. Fimm dagar, þrettán opinberir tónleikastaðir (þar af fjórir salir í Hörpu) og enda- laust margir off-venue tónleikar. Stærstu erlendu nöfnin sem taka þátt í ár eru líklega John Grant (sem spilar með Sinfó), Father John Misty, Perfume Genius, Ariel Pink, Battles, Beach House, Hot Chip, Sleaford Mods og rapp- aranir Skepta & JME. Eldri tón- listarnördar ættu svo kannast við Mercury Rev og jafnvel breska síðpönkbandið The Pop Group. Það eru samt ekki alltaf þekktustu nöfnin sem eru mest spennandi. Ég ætla að reyna að ná að sjá finnsku þjóðlagasöng- konuna Mirel Wagner, skrýtiraf- popparana SOPHIE, QT, Felicita og R&B-tónlistarkonan Nao og eitthvað skítugt rokk – allar hug- myndir vel þegnar Ég er samt líklega spennt- astur fyrir íslenska rappinu og þungarokkinu, þessar tvær sen- ur eru að springa út á þessu augnabliki. Íslenskum röppur- um hefur að undanförnu tekist að móta sinn eigin einstaka stíl – Gísli Pálmi, Emmsjé Gauti, Úlf- ur Úlfur, Kött Grá Pjé, GKR, Lord Pusswhip, Shades of Reykjavík og Reykjavíkurdætur – og svart- málmssenan hefur náð áður óheyrðum hæðum í myrkri og djöfulskap (tékkið á Vanagandrs- kvöldinu á Gauknum á miðviku- dagskvöld). n Kristján Guðjónsson kristjan@dv.is
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.