Dagblaðið Vísir - DV - 12.04.2016, Blaðsíða 36
28 Lífsstíll Vikublað 12.–14. apríl 2016
A
uður Rafnsdóttir er höf-
undur bókarinnar Krydd-
jurtarækt fyrir byrjendur.
Þar fjallar hún um sáningu
og umhirðu kryddjurta og
segir frá aðferðum til að þurrka,
frysta og geyma kryddjurtir. Auk
þess eru uppskriftir í bókinni og
hugmyndir að nýtingu kryddjurta.
Spurð um áherslur í bókinni
segir Auður: „Fyrri hluti
bókarinnar fjallar um kryddjurtir
allt frá því maður sáir þeim þangað
til maður notar þær. Í seinni hlut-
anum eru upplýsingar um hverja
kryddjurt fyrir sig. Í bókinni eru
sérstök minnisblöð þannig að fólk
geti nóterað hjá sér eitt og annað
varðandi ræktunina. Þarna eru líka
uppskriftir að ýmsu sem er ein-
kennandi fyrir hverja kryddjurt,
eins og kryddolíum, sósum, mauki
og fleiru.“
Auður heldur utan um vinsæla
síðu kryddjurtaræktenda á Face-
book. „Þessi síða varð til vegna
þess að vinir og vandamenn
hringdu mjög oft til að spyrja mig
um ýmis legt viðvíkjandi krydd-
jurtum. Ég vinn hjá Creditinfo þar
sem safnað er saman upplýsing-
um alla daga og því var ofarlega í
huga mér að geyma upplýsingar
um kryddjurtir á einum stað. Þess
vegna varð Facebook-síðan til og
þar er fólk að skiptast á ráðum og
uppskriftum. Segja má að þessi
síða hafi síðan orðið kveikjan að
þessari bók. Ræktun kryddjurta er
áhugamál margra í dag og skýrist
af miklum matreiðsluáhuga fólks.“
Fólk gefst oft upp
Áhugi Auðar á kryddjurtum vakn-
aði fyrir um
tuttugu árum.
„Ég hef mjög
gaman af að
elda og sá að
kryddjurtir
skipta öllu
máli í mat-
reiðslu, þær
gefa aukatón
og auka-
bragð. Ég hef
í gegnum árin
verið að prófa
mig áfram
með krydd-
jurtir og fer
ekki alltaf
hefðbundn-
ar leiðir. Um
daginn eld-
aði ég lax
með rós-
marín. Það
eru margir
sem telja að rósmarín passi bara
með lambakjöti og kartöflum, en
það má sannarlega nota það á
fjölbreytilegri hátt. Það er um að
gera að prófa sig áfram í notkun á
kryddjurtum.“
Hvort ráðleggurðu fólki að nota
ferskar eða þurrkaðar kryddjurtir?
„Ég nota þurrkaðar þegar ég er
að elda en set síðan þær fersku út í
réttinn rétt áður en hann er borinn
fram og þá er bragðið sem fersk-
ast.“
Hver eru helstu mistökin
sem fólk gerir í sambandi við
kryddjurtir?
„Þegar kemur að ræktuninni
gefst fólk oft upp. Maður ger-
ir alltaf mistök í kryddjurtarækt-
un en ég vandi mig á það að skrifa
niður hjá mér hvað ég gerði vit-
laust og lærði af því. Lykilatriði er
góð mold, góð birta, næring öðru
hverju og að klippa jurtina rétt. Þá
á þetta ekki að misheppnast. Svo
verður maður að sinna ræktuninni
og kíkja á jurtina á hverjum degi.
Vandamálið hjá okkur Ís-
lendingum eru þessir myrku
vetrar mánuðir. Þá hef ég nýtt mér
innigarðana. Ef maður kaupir
græðlinga í maí og hefur góða
mold og góða birtu þá er maður
komin með risaplöntu í ágúst-
september.“
Fólk á oft í erfiðleikum með að
halda lífi í ferskum kryddjurtum
og veit heldur ekki hvernig best er
að nýta afganga. Áttu ráð handa
þessu fólki?
„Ef mað-
ur kaupir
kryddjurtir í
pottum þá á
að setja þær
strax í góða
mold. Ef
maður kaupir
þær afskorn-
ar og á síð-
an afgang þá
setur maður
þær í vatn og
þá fá þær ræt-
ur rétt eins og
hvert annað
blóm, maður
skellir jurtinni
síðan í mold
eða klippir
hana niður og
þurrkar eða
frystir. Það er
um að gera að
nýta afganga, það er allt of algengt
að fólk hendi þeim í ruslið. Ef mað-
ur á til dæmis afgang af fáfnisgrasi
eftir að hafa búið til béarnaise-sósu
þá er hægt að blanda afganginum
saman við mjúkt smjör og setja í
frysti og þá á maður efni í næstu
béarnaise-sósu.“
Áttu þér uppáhaldskryddjurt?
„Ég á mjög erfitt með að gera
upp á milli kryddjurta en mér
finnst rósmarín ómissandi. Ég er
líka hrifin af fáfnisgrasi, án þeirr-
ar kryddjurtar væri béarnaise-
sósa bara hollandaise-sósa. Þar er
sannarlega munur á bragði með
eða án kryddjurtarinnar.“
Krydd og hollusta
Í hugum flestra standa kryddjurtir
fyrir hollustu og Auður er spurð
hvort þannig sé það raunveru-
lega. „Það er sagt að svo sé,“ segir
hún. „Á sínum tíma, þegar byrjað
var að rækta kryddjurtir, eða lyfja-
grös eins og það var þá kallað, í
urtagarðinum hjá læknasetrinu
úti á Nesi var það ekki gert til að
bragðbæta matinn heldur til að
bæta heilsuna. Sumar jurtirnar
voru taldar lækna magakvilla, aðr-
ar hálskvilla og höfuðkvilla og enn
aðrar þóttu slakandi. Í framtíðinni
langar mig til að skoða hollustu-
þátt kryddjurta enn betur.“ n
Rósmarínið ómissandi
n Auður Rafnsdóttir er höfundur bókar um kryddjurtir
Kolbrún Bergþórsdóttir
kolbrun@dv.is
„Lykilatriði er góð
mold, góð birta,
næring öðru hverju og
að klippa jurtina rétt.
Þá á þetta ekki að
misheppnast.
Auður Rafnsdóttir
„Ræktun kryddjurta er
áhugamál margra í dag
og skýrist af miklum
matreiðsluáhuga fólks.“
Mynd ÞoRMAR VigniR gunnARsson
Litabreytingar í húð
Ör / húðslit
Húð með lélega
blóðrás / föl húð
Öldrun og sólarskemmdir
í húð / tegjanleiki húðar
Blandaða og feita húð /
stíflaðir fitukirtlar
Hin upphaflega JURTA HÚÐENDURNÝJUN
Árangur um allan heim í yfir 50 ár. Máttur náttúrulegrar fegurðar
www.vilja.is