Helgarpósturinn - 24.01.1985, Blaðsíða 9

Helgarpósturinn - 24.01.1985, Blaðsíða 9
Jón Baldvin Hannibalsson, formaður Alþýðuflokksins: Draumurinn um nýtt sameiningarafl jafnaðarmanna ekki lengur draumur „Niðurstöður þessarar könn- unar sýna, að Alþýðuflokkurinn er helzti sigúrvegarinn, og var nú kominn tírtiitil," sagði Jón Baldvin Hannibalsson, formaður Alþýðu- flökksins. „Þar að auki bætir Kvennalist- inn sinn hlut og það kemur á óvart, að Sjálfstæðisflokkurinn heldur betur sínum hlut en ég hefði vænzt. En það sem ég vil vekja athygli á er að þessi breyting hjá Alþýðu- flokknum hefur gerzt á skömmum tíma. Það eru ekki nema rúmir tveir mánuðir frá flokksþingi og umskiptum í Alþýðuflokknum og á þeim tíma, í oíctóberlok, bentu skoðanakannanir til þess, að Ál- þýðuflokkurinn hefði tapað um helmingi af fylgi sínu frá seinustu alþingiskoshingum, það væri svona urti 6%. Þannig virðist, ef þessar niðurstöður eru traustar, að flokkurinn hafi tæplega þrefaldað fylgi sitt og sé í þann veginn að bæta við sig þremur eða fjórum þingmönnum. Það vekur líka athygli mína, að í Reykjavík nær flokkurinn ekki landsmeðaltali, sem ég tel að byggist að verulegu leyti á því, að við erum ekki byrjaðir okkar bar- áttu í Reykjavík heldur höfum lagt megináherzlu á að kynna okkar mál á landsbyggðinni. í Reykjavík kemur hins vegar til okkar kasta innan nokkurra vikna. Annað sem mér finnst mjög at- hyglisvert við þessa könnun er það, að ef við lítum á niðurstöður Alþýðuflokksins og Bandalags jafnaðarmanna til samans, þeirra flokka sem kenna sig við jafnaðar- stefnu, þá kemur á daginn að þeir eru þegar komnir með sameigin- lega 20,7% fylgi um landið og 14 manna þingflokk og reyndar með tæp 23% í Reykjavík og 25% á Reykjanesi. Þetta sannar mér það, að draumurinn um nýtt samein- ingarafl jafnaðarmanna sem for- ystuafls og stjórnarforystuflokks vinstra megin við miðju er ekki fjarlægur, heldur nokkuð sem binda má raunhæfar vonir við, ef menn bregðast við á réttan máta.“ — Er þessi fylgisaukning Al- þýðuflokksins samkvæmt könn- uninni minni en þú bjóst við? „Ég skal nú ekki segja um það, hún er engan veginn meiri en ég bjóst við, hvað sem öðru líður." — Telur þú þessa uppsveiflu vera hámarkið? „Þetta er náttúrlega gífurleg uppsveifla, ef við teljum að rétt viðmiðun sé staða flokksins eins og hún var samkvæmt skoðana- könnunum si. sumar og sl. haust. Þá er þetta raunveruleg þreföldun á fylgi. Og í ljósi þess að starfið er rétt að byrja, þá er mitt mat það, að þetta sé byrjun." — Ekki bóla? „Nei, byrjun en ekki bóla.“ Þá benti Jón Baldvin á, að sam- kvæmt könnuninni væri Alþýðu- flokkurinn stærsti stjórnarand- stöðuflokkurinn og sameinaðir væru jafnaðarmenn (það er ásamt Bandalagi jafnaðarmanna) lang- samlega stærsti stjórnarandstöðu- flokkurinn, verulega stærri en Al- þýðubandalagið. „Og ef þetta væru kosningaúrslit, þá táknaði þetta stórkostlega breytingu í ís- lenzkri pólitík." Jón Baldvin sagði að það kæmi sér ekkert á óvart að stjórnin væri komin í minnihluta. Því hefði hann kynnzt á ferðum sínum um landið upp á síðkastið. „Mér er t.d. alveg ljóst, að sums staðar úti á landi er svo komið, að mínu mati, að Framsókn liggur við hruni. Það sem kemur á óvart í þessari könnun er að Alþýðuflokkurinn er orðinn forystuflokkur stjórnar- andstöðunnar," sagði Jón Baldvin Hannibalsson. Steingrímur Hermannsson forsætisráðherra Þróunin vel skýranleg „Það sem vekur fyrst og fremst athygli mína er að það er ákaflega stór hluti sem ekki svarar eða er óviss um afstöðu sína og vitanlega getur það ráðið mjög miklu um fylgi flokkanna" sagði Steingrímur Hermannsson forsætisráðherra. „Ég er ekkert undrandi yfir því, að ríkisstjórnin sé, eins og reyndar kom fram í skoðanakönnun seint á síðasta ári, í nokkurri lægð, því við erum í mjög alvarlegri koll- steypu í efnahagsmálum eftir ákaflega mikinn og góðan árang- ur í upphafi stjórnarsamstarfsins og mín skoðun er sú, að úrslit muni ráðast á næstu tveimur til þremur mánuðum: Hvernig mönnum tekst að rétta þjóðar- skútuna við að nýju og hvort ríkis- stjórnin eða stjórnarflokkarnir láta hendur standa fram úr ermum í ýmsum mikilvægum málum. Það held ég að skipti sköpum. Sjálfur tel ég að það muni hafa mjög mikil áhrif á þann stóra hóp sem telur sig óvissan eða vill ekki svara." — Þú telur ekki að niðurstaða svona könnunar setji ótta að öðr- um hvorum stjórnarflokkanna og hafi einhver áhrif á samstarfið? „Ég sé enga ástæðu til þess. Þótt það megi ávallt deila um ná- kvæmni svona skoðanakannana þá virðist það skipta nokkru máli hver spyrjandinn er, ef marka má skoðanakannanir sem voru birtar á síðasta ári. En mér finnst þróunin á fylgi stjórnarinnar vera mjög vel skýranleg." — Hvað viltu segja um lítið fylgi Framsóknarflokksins í Reykjavík og á Reykjanesi? „Það er náttúriega Ijóst, að í síð- ustu kosningum töpuðum við verulegu fylgi í þessum tveimur kjördæmum og jrað er vitanlega að mínu mati mjög alvarlegt. Hins vegar held ég að þessu megi vel snúa við, ef rétt er að málum stað- ið, sem verið er að vinna að á okk- ar vegum og hafa valdið vissum deilurn á milli dreifbýlis og þétt- býlis. Ég nefni t.d. landbúnaðar- málin, sem eru enn í vinnslu. Þau hafa valdið deilum og raunar fleira." Steingrímur Hermannsson ítrekaði þá afstöðu sína, að „það er ekki í kortunum" að hann fari næst fram í Reykjavík en ekki á Vestfjörðum. — Lítið fylgi í Reykjavík myndi ekki fæla þig hvort sem væri? „Nei, nei, alls ekki þetta. Það hefur engin áhrif á þetta, ef um það væri að ræða,“ sagði Stein- grímur Hermannsson forsætisráð- herra og formaður Framsóknar- flokksins. Sigríður Dúna Kristmundsdóttir alþingismaður Kvennalista Kvennalistinn heldur fylgi þrdttfyrir hatramman áróður „Það merkilegasta við þessa skoðanakönnun er að ríkisstjórn- in skuli hafa fylgi 46% þeirra sem afstöðu tóku með eða á rnóti," sagði Sigríður Dúna Kristmunds- dóttir, alþingismaður Samtaka um kvennalista. „Það sýnir fyrst og fremst að langlundargeð Islendinga er með ólíkindum, þar sem það má öllum vera ljóst að stefna stjórnarinnar í efnahagsmálum hefur beðið skip- brot og að hún aðhefst ekkert þessa stundina til að bæta um bet- ur. Einhver spekingur sagði ein- hvern tímann að sú ríkisstjórn sem ekkert gerði væri bezta stjórnin og kannski er það hið jákvæða sem Islendingar sjá við ríkisstjórn- ina þessa stundina. Hvað fylgi flokkanna varðar, þá er hlutfall þeirra sem eru óá- kveðnir eða neita að svara það hátt að tölurnar þar eru síður marktækar. Ef til vill er athyglis- verðast við þær tölur, að um þriðj- ungur landsmanna virðist ekki hafa gert upp hug sinn hvaða flokki þeir fylgja að málum og íhuga sinn gang í þeim efnum. Það virðist einnig ljóst af þessari könn- un, að þrátt fyrir þann hatramma og staðlausa áróður sem að und- anförnu hefur verið rekinn gegn Kvennalistanum heldur hann því fylgi sem hann hafði í síðustu kosningum og gott betur og það er mér vitaskuld gleðiefni," sagði Sig- ríður Dúna Kristmundsdóttir. Guðmundur Einarsson, formaður þingflokks Bandalags jafnaðarmanna „Karlinrí* sprengir nótina á útmánuðum Guðmundur Einarsson, for- maður þingflokks Bandalags jafn- aðarmanna, sagði að erfitt væri að draga ályktanir af þessari skoð- anakönnun. Þessi könnun væri ein og stök og því erfitt um við- miðun sem væri nauðsynleg ef menn ætluðu að leggja mat á breytingar eða tilhneigingar hjá kjósendum. „En mér sýnast breytingar frá síðustu kosningum vera innan óvissumarka," sagði Guðmundur. „Eina stóra breytingin er upp- sveifla hjá krötum og það er erfitt að spá fyrir hvað gerist með þá sveiflu. Það er svolítið eins með þá og loðnustofninn, að þeim er ým- ist spáð því að vera nálægt útdauð- ir eða þá að þeir séu vaðandi í torf- um. Og svo hafa sumir sagt að „karlinn í brúnni" sprengi nótina á útmánuðum, ég veit ekki um það. Hvað Bandalag jafnaðarmanna varðar hins vegar, sýnist mér á þessari könnun ásamt öðrum sem hafa verið gerðar í vetur, að við sé- um komin með nokkuð fast fylgi sem hefur ekki breytzt neitt veru- lega að undanförnu og ég er nátt- úrlega mjög ánægður með það. Það er á þeim grunni sem við munum byggja. Varðandi afstöðuna til ríkis- stjórnarinnar, þá er augljóst að það er veruleg stjórnarandstaða meðal fylgismanna stjórnarflokk- anna sem slíkra. Annars vil ég bæta því við um fylgi flokkanna, að maður hefur heyrt utan að sér að Steingrímur Hermannsson, formaður Fram- sóknarflokksins, hafi e.t.v. hugsað sér að fara fram hér í Reykjavík til þess þá að ná upp einhverri fylgis- sveiflu fyrir flokkinn, en mér sýn- ist á þessum lágu tölum Framsókn- arflokksins í Reykjavík og á Reykjanesi að það sé verulegt spursmál hvort hann ætti nokkuð að gera það. Það sé öruggara fyrir hann að halda sig á Vestfjarðalist- anum." HELGARPÖSTURINN 9

x

Helgarpósturinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Helgarpósturinn
https://timarit.is/publication/47

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.