Tíminn - 01.03.1956, Blaðsíða 7

Tíminn - 01.03.1956, Blaðsíða 7
7 1 í M IN N, fimmtuclaginn 1. marz 195G ArnarfeH kemur til hafnar. SigJingar á vegum Skipadeildar SÍS: Þrátt lyrir 6 myndarleg kanpskip í eigu saniYÍnnumanna, þurfti SIS a? flytja þriðjung meS leiguskipum Kaupskip samvinnumanna höíðu á síðastliönu ári 956 við- komustaði í 66 íslenzkum höfnum, eða sem næst þrem við- komum á hverjum degi allt árið. Fluttu skipin tæplega 20Q OOO smálestir af vörum og sigldu 235 000 sjómílur, og eru þá ekki meðtalin leiguskip, sem SÍS þurfti að taka eitt á viku og nokkru betur. Þessar tölur gefa glögga hug- mynd um þá umfangsmiklu þjón- ustu, sem samvinnuskipin veita landsfólkinu, og þá alveg sórstak- lega hinni dreifðu byggð utan höf- uðstaðarins. Er sá reginmunur á siglingum þessara skipa og ann! arra íslenzkra millilandaskipa, að Sambandsskipin eru látin sigla sem alira mcst beint til hinna ýmsp hafna víðs vegar um land í stað þess að umskipa vörum sínum í Reykjavík. Siglingum þessum stjórnar skipadeild SÍS undir fram kvæmdastjórn Hjartar Hjartar. ÖR ÞRÓtJN Á TÍU ÁP.UM. Fyrir rétium tíu árum voru for rá'ðamenn Samhandsins að ganga frá samningum um kaup á fyrsta kaupsklpi samvinnumanna, Iívassafelli. Síðan eru skipin orð- in sex og er nú verið að undirbúa kaup eða smíði á 1S—20 þús. smá- lesta olíuskipi, sem ekki aðeins verður langstærsta skip íslend- inga, heldur nálega tvisvar sinn- um stærra að smálestatölu en öll hin samvinnuskipin sex. Hvassafell, fyrsta kaupskip Sam- bándsins, var keypf frá Italíu 1946 og kom til heimahafnar sinnar á Akureyri þá um haustið. Siðar kbitm Arnarfell, Jökulfgll, Dísar- fell, í.itiafell og Ilelgafell, öll sntíðuð í Svíþjóð, nema Dísarfell, s<?m sraíðað var 1 Hollandi. Skipin hafa ekki aðeins reynzt hin hent- ugustu í alla staði, heldur og ver- ið gæfuskip í hvívetna, mönnuð hinum yöskustu áhöfnum. Hefur það vcrið heppni samvinnuhreyf- ingarinnar, hversu ungir og dug- ahdi raenn hafa valizt í hvert rúm á skipunum, en meðalaldur skip- stjórannn er nú aðeins 40 ór og fyrstu stýrimanna 35 ár. ENN ÞÖRF FLEIRI SKIPA. Það var eitt höfuðeinkenni á rekstri skipadeildar SÍS s.l. ár, að luin þurfti að leigja 41 erlent skip til 51 ferða og fluttu þessi skip 69 381 smálest af vörum til landsins, Voru þau hálfdrætting- ar á móti Sambandsskipunum, ef olíuflutningar eru ekki með- taldir. Að vísu voru ýmsar, sérstakar ástæður fyrir þessari miklu þörf fyrir leiguskip ó síðasta ári. Bygg- ingarefnisflutningar voru mjög miklir og fóðurbætisflutningar seinni hluta árs meiri en venju- lega. Þá hafði verkfallið s.l. vor þau áhrif, að leigja varð fleiri skip en ella. Samt sem áður gefa þessar töl- ur tvímælalaust bendingu í þá átt, að samvinnumenn þurfi að auka enn tölu flutningaskipa sinna til þess að geta annað öllum þeim flutningum sínum, sem eðlilegt má kalla að eigin skip geti afkast- að. Þörfin fyrir nýtt olíuskip til niillilandasiglmga, sem nú er verið að reyna að fá, er svo ann- að mál, og getur engum manni dulizt, sem fylgzt hefir með skrif um um olíufluíninga til landsins umlapfarið, að það sé sjálfsagt skref fyrir ísleudinga og hag- kvæmt að taka þá flutninga að vcrulegu leyti í eigin liendur. FLUTNINGAR HINNA EINSTÖKU SKIPA. ,,Fellin“ 'sex eru öll vöruflutn- ingaskip, sém smíðuð voru með sér stöku tilliti til flutningaþarfar ís- lendinga og beiniínis fyrir þá skip- an flutninga, sem samvinnumenn telja landsmenn þuría. Eru Jökul- fell og Dísarfell alveg sérstaklega miðuð við að geta komið á sem flestar smáhafnir, og hafa þau ver- ið atvinnulrfi víðs vegar um landið ómetanlegtfr stuðningur með því að flytja ört frá frystihúsum og mjölverksmiðjum afurðir þeirra. Hvassafell, Arnarfell og Helgafell hafa aðallega annast þungavöru- flutninga, en Sambandsskipin ann- ast enn tiltölulega minnstan hluta af stykkjavöruflutningum. Ilvassafell (2300 Dwt) fór s.l. ár 17 ferðir, flutti 31. 153 smálestir af vörum og sigldi 36.270 sjómílur. Hjörfur Hjarfar framkvæmdastjóri. Skipstjóri er Guðmundur Hjalta- : son. í Arnaríell (2300 Dv/t) fór 9 ferð- ir, flutti 17.375 lestir og sigldi 43. 944 sjómílur. Skipstjóri er Sverrir Þór. í Jökulfell (1045 Dwt) fór 22 ferð- j ir, fiutti 18.402 lestir og sigldi 43. • 046 sjómílur. Skipstjóri er Guðni Jónsson. ; Dísarfell (1031 Dwt) fór 17 ferð ir, flutti 15.397 lestir og sigldi 41. 164 sjómilur. Skipstjóri er Arnór : Gíslason. I Litlafell (917 Dwt) fór 115 ferð- i ir, flutti 88.285 lestir og sigldi 28. I 137 sjómílur. Skipstjóri er Bernarð Pálsson. Helgafell (3250 Dwt) fór 12 ferð ir, flutti 25.761 lest og sigldi 43.100 sjómílur. Skipstjóri er Bergur Páls son. Eins og tölurnar bera með sér, hafa verkefni skipanna verið mjög ; mismunandi, enda fara þessar töl- ; ur verulega eftir siglingaleiðum | þeim, sem þau eru send á, hvort ferðir eru langar eða stuttar. ; Litlafell var eingöngu í strandferð 1 um með olíu. : , HVAÐA ISLENZKAR HAFNIR KOMU SKXPIN Á? Það er fróðlegt fyrlr menn aö kynnast því, hvaða hafnir sam- vinnuskipin komu á innanlands. Er þá athyglisvert, að millilanda- skip skuli koma til rúmlega 60 haína hér á landi, og hcfði það þótt óírúlegt fyrir einum eða tveim áratugum. Hafa samvinnu- menn með þessari skipan siglinga sinna átt verulegan þatt í að auka Surmlenzkur bóndi: Orðið er frjálst Fjórðungssjúkra- hús á Suðurlandi Nýlega er komið fram á Alþingi frumvarp um svonefnt talnahappdrætti og er fyrirhugað að ágóða af því skuli varið til byggingar fjórðungssjúkrahúss á Suðurlandi, og er talið, að fyrir það fé er inn kæmi af slíku happdrætti, sé unnt að reisa sjúkrahúsið, og jafnvel fleiri sjúkrahús síðar, þar sem þeirra er mest þörf. Það þarf ekki að ræða hina brýnu þörf, sem orðin er fyrir sjúkrahús á Suðurlandsundirlend- inu. Þessa þörf þekkja allir, og mest aðkallandi vandamálið hjá Sunnlendingum í dag, er að sjúkra húsið komist sem fyrst upp, — og þyrfti raunar að vera komið fyrir löngu. Þegar frv. um talnahappdrættið kom fram á Alþingi um daginn, brá svo undarlega við, að Þjóð- varnarmenn og kommúnistar virð- ast ætla að vinna þessu þarfa máli allt það ógagn, er þeir mega. Risu þeir upp úr sætum sínum kump- ánarnir Einar Olgeirsson og Berg- ur Sigurbjörnsson, og börðust um sem naut í flagi gegn happdrætt- inu. Og hvað skyldi þá svo sem varða um líf og heilsu sveitafólks- ins? Sjálfir hafa þeir sjúkrahús og mýmarga lækna svo að segja við húsdyrnar hjá sér, svo þeir og þeirra nánustu geta fengið skjóta hjálp, ef veikindi ber að veg margra hafna víðs vegar um land, og er athyglisvert fyrir sunnlendinga að heyra það til dæmis, að „Fellin“ hafi komið 23 sinnum á árinu í Þorlákshöfn. Þeir búa ekki í „liafnlausu" hér- aði lengur. Svipaða sögu geta aðrir sagt víðsvegar um land. . Hér fer á eftir listi yfir hafn- irnar og tölur um viðkomur í hverri höfn; Viðkomur Akranes ................. 27 Borgarnes ............... 10 Hellisandur .............. 3 Ólafsvík ................ 11 Grundarfjörður ........... 11 Stykkishólmur ............ 13 Búðardalur ................ 3 Salthólmavík ............. 2 Gjögur .................... 2 Króksfjarðarnes ........... 2 Hvalsker .................. 1 Flatey ................... 3 Patreksfjörður ........... 15 Tálknafjörður ............. 7 Bíldudalur ............... 12 Þingeyri ................ 24 Flateyri ................. 23 Súgandafjörður ........... 11 Bolungarvík ............... 1 ísafjörður ............... 33 Langeyri .................. 3 Ingólfsfjörður............. 1 Norðurfjörður ............. 5 Drangsnes ................. 4 N Djúpavík ................. 1 Hólmavík ................. 18 Óspakseyri ................ 4 Borðeyri .................. 6 Hvammstangi .............. 16 Blönduós .................. 3 Skagaströnd............... 28 Sauðárkrókur ......,.... 25 Hofsós ................... 8 Haganesvík ............... 3 Siglufjörður ............. 37 Ólafsfjörður ............. 14 Dalvík ................... 25 Hrísey ................... 14 Dagverðareyri ............ 1 Krossanes ................ 3 Hjalteyri ................ 6 Akureyri ................. 56 Svalbarðseyri ............ 13 Húsartk .................. 37 Kópaskcr ................. 6 ltaufarhöfn .............. 13 Þórshöfn ................. 16 Bakkafjörður ............. 7 Vopnafjörður ............. 17 Borgarfjörður ............ 9 Seyðisfjörður ............ 25 Norðfjörður .............. 19 Eskifjörður .............. 16 Reyðarfjörður ............ 34 (Framhald á 8. síðu.) höndum. Lengra virðist þeirra hugsun ekki ná. Ekki úr háum söðli að detta. ÞESSI AFSTAÐA Þjóðvarnar- manna kemur ýmsum á óvart, því að þeir hafa jafnan látið svo að þeir bæru hag sveitanna fyrir brjósti. Er ekki nema gott um það að segja, að þeir skuli nú hafa sýnt sveitafólkinu sitt rétta andlit, og mun þeim verða þökkuð þessi frammistaða að verðleikum á sín- um tima — kannske gefst tæki- færi til þess strax í vor. Afstaða kommúnista kemur engum á óvart. Þeir hafa alltaf sýnt sveita- fólki ýmist ódulinn eða illa dul- inn fjandskap. Þegar bændur hafa fengið hækkun á afurðaverði sinu í samræmi við launahækkanir annarra stétta, þá hefir það ætíð heitað á máli Þjóðviljans: „Ný árás á lífskjör alþýðunnar“. Komm únistar vita sem er, að þeir hafa ekki úr háum söðli að detta með fylgi sitt í sveitum, enda fer það stöðugt minnkandi, þó að enn finnist einn og einn maður í sum- um sveitum landsins, sem heldur tryggð við rússneska heimatrú- boðið. Bjálkinn í eigin auga. OG HVAÐ var það svo, sem Einar og Bergur fundu talnahapp- drættinu til foráttu? Jú, þeir sögðu að það væri táknrænt fyrir spill- inguna í þjóðfélagimi, og með því væri slegið á lægstu strengi fjár- glæfra- og svikastarfsemi. Komm- únistar og Þjóðvarnarmenn hafa eínt til happdrættis til framdrátt- ar blöðum sínum, og kommúnistar raunar á hverju ári. Ekki hafa þeir félagar fordæmt þessi happ^ drætti. Til er happdrætti hér á landi, sem í eðli sínu er líkt talna- happdrættinu. Það eru getraunir, þar sem gizkað er á, hver muni verða úrslit í knattspyrnukappleikj um úti í Bretlandi. Ekki hafa þeir félagar fordæmt þetta happdrætti, það ég veit, og er þó ekki ágóða af því varið til jafn þarflegra hluta og sjúkrahúss. — Árið 1954 „þurftu“ kommúnistar að kaupa dýra húseign í Reykjavík til áróð- ursstarfsemi sinnar, en höfðu ekki handbært fé til kaupanna. Og þá fóru þeir að safna fé, með þeim árangri, sem alkunnur er orðinn, að þeir skófluðu upp á örskömm- um tíma á aðra milljón .króna. Sagði Þjóðviljinn, að fó þetta hefði safnazt hjá íslenzkri alþýðu — og þá sennilega þeirri sömu alþýðu, sem hafði svo lágt kaup og var svo dreppínd af sköttum, að hún hafði vart málungi matar eða ígangsklæði — samkvæmt frásögn Þjóðviljans fyrr og síðar. Ekki minnist ég þess, að þeir Einar og Bergur töluðu um „spillingu, fjár- glæfra- og svikastarfsemi" í sam- bandi við þessa síðastnefndu söfn- un. Ef þeir Einar og Bergur hefðu komizt í þá þungu raun, sem margt sveitafólk hefir mátt þola á undanförnum árum, og þolir enn, að sjá einhvern af sínum nánustu kveljast og tærast upp í heimahúsum nieðan beðið var eftir sjúkrahúsvist, og svo þegar sjúkrarúm loks losnaðf, máske 4—6 vikum eftir að það var pant- að, þá var allt orðið um seinan; sjúkdómurinn kominn á það hátt stig, að ekkert varð aðgert, og sjúklingar í sumum tilfellum dáu ir, þegar sjúkrarúm losnaði, — þá efast ég um að þeir hefðu sýnt það vítaverða ábyrgðarleysi, að lcggja stein í götu þessat máls. 4

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.