Tíminn - 19.09.1964, Blaðsíða 16

Tíminn - 19.09.1964, Blaðsíða 16
r Laugardagur 19. september 1964. 213. tbl. 48. árg. Vegamálaskrifstofan flytur Það voru sveittir skrifstofu- ur undanfarin ár, og í Borgar- Sigfússoin að rogast með eina menn og verkfræðingar, sem unnu kappsamlega að því að flytja in'nbú Vegamálaskrifstof- unnar í dag frá Laugavegi 114 þar sem þeir hafa haft aðset- tún 7, sem eru ný heimkynni fyrir verkfræðinga og skrif- stofufólk Vegagerðarinnar. skúffuna úr skjalaskápum Vega gerðarinnar, og þau eni sann- arlega engin léttavara plöggin, s-em geym eru í þessum skúff- • • OUUMOUN HEF UR REYNZT VEL KJ-Reykjavík, 18. september. Fyrir um það bil ári var -mikið rætt og ritað um olíumöl og sitt nýndist hverjum. Tíminn hafði í dag tal af tveim aðilum, sem höfðu með olíumölina að gera í fyrra, og spurði um rejmsluna, sem feng- izt hefði af olíumölinni. þó ívið dýrara. Á Akureyri var Magnús Guðjónsson bæjarstjóri á Akureyri, sagði að 500 metrar af Hafnarstræti hefðu verið lagðir olíumöl fyrir ári, og eftir þeirri reynslu, sem nú hefði fengizt, væri ekki nema gott eitt um olíu- mðlina að segja. Áferðin væri Magnús sagði að undirbúningur agnús sagði að undirbúningur hefði verið vandaður eins og kost- ur hefði verið á, og mölin m.a. þurrkuð. Við þær aðstæður, sem hér væru, þyrfti að þurrka efnið, svo árangur yrði góður. Varðandi kostnaðarhliðina væri það að segja^ að malbikið væri álíka dýrt, DILKAR MEÐ VÆNSTA MÚTI BS-Hvammstanga 18. septetíiber. Sauðfjárslátrun er nú hafin hér af fullum krafti, og hefur þegar staðið yfir í fjóra daga. Dilkar virðast vera með vænsta móti, enn sem komið er, og hafa þeir til þessa verið að meðaltali hálfu kílógrammi þyngri nú cn í tneðal- lagi. engin olíumöl lögð í sumar, en aftur á móti var einn kílómetri gatna malbikaður, Grófargilið að íþróttahúsinu, Eyrarvegur, og svæðið í kringum kirkjuna. Ólafur Einarsson sveitarstjóri í Garðahreppi tjáði okkur að Garða- hreppur hefði hug á að halda á- fram að leggja olíumöl á götur hreppsins, þótt ekkert hefði verið gert í því í sumar. Olíumölin, sem lögð var í fyrra af sveitarfélag- inu, hefur haldið sér vel, sagði Ólafur, en aftur á móti væri bezta dæmið um olíumöl að finna á Vífilsstaðaveginum. Þar lagði Vegagerðin olíumöl á nokkurn kafla sumarið 1962, og hefur sá kafli dugað vel. Olíumölina kvað Ólafur vera mun ódýrari en mal- bikið, og yrði væntanlega byrjað á lagningu hennar af fullum krafti næsta vor í Garðahreppi. HLADA BRENNUR Á GEIBINGADEK HF-Reykjavík, 18. september. I kunnugt um það, hvort hlaðan Um hálffjögurleytið í dag kom var tryggð, þar sem þeir leigja upp eldur í hlöðu á Geldingalæk í bæinn. Rangárvallasýslu. Slökkviliðið á Hvolsvelli kom strax á vettvang og hafði eldurinn verið slökktur klukkan hálfsjö. Hlaðan var þá brunnin og það hey, sem í henni var, 2—300 hestar. Hlaða þessi var hlaðin úr hráun- grýti og tók hálft þriðja hundrað hesta af heyi alls. Hún stóð fjarri öðrum bæjarhúsum, svo eldurinn náði ekki að breiðast út. Talið er öruggt að um sjálfsíkviknun hafi verið að ræða, en fyrir skömmu kviknaði einnig í heyi á Koti á Rangárvöllum, vegna ofhitnunar. Geldingalækur er sambýli og búa þar bændurnir Gísli Gíslason og Ingvar Magnússon. Heyið var ekki tryggt, en þeim bændum var ekki SÁU EKKI ASK FYRIR SOLINNI EJ-Reykjavík, 18. september. í dag voru haldin sjópróf í sambandi við árekstur togar- anna Víkings AK 100 og Asks RE 33 á Jónsmiðum við Aust- ur-Grænland, og taldi skipstjór inn á Víkingi, að orsök árekst- ursins væri sú, að hann hafi siglt á móti sólu og því ekki séð Ask fyrr en of seint. Ask- ur var að toga, og gat því ekki beygt undan til að forða á- rekstrinum. Sjóprófin hófust klukkan 10 í morgun, og var Valgarður Kristjánsson dómforseti, en meðdómendur Eiríkur Kristó- fersson og Sigmundur Sig- mundsson. Hans Ragnar Sigur- jónsson, skipstjóri á Víkingi, kom fyrstur fyrir og skýrði hann svo frá: — „Ég tel sólskin vera aðal ástæðuna fyrir árekstrinum. Askur kom úr sólarátt frá Vík- ingi og sá ég ekki togarann fyrr en mjög lítið bil var á milli skipanna." Hans sagði svo frá, að togar- arnir hefðu báðir verið að veið um á svipuðum slóðum, hefði Askur togað í suður en Vík- ingur í norður. Þegar þeir á Víkingi hætu að toga, svipuð- ust þeir um eftir Aski, en sáu hann hvergi, og töldu, að hann hefði farið af miðunum. Þeir hefðu veríð búnir að kippa í um 10 mínútur, þegar þeir urðu varir við Ask, og heyrðu flaut frá honum, þegar um tvö hundruð metra bil var á milli þeirra. Skipstjórinn á Aski, Arin- björn Sigurðsson, kvað þá á Aski hafa verið að toga, þegar þeir sáu Víking nálgast, og hefðu þeir ekki haft nokkurt svigrúm til þess að koma sér burt og forða þannig árekstri. Sjóprófum í máli þessu er nú lokið. Mjög litlar skemmdir urðu á togaranum Víkingi, og mun hann halda á veiðar aftur þegar í kvöld. Aftur á móti skemmdist Askur þó nokkuð á bakborðshlið og brú. ASKUR skemmdist nokkuð v'ið áreksturinn, eins og sjá má á mynd- inni. Skemmdirnar urSu bakborðsmegin, brúarhornið skemmdist og sömuleiðis lunningin. Nokkur leki kom að skipinu og olíutankur sprakk. Víkingur skemmdist aftur á móti ekkert, og hélt út á mið- in í gærkvöldi. (Tímamynd, GE).

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.