Tíminn - 18.01.1962, Blaðsíða 1

Tíminn - 18.01.1962, Blaðsíða 1
Fólk er beðið að athuga, að kveldsími blaðamanna er 1 8303 Munið að tilkynna vanskil á blaðinu í síma 12323 fyrir kl. 6. 14. tbl. — Fimmtudagur 18. janúar 1962 — 46. árg. Oddamaður fundinn í verðlagsráð sjávarútvegsins, bls, 3 TAKA ViÐ A NY NTB. — Santo Domingo, 17. janúar. Sjö manna nefnd tók í morgun öll völd í Domini- kanska iýðveldinu í sínar hendur með stuðningi yfir- manna allra deilda hersins. Tveir nefndarmanna voru hátt settir fylgismenn Trujillo fyrr um einræðisherra Domini- kanska lýðveldisins á sinum tíma. Þrír vinstrisinnaðir með KEKKONEN limir fyrri stjórnar voru sam- tímis handteknir. Balaguer forsætisráðherra sagði af sér í gærkvöldi, þegar komið hafði til mikilla óeirða í höfuð- borginni Santo Domingo þá um kvöldið, er 5 manns voru drepn- ir og þrjátíu særðir. Það voru vinstri sinnuðu flokkarnir, sem stóðu fyrir uppþotunum. Kveikti fólkið í kvikmyndahúsi, sem ná- inn vinur Trujillo átti. Þá komu skriðdrekar á vettvang og hófu skothríð á mannfjöldann með fyrr greindum afleiðingum. Sjö manna nefndin tilkynnti í kvöld, að hún mundi sitja að völd um til febrúarloka, en þá yrðu nýjar kosningar. Skref aftur á bak í Bandarííkjunum vöktu þessar fregnir mikla óánægju. Utanrikis ráðu'neytið tilkynnti, að Bandarík in yrðu enn á ný að breyta af- stöðu sinni til Dominikanska lýð- veldisins eftir þessa byltingu. i Þetta sé skref aftur á bak og mik ið vandamál, ef Trujillo'sinnar ætla að taka aftur völdin í sínar liendur. 31 árs fjölskyldueinræði | Balaguer forsætisráðherra tók við völdum, þegar Rafael Trujillo einræðisherra var drepinn í haust, j en þá hafði hann og fjölskylda I (Framhaid at 1. síðu). Sameinar Kekk- onen miðflokka? Stöðumælar eru þokkaleg tekju lind og þeir varna því að sami bfll standi allan daginn við fjöl farna götu, þar sem margir þurfa að stanza og nota plássið. En það eru líka nokkur óþæg- indi af þeim, einkum fyrir þá, sem gleyma sér, eða eiga lengra erindi en þeir héldu. Þessi mynd var tekin í gær, þegar verið var að skrifa upp bíl, sem stóð hjá útrunnum stöðumæli. . Við skulum svo vona, að ökumanni hafi ekki orðið mikið um miðann, sem hann fékk og einnig vona, að lögreglumaður- inn hafi ekki kvefazt við skrift- irnar í nepjunni, sem var í gær. NTB—Helsinki, 17. janúar. Kekkonen Finnlandsforseti og bændaflokkur hans unnu fræg an sigur í forsetakjörmanna- kosningunum á mánudaginn og þriðjudaginn. Bændaflokk- urinn, sem bauð Kekkonen fram til endurkjörs, hlaut nær helming kjörmannanna eða 145 af 300. Kekkonen hefur einnig hlotið kjörmannafylgi annarra miðflokka, svo að tal- ið er, að 200 kjörmenn muni styðja hann, þegar til atkvæða verður gengið 15. febrúar. Hinn mikli framgangur bændaflokksins í kosningun- (Framhald á 15. síðu). Hún maraði svona Frá fréttaritara Tímans í Stykkishólmi, 17. jan. Á Skjaldbreið var einn far- þegi til Flateyjar, Sveinn Jóns- son frá Flatey, 87 ára gamall eyjamaður, fæddur og uppal- inn í Vestureyjum og hefur dvalið þar alla ævi. Eg hitti Svein um borð í varðskipinu Þór, í íbúð Andrésar Sólberg, 1. vélstjóra, og var hann fús að svara nokkrum spurningum. — Varstu kominn á fætur, þegar þetta gerðist? — Nei, ég var í koju og vakn aði við mikinn dynk. Svo var svolítið hlé, en svo kom annar mikill dynkur. Hvað er þetta, segi ég. — Aðalsteinn var með mér í klefa (Aðalsteinn Frið- finnsson, skipstjóri frá Grafar- nesi, einn þeirra, sem komust í gúmmibátinn — innskot blaðs ins) — eru þeir að setja upp? Hofmeistarinn kom inn stuttu seinna og sagði: Komdu strax út. Er nokkuð að? segi ég. Skipið er að sökkva, segir hann. Eg var nú alveg rólegur, og fór að fara í frakkann. — En helvíti hallaðist hún mikið! Þegar ég kom fram í dyrnar og ætlaði út, var sjór ' alveg upp í þær og lunningin á hádekkinu í kafi, og bátarnir slitnaðir frá. En svo rétti hún við, og fór bara vel undir, mar aði svona. — Varð þér ekki illa við, þeg ar bátarnir voru farnir? — O, ég var nú ekki mikið Framhald á 15. síðu. SVElNN^tóNSSON

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.