Morgunblaðið - 22.05.1963, Blaðsíða 1

Morgunblaðið - 22.05.1963, Blaðsíða 1
32 síður % Geysitjdn í eldsvoða að Laugavegi 11 10 fyrirtæki í húsinu Eldsupptök ókunn HUNDRUÐ þúsunda króna tjón varð í gærdag, er eldur kom upp í gömlu íbúðar- og verzlunarhúsf að Laugavegi 11, eign Sigurliða Kristjánssonar og Valdimars Þórðarsonar. Þar höfðu aðsetur 10 fyrirtæki og einnig var búið í nokkrum herhergjum. Eldurinn kom upp á 3. hæð, sem eyðilagðist, en einnig urðu miklar skemmdir á neðri hæðum hússins af vatni og reyk. Allt slökkviliðið í Reykjavík var kallað út til að berjast við eldinn. — Hér fer á eftir frétt um brun- ann, svo og viðtöl við nokkra eigendur fyrirtækjanna og íbúa hús&ins: Slökkvi'liðinu var gert aðvart kl. 13.40 í gærdag um að eldur væri laus í húsinu að Laugavegi Brezka orð- sendingin jákvæð ORÐSENDING sú, sem Bret- ar hafa sent sem svar við orð- sendingu íslenzku ríkisstjórn- arinnar út af Milwood-málinu, er hin jákvæðasta. I tilefni af fáheyrðum blekkingum stjórn | arandstöðublaðanna í gær skulu fjögur meginatriði orð- sendingarinnar rakin hér á eftir: 1. Viðurkennt er, að Smith skipstjóri á Milwood hafi gengið ólöglega úr greipum ís lenzku landhelgisgæzlunnar, þótt brezka stjórnin telji sig ekki hafa lagagrundvöll til að framselja hann nauðugan. I Hins vegar vill hún stuðla að þvi með þeim ráðum, sem hún telur sér tiltæk, að hann komi fyrir íslenzka dómstóla. 2. Vakin er athygli á því, að við höfum löglega náð tog- aranum Milwood á okkar vald, og þar með viðurkennt, að skipið sé í okkar vörzlu með löglegum hætti. 3. Viðurkenning er gefin á því, að islenzka landhelgis- gæzlan hafi í engu farið rangt að, og þar með er ljóst, að sökin er öll á aðra hliðina. Og harmar brezka stjórnin, að til þessa atviks skyldi koma. 4. Mikilvægast er þó, að brezka stjórnin tekur á sig á- byrgð á framferði Hunts skip- herra með beinni yfirlýsingu í þá átt. Ef brezka stjórnin teidi að ekkert brot hefði ver- ið framið gegn islenzkum hags munum væri slík yfirlýsing ó- þörf og raunar út í bláinn. I þessari yfirlýsingu felst það, að nánar þurfi að semja milli ríkisstjórnanna sjálfra um frekari aðgerðir vegna þessa máls. Það, sem brezka ríkis- stjórnin segir, er í rauninni, að við sig sé að tala um það, hvernig ábyrgð verði fram komið á hendur þeim, sem sök bera, og hún sé reiðubúin til slíkra viðræðna. Af öllum þessum ástæðum 'ber að fagna orðsendingunni 11. Þar hafði komið upp eldur á þriðju hæð í húsnæði heildverzl- unarinnar Ölvers, sem er í suð- vestur-horni hússins. Enginn var þar inni. Maður, sem býr í herbergi næst ölver, Jóhannes Geir Jóns- son, mun fyrstur hafa orðið var við eldinn, er rúður sprungu út úr glugga er snýr að Laugavegi. Sá hann að eldtungur teygðu sig þar út. Reyndar mun kona á næstu hæð fyrir neðan, Sesselja Þorkelsdóttir, hafa orðið vör við er rúðurnar sprungu. Strax var hringt á slökkvilið- ið, sem kallaði út alla sína starfs- menn og munu um 50 þeirra hafa farið á brunastað með 5 slökkvi- liðsbíla og dælu. Auk þess voru notaðir 3 stigabílar frá Rafmagns veitunni. Allri umferð var lokað um Laugaveg, svo og Hverfisgötu, þar sem taka þurfti vatn til slökkvistarfsins. Mikinn reyk lagði upp frá húsinu og safnaðist mikill mannfjöldi saman til að horfa á slökkvistarfið. Eldurinn breiddist fljótt út um 3. hæð miðhússins, en það snýr að Laugavegi, en tvær álmur ganga út frá því að austan- og vestanverðu. Á einum stað brenndi eldurinn sig niður á 2. hæð og þak miðhússins logaði einnig. Slökkviliðið notaði fyrst há- þrýstislöngur bílanna og jafn- framt var tengt við brunahana og vatn tekið úr fjórum. Sfrezkur veiðum VARÐSKIPIÐ Þór kom um kl. 4 í fyrrinótt að brezka tog- aranum Spurs, Grimsby 697, þar sem hann var að ólöglegum veið- um innan fiskveiðitakmarkanna út af Stokksnesi. Farið var með togarann inn til Seyðisfjarðar, þar sem réttarhöld hefjast í dag í máli skipstjórans, sem er Thorarin K. Olgeirsson. Þegar Þór kom að Spurs var hann 4.2 mílur innan 12 mílna markanna út af Stokksnesi og 1.2 mílur vestan við takmörk hólfsins, sem togurum eru leyfð- ar veiðar í á þessum árstíma. í hólfinu voru um 20 togarar. Varðskipið kallaði togarann Frá brunastaðnum skömmu eftir að eldurinn brauzt út. Reykjarmökkur lagði um nágrennið og fólk þyrptist að til að sjá slökkviliðsstarfið. Ljósm.: Sv. Þ. Eldurinn var magnaðastur Laugavegs megin í skrifstofu Ölvers. Strax og eldsins varð vart, fóru menn frá verkstæði Ottós Michelsen með handslökkvi tæki upp, en er þeir opnuðu hurðina gaus eldurinn svo magn- aður á móti þeim, að þeir urðu frá að hverfa. Rjúfa þurfti þakið svo hægt yrði að koma í veg fyrir að eld- urinn kæmist í vestur. og austur upp í talstöð og skaut að hon- um tveim púðurskotum. Togar- inn stanzaði þegar og fór skip- stjóri hans yfir í varðskipið og athugaði staðarákvarðanir þess. Hafði hann ekkert við þær að athuga. Beðið var birtingar og þá gerðar sextantmælingar og fór skipstjóri yfir í togarann aftur ásamt Ólafi Val, stýrimanni. Héldu skipin til Seyðisfjarð- ar og komu þau þangað um klukkan 6 í gærdag. Réttarhöld munu hefjast í máli skipstjórans í dag. í gærkvöldi komu þeir Geir Zoega, umboðsmaður brezkra togaraeigenda, og Gísli álmur hússins og tókst það. Þar sem eldurinn var hvað magnað- astur féll þakið inn. Slökkvistarfið var mjög erfitt vegna mikils reyks og unnið var ósleitilega að því af slökkvilið- inu og fólki því, sem starfaði í húsinu, að bjarga þvi sem hægt var. Einkum þóttu starfsmenn verkstæðis Ottó Michelsen sýna mikinn dugnað við að bjarga hinum verðmætu vélum, sem ísleifsson, hrl., til Seyðisfjarð- ar og munu verða viðstaddir réttarhöldin. Varðskipsmenn segja, að Ol- geirsson hafi ekki beðið brezkt herskip að -koma á vettvang, enda hafi ekkert verið í grend- inni. Bera þeir skipstjóranum mjög vel söguna. Togarinn Spurs er aðeins 9 mánaða gamall, 439 brúttótonn að stærð. Hafði togarinn nýlega verið kominn á veiðar. Eigandi er Consolidated Fisheries Ltd. Skipstjórinn var sofandi er varðskipið kom að togaranum en stýrimaður hafði stjórn hans á hendi. voru í húsnæði fyrirtækisins á annarri hæð. Stillt veður var og logn, og hefur það vafalaust orðið til að ekki fór verr, því húsið er að mestu úr timbri, en nokkur hluti hússins er með steyptum hús- veggjum. Slökkvistarfið tók rúma 3 tíma og var að heita lokið um klukk- an 4 síðdegis. Brunavarzla var höfð til miðnættis, en sl. nótt var lögregluvörður við húsið í öryggisskyni. Enn sem komið er, er ókunnugt um eldsupptök, en fullvíst er tal- ið að þau hafi orðið í skrifstofu- herbergi ölvers. Unnið er að rannsókn ennþá. Ljóst er, að tjónið nemur hundruðum þúsunda króna, bæði á húsinu sjálfu og á vörum og eignúm fyrirtækja og ein- staklinga, sem aðsetur höfðu í því. Hef hug á að gera við húsið. Morgunblaðið sneri sér í gær- kvöldi til nokkurra aðila, er vorú til húsa að Laugavegi 11, svo og húseigenda. Sigurliði Kristjánsson, sem er annar eig- andi húseignarinnar, veitti eftir- farandi upplýsingar: „í þessari húsasamstæðu ráku 10 fyrirtæki starfsemi sína, fimm verzlanir voru á götuhæð, þeirra á meðal verzlunin Voúge, á miðhæð var skriftvélaverk- Framhald á bis. 19. togari tekinn að út af Stokksnesi 4-

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.