Morgunblaðið - 13.01.1974, Blaðsíða 10

Morgunblaðið - 13.01.1974, Blaðsíða 10
 10 MORGUlVfBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 13. JANUAR 1974 L Fjölbreytt listaverk Reykjavíkur- borgar á Kjarvalsstöðum A HAFNARBAKKANUM, mynd eftir Finn Jónsson frí 1947. KONA, mynd eftir Þorvald Skúla- son frá 1942. (Gjöf frá Ragnari Jónssyni forstjóra). GÖTUMYND, eftir Nínu Tryggvadóttur frá 1955. Höggmynd eftir Sigurð Steinsson. DVRKUN, höggmynd Asmundar Sveinssonar. í gær var opnuð í vestursal Kjarvalsstaða sýning á 107 lista- verkum í eigu Reykjavfkurborg- ar. Er hér um að ræða 95 málverk eftir 54 málara, 10 höggmyndir eftir 8 myndhöggvara og eín lág- mynd auk eins veggteppis. Að sögn Páls Líndals borgarlög- manns hefur Reykjavíkurborg eignazt þessi verk flest öll á síð- ustu 20 árum, en alls á borgin um 200 málverk auk mynda eftir Kjarval, en fjöldi þeirra í eigu borgarinnar skiptir nokkrum hundruðum. Elzta myndin á sýningunni er eftir Jön ilelgason biskup, máluð um 1890. Flestar þessara mynda hafa verið dreifðar í hinum ýmsu stofnunum borgarinnar, en nökkrar af myndunum á sýning- unni hafa vérið gefnar Reykja- vikurborg. Uppsetníngu sýningarinnar og val mynda önnuðust þeir Einar Hákönarson listmálari, Guð- mundur Benediktsson mynd- hifegvari og Sigurjón Einarsson mundhöggvari. Sýningin mun standa yfir frá 12.—27. janúar og er hún opin frá kl. 4—22 á öllum virkum dögum, nema mánudögum, en þá er lok- að, og um helgar frá kl. 2—22. í sýningarskrá ritar Birgir Is- leifur Gunnarsson borgarstjóri m.a. eftirfarandi: „í regluih þeim, sem settar voru 1 borgarráði um Kjarválsstaði, er þess getið sem eins af aðalmark- miðum hússins að skapa aðstöðu til að kynna almenningi mynd- verk, sem séu 1 eigu borgarinnar og. ekki séu þegar aðgengileg úti vrið eða í stofnunum hennar. Á mörgum undanförnum árum héf- ur Reykjavikurborg eignazt drjúgt safn góðra listavérka eftir marga Ustamenn, eldri sem yngri. Með opnun Kjarvalsstaða hefur nú skapazt möguleiki á því að kynna borgarbúum þetta lista- safn borgarinnar. Húsið var opnað þ. 24. marz 1973 með sýningu á verkum eftir Jóhannes S. Kjarval og i austursal hússins voru þá eingöngu verk i eigu Reykjavíkurborgar. Sú sýning hefur nú verið opnuð að nýju nokkuð breytt. í vestursal hússins er nú sett saman sýning á myndum í eigu Reykjavikur- borgar eftir ýmsa listamenn. Myndir þessar hafa verið á víð og dreif i borgarstofnunum, á mis- munandi fjölförnum stöðum að sjálfsögðu, þannig að flestra þeirra hefur verið notið af tiltölu- lega fáum. Nú hefur verið sett upp sýning til að kynna al- menningi þessi verk. Það verður þó að segja, að hér er ekki allt saman komið af þvi, sem borgin á af slíkum verkum. Siðar gefst væntanlega tækifæri til að fylla upp i þá mynd, enda sjálfsagt að það verði fastur liður í starfsemi hússins að kynna borgarbúum þau myndverk, sem greidd hafa verið úr hinum sameiginlega sjóði þeirra. Safn þetta á og vafalaust eftir að aukast og vaxa á komandi árum. Sú staðreynd, að borgin ver á ári hverju nokkru fjármagni til kaupa á listaverkum, er óum- deild. Hitt er jafnvíst, aðsitt kann hverjum að sýnast um myndval. Gamlir, virðulegir meistarar eru nokkuð fyrirferðarmiklir í myndasafni borgarinnar, en þar eru líka myndir eftir okkar yngstu menn. Stefna borgarinnar er sú að eignast sýnishorn af myndum sem flestra íslenzkra listamanna, a. m. k. þeirra, sem lifa og starfa í borginni. Að visu hafa málverk eins og þau, sem hér eru sýnd, þann galla, að þau eru ýmist hengd upp í sýningarsölum eða ýmsum stofn- unum, sem misjafnlega margir heimsækja. Til að myndverk nái þeim tilgangi að verða i raun al- menningseign, þarf að koma list- inni meir út til fólksins. Af hálfu borgarinnar verður það bezt gert með því að stórauka fjölda högg- mynda, sem settar eru upp í borg- inni, og flytja þær meir út i hverf- in, svo og með því að ráða mynd- listarmenn til að skreyta borgar- byggingar, bæði utan og innan í meira mæli en nú er gert. Að þessu hlýtur að verða stefnt, þannig að borgarbúar í daglegri önn séu í sem nánastri snertingu við listina í borginni. Það er von mín, að borgarbúar noti bað tækifæri, sem nú býðst til að nema þá list, sem hér er sýnd.“ FRA HOLAVELLI, mynd eftir Jón Helgason biskup. FJÖTRAR, eftir Einar Hákonarson frá 1969.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.