Morgunblaðið - 25.01.1974, Blaðsíða 24

Morgunblaðið - 25.01.1974, Blaðsíða 24
24 MOHGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 25. JANÖAR 1974: •• Minning: Jón Gíslason, Hróars- stöðum Skagaströnd Fæddur 27.12. 1882. Dáinn 30. 4. 1973. Jón var sonur Gísla Benedikts- sonar, Magnússonar prests á Fagranesi á Reykjaströnd og konu hans Margrétar Jónsdóttur, prests á Hofi á Skagaströnd. Jón var þvi af prestum kominn í báðar ættir. Hann var fæddur á Hróarsstöð- um á Skagaströnd, haustið eftir sumarið, sem kennt er við misl- inga, kulda, kal, hafís og fleiri plágur og eitt sinn komst Jón svo að orði, að hann ófæddur hefði orðið sinhi móður ærið erfiður, en fáar mæður munu hafa fætt trygglyndari og traustari son, en hans móðir það sinn. Jón var uppalinn á þeim árum er hver varð að duga sem best í lífsbaráttunni og var hann þar síst eftirbátur annarra. Enda var hann kappsfullur og orkugóður og svo lagvirkur, að honum léku öll verk í höndum bæði á sjó og landi. Þetta kom sér vel fyrir fleiri heimili en hans, þvi ef skipta þurfti um boð í bát, smíða ár eða hrífu, þá var leitað til Jóns á Hróarsstöðum til að fá úr því bætt. Árin og hrífan voru fram- leiðslutæki þeirra tíma og þeir menn, er þau gátu endurbætt, voru öðrum mönnum þarfari. Skjaldan mun Jón hafa tekið gjald fyrir slíkan greiða, enda greiðslugeta oft lítil hjá þeim, er fyrir var unnið. Hann var því meir en traust sins heimilis, hann var einnig hjálparhella sinna ná- granna. Þó að Jón væri gjöfull á greiða, græddist honum þó nokk- urt fé, svo jafnan var hann traust- ur gjaldandi sinnar sveitar. Jón vann á heimiii foreldra sinna við hlið einkabróður síns Sigurðar, þar til faðir þeirra dó árið 1914. Um svipað leyti stofn- aði Sigurður sjálfstætt heimili, en Jón gerðist fyrirvinna móður sinnar og var það þar til hún andaðist árið 1939. Eftir lát henn- ar bjó Jón með frænku sinni nokkur ár, en lét svo af búskap, en dvaldi alla tíð á Hróarsstöðum ásamt systkinabörnum sínum, sem þar höfðu og hafa enn búsfor- ráð. Síðustu 16 árin hafa búið þar með börnum sínum hjónin Auður, bróðurdóttir Jóns, og maður t Móðir mín, tengdamóðir og systir UNNUR KONRAÐSDÓTTIR Glerárgotu 8. Akureyri sem andaðist 1 7. þ.m. verður jarðsungin frá Akureyrarkirkju laugar- daginn 26 janúar kl 13,30 Guðlaug Jónsdóttir Lúðvík Ágústsson Kristrún Konráðsdóttir Svava Hjaltalín. t Móðir mín ÁSBJÖRG KRISTJÁNSDÓTTIR frá Þórhól, Neskaupstað, lézt fimmtudaginn 1 7 janúar. Jarðarförin fer fram frá Norðfjarðarkirkju laugardaginn 26 janúar kl 2.00 Garðar Sveinn Árnason t Útför eiginkonu minnar, móður, tengdamóður, ömmu, dóttur og fósturdóttur, ÓLAFÍU RÖGNU MAGNÚSDÓTTUR, Laugateig 1 6, fer fram frá Fossvogskirkju, laugardaginn 26 jan kl 1 0 30 Ari Agnarsson, Benedikt Arason, Sverrir Arason, Ingrid Esbjörnsson, Rúnar Arason, Gréta Björgvinsdóttir, barnabörn, Jónína Guðmundsdóttir, Guðný Guðmundsdóttir. hennar Ingimar Sigvaldason. Hjá þessari fjölskyldu hafði Jón ró- legt og áhyggjulaust ævikvöld og undi þar vel hag sínum. Þetta er rólegt regluheimili og það hentaði hinum aldraða heiðursmanni vel. Hann hafði þar sérherbergi, þar gat hann dvalið í ró með bókum sínum og hugsunum, en svo verið með fólki og blandað við þaðgeði, þegar það hentaði betur. Það hefir verið vikið að því hér að framan, að Jón Gíslason var í færustu manna röð, með vinnulag og verkafköst, en þó mun hann meir hafa borið yfir meðal- mennskuna hvað gáfur snerti. Hann var fljótur að nema og hafði traust minni fram á siðustu ár Einkum var það ættfræði, sem honum var hugleikin og líktist með það móður sinni. Jón hafði sérlega gaman af ljóðum, einkum alþýðukveðskap og var góður hag- yrðingur sjálfur, en fór dult með. Það er sagt, að allir eigi sitt ævintýri. Það átti Jón Gíslason einnig. Hann var um tvítugt þeg- ar hann ákvað að fara alfarinn af landi burt og var Ameríka hans fyrirheitna land, sem svo margra annarra, er mundu eða þekktu hörmungar hörðu áranna á síðara hluta 19. aldar. Hann var búinn að kveðja og kominn að heiman inná Blönduós, þangað var skipið komið, er sigla átti með. Hann var kominn ofan í fjöruna að bátnum, sem flytja skyldi hann frá landi, þá gerist það, að hann hnígur niður máttlaus og honum hverfur veröldin. Ferðin varð ekki lengri. hann sneri hei-m að Hróarsstöðum og þar hefir hann átt heima alla sína 90 ára ævi. Sannarlega var þetta mikið happ fyrir byggðar- lagið, að svona fór, en grunur minn er sá, að Jón hafi talið sér þetta gæfuleysi lengi fram eftir árum og Ameríka hafi verið hans óskaland. Jón kvæntist ekki né gat af sér niðja, en eftir að foreldrar hans féllu frá, dvaldi hann ávallt ásamt systkinabörnum sínum á Hróars- stöðum, svo hann varð aldrei ein- stæðingur meðal vandalausra. Nú þegar Jón Gíslason er allur og ég hugleiði hvað einkenndi hann mest, þá verður mér efst í hug hve hann var á allan hátt traustur og trygglyndur, hvort sem ég minnist hans sem ná- granna, vinar eða vinnufélaga. Jón var hlédrægur maður og gaf sig lítt að opinberum málum. Sat þó í hreppsnefnd við góðan orðstír og fylgdist vel með á sviði þjóðmála og hafði þar sinar ákveðnu skoðanir. Ekki barði hann andstæðinga sína íllyrðum, en hann átti næmt skopskyn og beitti þvi ef hann deildi. Um leið og ég kveð Jón Gísla- son, þakka ég 70 ára viðkynningu og alla þá greiða, er hann gerði mér, en þó þakka ég meir það, sem hann gerði ekki, en hefði gert, ef ég hefði þurft á að halda. Jón Gíslason var góður íslend- ingur. Blessuð veri minning hans. Örlygsstöðum, í nóv. 1973. Sigurður Björnsson. SVAR MITT EFTIR BILLY GRAHAM Eigið þér við nokkur persðnuleg vandamál a3 etja? Ef svo er, hvernig farið þér þá a8? Enginn getur komizt hjá persónulegum vandamál- um. Ijfið er samsett af ljósi og skuggum, góðu og illu, friði og vandræðum. KarTnski verð ég að glíma við fleiri vandamál en gengur og gerist vegna ábyrgðarmikillar stöðu minnar. Mér er ljúft að segja yður, hvernig ég fer að. í fyrsta lagi geri ég ráð fyrir erfiðleikum. Ég er því ekkert hissa, þegar þá ber að höndum. Máltækið segir, að sá, sem sé við öllu búinn, sé líka vígbúinn. Þá er fásinna að ætla, að kristnir menn eigi v-ið færri vandamál aðstríða en allir aðrir. Ef til vil eru okkar erfiðleikar meiri en annarra, enda erum við ..borgar- ar himinsins". í öðru lagi fer ég með erfiðleikana til Drottins í bæn. Hann hefur heitið að bera byrðar okkar með okkur, og hann bregzt aldrei börnum sínum. Ég minni hann á- fyrirheit eins og þetta: „Kalla þú á mig, og mun ég svara þér og kunngjöra þér mikla hluti og óskiljanlega." Bæn er forsenda athafna. 1 þriðja lagi hlusta ég á leiðbéiningar Guðs, eftir að ég hef beðið. Bæn er samtal tveggja aðila — elzta ,,labb-rabb-tækið“, sem menn þekkja. Þér megið ekki aðeins tala sjálfir. Hlustið á svar Guðs yið vandanum. 1 fjórða lagi læt ég ritningarnar fylla hug minn. Guð talar skýrast í orði sínu. Ef þér farið nákvæm- lega eftir þessu, komizt þér að raun um, að flest vandamál yðar leysast. „Biðjið, og yður mun gefast; leitið, og þér m4nið finna.“ Anna Tómasdóttir Víkum — Kynslóðir koma, kynslóðir fara allar sömu ævigöng. Gleymist þó aldrei eilífa lagið við pilagrímsins gleðisöng. Anna Tómasdóttir, Vikum, er dáin. Þar er hniginn til foldar sterkur stofn og traustur. Hún bjó allan sinn búskap að Víkum á Skaga. Það, sem alla ævi lýsti sér í dagfari Önnu, var trú á lifandi Guð. Ég hitti hana í síðasta sinn á siðast liðnu sumri á heimili henn- ar. Hún var glöð og sagði mér, að sér liði vel. „Guð hefur alltaf greitt veg minn til blessunar," sagði hún, „en nú er það mitt eina áhyggjuefni, að ég er alveg að Minning missa sjónina," og þá sá ég, að raunarsvipur kom yfir andlitið. Fyrir fáum árum fór hún til Reykjavíkur og lét skera upp aug- un. Ég heimsótti hana þá þar og spurðí, hvort hún hefði fengið nokkra lækningu, Hún var hin kátasta og sagði: „Já, mér finnst það og trúi, að svo verði." Aðalsmerki Önnu í Víkum, eins og hún var alltaf kölluð, var óbif- andi traust og trú á handleiðslu Guðs og kærleika. Hún missti mann sinn frá stórum barnahópi, en kjarkurinn bilaði ekki, en efld- ist við þá eldraun. Elsku synirnir voru þá komnir yfir fermingar- aldur, dugmiklir og áhugasamir. Akvað þá Anna að halda saman barnahópnum sínum, og með Guðs hjálp, að halda áfram bú- skap. Synirnir reyndust henni líka ávallt góðir, Öll hennar börn urðu nýtir og góðir þegnar, sem hægt er'að treysta: Arið 1943 kynntist ég fyrst Önnu Tómasdóttur, er ég fluttist til Skagastrandar. Sigurður Sölva- son, maðurinn minn sál., var áður kvæntur Ragnheiði Árnadóttur, hálfsystur Önnu. Vegna þessara tengda var yngsta barn Ragnheið- ar og Sigurðar alið upp hjá Önnu, móðursytur sinni, en Ragnheiður missti heilsuna eftir mjög stutta sambúð með manni sínum og varð að flytjast á sjúkrahús. Leystist þá heimilið upp og börnunum þremur var komið fyrir hjá frændfólki sínu. Eftir fárra ára sambúð okkar Sigurðar fluttist Hallgrímur, son- ur hans, til okkar frá Víkum. Ég fann þá fljótt, að hann hafði notið góðs og kristilegs uppeldis hjá frænku sinni. Hún kenndi honum að eignast þann fjársjóð, sem möl- ur og ryð fær ekki grandað, trú á lifandi Guð og handleiðslu hans. Nú, við burtför þessarar vin- konu minnar, vil ég segja: Ég þakka Önnu af hrærðu hjarta fyr- ir kærleika þann, fórnarstarf og alla samúð, sem hún hefur sýnt móðurlausa litla drengnum, sem hún tók á heimili sitt. Ég bið kærleiksríkan Guð aðlauna henni á eilífa landinu kærleiksstarf sitt. Sérstaklega vil ég þakka henni, að hún kenndi honum að velja rétta veginn til lífsins, trúna á frelsar- ann, Jesúm Krist. Betra veganesti getur engin móðir eða uppalandi gefið börnum stnum, en trúna á Guð og eilífa lífið. Ef ísland ætti fleiri mæður llkar Önnu Tómas dóttur, væri andlega ástandið hjá okkar kæru þjóð ekki eins sorg- legt nú og raun ber vitni um. Ég óska henni velfarnaðar á landi Ijóss og friðar, um leið og ég sendi öllum ástvinum hennar samúðarkveðjur. Margrét Konráðsdóttir. JÓN ÁSGEIRSSON, Sunnubraut 44, Kópavogi, sem andaðlst 19. þ.m., verður jarðsunginn frá Fossvogskirkju, mánudaginn 28. janúar kl 10 30 Fyrir hönd konu, barna, systkina og ömmu Hildur E. Frímann, Ásgeir Gíslason. t Móðir okkar MÁLFRÍÐUR JÓNSDÓTTIR andaðist i Elliheimilinu Grund 24. janúar. Börn hinnar látnu. t Þakka af alhug auðsýnda samúð og vinarhug við andlát og útför, PÁLS KRISTJÁNSSONAR, bónda, Reykjum við Reykjabraut. Sólveig Erlendsdóttir. t Þökkum innilega auðsýnda samúð og vináttu við andlát og útför eiginkonu minnar, móður, tengdamóður, ömmu og langömmu, FREYJU ANDRÉSDÓTTUR. Sérstakar þakkir færum við starfsfólki A—7 deildar á Borgarspítalan- um fyrir góða læknishjálp og hjúkrun, einnig organista og söngfólki við útförina. DroHmn blessi ykkur öll Ebenezer Ebenezersson, Ásta Hanna Ebenezerdóttir, Arngrímur Guðjónsson. barnabörn og barnabarnabarn.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.