Morgunblaðið - 14.11.1976, Blaðsíða 2

Morgunblaðið - 14.11.1976, Blaðsíða 2
2 MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 14. NÓVEMBER 1976 Sr. Tómas Sveinsson settur í em- bætti í dag „Ljúkum verkinu” — Söfn- uninni lýkur um helgina UM þessa helgi lýkur söfnunar- herferð þeirri sem Hjðlparstofn- un kirkjunnar hefur gengizt fyrir undanfarinn hálfan mánuð. Hafa mörg framlög borizt bæði frá einstaklingum og fyrirtækjum og var söfnunarféð komið nokkuð á sjöttu milljónina á föstudag og sagði Guðmundur Einarsson frkv- stj. Hjálparstofnunarinnar að ekki væru öll kurl komin til graf- ar ennþá. Kvenfélagið Hringurinn ákvað á fundi sinum i vikunni að gefa eina milljón króna til þessarar söfnunar og afhenti formaður kvenfélagsins gjöfina á fimmtu- dag. Sr. Tómas Sveinsson. Prestkosning í Laugarnessókn Ragnheiður Einarsdóttir formaður Kvenfélagsins Hringsins afhendir Guðmundi Einarssyni gjöf frá Hringskonum til söfnunarinnar til styrktar þroskaheftum börnum. SUNNUDAGINN 14. nóvember, í dag, verður nýkjörinn prestur Háteigssafnaðar, sr. Tómas Sveinsson, settur í embætti. Ný- skipaður dómprófastur, sr. Ólafur Skúlason, framkvæmir inn- setninguna. Guðsþjónustan hefst klukkan 14 f Háteigskirkju. PJETUR Þ. Maack cand theol., annar umsækjandinn um prests- embættið f Laugarnessókn, flytur predikun f Laugarneskirkju f dag kl. 2 e.h. Pjetur er fæddur 14. marz 1950, sonur hjónanna Viggós E. Maack skipaverkfræðings og Ástu Þor- steinsdóttur, Daníelssonar skipa- smiðs. H:nn lauk stúdentsprófi frá Menntaskólanum í Reykjavík 1970 og embættisprófi í guðfræði frá Háskóla Islands haustið 1976. Pjetur sat í stjórn æskulýðsfélags Laugarnessóknar 1963—1974, þar af 4 ár sem formaður. Þá var hann samstarfsmaður sóknarprestsins í BLADIl) hefur verið beðið fyrir svohljóðandi yfirlýsingu: Vegna fréttar í Mbl. í ga-r um fyrirhugaðar aðgerðir Kélags há- skólamanna í kjaramálum víl ég taka fram, að stjórn félagsins hef- ur ekki hvatt félaga sina ti| verk- falls næstkomandi mánudag. llins vegar hefur hún hvatt starfsfólk einstakra deilda til að halda fundi um kjaramá! sín þann dag og enn- fremur að sa>kja fund Bandalags háskólamanna að Hótel Sögu. Haraldur Ólafsson, formaður KII. Kvennadeild Reykjavfkurdeildar Rauða kross Islands heldur basar ( Kóstbra-ðraheimilinu f dag, sunnudaginn 14. nóvember klukkan 14. Allir basarmunir eru unnir af konunum í deildinni á sfðastliðnu ári Ágóði rennur til sjúklingahókasafna hinna ýmsu sjúkrahúsa borgar- innar. Myndin sýnir hluta þeirra muna, sem á hoðstólunum verða. Hjálpa drykkjusjúkum CUSACKSHJÓNIN, sem hér hafa dvalist á vegum Kreeportklúbbs- ins, sem eru samtök þeirra, sem verið hafa á Kreeportsjúkrahús- inu í New York, til þess að reyna að hjálpa drykkjusjúkum með einkasamtölum og fyrirlestrum munu halda fyrsta fyrirlestur sinn í dag klukkan 15 í fundasal Hótel Loftleiða. Þau hjón munu dveljast hér- lendis í rúma viku. Munu þau fara til Akureyrar, Vestmanna- eyja og ísafjarðar, en þar er ætlunin að stofna deild úr AA- samtökunum á Islandi. Pjetur Þ. Maack allega að æskulýðsmálum. Sá m.a. um undirbúning hér á landi vegna ferða 1000 Eyjabarna til Noregs sumarið 1973. Einnig var Pjetur fulltrúi RKl við stofnun Ferðamálaráðs fatlaðra. Hann hefur verið fararstjóri í utan- landsferðum fatlaðra og hefur séð um „opið hús“ fyrir vangefna i Tónabæ á vegum Æskulýðsráðs Reykjavíkur nú um eins árs skeið. Hefur hann unnið hjá Æskulýðs- ráði í Tónabæ frá 1972, en var þar áður lögregluþjónn í tvö sumur. Hann hefur sérstaklega kynnt sér vandamál áfengissjúklinga, m.a. hjá AA-samtökunum. Pjetur sat i tvö ár í stjórn Fé- lags áhugaljósmyndara og var einn af stofnendum ljósmynda- klúbbsins „Ljóss“. Pjetur Þ. Maack er ókvæntur. Gunnar Pálsson Veturliði frá ýmsum tímum Veturliði Gunnarsson listmál- ari opnaði f ga>r sýningu á 134 myndum cftir sig í Kjarvalsstöð- um. „Þctta cru myndir frá ýms- um timabilum," sgði Vcturliði, „cn þó ckki yfirlitssýning, því þá hcfði ég þurfl miklu stærri sali og myndir að láni frá fólki. Eg ætlaði að fá báða sali Kjar- valsstaða og hafa gamalt í öðrum, nýtt í hinum, og samkvæmni á milli, en hún verður að bíða betri tíma, yfirlitssýningin. Nú eru þetta myndir m.a. frá ýmsum sýn- ingum síðan um 1950. Ég tók ákvörðun um að hafa það með vegna þess að svo mikið er komið Yfirlýsing Framhald á bls. 31 Högni Torfason segist eiga höfundarréttinn Laugarnesi við barnamessur í 3 vetur og um eins árs skeið í undir- búningsnefnd væntanlegs safnað- arheimilis Laugarnessóknar. Og kennari var hann við Laugarnes- skóla 1970—1974. Pjetur var í varastjórn Rauða kross íslenda 1971—1975. Sótti hann þá norrænar ráðstefnur sem fulltrúi RKl og námskeið Alþjóða Rauða krossins í Svíþjóð fyrir starfsfólk á neyðarsvæðum. 1973 var hann sæmdur „fortnejstdiplom" norska Rauða krossins úr gulli. Hann var 2 ár ritstjóri fréttablaðs RKÍ og um tíma fulltrúi RKl vegna Vest- mannaeyjagossins, og vann þá að- Högni Torfason látinn t GÆRMORGUN lézt 1 Borgar- spftalanum cftir stutta sjúkra- húsvist Gunnar Pálsson skrif- stofustjóri frá Hríscy, 64 ára að aldri. Gunnar Pálsson var skrifstofu- stjóri hjá Fiskimálasjóði og hafði gegnt því starfi frá árinu 1941. Hann var fæddur í Ólafsfirði 28. desember 1911, sonur Páls Bergs- sonar kaupmanns og konu hans, Svanhildar Jörundsdóttur, en þar rak Páll verzlun og útgerð. For- eldrar Gunnars fluttust síðan til Hríseyjar. Kona Gunnars Ingileif Bryndís Hallgrímsdóttir lifir mann sinn ásamt fjórum börnum þeirra. VEGNA þcirra blaðaskrifa, scm orðið hafa vcgna synjunar Hjalta Kristgeirssonar á endurbirtingu viðtals við hann um það leyti, sem ungverskir flóttamenn komu til landsins fyrir 20 árum. sneri Morgunblaðið sér til Högna Torfasonar, sem var fréttamaður rfkisútvarpsins þá og tók viðtalið. Högni sagðist Ifta svo á, að hann eigi og enginn annar höfundar- rétt að viðtalinu. Þess vegna geti enginn ráðskast með viðtalið án sfns samþykkis, ákveðið birtingu eða ekki birtingu. Högni Torfason sagði að á þess- um tíma hefði hann farið til Vín- arborgar og skoðað flóttamanna- búðir Ungverjanna í Vín. Á spól- unni, sem um er rætt er viðtal við dr. Gunnlaug Þórðarson, sem fór utan og náði í flóttamennina, við- tal við Hjalta Kristgeirsson, sem verið hafði í Ungverjalandi á meðan á uppreisninni stóð og loks er almenn lýsing Högna á búðun- um og aðstöðu fólksins þar. Aðgeróir BHM; Búist við víð- tækri samstöðu GERT er ráð fyrir víðtækri samstöðu félaga innan Bandalags háskóla- manna um verkfallsaðgerðir þær sem ætlunin er að efna til á morgun f þeim tilgangi að þrýsta á ríkisvaldið til að veita háskólamönnum kjara- bætur, að því er Jón Hannesson, formaður launamálaráðs BHM, skýrði Morgunblaðinu frá I gær. Aðgerðir þessar eru ekki að tilhlutan bandalagsins sjálfs heldur eru þær til komnar i kjölfar almenns félagsfundar í Glaumbæ fynr nokkru um kjaramálin, en þar var þeirri áskorun beint til stjórna aðildarfélaganna að undirbúa einhvers konar aðgerðir til að knýja á úrlausn I kjaradeilu háskólamanna og rikisvaldsms Innan BHM eru alls um 1 400 félag- ar, en að sögn Jóns er ekki hægt að leiða að þvi getum hversu stór hluti félagsmanna muni taka þátt i þessum aðgerðum nema hvað búast mætti við að það yrði víðta;kt, enda teygðu félag ar BHM arma sina mn á mörg starfs- svið i þjóðfélaginu Jón sagðist þó eiga von á að þátttakan yrði mest á höfuð borgarsvæðinu. enda væru hópar BHM úti á landi yfirleitt fámennir Að öðru leyti væri ekki unnt að segja til um það á þessu stigi hversu margir mundu skerast úr leik en hann taldi afstöðu lagaprófessora innan háskól- ans að mörgu leyti skiljanlega og einn- ig mætti gera rá_ð fyrir að ýmsir félagar BHM I mjög sérstökum störfum héldu einnig að sér höndum og nefndi hann I því sambandi dýralækna og lækna sem BHM semdi fyrir en þeir væru mjög fáir Launadeila Bandalags háskóla- manna er nú hjá kjaradómi en BHM hefur dregið fulltrúa sinn út úr nefnd- inni, þar sem bandalagið telur að reynslan sýni að dómurinn sé jafnan vilhallur rlkisvaldinu og aðgerðirnar á morgun séu þannig fyrst og fremst í þvi augnamiði að þrýsta á ríkisvaldið sjálft í því skyni að tryggja háskóla- mönnum einhverjar kjarabætur

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.