Morgunblaðið - 29.04.1977, Blaðsíða 10

Morgunblaðið - 29.04.1977, Blaðsíða 10
10 MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 29. APRlL 1977 Karólína Guðmunds dóttir — Áttræð Karólín Guðmundsdóttir er átt- ræð í dag. Hún er rædd 29. april 1897 að Þóroddsstöðum i Gríms- nesi. Foreldrar hennar voru Guð- nundur Jónsson og Sigurveig Einarsdóttir. Árið 1912 fluttust þau hjón ásamt þremur börnum sínum til Reykjavíkur. Reisti Guðmundui Þóroddsstaði við Hafnarfjarðar- veg, er þá var stórhýsi og bú, er enn í dag talar sínu máii um stór- hug og dugnað fjölskyldunnar. Verkmenning sú, er ríkti á æsku- heimili Karólínu hefur fylgt henni alla tíð. Árið 1923 giftist Karólína Einari S. Jóhannesssyni vélstjóra. Hann lést árið 1966. Einar og Karólina voru mjög samhent og var sambúð þeirra einkar farsæl. Þau hjón eignuðust tvo syni, Guð- mund og Jóhannes, er báðir eru verkfræðingar og valinkunnir menn. Einnig ólu þau hjón upp fósturdóttur, Guðrúnu Þórðar- dóttur, er búsett er í Keflavík. Karólina Guðmundsddóttir vef- ari lærði iðn sína í Kaupmanna- höfn á árunum 1920—1923. Stundaði hún fyrst nám i skól- anum Dansk kunstlivsforening, em þá var alþekktur þar i borg fyrir góða kennslu og fjölhæfa kennara. Þaðan hvarf hún til starfs og náms á vefstofu frk. Siegumfeldt, sem þekkt var fyrir vandaðan vefnað sinn og hina kröfuhörðustu viðskiptavini. Var til þess tekið, hve oft hún skipti um vefara, því fáir bjuggu yfir þeirri verkhæfni og dugnaði, er þar var krafist. Sem dæmi má nefna, að þar óf Karólina á 20 skafta vefstól, er hafði 5080 þræði á 1 sm og talar það sínu máli til þeirra, er til þekkja. Á þessum árum sátu vinnu- gleðin, námsáhuginn og starfs- þrekið i fyrirrúmi langa vinnu- daga, en stundir náms og vinnu ekki greindar sundur, sem nú vill svo oft heyrast. Fullyrða má, að þessi harði skóli ásamt hennar eigin hæfileikum og viljakrafti hafi orðið Karólinu það veganesti, er duði henni vel í vandasömu og erfiðu brautryðjendastarfi hér- lendis. Árið 1923 kemur Karólina til landsins fullnuma i iðn sinni. Hélt hún fljótlega sýningu á verkum sinum í húsi Listvina- félagsins, er vakti verðskuldaða aghygli fyrir vandaða og fallega Vegna hagstæðra samninga við pólsku Fiatverksmiðjurnar getum við nú boðið hinn rúmgóða 5 manna Fiat 125 P á ótrúlega lágu verði. SÝNINGARBÍLL Á STAÐNUM [~~| Hámarkshraði 1 55 km, [H Bensíneyðsla um 10 lítrar per 100 km. [“ Kraftbremsur með diskum á öllum hjólum Radial — dekk Tvöföld framljós með stillingu Laest benzínlok [ Bakkljós Q Rautt Ijós í öllum hurðum [[ Teppalagður [[ Loftræsti- kerfi Q Öryggisgler [[ 2ja hraða miðstöð [[[[' 2ja hraða rúðuþurrkur [~ Rafmagnsrúðu- sprauta Q Hanzkahólf og hilla [T Kveikjari f~ Litaður baksýnisspegill [[[ Verkfærataska j~ Gljábrennt lakk [[ Ljós í farangurs- geymslu [[ 2ja hólfa karborator [[ Syn- kromeseraður gírkassi [[ Hituð afturrúða Hallanleg sætisbök [ Höfuðpúðar Aðeí"Sk/a tíl öryrkJa *■ Leitið uppiýsinga sem fyrst. FIAT EINKAUMBOÐ A ISLANDI Davíd Sigurdsson hf SiÐUMULA 35. SIMAR 38845 — 38888 muni, og má jafnvel fullyrða, að hún hafi markað tímamót í ís- lenskri verkmenningu á sviði vefnaðar. Vefstofuna að Ásvallagötu lOa stofnaði hún siðan árið 1938. Var að henni mikill fengur, þar sem hún var eini staðurinn, sem vann handofna muni eftir óskum og eigin vali viðskiptavinanna. Sér- stök áhersla var lögð á vöru- vöndun og ekkert spárað til end- ingar voðanna. Með tilkomu nýrra stílbrigða i húsbúnaði komust ofin ullar- áklæði og gluggatjöld almennt meira í notkun, enda fóru þau einkar vel við hinn nýja stil. Var þá ekki aðeins leitað til Karólínu af einstaklingum, heldur einnig af ýmsum opinberum stofnunum. Þannig má enn í dag sjá ofin áklæði og gluggatjöld hennar frá árunum um 1940 í Háskólanum, Búnaðar- og Landsbankanum og fleiri stöðum. Á þeim árum, er íslenska ullin þótti tæplega nothæf til finni handíða og lítið sem ekkert var úr henni unnið í skólum landsins, hafði Karólína alltaf bjargfasta trú á þessu verðmæti þjóðarinnar og að þeir dagar kæmu aó ullar- iðnaður nyti verðskuldaðrar virð- ingar og styddi þjóðarhag í ríkum mæli. Ullarjafi var stöðugt ofinn á vefstofunni. í efnisleysi stríðs- áranna var oft löng biðröð við vefstofuna. Við hannyrðakennslu enn í dag þarf ekki að eyða orðum að, hversu ómetanlegt hefur verið að hafa ullarjafann jafnþráða og fallegan. Ótaldar eru hendur þeirra nemenda, er saumað hafa sín fyrstu saumspor í jafann frá Kaólinu. Á námsárum sinum ytra lærði Karólína einnig að knippla. Var sú listiðn mikið i tisku og í stil við fatnað og heimilisskraut þeirra tíma og mjög svo stunduð af konum i tómstundum. Knippl- ingar Karólínu frá þessum árum eru sérlega margbreytilegir og sýna sérstætt handverk. Eftir heimkomuna kenndi hún knippl um árabil. Eitt sinn kom hún auga á Framhald á bls. 19 Úrvals nautakjöt Leyft verð okkar kr. kg. verð Nautaschnitzel 2.506 - 1.650 - Nauta gullasch 1.928 - 1.530 - Nauta Roast Beef 2.190 - 1.580 - Nauta Fillet & Mörbrá 2.698.- 2.050.- Nauta bóg & grillsteik 754 - 730,- Nautahakk 1.234 - 770.- Nautahakk 10. kg 1.234 - 690 - Nautahamborgari 90.- kr. stk. 50- Nýslátrað kálfakjöt Kálfalæri 545.- Kálfahryggir 450,- Kálfakótelettur 546.- Kálfahakk 550.- Góð matarkaup: Kjötskrokkar I. og II. verðflokkur 669 og 726.- útb. hangikjötslæri 2.170- 1.795 - útb. hangikjötsframpartar 1.850 - 1.595 - útb. lambalæri ný 1.677 - 1.495 - Svínakótelettur 2.432 - 1.990 - Svínahamborgarahryggur 2.197- 2.300.- Svlnalæri 1/1 & 1/2 1.335 - 995 - Svínalifur 250 - Svfnahausar 125- Ærkjöt 1/2 skrokkar 285.- Ærhakk ný hakkað 550.- Ný egg 420 - JAFFA appelsfnur 3 kíló f poka 450.- OPIÐ FÖSTUDAGA TIL KL. 7 OPIÐ LAUGARDAGA TIL KL.7—12 HEIMSENDINGAR KR.200.—

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.