Morgunblaðið - 16.04.1978, Blaðsíða 28
• • • •
28
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 16. APRÍL 1978
Vinsældalistar og fréttir ðr poppheiminura
Kansas ein alvinsælasta rokk-hljómsveitin í Bandaríkjunum þessa dagana.
Vinsældarlistar
Talsv'erðar breytingar urðu á brezka vinsældalistanum í vikunni. Blondie sem verið
hafði í 1. sæti hrapaði í 3., en við sæti hennar tók Showaddywaddy. Kate Bush hrapaði
í 6. sætið, en sú söngkona á nú miklu fylgi að fagna í Bretlandi og stóra platan hennar
„The kick inside“ selst nú bezt allra platna í Bretlandi. Þá eru Wings komnir á lista
með „With a little luck“.
Kansas hefur nú sett stefnuna á 1. sætið á bandaríska vinsældalistanum og þeir
þokuðust úr 5. sætinu í það þriðja.
í Hollandi er listinn að mestu óbreyttur. Vestur-þýzki listinn hefur tekið nokkrum
breytingum. Listinn í Hong Kong er svipaður því sem hann hefur verið undanfarnar
vikur.
10 vinsa-lustu lögin í London. staóa þeirra í
síðustu viku í sviga.
1. (5) I vvonder why — Showaddywaddy
2. (3) Baker street — Gerry Raffert.v
3. (1) Denis — Blondie
4. (6) If you can‘t give me love — Suzi Quatro
5. (10) Follow you follow me — Genesis
6. (4) Matchstalk men and matchstalk cats and
dogs — Brian og Michael
7. (2) Wutherinu Hights — Kate Bush
8. (22) With a little luck — Wings
9. (16) Never let her slip away — Andrew Gold
10. (7) I can‘t stand the rain — Eruption
Tvö liifí jöfn í sjötta sæti.
New Vorki
1. (1) Night fever — Bee Gees
2. (2) Can‘t smile without you — Barry Manilow
3. (5) Dust in the wind — Kansas
4. (3) Lay down Sally — Eric Clapton
5. (8) If I can‘t have you — Yvonne Elliman
6. (7) Jack and Jill — Ra.vdio
7. (4) Stayin1 alive — Bee Gees
, 8. (10) Running on empty — Jay Ferguson
10. (9) Emotion — Samantha Sanj;
Amsterdami
1. (1) Denis — Blondie
2. (5) Argentina — Conquisador
3. (2) Önly a fool — Miqhty Sparrow and B.vron
Lee
4. (6) U o me — Luv
5. (4) Stayin* alive — Bee Gees
6. (3) Wutherinj/ heights — Kate Bush
7. (7) Fantasy — Earth, Wind and Fire
8. (8) Big city — Tol Hansse
9. (9) Same old, song — Pussycat
10. (10) New York city — Tramps
Tvö lög jöfn í sjötta sæti.
Bonni
1. (1) Mull of Kintyre — Wings
2. (4) Take a chance on me — ABBA
3. (6) Love is like oxygen — Sweet
4. (2) For a few dollars more — Smokie
5. (5) Don‘t stop the music — Bay City Rollers
6. (8) Love is in the air — John Paul Young
7. (7) Rockin, all over-the world — Status Quo
8. (13) Runaround Sue — Lief Garrett
9. (14) Free me — Uriah Heep
10. (3) Surfin USA — Leif Garrett
Hong Kongi •
1. (2) Emotion — Samantha Sang
2. (3) Stayin’ alive — Bee Gees
3. (4) Just the wa.v you are — Bilíy Joel
4. (1) You‘re in my heart — Rod Stewart
5. (6) Slip sliding away Paul Simon
6. (7) Love is thicker than water — Andy Gibb
7. (8) How can I lieve you again — John Denver
8. (11) Night fever — Bee Gees
9. (10) Desiree — Neil Diamond
10. (5) Don,t it make my brown eyes blue —
Crystal Ga.vle
Tvö lög jöfn í sjötta sæti.
Þverskurður af hl jóm-
listarlífi Selfossbúa
ÞESSA dagana er væntan-
leg á hljómplötumarkaðinn
ný 13 laga hljómplata og ber
hún nafnið „Selfoss“. Útgef-
andi hljómplötunnar er
„Hljómteiti".
A baksíðu hljómplötunn-
ar skrifar Óli Þ. Guðbjarts-
son oddviti á Selfossi nokk-
ur orð og segir þar meðal
annars: „Hljómplatan sem
hér birtist flytur þverskurð
af hljómlistarlífi Selfossbúa
veturinn 1977—78. Ekki
mun fjarri lagi að nær 300
manns hafi hér lagt hug og
hönd að eða fast að 10%
íbúanna. Hún geymir þann-
ig mikið starf margra —
fullorðinna — unglinga og
barna.“
Að sögn útgefanda plöt-
unnar var hún nokkuð dýr,
en alls fóru um 136
stúdíó-tímar í hana.
Með hljómplötunni fylgir
vandaður bæklingur, þar
sem flytjenda laga er getið,
en textar fylgja plötunni
ekki.
Lagavalið skiptist þannig
að á fyrri hlið plötunnar eru
eingöngu lög við hæfi yngri
kynslóðarinnar og eru þau
valin þannig að þau mynda
eina heild. Hefur ekkert
þeirra laga áður verið flutt
á hljómplötu. A síðari hlið-
inni er klassíkin alls ráð-
andi, og eru þar bæði
innlend og erlend lög. Lögin
„Sumarkvöld" og „Ég hef
þér heitið Jesú“ hafa ekki
heyrzt hér áður, en fyrr-
nefnda lagið er rússneskt
þjóðlag, og hið síðarnefnda
innlent.
Til að standa undir kostn-
aði. við plötuna þurfa að
seljast um 3—4.000 eintök,
en fyrsta upplagið 2.000 er
þegar uppselt og er það vel.
„Selfoss“ er óvenjuleg
hljómplata og án efa mun
hún vekja töluverða athygli,
sakir fjölbreytni sinnar og
vandaðs frágangs.
Geía ekki æft
npp fnunsamið
efni vegna anna
Önnur tveggja vinsælustu
hljómsveita landsins er án efa
hijómsveitin Tívolí. Hún var
stofnuö sumarið 1977 og kom
fyrst fram 17. júní sama ár, er
hún skemmti við Breiðholts-
skóla. Tívolí skipa fimm hljóm-
listarmenn, Ólafur Helgason
trommuleikari, Friðrik Karls-
son gítarleikari, Sigurður Kr.
Sigurðsson söngvari, Eyþór
Gunnarsson hljómborðsleikari
og Andrés Helgason bassaleik-
ari. Þá mun Ellen söngkona
ganga til liðs við hljómsveitina
er hún kemur • til landsins í
sumar.
í viðtali við Pop-síðuna sögðu
þeir félagar að nafnið væri
komið frá gamla góða Tívolí.
Nafnið felur í sér skemmtun og
fannst þeim það tilvalið á
hljómsveitina.
„Markaðurinn er mjög góður
fyrir okkur þessa dagana og
útlitið er bjart. í síðasta mánuði
lékum við 14 kvöld opinberlega
og við erum svo til fullbókaðir
í allt sumar. Samt erum við ekki
atvinnumenn í faginu, og má
sem dæmPnefna að við höfum
ekki tíma til að æfa upp
frumsamið efni, vegna þess hvað
við höfum mikið að gera.
Tónlist okkar mætti flokka
undir jazz-rokk tónlist, en við
leikum þó alls konar tónlist.
Lagavalið fer eftir því hvar við
spilum, og t.d. leikum við ólíka
Tívoli, frá vinstri til hægrii Eyþór Gunnarsson, Ólafur Helgason,
Andrés Ilelgason, Sigurður Kr. Sigurðsson og Friðrfk Karlsson.
Ljósmyndir Agúst II. Rúnarsson.
tónlist úti á landi og í Reykja-
vík. í bígerð er að hljómsveitin
leiki meira af „instrument-
al“-tónlist en hún hefur gert, og
þá ætlum við að hafa hana
ákveðið hlutfall af tónlist okkar.
I sumar erum við ráðnir til að
spila fyrir dansi á einni af
hinum mörgu útihátíðum sem
verða um verzlunarmannahelg-
ina. Þar höfum við í hyggju að
bregða á leik og setja á svið
„show“. Munum við fá tvær
söngkonur, Ellen og Lindu
Gísladóttur, til liðs við okkur
ásamt fleiri hljóðfæraleikurum.
Ef það heppnast vel, förum við
kannski í hljómleikaferð í
kringum landið, svipað og
„Sumargleði" Ólafs Gauks.
En annað hefur Tívolí á
prjónunum og þar má nefna
upptöku á hljómplötu. Það yrði
þó, ekki fyrr en með haustinu,
því hljómsveitin hyggst vanda
lagaval sitt á plötunni. Verður
eingöngu frumsamið efni á
plötunni.
„I athugun er nú að leggja
land undir fót og halda til
útlanda, en af því getur þó ekki
orðið fyrr en við fáum styrk frá
Félagi íslenskra hljómlistar-
manna, eða komumst að sem
húshljómsveit hjá einum af
skemmtistöðum borgarinnar.
FIH viðurkennir ekki íslenzka
pop-hljómlistarmenn, og því
þarf breytingu í stjórn félagsins
til að „popparar" fái styrk.“