Morgunblaðið - 13.07.1978, Blaðsíða 13
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 13. JÚLÍ 1978
13
OBSEKVER iStít. THE OBSERVER Atíb THE OBSERVER tStít THE OBSERVER
göngur og svipaði nokkuð til
fasistaflokkanna á Spáni og
Italíu.
Nú á tímum kjósa falangistar
að láta kalla sig hinu alþýðlega
arabíska nafni sínu, Kataib.
Amin Gemayel, sem nú sér
um stjórn flokksins dag frá degi
ásamt bróður sínum Bashir,
tjáði mér nýlega í viðtali að þeir
væru „mið-vinstrimenn.“ (Arið
1949 var naf-ni flokksins á
arabísku breytt þannig að það
merkir nú „Jafnaðarmannasam-
bandið“).
Pierre Gemayel er nú sjötíu
og þriggja ára gamall og helsti
keppinautur hans innan
maronítahreyfingarinnar er
Camille Chamoun, sem er sjötíu
og átta ára. Hinn „Þjóðlegi
frjálslyndi flokkur" hans er
mesti harðlínuflokkur kristinna
manna og hefur hvað eftir
annað krafist algers brott-
rekstrar Palestínumanna frá
Líbanon. Eins og Gemayel,
hefur Chamoun smám saman
látið sonum sínum eftir stærra
hlutverk í stjórnmálalífinu.
Kataib-flokkurinn og fylgis-
menn Chamouns hafa átt í
deilum, sem stundum hefur
lyktað með blóðsúthellingum.
En eftir lok borgarastyrjaldar-
innar hafa báðir þessir aðilar að
mestu leyti sameinast í tor-
tryggni sinni gagnvart Sýrlend-
irigum, þrátt fyrir að afskipti
Sýrlendinga hafi nær örugglega
bjargað þeim frá ósigri. Síðustu
tvö ár hafa verið að minnsta
kosti 25 þús. sýrlenskir hermenn
að staðaldri i Libanon og hefur
það verið meginhluti arabísku
friðargæslusveitanna.
Hugmyndir um
aðskilnað
En maronítar hafa séð það
sem þeir óttuðust mest, verða að
veruleika. Sýrlendingar, sem
hafa tryggt vald sitt yfir Líban-
on og að vissu marki látið
drauminn um að sameina landið
Sýrlandi rætast, hafa sæst við
Palestínumenn. Marónítarnir,
sem nú eru einangraðri en
nokkru sinni fyrr, hafa gælt við
hugmyndir um aðskilnað, enda
óspart verið hvattir til þess af
Israelsmönnum. Sem dæmi um
þetta, má nefna að herflokkar
kristinna manna neituðu að láta
af hendi við Sameinuðu þjóðirn-
ar landræmu sem þeir ráða yfir
við landamæri Israels.
Ein maronítafylking hefur þó
haldið góðu sambandi við Sýr-
lendinga og það góða samband
orsakaði þessi síðustu átök.
Þessi fylking er sú sem Sulei-
man Franjieh stjórnar frá höll
sinni í hlíðum Kadishadalsins,
en Franjieh er fyrrum forseti
landsins, eins og Chamoun.
Núverandi átök við Sýrlend-
inga eru bein afleiðing þess er
fylgismenn Franjiehs hefndu,
með aðstoð Sýrlendinga, fyrir
það að falangistar myrtu Tony
Franjieh, konu hans og dóttur í
síðasta mánuði. Gerðu
Franjieh-sinnar árás á þorp í
Bakas-dalnum, sennilega studd-
svara þessu með því að beita
auknu aðdráttarafli sínu sem
stjórnmálaflokkur, til þess að
hreiðra um sig á yfirráðasvæði
Franjiehs. Setti flokkurinn með-
al annars upp skrifstofu í
þorpinu Zghorta skammt frá
Tripólí, en þar er eitt helsta vígi
Franjieh-manna.
Starfsmenn skrifstofunnar
kröfðust þess brátt að verndar-
gjald sem Franjieh-ættin hafði
um langt skeið tekið af sement-
verksmiðju í grenndinni,, yrði
skorið niður og lyktaði málinu
með því að flokksfulltrúi Kataib
Hermaður hleypur til að taka sér stöðu í
bardögum í Beirút í september 1975, en gamall
maður gengur hjá.
ir af sýrlenskum skriðdrekum
og brynvögnum, námu þrjátíu
og átta falangista á brott með
sér og skutu þá í skógi í
grenndinni.
Þessar síðustu blóðhefndir
Gemayel og Franjieh-fjöl-
skyldnanna eiga sér tvær orsak-
ir. Sú fyrri var deilan um hina
vinsamlegu afstöðu Franjiehs
til óska Sýrlendinga þess efnis
að fornir fjendur skyldu sættast
svo koma mætti á samsteypu-
stjórn allra fylkinga. Franjieh
sagði sig úr bandalagi kristinna
manna og samdi frið við hinn
forna fjandmann sinn, Rashid
Karami, leiðtoga múslima í
Tripólí.
Kataib-flokkurinn reyndi að
á svæðinu, bankastjóri nokkur,
var skotinn við vinnu sína í
bankanum.
„Atökin miili okkar og
Franjieh-fjölsk.vldunnar eru
átök milli valdabaráttu ætt-
flokka og stjórnmálabaráttu
pólitískra flokka,“ sagði Bashir
Gemayel hryggur yfir láti
flokksfulltrúans tuttugu og fjór-
um klukkustundum áður en
menn hans gerðu árás á heimili
Tony Franjiehs.
Þessar aðgerðir voru Sýrlend-
ingum nægilegt tilefni til að
ráðast inn á það sem Assad
Sýrlandsforseti hefur síðar
nefnt „smásvæði í Líbanon á
valdi manna sem eru á mála hjá
Israelsmönnum.“
EFTIR COUN SMITH
Hvanneyri:
Endurbætur á gamla
skólastj ór abústaðnu m
Borgarfirði, 6. júlí.
A HVANNEYRI fara nú fram
gagngerar endurbætur á gamla
skólastjórabústaðnum, sem byggð-
ur var um 1920. Er skipt um
þakjárn og innréttingar. í kjallara
hússins, þar sem áður var matsal-
ur, verður komið fyrir bókasafni
skólans og aðstöðu til lestrar.
Verður mikil bragarbót þar á, þar
eð bókasafnið hefur verýð á
hrakhólum og því ekki nýtzt sem
skyldi. En að öðru leyti verður
notagildi skólastjórabústaðarins
eins og verið hefur.
Í nýja skólahúsnæðinu er lokið
við, fyrir töluvert löngu, að steypa
upp 2. áfanga og eldhús og
matsalur hefur verið tekið notkun
ásamt heimavist. En enn á eftir að
ljúka við starfsmannaálmu 2.
áfanga. Er hún tilbúin undir
tréverk. Var veitt um 30 milljón-
um á fjárlögum þessa árs til að
fullgera starfsmannaálmuna.
Framkvæmdir við hana eru ekki
byrjaðar, en væntanlega verður
hugað að þeim áður en næsta ár
gengur í garð.
Um þessar mundir sækja tignir
(Hienn Hvanneyrarstað heim. Eru
það landbúnaðarráðherrar allra
Norðurlandanna sem þinga ásamt
fylgdarliði sínu, samtals um 30
manns.
Það hefur færzt í vöxt, undan-
farið að hópar ýmiss konar, t.a.m.
bændafarir o.þ.h., dvelja á heima-
vist Bændaskólans næturlangt og
fá dögurð áður en lengra er haidið.
Einnig hafa verið haldnar nokkrar
ráðstefnur og fundir varðandi
landbúnað á Hvanneyri. Er gleði-
legt að skólahúsnæðið skuli vera
nýtt yfir sumartímann, sem ann-
ars stæöi ónotað.
Fréttaritari.
Nýr bátur til
Stykkishólms
STYKKISIIÓLMI hefir enn ba-st
í flotann nýr bátur sem hluta-
félag á staðnum hefir keypt frá
Þorlákshöfn. Er það Sæunn
Sa'mundsdóttir ÁR 60. stálskip
um 75 tonn og hefir þegar hafið
skelfiskveiðar frá Stykkishólmi.
Skipstjóri er Páll Guðmundsson.
Þá er verið að grafa fyrir
seinasta áfanga vatnsveitunnar til
bæjarins en hún hefir öll verið
endurnýjuð seinustu árin, lagðar
nýjar leiðslur sem flytja meira
vatn í bæinn. Vatnsveitan er nú
rúmlega 30 ára og var því þörf á
endurnýjun á leiðslum til bæjar-
ins. Þegar þessum áfanga er lokið
er næsta verkefni Vatnsveitunnar
að koma upp vatnstönkum á
skólahæðinni, annar tankanna,
sem þar voru, hefur þegar verið
fjarlægður og hinn orðinn gamall
en þó nothæfur.
RANDVER
Það stendur mikið ti/
14 frábær ferðalög Kassettan erþví
nauðsynleg fyrirb/l-og ferðatækið.
RANOVER
Þaó stenöur mdoó td
llðÍAOr S. 28155 og 19490.