Morgunblaðið - 13.07.1978, Blaðsíða 16
16
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 13. JULÍ 1978
Alexander
GinzburK
1960. Árið 1964 var hann gripinn
aftur og sakaður um að dreifa
andsovéskum bókmenntum, en
var engu að síður látinn laus
aftur frá Lubyanka-fangelsinu í
Moskvu eftir aðeins fjóra daga.
Dagblað eitt í Moskvu birti þá
bréf, undirritað af Ginzburg,
þar sem veitzt var að „vestræn-
um áróðursmönnum" fyrir að
reyna að gera sér mat úr
málsókninni á hendur honum.
Ekki leið þó á löngu unz
Ginzburg var handtekinn aftur.
Var það árið 1967 fyrir bók-
menntaleg afglöp ásamt þremur
andófsmönnum öðrum. Féll
dómur í máli hans 1968 og sætti
hann fangelsisvist til ársins
1972 fyrir að gefa út „Hvítu
bókina“ svokölluðu, „um Siny-
avsky-Daniel rnálið".
Svo er að sjá sem Irina
Ginzburg, sem kennir útlend-
ingum ensku við Moskvu-
Ginzburg: Fangi
er mitt ríkisfang
Moskvu, 12. júlí. AP.
ÞEGAR Alexander Ginzburg.
gugginn maður og lasburða.
var spurður um ríkisfang sitt
fyrir rétti í Kaluga í vikunni,
svaraði hann „zgk“, en það er
fangabúðamál fyrir „fangi“.
Andófsmaðurinn Níinzburg.
sem er aðeins 41 árs að aldri og
menn muna sem keikan og
rauðhærðan íþróttamann og
þjóðarmeistara í róðrarkcppni,
hefur verið heilsulaus um sjö
ára skeið af vöidum þrælkunar-
vinnu og fangabúðavistar.
Eiginkona hans, sem sá hann í
upphafi rcttarhaldanna, komst
svo að orði að hann va>ri
„hálf-dauður“.
Irina, eiginkona Ginzburgs,
sagði fréttamönnum að maður
hennar þjáðist af magasári og
berklum og va>ri honum
ókringt um gang og tal.
Alexander Ginzburg hefur
varið svo til öllum sínum tíma
eftir að hann komst til fullorð-
ins ára til andófsstarfsemi, en
undan verður að telja tímabil,
sem hann hefur setið í fangelsi.
Hefur hann í rauninni ekki haft
ákveðið starf með hendi síðan
hann var tekinn höndum fyrst,
þá nemandi í blaðamennsku við
Moskvuháskóla. Hann á nú í
vændum fimm ára fangelsisvist,
fylgt eftir með fimm ára
þrælkunarvinnu og síðan enn
fimm árum í Síberíuútlegð verði
hann dæmdur sekur um „and-
sovéskan róg og áróður".
Enda þótt Ginzburg sé af
Gyðingum kominn í aðra ættina
hefur hann aldrei litið á sjálfan
sig sem Gyðing og aldrei farið
fram á að fá að flytjast úr landi.
Hafa störf hans frekar verið á
vettvangi almennra mannrétt-
inda en Gyðinga.
Yfirlýsingar sakborningsins
við upphaf réttarhaldanna sýna
að hann hefur sætt sig við þau
örlög sem sovésk yfirvöld hafa
ætlað honum.
Ginzburg fæddist 21. nóvem-
ber 1936, sonur hagfræðings.
Hann innritaðist í Moskvu-
háskóla 17 ára að aldri og stóð
þar meðal annars fyrir útgáfu
tímarits er birti ólöglegan
skáldskap. Var forsprakkinn
handtekinn á síðasta ári sínu
við skólann og dæmdur til
t-veggja ára þrælkunarvinnu frá
háskóla, hafi einnig sætt sig við
úrskurðinn yfirvofandi og þau
áhrif, er hann kemur til með að
hafa á hennar ævi og störf. Þau
hjónin eiga tvo syni, 3 og 5 ára
að aldri, sem hafa stytt sér
stundir við að teikna myndir
sem bréf til föður síns síðan
hann var handtekinn. Þar eð
ekkert samband hefur verið
leyft milli fjölskyldunnar og
föðurins prýða þær nú veggi
íbúðar þeirra í Moskvu.
Þegar Ginzburg var síðast
handtekinn 3. febrúar 1977 hafði
hann verið frjáls ferða sinna í
fimm ár. Á þeim tíma hafði
hann verið skeleggur málsvari
mannréttindabaráttu í Sovét-
ríkjunum og einn ötulasti félagi
Helsinki-hópsins frá stofnun
hans 1976. Handtakan var liður
í herferð yfirvalda gegn andófs-
mönnum, sem telja verður að
hafi skilað góðum árangri. Að
minnsta kosti hefur ekki heyrst
mikið af mótmælaaðgerðum í
landinu síðan réttarhöld yfir
Ginzburg hófust og margt virð-
ist benda til að búið sé að þagga
niður í starfsömustu félögum
hans.
Styrjaldarástand
í Baskahéruðum
Madrid 12. júlí. AP
FRÉTTIR frá NorðurSpáni
hermdu í dag að ástandið í
Baskahéruðunum færi hríðversn-
andi og að átök geisuðu nær allan
sólarhringinn milli lögreglu-
manna og andófsmanna. Tveir
unglingar hafa beðið bana í
átökum síðan á laugardag.
Samkvæmt sumum heimildum
er ástandið líkast því þegar
borgarastyrjöld er á næstu
grösum. „Við virðumst lifa á
púðurtunnu sem getur sprungið í
loft upp hvenær sem er,“ sagði
búðareigandi í San Sebastian
höfuðborg Baskahéraðanna.
Fréttir frá San Sebastian herma
að stór svæði í borginni hafi verið
einangruð með götuvígjum sem
mótmælamenn hafi reist upp til
þess að berjast við lögreglumenn.
Baskaráðið (CGV) eða heima-
stjórn Baska kom saman ,til
sérstaks skyndifundar vegna
ástandsins þegar 19 ára gamall
maður hafði verið skotinn til bana
í átökum mótmælenda og lögreglu
og sakaði ráðið lögregluna um að
eiga sökina á þeirri ofbeldisöldu
sem hefur gengið yfir héruðin
undanfarna fjóra daga.
Ráðið gaf jafnvel til kynna að
ríkisstjórn Adolfo Suarezar yrði
að láta því í hendur öll völd, þar
á meðal völd yfir lögreglunni, til
þess að takast mætti að ráða við
ástandið. Jafnframt skoraði CGV
á íbúa Baskahéraðanna að sýna
stillingu og láta skynsemina ráða.
Yfirmaður lögreglunnar í San
Sebastian segir að enginn lög-
reglumaður hafi beitt skotvopnum
gegn mótmælendum í árekstrun-
um í gær. Hann hélt því fram, að
mótmælendur heföu reynt að
ráðast inn í lögreglubúðir og ná
Framhald á bls. 21
Þetta gerðist
1977 — Myrkvun í New York
vegna rafmagnsbilunar og al-
mennar gripdeildir.
„1974 — ísraelsmenn reisa
gaddavírsgirðingu á landamær-
um Líbanons.
1971 - Tíu liðsforingjar
ieiddir fyrir aftökusveit í Mar-
okkó eftir byltingartilraun.
1918 - Sókn Tyrkja í
Palestínu hrundið.
1878 — Stríði Rússa og
Tyrkja lýkur.
1841 — Dardanellasundi iok-
að herskipum allra þjóða á
friðartímum samkvæmt samn-
ingnum um tyrknesku sundin.
1822 — Grikkir sigra Tyrki í
Þermópýle-skarði (Laugakiifi).
1793 — Charlotte Corday
myrðir franska byltingarmann-
inn Marat.
1558 — Flæmskur her Eg-
monts sigrar Frakka við Grava-
lines.
Afmæli dagsinsi Ferdinand II
keisari (1608—1657) — John
Clare enskt skáld (1793—1864)
— Gustav Freytag þýzkur
skáldsagnahöfundur
(1816-1895).
Innlenti D. Ögmundur Páls-
son biskup (í hafi) 1541 —
Blirikur konungur Magnússon
prestahatari 1299 — F. Dr.
Skylab lætur
ekki að stjóm
Houston 12. júlí. Reuter — AP.
STARFSMENN geimvísindastöðvarinnar í Ilouston reyndu í dag að
ná aftur stjórn á geimvfsindastöðinni Skylab sem hefur átt í
erfiðleikum síðan rafkerfi hennar bilaði um helgina til þess að koma
í veg fyrir að stöðin hrapi til jarðar.
Talsmaður geimvísindastjórnarinnar, NASA, sagði að við erfiðleika
væri að stríða og að ekki mætti gera of lítið úr þeim. Ilins vegar sagði
hann að menn væru vongóðir um að takast mætti að gera við bilunina.
Vegna mistaka vísindamanna
hefur braut geimvísindastöðvar-
innar færzt stöðugt nær jörðu á
undanförnum mánuðum og starfs-
menn NASA hafa sagt, að stöðin
geti hrapað til jarðar eftir nokkra
mánuði ef braut hennar verði ekki
leiðrétt.
í tvo mánuði hefur verið reynt
að hlaða rafhlöður stöðvarinnar til
þess að halda rafkerfinu gangandi
og stöðinni á réttri braut.Lengi vel
virtist allt ganga að óskum en nú
hefur verið viðurkennt að síðasta
rafmagnsbilunin sé sú þriðja á
tveimur mánuðum.
Vísindamenn vona að þeir geti
haldið Skylab á lofti nógu lengi til
þess að hægt verði að senda
björgunarleiðangur út af örkinni
seint á næsta ári til þess að þrýsta
stöðinni á hærri braut þar sem
hún geti verið í að minnsta kosti
einn áratug.
Núverandi jarðnánd Skylab er
um 350 km og ef ekkert er að gert
getur jarðnándin orðið um 120 km
þar sem alvarleg hætta yrði á því
að stöðin hrapaði til jarðar.
V örubílst jór ar
valda öngþveiti
Bolzano, ítaliðu, 12. júlí.
AUSTURRÍKSIR vörubif-
reiðastjórar halda áfram
verkfalli sínu með vegar-
tálmum við landamæri
Austurríkis og Ítalíu og
mótmæla þannig vegartolli,
sem austurríska stjórnin
leiddi í lög 1. júlí sl.
í svokölluðu Brenn-
er-skarði höfðu bílstjórar
lagt um 1000 flutningabílum
á miðvikudag og komst engin
umferð þar um ef undan eru
taldir bílar sem fluttu
geymsluþolslausan varning
samkvæmt sérsamkomulagi
verkalýðsfélaga og yfirvalda í
Bolzano. Bílaröðin er stöðv-
Hallgrímur Scheving 1781 —
Sæmundur Hólm sýknaður 1818
— „Goðafoss“ kemur 1915 —
Eyjólfur Jónsson syndir frá
Eyjum til lands 1959 — F. Dr.
Haildór Halldórsson 1911 —
Hákon Bjarnason 1913.
Orð dagsinsi Menn þurfa ekki
að vera matreiðslumenn til að
gagnrýna matreiðslu. — Samuel
Johnson enskur rithöfundur
(1709-1784).
aði umferðina, var Ítalíu-
megin landamæranna.
Fundur var á miðvikudag
boðaður meðal viðkomandi
aðila til að reyna að leysa
deiluna. Fréttir herma að við
norð-austur landamæri Ítalíu
hafi einnig myndazt 15
kílómetra löng röð vörubíla
Austurríkismegin og ríki þar
mesta öngþveiti.
r
Iri veginn í
misgripum
Belfast 12. júli. Reuter. AP
BREZKI ráðhcrrann Roy Mason
baðst í dag afsökunar vegna þess
að hcrmenn skutu til bana í gær
16 ára gamlan pilt sem þeir töldu
vera írskan hryðjuverkamann.
Skömmu eítir að Mason gaf
yfirlýsingu sína beið hermaður
bana af völdum sprengju hryðju-
verkamanna nálægt þorpinu
Crossmaglcn rétt hjá landamær-
um írska lýðveldisins. Þó bendir
ekkert enn til þess að hér hafi
verið um að ræða hefnd fyrir
dauða piltsins.
Pilturinn, bóndasonurinn John
Boyle, varð fyrir skotárás tveggja
hermanna úr launsátri þegar hann
fór til að huga að vopnabirgðum
sem hann hafði fundið.
Faðir piltsins hafði tilkynnt
hernum um vopnafundinn og
hermenn voru sendir á vettvang til
þess að fylgjast með því hvort
einhver mundi vitja vopnanna.
Pilturinn fór aftur á staðinn af
einskærri forvitni.