Morgunblaðið - 15.05.1980, Blaðsíða 20

Morgunblaðið - 15.05.1980, Blaðsíða 20
20 MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 15. MAÍ1980 Froskar kysstir og blásið á stjörnur Stundum berast bækur til um- sagnar sem erfitt er aö flokka. Á að telja þær bókmenntir eða myndlist eða kannski eitthvað annað? Tvær slíkar bækur hafa lengi beðið umfjöllunar, en verður nú minnt á þær í þessum þáttum. Helgi Þorgils Friðjónsson er í hópi ungra nýlistamanna. Hann sendi frá sér í fyrra bók sem hann nefndi Nokkrar teikningar og er hún bæði á íslensku og ensku. Helgi teiknar og semur mynda- sögur sem um margt eru óvenjulegar. Honum eru ævintýri hugleikin eins og Rauðhetta og sagan af prinsinum sem breyttist í frosk. Margar bókmenntalegar Bókmenntlr eltir JÓHANN HJÁLMARSSON skírskotanir eru í teikningum hans sem segja flestar sögu. Menn breytast í dýr, dýr breytast í menn. Að lokum er vandi að skilja milli manna og dýra. Hundar koma mikið við sögu, enda greini- lega skammt á milii manns og hunds að mati höfundar. í fyrstu myndasögu Helga Þor- gils í bókinni segir m.a. frá því að Karl Bretaprins hafi tilkynnt trú- lofun sína og venjulegrar stúlku sem þar að auki er ekki hrein mey. Sögunni víkur þá til Harðar sem hafði áður haft náin kynni af kærustu prinsins, Betu, eins og lýst er í sögunni. Sagan endar á þessum orðum: „Langt, langt í burtu eru Hörður og ný söguper- sóna að róa úti á bláum og grænum sjó. Þetta er konan hans. Án þess að hann viti af því, þá er Teikning eftir Heiga Þorgils Frið- jónsson úr bókinni Nokkrar teikn- ingar. hún vond tröllkerling, sem hefur étið tvo prinsa og breytt prinsess- um í froska og pöddur. Margir kóngar eru búnir að lofa ríkjum sínum eftir sinn dag, og margir ungir, fríðir og gáfaðir bændasyn- ir á gatslitnum skóm, eru að kyssa froska úti í mýri ... og úti er ævintýri." „Ekki er það mér að kenna að þau hafa alið mig svona upp,“ segir hundur í einni myndasög- unni. Meðal þess sem hann langar til er að bíta alla ketti, rífa vængi af flugum, brenna allar bækur jarðar og skíta á gangstéttir. Helgi Þorgils leitast við að birta ný sjónarhorn alkunnra minna í bókmenntum og myndlist og tekst það oft skemmtilega. Hann lýsir á persónulegan hátt manni og skugganum hans, hundi og hans skugga og lætur það líka gerast að skuggi manns verður skuggi hunds. Bestur er hann í þeim myndaflokkum sem eru hrein myndlist með ívafi bókmennta- og jafnvel kvikmyndatækni. Það er gaman að skoða smáheim hans með myndum sem eru varla stærri en eldspýtnastokkur, en rúma þó meiri visku en unnt er að koma fyrir í einum stokki. Sjón er ungt skáld sem sent hefur frá sér Ijóðabækur sem lofa góðu. Fyrir jólin í fyrra gaf hann út handskrifað kver með myndum eftir sig og kallaði Birgitta (hleruð samtöl). Á hverri opnu er texti og mynd sem eiga að tákna skynjanir Birgittu sem býr í fjölbýlishúsi og leggur eyrun að veggjunum í íbúðinni og hlustar á fólk tala saman. Þetta gerir hún þegar henni leiðist. Sjón virðist hafa lært sitthvað af súrrealistum. Einn textinn er á þessa leið: „Fyrst kom höfuðið, svo allt hitt. En hversvegna byrjaði hún að blása á stjörnurnar? Þær settust ekki á rétta staði. Líður barninu þá ekki undarlega? Nei, það fékk strax að horfa á spegilmynd sína.“ Þetta eru hnyttilegir textar hjá Sjón og njóta sambýlisins við myndirnar sem teiknaðar eru í fínlegum skyndihrifastíl. Aðferð höfundar er að vekja lesandann og skoðandann úr dvala vanans með En hversvegna byrjaði hún að blása á stjörnurnar? Teikning eftir Sjón úr Birgittu (hleruð samtöl). því að koma með óvæntar lausnir. Lítum til dæmis á eftirfarandi texta sem er reyndar ekki nema hálfsagður án myndskreytingar- innar: „Jæja, við skulum drífa okkur af stað. Bíddu aðeins; ég er að hreinsa blómin úr augunum." Feðgin sýna á Snorralofti Undanfarna daga hefur staðið yfir á Snerrulofti í Mosfellssveit sýning á oliu- og vatnslitamyndum cftir Onnu Georgsdóttur glugga- skreyti og Georg Vilhjálmsson málarameistara. Georg er fæddur árið 1903 og hefur unnið við auglýsingar í sambandi við bila- málun. Hann hefur sótt námskeið i myndlist, síðast i Myndlista- og handíðaskóla íslands. Anna er fædd árið 1933 og var við nám í 2 ár í Kaupmannahöfn í Tegne og Kunstindustriskolen for kvinner og Bergenholtz dekorations fagskole. Hún hefur einnig sótt námskeiðið í Myndlistaskólanum í Síðasti dagur sýningarinnar Reykjavík og Myndlista- og hand- verður á uppstigningardag og verð- íðaskóla íslands. ur þá opið kl. 14—19. Olíumálverk eftir Mattheu Jónsdóttur. Matthea Jónsdótt ir sýnir i FÍM Matthea Jónsdóttir heldur sína fjórðu einkasýningu í FIM-salnum. Hún sýnir að sinni mestmegnis vatnslitamyndir og aðeins örfá olíumálverk, en alls munu vera á þessari sýningu fast að sjötíu myndum. Matthea er mikið fræg í útlöndum og hefur fengið mikið af verðlaun- um og viðurkenningum. Ég verð að játa enn eina synd fyrir lesendum þessa blaðs: Því miður kann ég ekki að meta þessi verk, sem þarna eru til sýnis. Ég held því fram við sjálfan mig, að ég hafi séð miklu betri verk frá hendi þessarar listakonu, hér áður og fyrr, en nú varð ég fyrir vonbrigðum. Ekki skal ég full- yrða neitt um það, hvort okkar á sök á þessu, Matthea eða ég. En ég verð að taka þeirri staðreynd, að nú er ég ósammála þeim í útlöndum. Það er erfitt að taka nokkuð sérstaklega fyrir af þessum myndum Mattheu, þær eru ákaf- lega líkar og hafa stundum mjúkan og fágaðan tón, en það er hvergi nægilegt til að gott megi teljast. Vatnslitir eru afar vandmeðfarnir, og það þarf sér- stæða gáfu, liggur mér við að segja, til að ná árangri á því sviði. Ég held að Mattheu séu olíulitir miklu nær og litameð- ferð hennar í málverkinu nr. 19, „Út í bláinn", sanni það rækilega á þessari sýningu. Að mínu mati sker fyrrnefnt málverk sig nokk- uð úr. Sérstaklega voru það litirnir, er komu við mig, en ekki var ég samt algerlega dús við sjálfa myndbygginguna. Mikið sýningaflóð hefur dunið yfir hér í borg að undanförnu, og auðvitað er ekki allt í sama gæðaflokki. Það er nú einu sinni svo með blessaða listina, í hvaða formi sem er, að fáir eru sam- mála. Það sem einum geðjast ekki að, fellur vel í smekk annars. Einmitt þetta skapar vissa spennu og gefur hlutunum líf. Allt, sem stuðlar að því, að fólk er að fást við listir, er afstætt. Þannig gerir góður höf- undur ekki ætíð góðar bækur. Sama lögmál gildir um mynd- listarmanninn. Öll eigum við okkar góðu og slæmu hliðar. Sól í dag, sorti á morgun. Svo er veðráttan hér á landi, bæði í náttúru og fólki. En ekki hvarfl- ar að okkur að gefast upp, enda eigum við gott og gilt orðatil- tæki, er við segjum að þreyja þorrann. Ekki ætla ég að leggja neinum lífsreglur með þessu spjalli, er mér kemur í hug út af þessari sýningu Mattheu Jónsdóttur. Hún er að sjálfsögðu á öndverð- um meiði við mig, annars hefði hún ekki sýnt þessi verk, en eins og ég sagði hér að ofan: Þá veit ég ekki hvoru skal um kenna, mér eða listakonunni, er gert hefur þessi verk. Látum okkur þreyja þorrann og sjá, hvað gerist. Valtýr Pétursson. Myndllst eftir VALTÝ PÉTURSSON Pétur Friðrik við eina aí myndum sínum. Pétur Friðrik sýnir í Vestursalnum að Kjarvals- stöðum sýnir Pétur Friðrik um þessar mundir 117 verk. Það eru aðallega olíumálverk og vatnslita- myndir, ásamt nokkrum teikning- um í tússi og viðarkolum. Þeir, sem fylgst hafa með ferli Péturs Friðriks sem málara, vita að hann hefur ætíð verið mjög í sambandi við fyrirmyndir úr náttúru lands- ins. Hann hefur einnig lagt nokkra stund á blómamyndir og uppstillingar. Allt er þetta á þessari sýningu Péturs. Hann sýndi á sama stað fyrir einum fimm árum, en ekki sá ég þá sýningu og get því ekki sagt álit mitt á því, hvað gerst hefur hjá Pétri á þessum árum. En ég held, að engin stórbreyting hafi átt sér stað. Pétur er fyrir löngu mótaður sem málari og sjálfum sér sam- kvæmur að vanda. Þetta er nokkuð misjöfn sýning hjá Pétri, enda varla við öðru að búast, þar sem svo mikill fjöldi verka er til sýnis. Hann virðist hafa mikið dálæti á vissum fyrir- myndum, eins og til að mynda Heiðmörk, Þingvöllum, Vestfjörð- um og sumum götunum í Reykja- vík. Sérstaklega tók ég eftir myndum frá Hnífsdal hjá Pétri, og ég er ekki frá því, að þar takist honum best upp. Stundum finnst mér litameðferð Péturs á þann veg, að fyrirmyndirnar virðast meira ráða en góðu hófi gegnir. Þetta er auðvitað matsatriði. En svona fór þetta í mig. Pétur Friðrik er vinnusamur málari og slær ekki slöku við. Hann ræður yfir tækni, og hann er mjög leikinn í vissum atriðum mál- verksins, en mér kemur það þann- ig fyrir sjónir á stundum, að honum takist ekki að frelsa sjálf- an sig úr hinum sterku áhrifum fyrirmyndarinnar, ef svo mætti til orða taka. Þetta hefur ætíð verið nokkurt vandamál fyrir Pétur Friðrik, og virðist ekki hafa orðið breyting þar á. Það er erfitt fyrir málara að lifa og hrærast í jafn fögru landi og íslandi. Eitt verk vakti athygli mína sérstaklega. Það var málverkið nr. 117 Mó-

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.