Morgunblaðið - 15.11.1980, Blaðsíða 31

Morgunblaðið - 15.11.1980, Blaðsíða 31
HVAD AÐ GERAST UM HELGINA? MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 15. NÓVEMBER 1980 31 TÓNLISTARSKÓLINN í RVÍK: Maciej Lukaszczyk Chopin-tónleikar Á MÁNUDAGSKVÖLD holdur pólski píanóleikarinn Maciej Lukaszczyk. forseti Chopin-fé- lansins í Vestur-Þýskalandi, tón- leika í Austurbæjarhiói á vegum Tónlistarskólans i Reykjavík, og hefjast þeir kl. 19.00. Á efnisskrá eru eingöngu verk eftir Chopin. Aðgöngumiðar verða seldir við innganginn, en nemend- ur og kennarar skólans fá ókeypis aðgang að tónleikum þessum. I dag og á morgun heldur Lukasz- czyk námskeið fyrir kennara og nemendur Tónlistarskólans. Sýningar um helgina Sýningu Kjartans Guðjónssonar í vestursal Kjarvalsstaða lýkur um helgina. Kjarvalsstaðir: Kjartan Guð- jónsson sýnir olíumálverk, vatns- litamyndir og teikningar í vestur- sal. Sýningunni lýkur á sunnu- dags- eða mánudagskvöld. Jón E. Guðmundsson sýnir höggmyndir úr tré, málverk, vatnslitamyndir og teikningar í austursal. Heimilisiðnaðarfélagið sýnir muni á vesturgangi. Listasafn íslands: Yfirlitssýning á verkum Svavars Guðnasonar. Sýningin stendur til mánaðamóta. ir vatnslitamyndir. Sýningin er opin frá kl. 14—22 um helgar, en 14—20 virka daga og stendur til 23. þ.m. Kirkjustræti 10: Sigrún Gísla- dóttir sýnir collage-myndir. Sýn- ingunni lýkur 18. þ.m. Eden: Jose Luis Lopez Ayala sýnir málverk og vatnslitamynd- ir. Sýningunni lýkur annað kvöld. Nýlistasafnið Vatnsstíg 3: Hol- lensk myndlistasýning, Vídd á pappír. Opið frá kl. 16—20 á virkum dögum, en 14—20 um Frá sýningu Gunnlaugs Stefánssonar Gísiasonar í FlM-salnum, Laugarnesvegi 112. Norrama húsið: Finninn Pentti Kaskipuro sýnir grafíkmyndir í anddyri. Sýningin stendur til mánaðamóta. Gallerí Langbrók: Sigrún Eld- járn sýnir blýantsteikningar með vatnslitaívafi. Sýningin er opin virka daga frá kl. 12—18 og stendur til 5. desember. Gallerí HáhóII: Kjartan Guð- jónsson sýnir olíumálverk, vatns- litamyndir og teikningar. Sýning- unni lýkur á sunnudags- eða mánudagskvöld. FÍM-salurinn: Laugarnesvegi 112: Gunnlaugur Stefán Gíslason sýn- helgar. Sýningunni lýkur annað kvöld. Ásmundarsalur: ívar Valgarðs- son sýnir skúlptúra og málverk. Sýningunni lýkur á mánudags- kvöld. Húsagagnavcrslun Hafnarfjarð- ar, Reykjavíkurvegi 64: Rjarni Jónsson sýnir olíumálverk, vatns- litamyndir, teikningar og málað- an rekavið. Safnahúsið á Selfossi: Pál S. Pálsson sýnir 30 myndir gerðar með blandaðri tækni. Sýningin er opin frá kl. 14—22 og lýkur annað kvöld. K JARV ALSSTAÐIR: Jón E. Guðmundsson opnar sýningu í dag í DAG opnar Jón E. Guðmunds- son myndlistarsýningu í austur- sal Kjarvalsstaða. Við opnun sýningarinnar og öðru hvoru meðan á sýningunni stendur sýna nemendur úr Leiklistar- skóla ríkisins með leikhrúðum kafla úr Skugga-Sveini. Á sýn- ingunni verða 17 höggmyndir úr íslensku birki úr Ilallormsstað- arskógi og 10 myndir, málverk, vatnslitamyndir og teikningar. í anddyri Kjarvalsstaða verður lítið brúðuleikhús sem vísar sýn- ingargestum.til vegar og á veggj- um eru brúður sem Jón hefur gert vegna sýningar á hinum ýmsu brúðuleikhúsverkum, svo sem leikritinu Norður kaldan kjöl eftir Ragnar Jóhannesson. Jón E. Guðmundsson sýndi síðast í Norræna húsinu 1974 og eru þær myndir sem hann nú sýnir allar gerðar síðan. Menn héldu að ég væri eitthvað skrýtinn — Eg lærði teikningu og myndskurð hjá Marteini Guð- mundssyni og stundaði mynd- Jón E. Guðmundsson við eina höggmynda sinna. Myndin er höggvin úr einum trjábol. skurð í fjögur ár, sagði Jón. Svo fór ég utan til myndlistarnáms og þar kynntist ég brúðuleikhúsi. Einn af félögum á listaskólanum sagði einhverju sinni er hann horfði á verk eftir sig: „Mikið vildi ég að þessi manneskja gæti gengið sprelllifandi út úr mvnd- inni.“ Ég tók undir þetta og þá bauð hann mér að heimsækja sig. Ég varð ekki lítið undrandi þegar ég komst að raun um að hann átti lítið brúðuleikhús heima hjá sér. Ég fékk bakteríuna á stundinni og hef ekki losnað við hana síðan. Ég byrjaði að sýna hér heima í Alþýðuleikhúsinu við Hverfis- götu, árið 1954, og átt erfitt uppdráttar í byrjun. Menn héldu að ég væri eitthvað skrýtinn að vera að stússa í þessu. En úr því hefur ræst, og ég vona að brúðu- leikhús fái fastan sess í framtíð- inni hérna hjá okkur. Hvarvetna erlendis þykir sjálfsagt að hafa sérstakan sal fyrir_ slíka starf- semi í öllum meiri háttar mynd- listarhúsum. Sýning Jóns E. Guðmundsson- ar í austursal Kjarvalsstaða er opin daglega frá kl. 14—22 og stendur til 30. þ.m. Egill ólafsson og Kjartan Ragnarsson i hlutverkum Gláms og Grettis. LEIKFÉLAG REYKJAVÍKUR: Þrjú leikrit um helgina Kirkjustræti 10: Síðasta sýningar- helgi hjá Sigrúnu SÝNINGU Sigrúnar Gisladóttur í Kirkjustræti 10 lýkur þriðjudaginn 18. þ.m. Á sýningu Sigrúnar eru collage- myndir. Sýningin er opin frá kl. 9—16 í dag og á morgun, en kl. 9—18 mánudag og þriðjudag. Sigrún Gísladóttir í kvöld er Ofvitinn sýndur hjá Leikfélaginu. Ekkert lát er á að- sókn að þessu vinsada verki. Annað kvöld er svo 20. sýning á þýska leikritinu Að sjá til þín, maður! eftir Franz Xaver Kroetz í leikstjórn Hallmars Sigurðssonar. Þetta leikrit þykir fjalla um mannskepnuna á nærgöngulan og áhrifaríkan hátt og hlaut það mjög góða dóma gagnrýnenda. Þá verður annað kvöld 2. sýning á söngleiknum Gretti í Austurbæjar- bíói og hefst hún kl. 21.30. Höfundar eru Egill Ólafsson úr Þursaflokkn- um, Ólafur Haukur Símonarson og Þórarinn Eldjárn, en með stærstu hlutverk fara Kjartan Ragnarsson, sem leikur Gretti, Jón Sigurbjörns- son, sem leikur Ásmund, föður hans, Sigurveig Jónsdóttir leikur Ásdísi, móður Grettis. Þórhildur Þorleifsdóttir er höf- undur og stjórnandi hinna fjölmörgu dansa í sýningunnni en leikstjóri er Stefán Baldursson. Grettir er gæi úr Breiðholtinu, sem lendir í klandri og er kominn í tukthús, þegar hann er „uppgötvað- ur“ og gerður að sjónvarpsstjörnu: fær sem sé hlutverk nafna síns í sjónvarpsþáttum um Grettissögu. BLÁR MÁNUDAGUR: Karl Torfi Ezrason syngur og leikur Gunnar Hrafnsson og Guðmundur Ingólfsson láta gamminn Bláum mánudegi. geysa á JAZZTÓNLEIKAR undir nafninu Blár mánudagur verða í Þjóðleik- húskjallaranum á mánudagskvöld frá kl. 21—01. Félagar úr ís- lenska dansflokknum flytjá frum- saminn dans. Karl Torfi Ezrason farandsöngvari syngur nokkur lög og leikur á gítar. Þrautreyndir jazzkappar eru meginuppistaða kvöldsins, þeir Guðmundur Ingólfsson á' píanó, Gunnar Hrafnsson á bassa, Guð- mundur Steingrímsson á trommur, Björn Thoroddsen á gítar og Viðar Alfreðsson á trompet. Rauðvín og ostapinnar eru innifaldir í miða- verði og borðapantanir eru í síma 19636.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.