Morgunblaðið - 21.03.1981, Blaðsíða 36

Morgunblaðið - 21.03.1981, Blaðsíða 36
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 21. MARZ 1981 36 Minning: Sigmundur Sig- urðsson bóndi Syðra-Langholti Það mun hafa verið sumarið 1927 að ungur búfræðingur réðst til starfa hjá Búnaðarsambandi Suðurlands. Hann ferðaðist um héraðið með hesta sína og plóg og braut land til ræktunar fyrir bændur. Þótt Sunnlendingar fyndu þá þegar að dugur og kapp fylgdi hverri athöfn hans í ríkum mæli þá áttu þeir eftir að kynnast þessum unga manni nánar eftir að hann hóf búskap þar eystra. Sig- mundi í Syðra-Langholti var brátt skipað í fremstu sveit sunnlenskra bænda og þar var hann i fylk- ingarbrjósti um hálfrar aldar skeið og það með þeim hætti að eftir var tekið og mun lengi verða vitnað til starfa hans þar. Aræði hans og bjartsýni var viðbrugðið og trú hans á gróður jarðar og ræktun landsins var sannfærandi og smitaði frá sér langt út fyrir næsta nágrenni hans. Sigmundur Sigurðsson var fæddur að Litla-Kálfalæk í Hraunhreppi á Mýrum 8. mars 1903. Hann var því fullra 78 ára er hann lést 12. þessa mánaðar. Sigmundur ólst upp með foreldr- um sínum, Kristjönu Bjarnadótt- ur og Sigurði Sigmundssyni, bónda að Miklaholti á Mýrum ásamt systkinum sínum, sem öll báru með sér að vera sprottin af sterkum stofni og starf önnum. Sigmundur frá Miklaholti iauk námi á llvanneyri vorið 1926. Þá kaus hann að hleypa heimdragan- um og kynnast búskap bænda víðar en í heimahögum. Strax að námi loknu hóf hann umferða- vinnu um Borgarfjörð og síðan á Suðurlandi, eins og áður er að vikið. Oft kom það fram í máli Sig- mundar að Hvanneyrardvölin og búnaðarfræðslan, sem hann naut þar, hafi opnað augu hans fyrir þeim möguleikum, sem landbún- aðurinn byggi yfir, þegar sæmileg ytri skilyrði væru fyrir hendi. Um leið varð honum ljóst hverjum erfiðleikum það væri bundið að hefja ræktunarbúskap á blautum mýrarjörðum við ríkjandi aðstæð- ur. Þau tvö sumur sem hann stund- aði umferðavinnu í Borgarfirði og á Suöurlandi, leit hann hýru auga margt góðbýlið og leitaði eftir eignarhaldi á ýmsum þeirra. Að lokum staðnæmdist hann við Syðra-Langholt í Hrunamanna- hreppi, keypti þá jörð og hóf þar búskap vorið 1928 með ungri konu sinni, Önnu Jóhannesdóttur frá Fremri-Fitjum í Miðfirði. Mönnum þótti þau frumbýl- ingarnir færast mikið i fang að kaupa slíka stórjörð og hefja þar búskap. Það kom þó fljótt í ljós að Sigmundur og Anna voru vandan- um fyllilega vaxin. Og með hverju ári sem leið, með nýjum og áður óþekktum möguleikum og vaxandi tækja- og tæknibúnaði jukust um- svif þeirra hjóna. Heimili þeirra varð strax mannmargt, foreldrar Sigmundar og systkini fluttu til þeirra að Langholti og börnin þeirra fimm uxu úr grasi og enginn lá á liði sínu. Allir höfðu verk að vinna við stórfelldar umbætur á jörðinni, bæði að því er varðaði byggingar og ræktun. Fyrr en varði var í Syðra-Lang- holti eitt stærsta bú í Arnessýslu. Þar standa reisulegar byggingar og snyrtilegar á breiðum grósku- miklum túnum og sjást langt að. Eins og að líkum lætur voru Sigmundi fengin í hendur ýmis störf fyrir sveit sína og hérað. Hann átti sæti í hreppsnefnd um langt árabil og var oddviti Hruna- mannahrepps um 20 ára skeið. Hann var athafnasamur oddviti og kom í heila höfn mikilsverðum málum fyrir sveitarfélag sitt, svo sem byggingu félagsheimilis, byggingu skóla og vatnsveitu- framkvæmdum. Hann vann að gerð hitaveitu og skipulagi byggð- ar á Flúðum, svo nokkuð sé nefnt. Þegar sjálfstæðismenn stofnuðu til félagsskapar í ofanverðri Ár- nessýslu árið 1962 þá var Si- gmundur kvaddur þar til forustu. Því formannsstarfi gegndi hann í 15 ár og hélt þannig á málum að Sjálfstæðisflokknum jókst fylgi á þeim slóðum. Á vettvangi stjórn- málanna var áhugi hans vakandi. Svo var og í hverju því starfi sem hann fékkst við. Sigmundur var góður ræðumaður og ræður hans voru sannfærandi enda spegluðu þær þann ríka þátt í skapgerð hans, sem var óvenjulegt fjör í hugsun og áhugi, við séhvert viðfangsefni, sem hann vann að. Sjálfstæðismenn þakka honum störf hans í þeirra röðum, bæði heimamenn í Árnessýslu og víðar um land. Sjálfstæðismenn á Suðurlandi buðu hann fram við kosningar til Búnaðarþings og var Sigmundur fulltrúi þeirra þar í 24 ár, eða svo lengi sem heilsa og kraftar leyfðu. Arið 1963 var efnt til fasteigna- mats um allt land. Sigmundur var þá skipaður formaður fasteigna- matsnefndar Árnessýslu og starf- aði við það til 1970. Ég tel mig hafa haft af því ánægju og gagn að starfa í fasteignamatsnefnd þessi ár með þeim ágætis starfs- félögum sem þar unnu, en auk Sigmundar, sem leiddi starf nefndarinnar, starfaði Sigurgrím- ur í Holti með okkur, en hann var bæði þaulvanur slíkum störfum, glöggskyggn og samvinnuþýður. Nú eru báðir þessir félagar minir og vinir horfnir sjónum okkar. Báðum þeim var hollt að kynnast og þroskandi að vinna með þessi ár sem matsstörfin stóðu yfir. Ég á um þá báða góðar minningar einar, sem ég geymi í þakklátum huga. Eins og hér hefur verið drepið á, þá áttum við Sigmundur í Lang- holti gott og langt samstarf á ýmsum vettvangi. Við vorum sam- tímis oddvitar í nágrannasveitum og áttum þá oft samleið í mái- flutningi utan sveitar. Og á vet- vangi stjórnmálanna lágu leiðir okkar saman öll okkar bestu ár. Skyndilega er þetta samstarf rofið við andlát Sigmundar. Þó verður ekki sagt að það bæri að fyrir- varalaust. Um tugi ára átti hann við erfiðan heilsubrest að stríða, svo erfiðan að þeir sem til þekktu undruðust þrek hans og sjálfsögun að gefast ekki upp í baráttunni við sjúkdóminn. Lífsvilji hans var sterkur og áhugamálin mörg og áleitin. Nú er lífsþráðurinn slitinn og erfiðri sjúkdómsgöngu lokið eftir langa og stranga raun. Að leiðarlokum þökkum við hjónin Sigmundi langa samfylgd og vináttu og biðjum þess að Anna, eftirlifandi kona hans, megi finna þann styrk í trú sinni og minningum frá liðnum árum, að tregi hennar verði henni ekki óbærilegur. Börnum þeirra og afkomendum öllum vottum við innilega samúð og óskum þess að „sá guð er ræður himni háum“ leiði Sigmund fyrstu sporin í nýrri veröld og styrki alla þá sem mest hafa misst, á erfiðri skilnaðarstund. Steinþór Gestsson Hinn 12. mars sl. andaðist í Vífilstaðaspítala Sigmundur Sig- urðsson bóndi í Syðra-Langholti í Hrunamannahreppi. I dag verður þessi merki heið- ursmaður jarðsettur að Hrepphól- um í heimasveit sinni. Sigmundur var fæddur að Litla-Kálfalæk í Hraunhreppi í Mýrasýslu 8. mars 1903, en ólst upp með foreldrum sínum, Krist- jönu Bjarnadóttur og Sigurði Sig- mundssyni bónda, að Miklholti í sömu sveit. Kynni okkar Sigmundar hófust austur í Flóa fyrir tæpum fimmtíu og fjórum árum. Sigmundur hafði lært plægingar og önnur jarð- ræktarstörf hjá Búnaðarsambandi Borgarfjarðar á árinu 1924 og stundaði slík störf hin næstu ár í Borgarfirði og á Suðurlandi. Ég hafði farið með ömmu minni í stutta heimsókn, snemma sumars 1927, að Eyði-Sandvík í Flóa, en þar bjuggu þá æskuvin- kona ömmu minnar Guðný Guðnadóttir og maður hennar Bjarni Stefánsson. Þau voru for- eldrar Brynjólfs Bjarnasonar fyrrv. alþingismanns og ráðherra. Þar hitti ég Sigmund Sigurðsson í fyrsta sinn, en hann vann þá að plægingum í Eyði-Sandvík á veg- um Búnaðarsambands Suðurlands ásamt öðrum ungum og vöskum manni. Ég fékk að sleppa hestum þeirra og stundum einnig að sækja þá og líkaði mér sú ráðstöfun stórvel. Næst bar fundum okkar Sig- mundar saman á haustdögum sama ár, en þá var hann búinn að ráða sig vetrarlangt hjá Magnúsi bónda á Kirkjubóli við Laugarnes- veginn rétt innan við Reykjavík. Meðal annarra starfa þar keyrði Sigmundur út mjólk til fastra kaupenda í Reykjavík. Meðal þeirra voru foreldrar mínir. Sig- mundur varð brátt mikill aufúsu- gestur á heimili þeirra og tókust fljótlega með þeim og Sigmundi hin ágætustu kynni og vinátta, sem entust alla ævi. Þessi vinátta og samgangur við Sigmund og fjölskyldu hans gekk svo í erfðir til fjölskyldu minnar. Sem ungur drengur dvaldi ég tvö sumur í Syðra-Langholti og löngu síðar tvö börn okkar hjóna. Öll minn- umst við þessara sumardvala á Syðra-Langholtsheimilinu með þakklæti í huga. Meðan Sigmundur var við jarð- ræktarstörf á Suðurlandi sumarið 1927 var hann öllum stundum að leita fyrir sér að góðri bújörð. Loks frétti hann að ekkja, sem búið hafði á hluta jarðarinnar Syðra-Langholts í Hrunamanna- hreppi, vildi selja jarðarpart sinn. Var Sigmundur þá ekki seinn á sér að líta á jörðina og síðan að kaupa hana, en búskap þar hóf hann vorið 1928. Syðra-Langholt stend- ur uppi á allháum ási, sem skagar suður úr Langholtsfjalli. Þarna er mikil náttúrufegurð og tignarleg fjallasýn. En Sigmundur hefir ekki aðeins hrifist af henni heldur hefur hann einnig séð að þarna var búsældarlegt og miklir mögu- leikar fyrir hendi fyrir dugmikinn og framsækinn bónda. Með Sigmundi fluttust að Syðra-Langholti foreldrar hans og fjögur af fimm systkinum hans. Ég réðist þetta fyrsta búskapar- sumar Sigmundar til hans sem snúningadrengur og dvaidi þar það sumar og hið næsta í besta yfirlæti. Þá var nú öldin önnur, aðeins bílfært að Sandlæk í Gnúp- verjahreppi og engin brú komin á Stóru-Laxá. Þegar ég kom fyrst að Syðra- Langholti var þar tvíbýli. í svo- nefndum Vesturbæ bjuggu góð og elskuleg hjón með börnum sínum. Þau hétu Gróa Jónsdóttir og Kristján Magnússon, bróðir Helga Magnússonar, kaupmanns í Reykjavík, sem allir eldri Reyk- víkingar muna vel eftir. Sambýlið við fólkið í Vesturbænum var eins gott og best verður á kosið. I Austurbænum, en svo var eignarhluti Sigmundar nefndur, var nú aldeilis hugur itmann- skapnum á þessum árum. Allir lögðust þar á eitt að vinna heimil- inu og jörðinni allt það gagn er þeir máttu enda stóð ekki á árangrinum, því brátt risu upp ný peningshús og íbúðarhús. Túnið stækkaði óðfluga og kúm, sauðfé og hrossum fjölgaði ár frá ári. Enn eru mér minnisstæðar bjart- ar vornæturnar 1928 og 1929 þegar Sigmundur, laus við allt tímaskyn, var að plægja og herfa og stækka tún sin og notaði við þau störf stólpagripinn Kembing, sem er stærsti og sterkasti hestur íslenskur, sem ég hefi nokkurn tímann augum litið. Sigmundur var svo kappsfullur við störf sín á þessum árum, að það var eins og hann væri alltaf í kapphlaupi við tímann. Hann hafði ungur ákveðið að taka daginn snemma og ljúka miklu dagsverki og það tókst honum sannarlega. Eignarjörð sína, Syðra-Lang- holt, hefur hann gert að einni bestu bújörð á landinu og rekið þar stórbú, að segja má alla tíð. Þegar Sigmundur hóf búskap í Syðra-Langholti var heyfengur hans um 200 hestburðir og sex kýr í fjósi, en fyrir nokkrum árum síðan var heyfengurinn kominn yfir 3000 hestburði og um 70 „höfuð" í fjósi. En það var ekki aðeins hið óvenjulega mikla kapp og harðfyigi Sigmundar, sem gerði hann að góðum búmanni. Hann hafði einnig hlotið mjög haldgóða menntun á því sviði í Bændaskól- anum á Hvanneyri, en þar stund- aði hann nám 1924—1926. Þar hitti Sigmundur einnig unga og föngulega stúlku, sem síðar varð eiginkona hans. Þau Sigmundur og Anna Jóhannesdóttir, bónda að Fitjum í Miðfirði, gengu í hjóna- band 23. maí 1929 og er mér sá dagur mjög minnisstæður, því þau bjuggu þá hjá foreldrum mínum hér í Reykjavík. Með Önnu fékk Sigmundur þeirrar konu, sem átti eftir að standa við hlið hans í blíðu og stríðu í yfir hálfa öld og reynast honum sá besti lífsföru- nautur sem hugsast getur. Þau Anna og Sigmundur eignuðust sex börn. Hið elsta, Alda, dó á öðru ári, en hin fimm komust öll upp og eru, sem vænta mátti, hið mesta myndarfólk. Elstur er Jóhannes, bóndi og kennari. Hann lauk stúdentsprófi frá Menntaskólan- um á Laugarvatni vorið 1954 og gerðist bóndi í Syðra-Langholti það sama ár. Hann er kvæntur Minning: Magnús Hjartarson frá Hellissandi Fæddur 4. nóv. 1907. Dáinn 12. mars 1981. I dag er til moldar borinn í Ingjaldshólskirkjugarði Magnús Hjartarson sjómaður frá Hellis- sandi, en hann lést í Landspítalan- um fimmtudaginn 12. þessa mán- aðar. Það var í desember í fyrra sem Magnús heitinn fór að finna fyrir þeim sjúkdómi sem átti eftir að heltaka hann svo að eftir nokkrar vikur var hann allur. Ég sem þessar línur rita var búinn að þekkja Magnús heitinn í um tuttugu og fimm ár, en allan þann tíma unnum við saman á sjó og við þau störf sem að sjó- mennsku lúta. Sjómennska var ævistarf hans. Til marks um áhuga hans á starfinu má geta þess að Magnúsi héldu engin bönd þegar starfið var annars vegar. Heitekinn þeim sjúkdómi sem leiddi hann til dauöa fór hann út í verbúð til að fella þorskanet. Þrátt fyrir sjúkleika felldi hann fjörtíu net. Við línubeitingar stóð hann og beitti sín átta og níu bjóð þar til héraðslæknirinn lét hann fara suður til Reykjavíkur til rannsóknar núna fyrir jólin. Magnús Sigurvin Hjartarson fæddist í Ólafsvík. Þau voru níu systkinin og misstu föður sinn, Hjört Gíslason, þegar Magnús var aðeins sex ára. Hjörtur varð bráðkvaddur. Það gefur auga leið að ekki hafa verið bjartir tímar framundan fyrir móður hans og systkinin. En Sigríður heitin Páls- dóttir, móðir þeirra systkina, var þannig af guði gerð að það var ekki nema eitt sem gilti. Ein og óstudd skyldi hún koma barna- hópnum upp og stóð hún svo sannarlega við heit sitt. Lífsviðhorf Magnúsar og þeirra systkina markaðist af því sem móðir þeirra kenndi þeim um mikilvægi þess að standa á eigin fótum og vera engum háður. Sá skóli var þeim sjálfum og landi og þjóð ekki síðri en langskólanám. Það hvarflaði ekki að þeim systk- inum að heimta allt af þjóðfélag- inu. Þau treystu á eigin afl og getu. Magnúsi var kennt í æsku að þiggja ekki af öðrum og það sóttist seint að fá hann til að taka á móti eliilífeyri. Slíkt þótti honum vera ölmusa. Þeim fer nú ört fækkandi þess- um stórmennum lítils þjóðfélags með þennan hugsunarhátt. En vel mætti ungt fólk reyna að skilja þá og meta. Móðir þeirra systkina, Sigríður Pálsdóttir, fluttist 1918 tii Hellis- sands og þar var heimabyggð Magnúsar Hjartarsonar til ævi- loka. Sjórinn, sjósóknin og sjóvinnan tók hug Magnúsar allan frá því fyrst að hann man eftir sér og þar til yfir lauk. Magnús sótti sjóinn fast úr Krossavík og var hann formaður á árabátum og trillubát- um. Magnús stofnaði heimili með Kristínu Oddsdóttur 1930 og eign- uðust þau eina dóttur, Valdísi, sem er fædd 1931. Kristín dó í blóma lífsins árið 1951 og varð banamein hennar svipaður sjúk- dómur og Magnús varð að lúta í lægra haldi fyrir. Ég varð þeirrar gæfu aðnjót- andi að kynnast Magnúsi og Val- dísi dóttur hans um það leyti sem ég hóf formennsku í Ólafsvík 1952 og hefur samvera okkar staðið síðan. Við Valdís gengum í hjóna- band 1958. Þau eru orðin mörg dagsverkin hans Magnúsar, tengdaföður míns, við Skarðsvík- urútgerðina og verða seint metin til fjár. Ekki hugsaði hann um hvað mikið fengist fyrir hverja vinnustund heldur var honum mest í mun að útgerðin gengi sem best. Ósérhlífnari maður við vinnu var vandfundinn. Fyrir okkur sem stöndum að Skarðsvíkurútgerðinni er fráfall Magnúsar sár missir og er erfitt að trúa því að Magnús skuli horfinn okkur. Við viljum af alhug þakka honum alla fórnfýsi hans í tuttugu og fimm ár. en þetta er leiðin okkar allra. Þótt sárt sé til þess að hugsa að sjá ekki Magnús framar þá þakka ég guði fyrir að hafa átt svo marga daga með honum. Það er bjart yfir samferð- inni með Magnúsi. Heilsteyptari mann er varla unnt að hugsa sér. Hjá Magnúsi varð alltað vera á hreinu, engum mátti skulda, hvorki í orði né verki. Þannig var lífsviðhorf hans, það sem hann lærði ungur í endingargóðum skóla móður sinnar. Nú þegar leiðir skilja í bili vil ég þakka honum fyrir öll yndislegu samveruárin. Blessuð sé minning hans. Sigurður Kristjónsson

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.