Morgunblaðið - 05.09.1982, Blaðsíða 2
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 5. SEPTEMBER 1982
2
Vöröur meö fund á miðvikudagskvöld:
Efnahagsráðstafanirnar
og stjórnmálaviðhorfið
Landsmálafélagið Vörður gengst
fyrir fundi um efnahagsráðstafanir
ríkisstjórnarinnar og stjórnmála-
viðhorfið, og verður fundurinn hald-
inn nk. miðvikudagskvöld.
Geir Hallgrímsson formaður
Sjálfstæðisflokksins heldur fram-
söguræðu, en síðan verða umræð-
ur.
í samtali við Morgunblaðið
sagði Árni Sigfússon, fram-
kvæmdastjóri Fulltrúaráðs
sjálfstæðisfélaganna í Reykjavík,
að nú væri nauðsynlegt og eðlilegt
að sjálfstæðismönnum gæfist
kostur á að ræða um þau vanda-
mál sem að steðjuðu og hver leið
ríkisstjórnarinnar út úr vandan-
um og jafnframt hvort sú leið sé
fullnægjandi.
Eins og áður sagði verður fund-
urinn miðvikudagskvöldið 8. sept-
Geir Hallgrímsson
ember. Hefst hann klukkan 20.30
og verður i Valhöll, Háaleitisbraut
1.
Ingvi Ingvarsson.
Hörður Helgason
Nýr ráðuneytisstjóri
FYRSTA september lét Hörður
Helgason af störfum sem ráðu-
neytisstjóri í utanríkisráðuneytinu
og tók Ingvi Ingvarsson, sendi-
herra í Stokkhólmi, við embættinu
Hörður Helgason verður sendi-
herra Íslands hjá Sameinuðu
þjóðunum og hélt hann til New
York 3. september. Tómas Á.
Tómasson, sem hefur verið sendi-
herra hjá SÞ, flytur til Parísar og
tekur þar við sendiherrastörfum
af Einari Benediktssyni, sem
flyst til London, en Sigurður
Bjarnason, sendiherrra þar, kem-
ur til Reykjavíkur. Benedikt
Gröndal, fyrrum ráðherra og al-
þingismaður, tekur við sendi-
herraembættinu í Stokkhólmi af
hinum nýja ráðuneytisstóra
utanrkisráðuneytisins, Ingva
Ingvarssyni.
Færeysk þingmannasendinefnd
Lögþingsmenn frá Færeyjum hafa síðustu daga verið hérlendis í boði Alþingis. Þingmennirnir sem voru sjö að
tölu kynntu sér atvinnulíf, skoðuðu söfn og stofnanir og skiptust á skoðunum við starfsbræður sína hérlenda. Þá
lögðu þeir blómsveig að minnismerki um látna færeyska sjómenn i kirkjugarðinum við Suðurgötu. Myndina hér
að ofan tók Ijósm. Mbl. Kristján Einarsson af fjórum þingmannanna í Þjóðminjasafninu, en þar nutu þeir
leiðsagnar Þórs Magnússonar þjóðminjavarðar og Ólafs Olafssonar fulltrúa á Alþingi.
Matthías Á. Mathiesen um kjarasamninga BSRB:
Áberandi misræmi milli
yfirlýsinga og samninga
Vonandi taka forystumenn BSRB áfram mið af þjóðfélgasaðstæðum
„ÞEIR samningar sem gerðir hafa
verið á milli ríkissjóðs og BSRB eru
gerðir við mjög sérstakar aðstæður.
Ferðinni hefur ráðið sú aðstaða sem
Alþýðubandalaginu hefur tekist að
skapa sér með setu í núverandi rík-
isstjórn og áhrif þess innan BSRB,“
sagði Matthías Á. Mathiesen alþing-
ismaður og fyrrverandi fjármála-
ráðherra, er Mbl. spurði hann álits á
nýgerðum samningum við Bandalag
starfsmanna ríkis og bæja.
Þá sagði Matthías: „Samningarn-
ir virðast nú taka meira mið en áður
af því efnahagsástandi sem við blas-
ir í þjóðfélaginu, en með sérkjara-
samningum hefur verið reynt að
koma til móts við launakjör opin-
berra stafsmanna umfram það sem
samið var um á hinum almenna
vinnumarkaði.
Ymis þau ákvæði, önnur en beinar
iaunahækkanir sem samið var um,
orka mjög tvímælis og sýnist ætlað
m.a. að mæla kaupmáttinn betri en
hann verður í raun með þær miklu
kostnaðarhækkanir sem m.a. bráða-
birgðalögin nýsettu hafa í för með
sér fyrir heimilin í landinu. Það er
hins vegar áberandi misræmi milli
fyrri yfirlýsinga frá þingum BSRB
um kjaramál, sérstaklega ályktana
frá síðasta þingi þeirra, og nýgerðra
kjarasamninga.
Ljóst er að þau öfl sem ráðið hafa
ferðinni í þessari samningsgerð eru
innanhússmenn Alþýðubandalags-
ins og sýnast þeir vissulega hafa
tekið sinnaskiptum og telja allt í
einu nauðsynlegt að láta launa-
samninga taka mið af ríkjandi þjóð-
félagsaðstæðum.
Það er vissulega ástæða til þess
að benda á þetta, en í leiðinni vekja
athygli á því að þeir hinir sömu, sem
hrópuðu hæst 1978 „samningana í
gildi", telja nú ekki ástæðu til þess
að standa við sínar fyrri yfirlýs-
ingar þar sem aðrir pólitískir hags-
munir Alþýðubandalagsins eru
látnir sitja í fyrirrúmi. Við skulum
vona að í framtíðinni hafi allir ráð-
andi forystumenn BSRB áfram já-
kvæð sjónarmið en láti ekki póli-
tískar aðstæður einstakra stjórn-
málaflokka ráða kröfum sínum og
gerðum, eins og sumir þeirra hafa
ætíð viljað. Vonandi tekur BSRB
ævinlega mið af þeim möguleikum
sem fyrir hendi eru í þjóðfélaginu
þegar skipta skal þjóðartekjunum
og gera launasamninga."
Kjarvalsstaðir:
Fjölmenni við opnun
Thorvaldsenssýningar
FÖRSETI íslands, frú Vigdís
Finnbogadóttir, opnaði á föstu-
daginn sýningu á verkum Bert-
els Thorvaldsens á Kjarvals-
stöðum. Þetta er í fyrsta skipti í
I34ra ára sögu Thorvaldsens-
safns í Kaupmannahöfn, sem
sýning er haldin á gripum þess
utan Danmerkur. Við opnunina
fluttu ávörp þeir Einar Hákon-
arson formaður stjórnar Kjar-
valsstaða og Bent Nebelong
formaður stjórnar Thorvald-
senssafns.
Fjölmenni var við opnun
sýningarinnar á Kjarvals-
stöðum, og að lokinni opnun-
arathöfn var sýningin opnuð
almenningi, og mun hún
standa í tvo mánuði á Kjar-
valsstöðum. Gífurlega mörg
listaverk liggja eftir Thor-
valdsen, sem uppi var á árun-
um 1770 til 1844, og eru þau
dreifð víða um heim. Á safni
Thorvaldsens í Kaupmanna-
höfn eru 860 verk, og eru 75,
þeirra komin hingað til lands
á þessu fyrstu sýningu hér á
landi, sem til er komin vegna
frumkvæðis sendiherra Dana
á íslandi, J.A.W. Paludans.
Davíð Oddsson borgarstjóri f Reykjavík ræðir við biskupshjónin við opnun sýningarinnar, þau Sólveigu og herra
Pétur Sigurgeirsson.
Forseti Islands, frú Vigdfs Finnbogadóttir, skoðar mynd af listamannin-
um. Með Vigdísi á myndinni er ungur aðdáandi Thorvaldsens og frú
Dyveke Helsted forstöðumaður Thorvaldsenssafns í Kaupmannahöfn.
Einar Hikonarson formaður Bent Nebelong formaður stjórnar
stjórnar Kjarvalsstaða flytur ávarp Thorvaldsenssafns f Höfn flytur
við opnun sýningarinnar. ávarp sitL