Morgunblaðið - 24.12.1983, Blaðsíða 1
64 SIÐUR
STOFNAÐ 1913
296. tbl. 70. árg.
LAUGARDAGUR 24. DESEMBER 1983
Prentsrniðja Morgunblaðsins
Páfinn hvetur
til sinnaskipta
Páfagarði, 23. desember, AP.
JÓHANNES Páll páfi II hvatti í
dag mennina til sinnaskipta, að
þeir sneru hjörtum sínum frá
valdadýrkun og stríðshyggju og
beittu sér fyrir friði í heimi, sem
„fastur er í neti óttans.“
„Það er höndin, sem heldur
á sverðinu, sem drepur, ekki
sverðið," segir páfi í boðskap
sínum til þjóðarleiðtoga og
bætir við, að „komandi ár bíð-
ur okkar með spurn á vör og
áhyggjufullt á svip en þó
vonglatt og biðjandi." Páfi
sagði, að á heimsbyggðina
herjuðu stríð, „afvegaleiddur
hugsunarháttur hryðjuverka-
mannsins" og virðingarleysi
fyrir mannréttindum. Hann
áfelldist líka ríku þjóðirnar,
sem vilja gleyma hlutskipti fá-
tæku þjóðanna á sama tíma og
„vígbúnaðarkapphlaupið
gleypir fé, sem betur mætti
nota.“
Páfi var óvenju harðorður í
garð þeirra, sem „umbera
óréttlætið" og sagði, að „sá,
sem vill frið af öllu hjarta,
hafnar þeirri friðarstefnu,
sem er í ætt við hugleysið eða
er aðeins ósk um óbreytt
ástand eða sýndarró."
Ljósm. Snorri Snorrason
Thatcher fer í
jólaheimsókn
Beifast, 23. desember. AP.
MARGARET Thatcher forstæis-
ráðherra fór í dag í jólaheimsókn
til Norður-írlands og sagði: „Við
látum enga sigra okkur með
um Newtonwards, 20 km austur
af Belfast, og í fylgd 'með henni
voru tugir vopnaðra leynilög-
reglumanna.
Á sama tíma var birtur jóla-
boðskapur Sinn Fein, stjórn-
málahreyfingar IRA. Þar var
itrekuð sú krafa að Bretar færu
frá Norður-írlandi.
Gerry Adams, forseti Sinn
Fein, sendi „pólitískum föngum"
kveðjur sinar og sagði að „von-
andi“ yrði friður um jólin. En
hann varaði við því að friðun
mundi ekki haldast fram á
næsta ár nema Bretar létu af
„nýlendustefnu".
Gleðileg jól
ítalir vilja kalla gæslu-
liðana heim M Líbanon
Kairó. Róm og Beirút, 3. desember. AP.
Margaret Thatcher,
forsætisráðherra Breta
sprengjum og byssukúlum, hvorki
hér né nokkurs staðar í heimin-
um.“
Thatcher fór í þessa heim-
sókn, sem var ekki boðuð fyrir-
fram, sex dögum eftir árás Irska
lýðveldishersins (IRA) á Harr-
od’s-verzlunina í Lundúnum,
þegar fimm menn biðu bana og
95 særðust.
Hún hélt rakleiðis til brezkrar
herstöðvar í mótmælendabæn-
YASSER Arafat, leiðtogi
PLO, var í dag sagður á leið
til Norður-Yemen eftir
óvæntan fund hans og Hosni
Mubarak, Egyptalandsfor-
seta, í gærkvöld. Fundurinn
olli gífurlegri reiði á meðal
andstæðinga Arafats innan
PLO.
Svipuð viðbrögð voru hjá
ísraelum, en Bandaríkja-
menn lýstu velþóknun sinni
á fundinum. Fundurinn virð-
ist hafa orsakaðað djúpa gjá
á milli Israela og Bandaríkja-
manna.
Sendiherra ísraela í Wash-
ington bar fram harðorð mót-
mæli við Lawrence Eagleburg-
er, aðstoðarutanríkisráðherra
Bandaríkjanna, vegna fundar-
ins og taldi Bandaríkjamenn
eiga frumkvæðið að honum.
Þeim ásökunum var þegar vís-
að á bug, en almennt er talið að
fundurinn hafi verið liður í að
halda lífinu í 15 mánaða gam-
alli áætlun Reagan um frið í
Miðausturlöndum.
Áður en Arafat lagði upp frá
Kairó í morgun sagði hann í
viðtali við dagblaðið Al-
Ahram, að hann hefði í hyggju
að endurskipuleggja PLO-
samtökin frá grunni.
Arafat sagði við blaðið, að
hann myndi koma á fundum á
milli leiðtoga stærstu fylk-
inganna innan hreyfingarinnar
fljótlega til þess að ræða það
sem hann orðaði „nauðsynlegar
skipulagsbreytingar". Fyrsti
fundurinn er talinn munu
verða í febrúar.
Sandro Pertini, forseti
Ítalíu, var í dag harðorður í
garð Bandaríkjamanna fyrir
að kalla her sinn ekki heim frá
Libanon. Sakaði hann þá um að
hafa her sinn þar aðeins til
þess „að vernda ísrael". Jafn-
framt hvatti hann til þess, að
ítalir kölluðu 2100 gæsluliða
sína í landinu heim hið fyrsta.
Átök voru enn í Beirút í dag
og særðust þrír starfsmenn al-
þjóða Rauða krossins er
sprenging sprakk skammt frá
búðum þeirra. Meiðslin voru
ekki talin alvarleg.
Þremur Sovétmönn-
um vísað frá Svíþjóð
Stokkhólmi, 23. desember. AP.
SÆNSK stjórnvöld skipuðu í gær
þremur sovéskum ríkisborgurum
að hverfa úr landi eftir að sannað
þótti að þeir höfðu fengist við
njósnir. Tveir hinna landræku eru
diplómatar við sovéska sendiráðið
í Stokkhólmi, hinn þriðji er kaup-
sýslumaður.
Lars Lonnbak, talsmaður
sænska utanríkisráðuneytisins,
greindi frá því að sænska lög-
reglan hefði haft umrædda þre-
menninga undir eftirliti og
greint ráðuneytinu frá njósnum
þeirra fyrir viku. Hann gat þess
einnig, að „blessunarlega hefðu
njósnir Rússanna ekki náð að
skaða Svíþjóð.
Leynd hefur nokkur verið um
mál þetta og Lonnbak upplýsti
lítið annað en það litla sem vit-
að var. Forðaðist hann að svara
áleitnum spurningum frétta-
manna um eðli njósnanna.
Hann gat þess heldur ekki
hvenær Rússarnir ættu að fara,
en sagði að þeir væru ekki lýstir
„persona non grata“.