Morgunblaðið - 24.12.1983, Blaðsíða 28

Morgunblaðið - 24.12.1983, Blaðsíða 28
28 MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 24. DESEMBER 1983 Magnús Hafliðason á Hrauni — Minning Fæddur 21. nóvember 1891 Dáinn 17. desember 1983 Þegar ég nú í jólaamstrinu sest niður og hugsa til Magnúsar afa sem kvaddi okkur fyrr en við ætl- uðum, skjóta ótal minningar upp kollinum, minningar frá Hrauni í Grindavík. Fyrstu minningar mínar um afa eru frá því ég var 5 ára og dvaldist þá sem oftar hjá afa og eftirlif- andi konu hans, Önnu Þórdísi Guðmundsdóttur frá Kálfárvöll- um í Staðarsveit. Þetta var að sumarlagi og slátt- ur í fullum gangi. Ekki var slegið þá eins og nú er gert, en þess í stað notast við orf og ljá, rakað í sátur og bundnir baggar sem síðan voru dregnir heim í hlöðu. Þessu öllu fylgdist ég með og þá oftast í nánd við afa, hann hefur sennilega ekki kunnað við iðjuleysi mitt frekar en annarra, því óðar en varði var ég komin með hrífu og farin að snúa heyi. Ekki veit ég hvert gagnið ég gerði, en þessi vinna varð eins og leikur, reyndar má segja að alla þá tíma sem ég dvaldist að Hrauni hafi vinnan verið leikur, að ganga fjöru með afa og tína alls kyns hluti sem rekið höfðu á land, ganga með afa yfir Leitið og út í Hverfi. Já, ég sé hann enn fyrir mér lotinn í herð- um með hendur fyrir aftan bak þar sem mjólkurbrúsinn dinglaði fram og til baka, derhúfan á sín- um stað óg Snaggur, dillandi róf- unni og fylgdi hverju fótmáli hans. Þær voru ófáar ferðirnar yf- ir Leitið og gjarnan gengum við krakkarnir á eftir afa með hendur fyrir aftan bak og reyndum að líkia eftir honum. I dag þegar ég er orðin móðir og er að ala upp börnin mín vildi ég stundum óska þess að líkjast afa 1 lund. Aldrei öll þau ár, sem ég naut þess að þekkja hann, heyrði ég hann blóta eða brýna raust þótt stundum gæti orðið kátt yfir spil- unum því fátt þótti afa skemmti- legra en að spila. Ekki þykir mér ólíklegt að hann hafi kennt öllum þeim barnabörn- um sem hjá honum hafa dvalist að meðhöndla spilin þótt ekki væri nema að byggja hús úr þeim. Já, ég gæti talið upp ótal minn- ingar frá samskiptum okkar afa en í dag er mér efst í huga að þakka fyrir að hafa verið dóttur- dóttir hans því að af öðrum öfum ólöstuðum hefði ég ekki viljað eiga annan, því í mínum minningum er hann eins og afar eiga að vera. Ein af síðustu minningum mín- + Eiginmaöur minn, faöir okkar, tengdafaöir og afi, DAGUR HALLDÓRSSON, sjómaöur, Sogavegi 127, iést í Landspítalanum 22. desember. Margrét Eyjólfsdóttir, börn, tengdabörn og barnabörn. t Móöir okkar, tengdamóöir og amma, KRISTÍN PÁLSDÓTTIR, Hólmgaröi 62, lést í Landspítalanum 23. desember. Málfríöur Einarsdóttir, Guðlaug Einarsdóttir, Sveinbjörn Björnsson og barnabörn. + VALDIMAR ÓLAFSSON, sem lést í Sjúkraskýli Bolungarvíkur hinn 20. desember sl., veröur jarösettur frá Hólskirkju þriöjudaginn 27. desember kl. 14 e.h. Sólveig Halldórsdóttir. + Þökkum af alhug auösýnda samúö og vináttu viö andlát og útför eiginkonu minnar, móöur okkar, tengdamóöur og ömmu, ODDRÚNAR J. ÓLAFSDÓTTUR, Nökkvavogi 44. Guð gefi ykkur gleöileg jól og farsælt nýár. Albert Jónasson, Ásgerður Albertsdóttir, Hans Aöalsteinsson, Oddrún Albertsdóttír, Þorbergur Ormsson og barnabörn. + Þökkum sýnda samúö og vinarhug viö andlát og útför móöur okkar, MARGRÉTAR SNÆBJÓRNSDÓTTUR, Ljósheimum 11. Steinunn Sveínsdóttir, Haukur Árnason, Ásbjörn Sveinsson, Bára Þórsdóttir, Snæbjörn Sveinsson, Ingibjörg Þóröardóttir og barnabörn. um um afa er frá því er hann varð rúmliggjandi, en þá kom ég til hans og verður mér þá að orði að þetta eigi nú ekki við hann Magn- ús að liggja svona rúmfastur. Hann samsinnti því en sagðist þó ætla að safna kröftum því það væri stutt í ferðina erfiðu. Ég svaraði honum því að hann væri búinn að leggja svo vel inn að hún yrði nú ekki mikið erfið fyrir hann. Þá leit hann upp, brosti og sagði: „Það er annarra að dæma um það hversu vei ég hef gert.“ Þessi orð hans lýsa honum betur en öll önnur orð. Að lokum vil ég þakka samveru okkar og barna minna með hon- um. Þær verða ógleymanlegar. Guð veri með og styrki Önnu á komandi stundum. Ég vil ljúka minningu minni um elskulegan afa með hans eigin orðum: „Þetta verða skrýtin jól.“ Hrefna Birgitta Bjarnadóttir Afmælishefti Neytenda- blaðsins ANNAÐ hefti Neytendablaðsins 1983 er komið út og er það nokkurs konar afmælisrit, en Neytenda- samtökin áttu 30 ára afmæli á liðnu vori. Meðal efnis i blaðinu er m.a. grein, þar sem saga samtakanna er rifjuð upp, verðmerking í búð- argluggum, nautahakk — kinda- hakk og verðsamanburður á mjólkurvörum á íslandi, í Noregi og í Svíþjóð. Þá er rætt við Svein Ásgeirsson, Gísla Gunnarsson og Reyni Ármannsson. Neytendablaðið er gefið út af Neytendasamtökunum, ritstjóri þess er Jóhannes Gunnarsson, en formaður samtakanna er Jón Magnússon. Leiðrétting MISRITUN varð í frétt af útskrift nemenda í Fjölbrautaskóla Suður- lands á Selfossi í Mbl. í fyrradag. Rétt er, að skólameistari þar heit- ir Þór Vigfússon. Fréttin var ekki skrifuð af fréttaritara Mbl. á Sel- fossi. Menningarsjóður félags leikstjóra: Andrés Sigurvinsson fær viðurkenningu STJÓRN Menningarsjóðs félags leik- stjóra á íslandi hefur nýlega ákveðið að veita Andrési Sigurvinssyni leik- stjóra viðurkcnningu úr sjóðnum. Er þetta í fjórða sinn sem slík viðurkenn- ing er veitt. Andrés Sigurvinsson hefur á und- anförnum árum leikstýrt mörgum sýningum með áhugaleikhópum, ekki síst í skólum landsins, en á þeim vettvangi er lagður mikilvæg- ur grunnur að leiklistarstarfsemi í landinu. Ennfremur stóð hann með öðrum að endurreisn Stúdentaleik- hússins og veitti forstöðu athyglis- verðri starfsemi þess á síðastliðnu sumri, sem opnaði nýja möguleika í leikhúslífi á höfuðborgarsvæðinu. í stjórn Menningarsjóðs félags leikstjóra á Islandi eiga sæti Gunn- laugur Ástgeirsson, Ásdís Skúla- dóttir og Þórhildur Þorleifsdóttir. (Fréttatilkynning) Litlu jólin í Skála- túni Þessar myndir tók ljósmynd- ari Mbl. þegar vistmenn á Skálatúni í Mosfellssveit héldu litlu jólin. Þar ríkti sannkölluð hátíðarstemmn- ing, enda hófust litlu jólin á helgileik sem hópur vist- manna hafði æft og sýndi í skrautlegum búningum við kertaljós, eins og sjá má á myndunum. Að loknum helgileik mætti jólasveinn að sjálfsögðu á staðinn og geng- ið var í kringum jólatré.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.