Morgunblaðið - 30.11.1984, Blaðsíða 38

Morgunblaðið - 30.11.1984, Blaðsíða 38
38 MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 30. NÓVEMBER 1984 Guðrún Pétursdóttir — Minning Fædd 23. janúar 1899 Diin 22. september 1984 Laugardaginn 29. september var jarftsett frá Keflavíkurkirkju Guftrún Pétursdóttir er lengst bjó á Vesturbraut 3 þar i bæ. Guftrún var fsedd 23. janúar 1899 á einu býlanna við Stóru-Vatnsleysu á Vatnsleysuströnd, dóttir hjón- anna Agnesar Felixdóttur frá Tungu í Ut-Landeyjum og Péturs Jóakimssonar frá Auðnum á Vatnsleysuströnd. Agnes og Pétur áttu 8 börn. Elstur var Pétur er dó um tvítugsaldur, þá Guðrún sem hér er minnst, Felix er átti langa starfsævi í Hamri, Guðjón fisk- matsmaður, Sigurður netagerðar- maður í Hafnarfirði, Hallbergur sem látinn er fyrir allmörgum ár- um, Jóakim vigtarmaður í Hafn- arfirði og Margrét kaupkona þar. Guðrún ólst upp í hópi systkina og vina, en mannmargt var á Ströndinni á þessum árum. Fljót- lega fór hún að hjálpa til við bú- stðrfin og fiskverkun, var komin í vist um tíma í Reykjavík fyrir fermingu, en til prestsins gekk hún að Kálfatjörn og var fermd þaðan. Síðan var hún í húsi Böðv- ars kaupmanns í Hafnarfirði í 4 ár og minntist þeirra ára með ánægju. Er kom fram á þessa öld fór fiskur að leggjast frá grunn- miðum í Faxaflóa vegna ágangs erlendra togara og var þá úti um þá stórútgerð er stunduð hafði verið við Vatnsleysuströnd og fluttist fólkið þaðan, flest til Hafnarfjarðar. Fjölskylda Guð- rúnar var komin þangað 1921 og bjuggu foreldrar hennar þar til dauðadags. Pétur vann þar alla al- genga verkamannavinnu, mest við gatnagerð á meðan kraftar leyfðu. Guðrún tók brátt þátt í þeim störfum við sjávarsíðuna er til féllu. Er hún var ráðskona við út- veg Auðuns á Vatnsleysu á vertíð í Sandgerði 1921 kynntist hún ung- um manni úr Svarfaðardal, Jó- hanni G. Guðjónssyni. Hann var hraustur og fjörugur, spilaði á harmoniku á böllum, þótti snjall mótoristi og horfði bjðrtum aug- um til framtíðarinnar. Guðrún og Jóhann giftu sig í nóvember 1922, bjuggu eitt ár f Keflavík, síðan í Hafnarfirði til 1925, er þau fóru aftur suður og voru þar síðan. Fyrstu árin bjuggu þau í hluta af Duushúsi er stóð í elsta hluta bæjarins. Á þeim árum átti Guð- rún oft erfitt og þurfti að leggja sig alla fram fyrir sig og sína. Eig- inmaðurinn oftast á síldarskipum fyrir norðan yfir sumarið og stundum í Sandgerði á vertíðinni, en konan ein heima með börnin. Vatn þurfti allt að flytja úr brunni við Brunnstíginn, borið í fötum eða ekið á handvagni. Þvottur fluttur að brunninum til skolunar. Guðrún vann utan heim- ilis alla þá vinnu er var að fá. Við fiskbreiðslu upp á reitum þegar þurrkur var og hafði hún þá barnahópinn með sér og fóru þau að hjálpa til eins fljótt og kraftar leyfðu. Síldarsöltun fór fram á planinu fyrir ofan miðbryggjuna og var þá stutt fyrir hana að fara þangað í vinnu og eins í fisk- þurrkhúsið gamla er stendur fyrir neðan. Þrátt fyrir mikla vinnu úti við hugsaði Guðrún vel um börnin og heimilið. Hún var natin við að sauma nær allan fatnað á sig og börnin og er það furða hve mikið hún og reyndar flestar húsmæður á þessum árum komust yfir að gera við þær aðstæður sem fyrir hendi voru. Guðrún var félagslynd kona og starfaði mikið fyrir Kvennadeild Slysavarnafélagsins í Keflavík og lagði mikið á sig við undirbúning basars félagskvenna og aðra fjár- söfnun. Einnig var hún góður fé- lagi í systrafélagi kirkjunnar. Börn Guðrúnar og Jóhanns eru: Elstur er Guðjón, f. 8. mars 1923, kv. ólöfu Pétursdóttur, þau eiga Stefaníu, Auði, Björk og Ingi- björgu; Pétur, f. 23. júní 1925, kv. Sveinbjðrgu Karlsdóttur og eiga þau Guðrúnu, Ingunni Steinu, Sævar, Pétur og fóstursoninn Braga; Agnes, f. 23. janúar 1927, g. Haraldi Sveinssyni, þau eiga Soffíu, Ásdísi, Jóhann og Svein. Yngstur er Jón, kv. Jónu Sigur- I gisladóttur og eiga þau Stefaníu, Guðbjörgu, Jóhann Gunnar og Sigurgeir, er þau misstu fyrir rúmu ári. Alls eru afkomendur Guðrúnar og Jóhanns nú 43, allt hið mann- vænlegasta fólk. Líf og starf Guðrúnar var eins og margra Islendinga af alda- mótakynslóðinni. í fyrstu erfitt og vonlítið meðan þjóðin var að berj- ast úr örbirgð til bjargálna, unnið var langan vinnudag og afrakstur- inn lítill. En allir lögðu sig fram eins snemma og kraftar leyfðu og smátt og smátt fór að birta til. Atvikin skipuðu málum á þann veg að stríðið færði okkur atvinnu og fjármuni. Lífskjörin tóku stökk til hins betra. Guðrún og Jóhann gátu horft bjartari augum til framtíðarinn- ar. Er þau höfðu komið sér fyrir í nýju húsi, sem þau reistu 1942 á Vesturbraut 3 með góðri aðstoð barnanna, gat Guðrún farið að sinna einu af mörgum áhugamál- um. Hún gat farið að rækta sinn eiginn garð og hafði af því mikla ánægju. Oft er stormasamt suður með sjó, en á sólskinsstundum gat Guðrún ótrúlega náð að hlúa að gróðrinum í garði sínum og sýndi hún börnum og barnabörnum árangur erfiðis síns með miklu stolti. Börnum sínum var hún stoð og stytta, enda augljóst að oft var hún í hlutverki beggja foreldra, er faðirinn var löngum fjarverandi á sjónum. En ekki var hún síður mikil amma. Meðan heilsa entist leið varla sá dagur að ekki tæki hún opnum örmum á móti ein- hverju barnabarnanna. Og á stór- hátíðum mörgum helgum komu allir í mat og kaffi heim á Vestur- braut 3. Það var ánægjulegt að mega sjá hve fjölskyldan var sam- hent um að tengja böndin og rækta velvilja og vinarþel innan hópsins. Og ekki átti Guðrún minnstan þátt í því að svo vel hef- ur til tekist. 011 samskipti við tengdamóður mína hafa verið á einn veg. Frá því ég kom þar fyrst inn fyrir dyr var mér tekið með ástúð og hlýju. Hún tók mér eins og einum syni til viðbótar. Og það sama má segja um börn mín. Ég veit að það verður þeim ómetan- legt á lífsleiðinni að hafa fengið að alast upp við þá elsku og um- hyggju sem amma og afi í Kefla- vík veittu þeim í hvert sinn er þau hittust. Hjónaband Guðrúnar og Jóhanns var traust og hamingju- samt. Síðustu æviár Jóhanns fór heilsu þeirra beggja hrakandi og áttu þau erfitt með að sjá um sig ein. Nutu þau þá mikillar og góð- rar umhyggju tengdadætra sinna er skiptust á að vitja þeirra. Guð- rún missti mikils er Jóhann féll frá 26. júlí 1980. Var þá þannig komið heilsu hennar að hún gat ekki séð um sig sjálf. Tóku þá Pét- ur sonur hennar og Sveinbjörg að sér að búa gömlu konunni hlýlegt ævikvöld og var hún á heimili þeirra við hina bestu umhyggju. Svo kom þó að hún þurfti meiri umönnun og fór hún þá á Garð- vang, en er meira dró af henni á Sjúkrahús Keflavíkur. Naut hún þar hinnar bestu hjúkrunar og skal starfsfólki öllu á þessum stofnunum færðar alúðarþakkir. Síðasta árið var mjög dregið af Guðrúnu og var hún næstum kom- in úr þessum heimi. Yfir lauk að morgni laugardagsins 22. sept- ember sl. Vift kveðjum Guðrúnu með miklum söknuði en vitum að hún á góðar viðtðkur visar í nýj- um heimkynnum. Blessuð sé minning hennar. Haraldur Sveinsson Kveðjuorö: Olafur Sigvaldason á Sandanesi Fæddur 1. október 1910 Dáinn 11. október 1984 Hinn 20. október sl. var til moldar borinn frá Hólmavíkur- kirkju Ólafur Sigvaldason, til skamms tíma bóndi að Sandnesi á Selströnd við Steingrímsfjörð. Samsveitungur Olafs og æsku- félagi, Þorsteinn Matthíasson frá ja Kaldrananesi hefur áður hér í blaðinu gert nokkra grein fyrir ætterni Ólafs, kvonfangi og af- komendum. Ég læt því nægja að bæta því við sem mörgum er að sjálfsögðu kunnugt, að Ólafur var dótturdóttursonur Torfa Einars- sonar alþingismanns á Kleifum. í bók Halldóru Bjarnadóttur, Vefn- aður á íslenskum heimilum, er þetta haft eftir hagleiksmannin- um og hagyrðingnum Jörundi Gestssyni á Hellu varðandi vefnað í Kaldrananeshreppi: „Síðast var ofið hér á Sandnesi af Guðbjörgu Einarsdóttur, húsfreyju. Óf hún allt hugsanlegt voðar kyns: ábreiður, dregla, jafnvel brekán, og kunni iðn sína til fullnustu." — Af þessu hvoru tveggja er aug- ljóst, þótt eigi sé frekar rakið, að ekki átti Ólafur langt að sækja ýmsa þjóðlega þætti og blæbrigði í fari sínu, er svolítið verður vikið að hér á eftir. Auk búskapar á Sandnesi gegndi ólafur margvíslegum trún- aðarstörfum í þágu sveitar sinnar. Má þar til telja m.a. að sýslu- nefndarmaður var hann í tuttugu ár og hreppsnefndarmaður í fjög- ur ár. Hann var um skeið formað- ur Búnaðarfélags Kaldrananes- -hrepps og stóð framarlega í rækt- unarstörfum, ungmennafélags- hreyfingu og íþróttamálum sveit- arinnar. Þá var hann deildarstjóri og endurskoðandi hjá Kaupfélagi Steingrímsfjarðar um árabil og vegavinnuverkstjóri í nokkur ár, m.a. við lagningu vegar áleiðis norður í Árneshrepp um Kald- baksvík og Kaldbakskleif. Ólafur Sigvaldason var ærið litríkur persónuleiki og af og frá að hann rynni saman við fjöldann og flatneskjuna án þess að eftir honum væri tekið. Hann var vel lesinn og fróður, ekki hvað síst í tslendingasögum og öðrum þjóð- legum fræðum. Hann fylgdist vel með gangi þjóðmála og veitti grannt gætur persónum og leik- endum á sviði íslenskra stjórn- mála. Sjálfur vissi hann til hlítar hvar hann fann sig í flokki, og hefði urftu mikið dómgreindar- leysi til að láta sér detta í hug að hnika honum þar eitthvað til. Þó fór því fjarri að hann væri þröng- sýnn eða ósanngjarn varðandi menn og málefni. Hann lét and- stæðinga meðal frammámanna ís- lenskra stjornmála jafnan njóta sannmælis varðandi orð og at- hafnir, teldi hann sig sjá þar eitthvað bitastætt. ólafur var mikill félagshyggju- maður og naut sín vel á mann- fundum. Hann var samræðusnill- ingur af eðli sinu án nokkurrar skólunar þar að lútandi. Honum voru eðlislægir tilþrifamiklir, leikrænir tjáningartaktar, sem undirstrikuðu oft og tíðum frjóar samræður og gáfu þeim líf og lit. Fór enda iðulega svo að gleymast vildi staður og stund í samræðum við ólaf, og þótti manni jafnan sem rabbið væri rétt að byrja, þegar knúðar dyr eða gjallandi bifreið klipptu á þráðinn og ólafur var rokinn. Líkt og aðrir duglegir menn gat Ólafur verið mishittinn. Viðmót hans gat orðið ískalt og fráhrind- andi, ef þannig blésu vindar. Ég komst ekki hjá því að taka eftir því. Hitt er mér þó miklu ríkara í minni, hversu alúðlegur, hýr og þjóðlegur hann oftast var í sam- ræðu og hve gott var þá að blanda við hann geði. y Það var einhverju sinni, að við Ólafur höfðum setið daglangt yfir hreppsreikningum, sem hann var að endurskoða og eigi ávallt orðið á einu máli varðandi reiknings- færslur. Þjarkaðist nú dagurinn áfram uns við náðum saman um síðir og Ólafur skrifaði undir. Var þá dagur að kveldi kominn, er við veltum af okkur reiðingum, feng- um okkur svolitla hressingu og tókum upp léttara hjá. Æxlaðist svo til, að við urðum samferða inn eftir Selströnd á fallegu vorkvöldi áleiðis heim að Sandnesi. Varð mér að orði einhvers staðar leiðar- innar að víða væri fallegt á Sel- strönd, og tók ólafur undir það. Spurði ég hann þá, hvar hann hefði komið á landinu, er honum væri helst í minni sakir náttúru- fegurðar. Eftir eilítinn þanka kvað hann sér seint mundu líða úr minni vorkvöldin og sumarnæt- urnar norður í Kaldbaksvík. „ ... Hefk lönd og fjöld frænda flýit, en hitt er nýjast: Kröpp eru kjör ef hreppik Kaldbak en lætk akra.“ Sínum augum lítur hver silfrið, og virðist auðsætt að eigi hafi þeir með öllu notast við sama sjónar- horn undir Kaldbak, þeir önundur tréfótur og Ólafur á Sandnesi. Og höfðu þó báðir nokkuð til síns máls. Þrátt fyrir þetta verður þó varla sagt að við ólafur Sigvaldason kynntumst náið þau þrettán ár er við deildum sama hreppi. Munum við jafnan hafa haft nokkurn vara á okkur hvor í annars garð, eink- um framan af, og munu lands- mála- og sveitarstjórnarpólitík hafa valdið þar einhverju um. Ég má þó segja, að með árunum höf- um við strikað út æ fleiri spurn- ingarmerki hvor í sambandi við hinn, enda var ólafur þeirrar gerðar, að honum veittist næsta auðvelt að komast af við hinar ýmsu gerðir og persónuleika sam- ferðamanna sinna. ófáar samræð- ur áttum við í bróðerni og gengum saman á glaðri stund. Eitt er víst. Við, sem kynntumst Ólafi á Sandnesi lengur eða skem- ur, gleymum honum ekki svo glatt, og mannlífið við Steingrímsfjörð er svipminna að honum gengnum. Þeim orðum til fulltingis stendur með öðru sú staðreynd, að útför hans frá Hólmavík var einhver hin fjölmennasta, er menn minn- ast hér um slóðir. Megi vornæturljómi Kaldbaks- víkur, ásmt með öðru góðu, um- vefja hann og endast til eilífrar uppfyllingar draumsins um dag eftir þennan dag, handan við gröf og dauða. Með samúðarkveðjum frá mér og mínum til aðstandenda hins látna. Þórir Haukur Einarsson SVAR MITT eftir Billy Graham Heimshyggja I söfnuðinum okkar eru miklar umræður um veraldarhyggju meðal kristinna manna. Ég skil ekki, hvað menn eiga við, þegar þeir segja, að sumar skemmtanir séu veraldlegar. Verið svo vænir að útskýra þetta. Þetta orðalag er nú ekki í Biblíunni, en það þarf að skilgreina það. í 1. bréfi Jóhannesar 2,15 segir: „Elskið ekki heiminn, ekki heldur þá hluti, sem í heiminum eru. Ef einhver elskar heiminn, þá er kærleiki til föð- urins ekki í honum." Ef þér lesið þennan kafla í Biblíunni, komizt þér að raun um, að heimshyggja er fremur afstaða en bein þátttaka í einhverri athöfn. Það, sem Jóhannes er að fjalla um, þegar hann varar við því að elska heiminn, er það sem er andstætt ríki Guðs í þessum heimi. Veraldlegir hættir og afstaða samræmast ekki ríki Guðs. Sá, sem bindur hug sinn við hluti þessa heims, verður vonsvikinn og hryggur. En það er hið eilífa og varanlega, sem við erum hvattir til að elska. Kristur hvatti okkur til að leita ríkis Guðs, ekki ríkis þessa heims.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.