Morgunblaðið - 28.12.1984, Blaðsíða 36
36
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 28. DESEMBER 1984
Gistihúsið í Bláa lóninu, gufa frá virkjuninni í Svartsengi liðast upp í loftið að baki þess.
Bláa lónið vakti áhugann
— segir Þórður Stefánsson eigandi gistihússins á staðnum
Vogum, 17. desember.
ÞAÐ ER rúmlega eitt ár frá því að
Þórður Stefánsson hóf rekstur
gistihússins „Bláa lónið“, í ýfðu og
óárennilegu hrauninu. Hann sagði
í samtali við Mbl. að það væri ein-
mitt eitt af sérkennum staðarins,
útlendingum þstti alveg stórkost-
legt að vera „á miðjunni á engu“.
Eins og flestum er eflaust
kunnugt dregur gistihúsið nafn
af Bláa lóninu, sem er affalls-
vatn frá Orkuveitu Hitaveitu
Suöurnesja. Það er einmitt Bláa
lónið sem vakti áhuga Þórðar á
að setja á stofn gisti- og veit-
ingarekstur á þessum stað.
Hann sagði að BÍáa lónið væri
stórkostlegasta baðströnd í víðri
veröld.
f lóninu væri brimsaltur sjór
og hitinn eins og að fara í gott
baðker, síðan er hægt að velja
um hita sem hverjum hentar.
Um 80% þeirra sem hafa gist í
gistihúsinu við Bláa lónið eru út-
lendingar. Norðmenn hafa verið
sérstaklega duglegir við að
sækja staðinn. Ennfremur hefur
verið mikið um áhafnir á einka-
flugvélum og einnig áhöfnin á
flugvél British Airways, sem
lenti á Keflavíkurflugvelli vegna
sprengjuhótunar sl. sumar svo
dæmi væru tekin. Þá hefur
grænlenska landhelgisgæslan
verið með föst viðskipti undan-
farið. Þeir útlendingar sem
koma í gistihúsið dvelja oftast í
7 til 14 daga. Norðmenn sem
hafa komið til að baða sig í lón-
inu hafa fengið skýran árangur
á tveimur til þremur dögum.
Þórður sagðist hafa fengið
mikið af þakkarbréfum frá út-
lendingum sem hafa dvalið hjá
honum, en í haust var allt fullt
þar til verkfallið byrjaði, en þá
var eins og klippt á allt. Utlend-
ingar sem hafa komið eru farnir
að panta aftur.
Það er stöðugur straumur í
Bláa lónið, og það verður æ vin-
sælla að fara í eftirmiðdagskaffi
í gistihúsið við Bláa lónið. Metið
í eftirmiðdagskaffi er 180 manns
á dag. Þá hefur þótt hentugt að
halda smáráðstefnur á staðnum,
og er þegar töluvert pantað fram
í janúar.
í vetur hefur verið boðið upp á
helgarpakka sem aðallega hafa
verið notaðir af amerískum fjöl-
skyldum. Er áberandi að þær ís-
lensku fjölskyldur sem koma
einu sinni koma aftur.
í gistihúsinu við Bláa lónið eru
10 tveggja manna herbergi, í
þeim eru sjónvarp, útvarpstæki
með innbyggðri vekjaraklukku,
og sturtubað með nuddi í hverju
herbergi. í húsinu er mynd-
bandstæki. Þá hefur staðurinn
fengið leyfi fyrir létt vín. Þórður
hefur áhuga fyrir að búa til
skautasvell en veður hefur ekki
gefið tilefni til þess í haust.
E.G.
Kjörís
Hveragerði, 12. desember.
ÍSGERÐIN Kjörís í Hveragerði hef-
ur nú starfað í 15 ár og þ. 24. nóv-
etnber sl. var þess minnst hátíðlega
með veislu í hinum vistlegu húsak-
ynnum fyrirtækisins að viðstöddum
mörgum boðsgestum. Þar rakti Haf-
steinn Kristinsson framkvæmda-
stjóri sögu fyrirtækisins frá upphafi
og gestir fengu að skoða alla þá
tækni sem er til staðar og nota þarf
við þessa margþættu framleiðslu.
Ég hitti Hafstein að máli í hinni
nýju fallegu skrifstofu hans og
bað hann að segja örlítið frá
starfseminni.
„Við hófum framleiðsluna þ. 1.
apríl 1969, í húsi sem var 275 m2.
Var í fyrstu mjög þröngt um
okkur, t.d. var fyrsta skrifstofan
mín 6 m‘ og var jafnframt kaffi-
stofa starfsfólksins. En við höfum
jafnt og þétt verið að bæta við
húsakynnin og erum nú með 1500
mz gólfflöt undir starfsemina. Sið-
asta viðbyggingin er 450 mz og
kostar 4 milljónir fullfrágengin
eða aðeins innan við 10 þúsund
hver fermetri og þykir það gott
verð nú til dags.
Framleiðslan hefur aukist í
svipuðu hlutfalli og húsnæðið og
tegundunum er sífellt að fjölga,
munu vera komnar yfir 60 og er
alltaf að bætast við. Á þessu ári
komu 4 tegundir af Breeg-pinnum
sem náðu miklum vinsældum og
nýkomið er á markaðinn þeyti-
krem, sem selt er frosið og þýtt
fyrir notkun, það lofar góðu. Við
keyptum vél frá Bandaríkjunum
sem pakkar þeytikreminu í fernur,
sem eru mjög þægilegar, smáar
fyrir almenning en stórar fyrir
hótel og mötuneyti.
15 ára
Við byrjuðum með 1 lítinn
sendibíl en erum nú með 6 flutn-
ingabíla, þar af 4 með frystikerfi
og dreifa þeir vörunum um allt
land, nema Austur- og Vestur-
land. Höfum við umboðsmenn á
Akureyri, ísafirði og í Vest-
mannaeyjum.
Á launaskrá eru núna 25 manns
og fleiri eru yfir sumartímann.
Salan var ágæt á þessu ári og við
horfum björtum augum til fram-
tíðarinnar," sagði Hafsteinn að
lokum.
Óska ég þeim til hamingju með
áfangann og að vonir þeirra megi
rætast.
Sigrún
Eldvíkin við bryggju á Vopnafirði, slökkvistarf er í gangi og reykinn leggur
yfir höfnina.
Eldur í flutninga-
skipi, en lítið tjón
Gaf dvalarheimili aldraðra
Stykkishólmi fánastöng
VopnarirAi, 9. desember.
Vöruflutningaskipið Eldvík sigldi
á bryggju hér í morgun, sunnudag.
Við ásiglinguna kom rifa og töluverð
dæld á kinnung skipsins bakborðs-
megin. Það var svo um hádegisbilið
er skipverjar voru að sjóða í rifuna
að eldur komst í einangrun og varð
af mikill reykur, slökkvilið Vopna-
fjarðar var kallað út og tókst að ráða
niðurlögum eldsins fljótlega.
Skemmdir urðu smávægilegar á tré-
brettum og klæðningu í lest en talið
er að saltfiskfarmurinn hafi að
mestu eða öllu leyti sloppið.
Héðan sigldi Eldvík svo síðdegis
í dag áleiðis til Neskaupstaðar en
þar var reiknað með að sjópróf
vegna málsins færu fram. Þess má
að lokum geta að slökkviliðið var
mjög fljótt á vettvang eða um 7
mínútur frá útkalli og má það telj-
ast mjög vel að verið ekki síst þeg-
ar það er haft í huga að hjá
slökkviliðinu er engin vakt.
B.B.
Hafa selt 100 t. af heyi til Færeyja
Styfckbihólmi, 17. deNember.
í HADST færði Gísli Sigurbjörnsson,
forstjóri Elliheimilisins Grundar í
Keykjavík, dvalarheimilinu hér veg-
lega fánastöng með fána og tilheyr-
andi, en Gísli var hér smástund og
kynnti sér mál aldraðra. Var hann
mjög hrifinn af dvalarheimilinu, fyrir-
komulagi öllu og rekstri. Átti hann tal
við sveitarstjóra og forstöðukonuna
sem lýstu fyrir honum fyrirkomulagi
öllu.
Sem þakklætis- og virðingarvott
sendi svo Gísli dvalarheimilinu
þessa myndarlegu flaggstöng sem
nú hefir verið komið fyrir á góðum
3taö utan við heimilið. Högni Bær-
ingsson, verkstjóri Stykkishólms-
hrepps, sá um uppsetningu flagg-
stangarinnar, en Guðlaug Vigfús-
dóttir, forstöðukona dvalarheimilis-
ins, veitti henni viðtöku.
Flaggstöngin sómir sér vel og gef-
ur umhverfinu sérstakan blæ.
y
h
S íiTrrr x
Gísla var sérstaklega þökkuð
rausnarleg gjöf og er þetta ekki í
fyrsta sinn sem Gísli lítur ut á
landsbyggðina með góðum hug og
gjafmildi. Ahugi hans á velferð
aldraðra er þjóðkunnur og lif sitt og
störf hafa hann og fjölskylda hans
helgað eldri borgurum landsins.
Árni
NOKKRIR bændur á Fljótsdalshér-
aði hafa síðan í sumar selt um 10(1
tonn af heyi til Eæreyja. llndanfarin
fimm ár hafa þeir selt hey þangað en
aldrei jafn mikið og nú. Möguleikar
eru til sölu enn meira magns en þar
sem salan takmarkast við þá bæi þar
sem aldrei hefur komið upp riðu-
veiki er útlit fyrir að Austfirðingar
geti ekki selt meira hey í ár.
Þorsteinn Sveinsson, kaupfé-
lagsstjóri hjá Kaupfélagi Hér-
aðsbúa á Egilsstöðum, en kaupfé-
Iagið hefur milligöngu um heysöl-
una, sagði í samtali við Mbl. að
heyið væri flutt út í gámum með
skipum Skipareksturs sem sigla
hálfsmánaðarlega á milli Aust-
fjarðahafna og Færeyja. Sagði
hann að það væru aðallega hesta-
menn sem keyptu heyið en þeir
keyptu mikið af heyi frá Dan-
mörku sem þætti lélegra en það
íslenska. Sagði hann að bændurnir
fengju 1,40 kr. danskar (5 krónur
íslenskar) fyrir hvert kíló, komið
um borð í flutningaskipið en flutn-
ingurinn til Færeyja kostaði 90
aura danska (3,30 kr. íslenskar) á
kílóið þannig að komið til Færeyja
kostaði heykílóið 2,30 kr. (8,30 kr.
íslenskar).
Aðspurður um hvort þarna gæti
verið meiri markaður fyrir ís-
lenskt hey sagði Þorsteinn að svo
gæti verið en hinsvegar væri afar
kostnaðarsamt að flytja heyið.
Enginn grundvöllur virtist til
dæmis til að flytja hey af Norður-
landi og setja um borð í skipið á
Austurlandi vegna kostnaðar.