Morgunblaðið - 15.11.1985, Síða 27
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR15. NÓVEMBER1985
27
Nýbygging Rannsóknarstofnunar byggingariðnaðarins:
Fyrsta húsið sem byggt
er úr vikursteypu sem
er sérstaklega vatnsfælin
NTBYGGING Rannsóknarstofnunar byggingariðnaðarins, sem nú er nýris-
in að Keldnaholti, er frumraun við byggingu úr svokallaðri x-steypu. Er hún
fyrsta íslenska einingabyggingin úr léttsteypu. Sú vikursteypa sem notuð
var í bygginguna hefur verið þróuð sl. tvö ár. Hún er sérstaklega vatnsfælin
sökum efnis sem látið hefur verið í steypuna, Cemos 110, og gera frauð-
plastkúlur sem eru í steypunni það að verkum að hún verður léttari og þjálli
en ella.
X-steypan er ný gerð vikur-
steypu sem þróuð hefur verið í
samvinnu Rannsóknarstofu bygg-
ingariðnaðarins, B.M. Vallá og
sænska verkfæðifélagsins Delcon
AB. Norræni iðnaðarsjóðurinn
veitti styrk til rannsóknarihnar
auk þess sem styrkir komu frá
sænskum aðilum.
Nýbyggingin er alls 770 fermetrar
auk tveggja tengiganga. Áformað
er að byggingin hýsi aðallega
byggingartækni og steinsteypu-
rannsóknir, en aðstaða verður þar
síðar fyrir vinnurannsóknir og þar
mun einnig verða aðstaða til nokk-
urra mælinga á brunaþoli, hljóð-
einangrun og ómburði. Að auki er
gert ráð fyrir skrifstofum í suður-
enda hússins.
1 steypudeild er byrjað á stóru
verkefni sem snýst um það að
steypa smábjálka úr x-steypu og
skyldum léttsteypum. Vonast er
til að slíkir bitar geti komið í stað
timburs t.d. í þakbyggingum.
Önnur verkefni, svo sem við trefja-
léttsteypa, eru í undirbúningi.
Tónlistarhátíð ungs fólks á Norðurlöndum 1986:
Sigrún Eðvaldsdóttir
fulltrúi íslands
Morgunblaðið/Júlfus
Nýbygging Rannsóknarstofnunar byggingariðnaðarins að Keldnaholti er
fyrsta húsið sem byggt er úr x-steypu sem heldur vel frá sér raka og er
mjög létt.
Húsið er byggt á vegum Rann-
sóknaráðs ríkisins og fjármagnað
af Byggingarsjóði rannsókna-
stofnana. Lánsfjárheimild 1985
nam 8 milljónum króna. Af því fé
fengust 5 milljónir króna í skamm-
tímalánum frá Iðnþróunarsjóði og
Framkvæmdasjóði. Lánsfjárheim-
ild nægði hinsvegar ekki fyrir
innréttingum og endanlegum lögn-
um og því er húsið nú tekið í notk-
un óinnréttað og með bráðabirgða-
lögnum.
Tillögur fjölmiðlanefndar ASÍ:
ASÍ stofni útvarpsstöð í
félagi við önnur samtök
Sendi út á Reykjavíkursvæðinu a.m.k. 12—16 tíma á dag
FJÖLMIÐLANEFNI) Alþýðusambands íslands hefur lagt til að sambandið
hefji útvarpsrekstur í félagi við önnur launþegasamtök og Samband íslenskra
samvinnufélaga. Gert er ráð fyrir að stöðin útvarpi að minnsta kosti í 12-16
klukkustundir á dag og að hún nái fyrst og fremst til höfuðborgarsvæðisins.
SIGRÚN Eðvaldsdóttir fiðluleikari,
verður fulltrúi íslands á Tónlistar-
hátíð ungs fólks á Norðurlöndum
sem haldin verður í Helsinki í Finn-
landi í nóvember 1986. Hátíð þessi
er haldin annað hvert ár og munu
11 ungmenni frá Norðurlöndúnum,
sem samnorræn dómnefnd hefur
valið, koma fram á hátíðinni að þessu
sinni.
Þorgerður Ingólfsdóttir á sæti í
hinni samnorrænu dómnefnd, sem
lagði fram niðurstöður sínar í
fyrradag. Sagði hún ’í samtali við
Morgunblaðið að undanfarna mán-
uði hefði farið fram forval í hverju
Undi og undirbúningur fyrir end-
Sólsetur í
Leikfélag Siglufjarðar sýnir í
kvöld, föstudagskvöld kl. 20, leik-
ritið Sólsetur eftir Sólveigu
Traustadóttur. Sýningin fer fram
í veitingahúsinu Ríó við Smiðjuveg
í Kópavogi. Önnur sýning verður
anlegt val dómnefndarinnar. Upp-
tökur af hljóðfæraleik þeirra ung-
menna sem þóttu líklegust til að
verða fyrir valinu hefðu svo verið
lagðar fyrir samnorrænu dóm-
nefndina fyrr í vikunni.
Sigrún Eðvaldsdóttir, sem er 18
ára gömul, lauk einleiksprófi í
fiðluleik frá Tónlistarskólanum í
Reykjavk vorið 1984 og stundar
nú framhaldsnám í Bandaríkjun-
um. Þess má að lokum geta að
Þorsteinn Gauti Sigurðsson,
píanóieikari var fulltrúi Tslands á
síðustu tónlistarhátíð sem haldin
var í Osló fyrir ári.
Kópavogi
annað kvöld og verður haldinn
dansleikur að lokinni sýningu bæði
kvöldin. Miðasala fer fram frá kl.
19 í veitingahúsinu.
(Or fréttatilkynningu.)
Tillögum nefndarinnar, sem lagð-
ar voru fyrir sambandsstjórn ASÍ
í vikunni, var vísað tií miðstjórnar
Basar í Hall-
grímskirkju
KVENFÉLAG Hallgrímskirkju
heldur árlegan basar sinn í safnað-
arheimili kirkjunnar, í norður-
álmu turnsins, á morgun, laugar-
dag og hefst basarinn kl. 14.
Á boðstólnum verða hannyrðir
og ýmsir aðrir munir og í fréttatil-
kynningu frá félaginu segir að
ágóðanum verði varið til krikjunn-
ar. Ennfremur segir að áformað
sé að taka í notkun kirkjuskip
kirkjunnar að ári.
Leiðrétting
I FRÉTT af vígsluafmæli Grund-
arkirkju í Morgunblaðinu 1 gær var
farið rangt með nöfn tveggja fyrr-
verandi organista kirkjunnar,
þeirra Bolla Sigtryggssonar og
Gyðu Halldórsdóttur. Er beðist
velvirðingar á þessum mistökum.
og stjórnar Menningar- og fræðslu-
sambands alþýðu, sem var falið að
vinna áfram að málinu með hlið-
sjón af tillögunum.
Nefndin leggur til að hið fyrsta
verði stofnað útvarpsfélag með
aðild þeirra sambanda og félaga,
sem hafa átt aðild að viðræðum við
Samband íslenskra samvinnufélaga
á undanförnum mánuðum - en þó
verði ljóst, að aðild SÍS sé ekki
nauðsynleg. Félaginu, sem á að fá
tekjur sínar með félagsgjöldum, er
ætlað að undirbúa stofnun útvarps-
stöðvar en síðan verði tveimur
milljónum króna safnað í hlutafé.
Samkvæmt áætlun um stofn-
kostnað er gert ráð fyrir að út-
varpsstöð, sem í „fyrstu næði til
Stór-Reykjavíkursvæðisins“, kost-
aði 6-10 milljónir króna, allt eftir
hvers konar tækjabúnaðir yrði
valinn og hvort hljóðver stöðvar-
innar yrðu eitt eða tvö. Inn í þessa
tölu er ekki reiknaður kostnaður
við sendi, þar sem fjölmiðlanefndin
telur ekki ljóst hvort hugsanlegar
útvarpsstöðvar framtíðarinnar
þurfi að eiga eigin senda eða hvort
megi leigja þá af Pósti og síma.
Þurfi að kaupa sendi má reikna
með að hann kosti um hálfa aðra
milljón króna, segir í skýrslu nefnd-
arinnar.
Gert er ráð fyrir að rekstrar-
kostnaður við stöðina verði árlega
um 15,3 milljónir króna og að
tæplega 100 þúsund króna halli
verði á henni. Miðað er við að hún
sendi út um 6500 stundir á ári, þar
af framleiði sjö starfsmenn stöðv-
arinnar um helming dagskrárefnis-
ins.
Nefndarmenn gera ekki tillögu
um sjónvarpsstöð - segja að hún
muni kosta miklu meira en útvarps-
stöð.
Tillögur nefndarinnar fengu já-
kvæðar viðtökur á sambandsstjórn-
arfundinum og var þeim vísað til
miðstjórnar og stjórnar MFA, eins
og áður segir.
Leiðrétting
HÖFUNDUR opins bréfs til
menntamálaráðherra, sem birtist
í Morgunblaðinu í gær, er Lára
Magnúsardóttir. I blaðinu var
föðurnafn hennar skrifað Magnús-
dóttir.
Vinsældarlisti
Rásar 2
1. ( 2)Nikita........................EltonJohn
2. ( 1) This is the night............Mezzoforte
3. ( 4) White wedding.................Billyldol
4. (11) Can’t walk away......Herbert Guðmundsson
5. ( 6) Cherry cherry lady........Modern talking
6. ( 5) Ilection day...................Arcadia
7. ( 3) Maria Magdalena.............: Sandra
8. (—) Watingforananswer.............CosaNostra
9. ( 8) Eaten alive..................Diana Ross
10. (19) Power of love..............Jennifer Rush
Halastjarna
Halleys á himni
Ætti að sjást 15. og 16. nóv.
HALASTJARNAN Halley er
þegar farin að sjást á himni og
hefur Þorsteinn Sæmundsson,
stjarnfræðingur séð hana héðan
gegn um handkíki. Hún lítur út
eins og daufur ljóshnoðri, en
halinn sést ekki ennþá að heitið
geti. Hún er ekki björt, en verður
bjartari. Segir Þorseinn í viðtali
i sunnudagsblaðinu að skást ætti
að vera að greina hana um þessar
mundir að kvöldi 15. og 16. nóv-
ember, þ.e. föstudag og laugar-
dag. Þá er hún næst sjöstirninu,
um tvær fingurbreiddir útréttrar
handar neðan við það. Síðan
heldur hún áfram á sinni braut
en í byrjun janúar mun hún svo
sjást best. I almanakinu fyrir
1986, sem er komið út sýnir
Þorsteinn Sæmundsson braut
halastjörnu Halleys með teikn-
ingu og birtir töflu með áætlaðri
fjarlægð og birtustigi.
Þorsteinn tekur fram að til
þess að sjá halastjörnuna verði
maður að komast frá öllum ljós-
um og gefa augunum tíma til að
venjast myrkrinu, sem geti tekið
allt að 20 mínútum.
Sigrún Eðvaldsdóttir, fiðluleikari.
Leikfélag Siglufjarðar: