Morgunblaðið - 16.01.1986, Blaðsíða 12
12
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR16. JANÚAR1986
Listahátí ð unga f ólks-
ins á Kjarvalsstöðum
eftir Björgvin
Björgvinsson
Á listahátíð unga fólksins, sem
stendur þessa dagana fram til 19.
janúar, sýnir ungt fólk á aldrinum
14—24 ára málverk, teikningar,
lágmyndir, skúlptúra, glermyndir,
vefnað og Ijósmyndir. Einnig eru
nokkur verk unnin í tré. Myndbönd
sem unnin eru af ungu fólki eru
sýnd fyrir framan vestursal Kjar-
valsstaða. Á hátíðinni eru ýmsar
listrænar uppákomur svo sem tón-
iist, leiklist, dans o.fl. í tengslum
við hátíðina eur sérstakir Lista-
rokktónleikar í Tónabæ.
Á listahátíðinni á Kjarvalsstöðum
eru sýnd verk eftir á annað hundrað
þátttakendur. Flest verkanna eru
myndlistaverk sem fylla allan vest-
ursal Kjarvalsstaða. Ákveðið var
af sýningamefnd listahátíðarinnar
að sýna öll innsend verk sem bár-
ust, þegar í ljós kom að langflest
verkanna voru vel sýningarhæf.
Heildarsvipur sýningarinnar er
nokkuð góður, þrátt fyrir ólík verk
þátttakenda. Gæði verkanna eru
skiljanlega misjöfn, enda þátttak-
endur á ólíkum aldri, frá 14 ára til
24 ára. Þessi aldursbreidd og fjöldi
þátttakenda gerir sýninguna hins
vegar ferska og skemmtilega.
Sem dæmi um verk sem vakið
hafa athygli sýningargesta má
nefna glermyndir eftir Jónas Braga
Jónsson frá Hafnarfirði, svo sem
verkið Vafurlogi (nr. 15) og Sælöð-
ur (nr. 14) o.fl. Jónas er 21 árs og
stundar nám í Myndlista- og hand-
íðaskóla íslands á 1. ári. Brynja
Baldursdóttir úr Reykjavík á
skemmtilegar myndir á sýningunni,
t.d. grafíkbók sem þrykkt er aðeins
í einu eintaki og nefnist ljóð um
ástina (nr. 39). Brynja er 21 árs
og stundar nám í Myndlista- og
handíðaskóla íslands á 4. ári.
Kristín Reynisdóttir á athyglis-
verða skúlptúra á sýningunni, sem
gerðir eru úr málmi. Hún er 24 ára
og stundar nám í höggmyndadeild
Myndlista- og handíðaskólans á 3.
ári.
Frá Eyjafirði eru fjögur olíumál-
verk frá 19 ára nemanda í Mennta-
skólanum á Akureyri, myndlista-
braut, Gústafi Geir Bollasyni. Hann
nefnir eitt verka sinna „Um mýrar-
sundin við Mánafell mildir tónar
líða“ (nr. 140).
Frá Akureyri kom nokkuð gott
framlag á Listahátíðina m.a. frá
nemendum í Málunardeild Mynd-
listarskólans á Akureyri, t.d. verk
frá Jónasi Viðari Sveinssyni, 24 ára,
á 3. ári, Laufeyju Margréti Páls-
dóttur, 20 ára, á 2. ári, og Sigriði
Elísabetu Snorradóttur, 21 árs,
nemanda á 2. ári. Auk þess komu
ágætar myndir frá Ólöfu Sigríði
Valsdóttur á Akureyri og ljósmynd-
ir frá Gísla Tryggvasyni, 17 ára
Akureyringi.
Á sýningunni eru 10 skemmtilcg-
ar grafíkmyndir frá 14 og 15 ára
nemendum í Myndlistaskólanum í
Reykjavík. Allar myndimar eru
byggðar upp á svipuðu þema sem
er spegill og speglun. Trúlega er
það spegilmynd nemendanna sjálfra
sem birtist í myndunum.
Mjög góð þátttaka var frá 14 og
15 ára nemendum í myndmennt í
Réttarholtsskóla í Reykjavík. Á
sýningunni eru myndir eftir 23
nemendur úr skólanum, grafík-
myndir, tússmyndir, blýantsteikn-
ingar og vatnslitamyndir.
Hulda H. Ágústsdóttir sýnir stóra
og skemmtilega mynd sem hún
nefnir Fegurðarsamkeppni (nr. 37).
Hulda er 20 ára frá Reykjavík.
Hilmar Björgvinsson, 20 ára Reyk-
víkingur, sýnir pastelmyndir, túss-
myndir og einn athyglisverðan
skúlptúr. Pastelmyndimar nefnir
Björgvin Björgvinsson
hann „Á níunda mánuði I (nr. 1)
og á níunda mánuði II (nr. 2).
Hilmar stundar nám í Kennarahá-
skóla Islands á 2. ári.
Sérstæð og falleg handsmíðuð
hljóðfæri em á sýningunni eftir
nemendur í Tónmenntaskóla
Reykjavíkur. Þau em Guðný Helga
Hrafnsdóttir Tulinius, 15 ára.
Langspil (no. 162). Kristín Bene-
diktsdóttir, 15 ára. Fiðla (nr. 163)
og Helga Þórhallsdóttir, 14 ára.
Fiðla(nr. 164).
Einnig er á sýningunni hand-
smíðuð fíðla með innbyggðri klukku
eftir Katrínu Karlsdóttur, sem
stundar nám í Kennaraháskóla ís-
lands á öðm ári.
Að síðustu má geta ágætis ljós-
mynda eftir Guðfínn Eiríksson 22
ára (nr. 154—157) en hann er
meðlimur í ljósmyndaklúbbnum
Hugmynd hér í Reykjavík.
Þannig væri hægt að halda lengi
áfram að telja upp marga efnilega
listamenn á Listahátíð unga fólks-
ins, en hér læt ég staðar munið.
Að lokum vil ég minnast á opnun
listahátíðarinnar sem var í alla staði
mjög skemmtileg.
Við opnunina lék blásarasveit
Sinfóníuhljómsveitar æskunnar og
hópur ungmenna frá Dansnýjung
Kollu sýndi dans með miklum til-
þrifum.
Blásarasveit Sinfóníuhljómsveit-
ar æskunnar á skilið hrós því tón-
leikar hljómsveitarinnar vom mjög
góðir. Sama er að segja um unga
fólkið í danshópnum sem stóð sig
prýðilega.
Halldóra Jónsdóttir, 15 ára
nemandi í Hlíðaskóla í Reykjavík,
setti Listahátíð unga fólksins með
glæsibrag. Fannst mér vel við hæfi
að slá botninn í þessa grein með
orðum Halldóm, en hún sagði m.a.:
„Eftir að hafa skoðað ykkur um
hér í dag vona ég að þið verðið á
þeirri skoðun, að listmenningu
landsins verði borgið næstu tugi
ára. Gaman væri að gera listahátíð
sem þessa, að reglulegum atburði,
með 2—3 ára millibili.
Indverskt máltæki segir: Margur
morgunroðinn hefur enn ekki ljóm-
að. Og um leið og ég lýsi þessa
Listahátíð unga fólksins opna, býð
ég ykkur vel að njóta morgunroðans
af list framtíðarinnar."
Höfundur er myndmenntakennari
Fremst á myndinni er Björg Marvinsdóttir, sem á myndverk á sýningunni. Einnig á
Hilmar Björgvinsson myndverk á Listahátíðinni, en hann er lengst til hægri á myndinni.
Það er greinilegt að unga fólkið kunni vel að meta þessa klippimynd, sem nemendur
í 9. bekk Hlíðaskóla i Reykjavík höfðu unnið. (Myndin heitir „Poppgoðin fyrr og síð-
ar“, nr. 61.)
Kindakj ötsframleiðslan
12.200 tonn á síðasta ári
í HAUST var slátrað 816.016
fjár, 741.632 dilkum og 74.384
fullorðnu fé. Er það fjölgun um
14.429 dilka og 3.917 fuUorðið
frá fyrra ári. Kjötmagnið var
12.200 tonn og er það um 40
tonnum minna en á árinu 1984
þrátt fyrir fjölgun sláturfjárins
þar sem meðalfallþungi dilka var
400 grömmum minni nú. Meðal-
fallþunginn var 14,25 kíló en
14,65 kg haustið 1984. Ef fall-
þunginn hefði verið sá sami í
haust og í fyrra hefði kjötfram-
leiðslan orðið 300 tonnum meiri
en raun varð á.
Þessi kindakjötsframleiðsla er
aðeins 50 tonnum meiri en bændum
er tryggt fullt verð fyrir á verðlags-
árinu samkvæmt búvörusamning-
unum frá því í ágúst sl. Svæðabú-
markið verður meðal annars þess
vegna ekki látið taka til þessa árs
og fer uppgjör því væntanlega fram
eftir fyrri uppgjörsreglum og þeir
sem framleiða innan búmarks fá
þá fullt verð fyrir framleiðsluna.
Þessi 12.200 tonn er þó líklega
2.500—3.000 tonnum umfram inn-
anlandsneysluna. Innanlandsneysl-
an hefur yfírleitt verið nálægt
10.000 tonnum en hefur farið
minnkandi undanfarið og er nú
áætluð um 9.500 tonn.
Kindakjötsframleiðslan hefur
dregist verulega saman frá því hún
náði hámarki árin 1978 og 1979.
Haustið 1978 var slátrað 1.021.643
fjár og var kjötmagnið 15.393 tonn
og haustið 1979 var slátrað enn
fleira fé, eða 1.088.440 en kjöt-
magnið heldur minna en árið áður
vegna lélegs fallþunga dilka. Um
25% fækkun á sláturfé hefur því
orðið frá því haustið 1979 og 21%
minnkun kindakjöts frá því fram-
leiðslan var sem mest, haustið 1978.
Samkvæmt yfírliti Framleiðslu-
Kindakjötsframleibslan
1976 1977 1978 1979 1980 1981 1982 1983 1984 1965
Þróun kindakjötsframleiðslunnar síðustu 10 ár. Eins og sjá má hefur
framleiðslan minnkað verulega allra síðustu ár.
Sauðfj&rslátrun haustið 1985 Fjöldi sláturfjár Kindakjöt i tonnum Meðalfall- þungi dilka
Sláturfélag Suðurlands 137.605 2.051 14,15
Kaupfélag Borjffirðinga, Borgamesi 63.766 962 14,42
Kaupfélag Grundfirðinga 1.259 20 15,45
Verslunarfélagið Grund, Grundarfirði 1.191 20 15,81
Kaupfélag Stykkishólms 2.636 42 15,39
Vöruhúsið Hólmkjör, Stykkishólmi 8.213 132 15,45
Kaupfélag Hvammsfjarðar, Búðardal 25.900 408 14,95
Kaupfélag Saurbœinga, Skriðulandi 10.714 170 15,10
Kaupfélag Króksfjarðar, Króksfjarðarn. 11.771 195 15,86
Kaupféiag V-Barðstrendinga, Patreksfirði 1.956 34 16,66
Sláturfélag Arnfirðinga, Bíldudal 3.027 51 16,04
Kaupfélag Dýrfirðinga, Þingeyri 7.092 115 15,43
Kaupfélag önfirðinga, Flateyri 4.174 70 15,90
Verslun Einars Guðfinnss., Bolungarvík 3.128 55 16,82
Kaupfélag ísfirðinga 9.780 164 16,07
Kaupfélag Strandamanna, Norðurfirði 3.484 55 14,86
Kaupfélag Steingrimsfj., Hólmavík 13.555 235 16,42
Kaupfélag Bitrufjarðar, Öspakseyri 6.590 105 15,20
Kaupfélag Hrútfirðinga, Borðeyri 15.089 235 14,99
Kaupfélag V-Húnvetninga, Hvammstanga 37.408 574 14,59
Verslun Sig. Pálmasonar, Hvammstanga 7.635 121 14,63
Sölufélag A-Húnvetninga, Blönduósi 47.718 694 14,01
Kaupfélag Skagfirðinga, Sauðárkróki 44.426 670 14,49
Slátursamlag Skagf irðinga, Sauðárkróki 13.676 195 13,72
Kaupfélag Eyfirðinga, Dalvík 9.608 152 15,20
Kaupfélag Eyfirðinga, Akureyri 37.616 577 14,60
Kaupfélag Svalbarðseyrar 13.367 196 13,66
Kaupfélag Þingeyinga, Húsavík 40.895 578 13,42
Kaupfélag N-Þingeyinga, Kópaskeri 26.389 368 13,35
Kaupféiag Langnesinga, Þórshöfn 11.465 165 13,81
Kaupfélag Vopnfirðinga 14.676 226 14,32
Kaupfélag Héraðsbúa, Egilsstöðum 58.832 816 13,27
Verslunarfélag Austurlands, Hlöðum 9.293 132 13,30
Kaupfélagið Fram, Neskaupstað 2.687 45 15,67
Pöntunarfélag Eskfirðinga 2.147 80 13,35
Kaupfélag F&akrúðsfirðinga 4.987 69 12,95
Kaupfélag Berufjarðar, Djúpavogi 11.390 160 13,41
Kaupfélag A-Skaftfellinga, Höfn 28.914 418 14,00
Sláturhúsið Vík i Mýrdal 7.280 102 13,40
Verslun Fr. Friðrikssonar, Þykkvabæ 18.443 267 13,80
Búrfell, minni Borg 3.919 56 13,53
Höfn hf., Selfossi 12.707 190 13,92
Kaupfélag Suðurnesja, Keflavík 9.528 143 14,19
Sláturfélag Suðurfjarða, Breiðdalavik 10.181 139 12,95
Þess ber að geta að sumir sláturleyfishafamir slátra í fleiri en einu sláturhúsi. Sláturfé-
lag Suðurlands slátraði til dæmis á sex stöðum og Kaupfélag Héraðsbúa einnig á mörgum
stöðum.