Morgunblaðið - 18.01.1986, Blaðsíða 38

Morgunblaðið - 18.01.1986, Blaðsíða 38
38 MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR18. JANÚAR1986 Frá æfingu blásarasveitar. Stjórnandi hennar er Edvard Frederiksen. Tónlistarskólinn á Akureyri 40 ára á mánudaginn: Höfum áhuga á að bjóða upp á kennslu á háskólastigi — segir Jón Hlöðver Áskelsson skólastjóri Akureyri, 16. janúar. Tónlistarskólinn á Akureyri var stofnaður 20. janúar 1946 og verður því 40 ára á mánu- daginn. Fyrsti skólastjóri og kennari var Margrét Eiríks- dóttir, sem gegndi þvi starfi til 1950. Jakob Tryggvason tók við starfi skólastjóra 1950 og gegndi þvi allt til 1974 — utan orlofsársins 1972-1973 er Soff- ía Guðmundsdóttir gegndi skólastjórastarfi. 1974 varð Jón Hlöðver Áskelsson skólastjóri og starfaði við það til haustsins 1982 er hann fékk launalaust leyfi í tvö ár og starfaði sem námsstjóri tónlistarskólanna. í fjarveru hans var Atli Guð- laugsson ráðinn skólastjóri en haustið 1984 tók Jón Hlöðver við skólastjórastarfinu að nýju. í upphafi var Tónlistarskólinn til húsa í Lóni, húsnæði Karla- kórsins Geysis, að Hafnarstræti 73. Árið 1966 eignaðist skólinn 3. hæð í húsinu Hafnarstræti 81 og flutti þá úr Lóni. Árið 1970 fékk skólinn aðra hæð f sama húsi — þar sem hann er enn til húsa. Þegar skólinn tók til starfa voru nemendur 27, allir í píanó- leik. „Meginþróunin í skólastarf- inu frá þessum tíma er að nú kennum við á öll algengustu hljóð- færi. Þá eru starfræktar margar hljómsveitir við skólann sem við höfum lagt mikla áherslu á,“ sagði Jón Hlöðver Áskelsson, skóla- stjóri, er Morgunblaðið hitti hann að máii í tilefni 40 ára afmælisins. Vettvangnr fyrir fólk á öllum aldri Jón sagði nú væri farið að kenna börnum yngri en áður tíðk- aðist, „og með tilkomu forskóla- deildarinnar eru bömin betur undirbúin undir námið. Þau fá að kynnast ýmsum hljóðfærum áður en hið eiginlega nám hefst. Það má segja að skólinn sé vettvangur fyrir fóik á öllum aidri — yngsti nemandinn hjá okkur er fjögurra ára og við höfum verið með nemendur sem komnir eru á eftir- launaaldurinn!" Verðið þið mikið vör við Hafnarstræti 81 þar sem Tónlistarskólinn er til húsa ásamt fleiri aðilum. Jón Hlöðver Askelsson skóla- stjóri. Morgunblaðið/Skapti Hallgrímsson Þessir krakkar eru í forskólanum. Þau höfðu nýlokið við að spila á blokkflautumar sinar er blaða- maður leit inn til þeirra og voru farin í tónlistarspil. Kennari þeirra er Sigurlína Jónsdóttir. tískubylgjur hvað varðar val á hljóðfærum? „Tfskan sem slfk hefur ekki teljandi áhrif á starfsemi skólans. En viss hljóðfæri hafa unnið mjög á — blásturs- og strengjahljóðfæri hafa t.d. átt vaxandi vinsældum að fagna. Þá höfum við kennt á rafbassa og rafgítar til viðbótar klassfskum hljóðfærum, en ekki boðið upp á kennslu á rafmagns- orgel og syntheziser." Jón sagði skóiann ætfð rejrna að hafa verkefnin áhugavekjandi, þegar val á tónlist færi fram, en um leið að þau stuðli að sem bestri þekkingu og fæmi nemand- ans. „Að því leyti er námið ekki tískufyrirbæri — við reiknum með að tóniistin verði varanlegt áhugamál og tómstundagaman nemandans." Hefur nemendum fjöigað mikið á undanföraum árum? „Já. Um 1970 voru 190 nem- endur í skólanum en í dag eru þeir hátt í 500. Mesta fjölgunin varð raunar milii 1970-1980.“ Er húsnæði ykkar þá nægi- lega stórt?“ „Nei, það eru mikil þrengsli hjá okkur. 1980 var tekið pláss í notkun í viðbyggingu hússins, 280 m 2 , og eftir það höfum við ails um 500 m2 fyrir skólann. Til gamans má geta þess að í áætlun sem gerð var 1976 um húsnæðis- þörf skólans var gert ráð fyrir sama ijölda nemenda og nú er — en um 700 mz húsnæði. Nýtni húsnæðisins nú er geysimikil en þrengslin hjá okkur engu að síður mikil. Og öll starfsaðstaða fyrir kennara er léleg og kennsluher- bergi of lítil." Þeim nemendum hefur farið fjölgandi, að sögn Jóns Hlöðvers, sem stunda tónlistamám á menntaskóla8tigi. „Bæði þeim sem taka tónlist sem val og þeim sem eru á svokailaðri tónlistar- braut. En á tónlistarbraut eru fyrst og fremst þeir sem ætla að sér að gera tónlistina að ævistarfí. Kennsla á há- skólastigi? „Við höfum áhuga á að bjóða upp á sémám við skólann — þá á ég við kennslu á háskólastigi, sem yrði hluti af réttindanámi. Eg tel það biýnasta verkefni okkar nú að vinna að því að koma slíkri hugmynd í framkvæmd. Þetta kom einmitt fram f nefndaráliti um hlutverk Akureyrar sem skólabæjar í framtíðinni. Þar var bent á möguleikann á að auka þátt Tónlistarskólans í skólastarf- inu. Annað sem bent var á í þessu nefndaráliti er hlutur sem alltaf hefur verið markmið skólans: að efla og styrkja þyrfti kjama að atvinnuhljómsveit í bænum. Þá er hugmyndin að ráðið yrði fólk f hljómsveit og að það nýttist skól- anum einnig við kennslu. 1946 — þegar Tónlistarbandalag Akur- eyrar stofnaði Tónlistarskólann — höfðu menn þegar áhuga á að stofna atvinnuhljómsveit hér í bænum. í fundargerð frá þeim tfma segir að bandaiagið vilji hafa forgöngu um stofnun hljómsveit- ar. Menn hafa þegar þá gert sér grein fyrir mikilvægi þessa." Jón benti á hve tónlistarmenn hefðu starfað mikið með Leik- félagi Akureyrar undanfarin ár. „Það hefði verið útilokað fyrir Leikfélagið að selja upp sýningar eins og My Fair Lady, Piaf og Jólaævintýri ef það nyti ekki starfskrafta kennara og nemenda Tónlistarskólans. Ég vil með þessu vekja athygli á hve starf- semi skólans er mikil lyftistöng á mörgum sviðum og tengist beint og óbeint skemmtana- og menn- ingarlffí Akureyrar í allri sinni breidd." Hvað með tónleika- og nám- skeiðahald í skólanum? „Skólinn hefur efnt til nám- skeiða fyrir nemendur og starfs- fólk — reyndar hafa þátttakendur verið annars staðar frá líka og síðastliðið vor kom fyrsti erlendi þátttakandinn, frá Bandaríkjun- um. Það var á píanónámskeið sem Martin Berkofsky var með. Á hveijum laugardegi í mörg ár hefur verið haldin tónlistarstund í skólanum — svokallaðir laugar- dagstónleikar. Reynt er að fá sem flesta nemendur skólans til að koma þar fram. Þá höldum við alltaf vor- og jólatónleika og ný- árstónieikar skólans eru nú einnig orðinn fastur liður. Þá eru árlega sérstakir tónleikar þar sem ágóð- inn rennur í Minningarsjóð Þor- gerðar S. Eiríksdóttur, eins efni- legasta nemandans sem stundað hefur nám við skólann, og lést 1972. Þessir tónleikar verða 1. febrúar að þessu sinni. í allt höld- um við á milli 30 og 40 tónleika yfir veturinn." Ráðstefna um hlut- verk skólans „Þess má geta að í tilefni afmælisins er stefnt að því að halda ráðstefnu um hlutverk Tón- listarskólans og þróun hans í ná- inni framtíð. Við hugsum okkur þessa ráðstefnu í apríl. Einnig ætlum við okkur að efna til myndarlegra tónleika í tilefni af afínælinu." Jón Hlöðver sagðist vilja undir- strika að það væri nánast mann- réttindamál að halda uppi góðri tónlistarkennslu. „Það er nauð- synlegt að hægt sé að tryggja jafnan rétt til menntunar. Ég veit til þess að fólk hafi m.a. nefnt það sem ástæðu fyrir því að það hafí sest að hér á Akureyri að bærinn uppfylli það skilyrði; hér væri tónlistarskóli og afkomend- umir gætu því stundað tónlistar- nám. Tónlistin var á tímum Grikkja ein af undirstöðunámsgreinunum — stóð jafnfætis stærðfræðinni. Þetta er ekki almenn afstaða í dag en við vildum gjaman endur- vekja þessa trú manna. Tónlistin hefur ákaflega fjölþættu þroska- hlutverki að gegna, hún þjáifar svo marga andlega og líkmalega þætti. Byggist á samhæfíngu lík- ama og sáiar," sagði Jón Hlöðver.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.