Morgunblaðið - 23.01.1986, Blaðsíða 24
24
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 23. JANÚAR1986
AF ERLENDUM VETTVANGI
eftir MICHAEL WEST
Olíuverðslækkunin mun haf a
víðtæk og ólík áhrif í heiminum
AF SKILJANLEGUM ástæðum eru olíuverðsmál í brennidepli viða
um heim þessa daga. AP-fréttastofan sendi frá sér pistil um
málið í gær, miðvikudag, og hafði þá leitað eftir viðbrögðum víðs
vegar. Samantektina annaðist Michel West og fer hún hér á eftir
í lauslegri þýðingu.
Olíuverðlækkunin hefur vak-
ið misjöfn viðbrögð og sums
staðar sjá ríkisstjómir fram á að
mikill vandi muni fylgja í kjölfarið.
Annars staðar eru menn hressir
og sjá fram á spamað í innkaup-
um. Af öllu má ljóst vera að lönd
á borð við Mexíkó gætu orðið illi-
lega fyrir barðinu á því hversu
mikið og snögglega heimsmark-
aðsverð á olíu lækkar. Áhrifín létu
ekki á sér standa; hlutabréf féllu
þegar í verði í New York og
London.
Efnahagssérfræðingar em á
einu máli um að meginástæðan
sé sú ákvörðun stjómar OPEC að
hætta við að setja þak á fram-
leiðsluna og halda þannig verði
eins háu og unnt er. Olíuverð
hefur vissulega verið sveiflukennd
hin síðari ár, eftirspum hefur
minnkað og orsökin er meðal
annars hin alvarlega kreppa sem
hófst þegar OPEC-ríkin stór-
hækkuðu olíuverðið á ámnum upp
úr 1970. Afleiðingamar em enn
í minni.
En ýmis ríki sem gmnaði að
þau ættu olíu, hröðuðu einnig
rannsóknum og byijunarvinnslu
til þess að vera ekki eins háð
sveiflum á verði sem OPEC-ríkin
réðu nánast ein á þeim tíma. Þar
á meðal koma fyrst upp í hugann
Bretland og Noregur.
Á fundi OPEC í desember var
gerð samþykkt, þar sem segir að
samtökin eigi að fá „réttlátan
skerf" af heimsmarkaðinum. Ekki
var ítarlegar skilgreint hvað í
þessum orðum fælist. En ekki er
að efa, að samþykktin var gerð
til að reyna að ná aftur viðskipta-
vinum sem hafa beint viðskiptum
sínum annað, einkum til ríkja sem
em ekki aðilar að OPEC.
Saudi Arabar dæla nú upp
meira olíumagni, en kvóti sá sem
þeir ákváðu og skömmtuðu sér.
Ein af afleiðingum er að verðlagn-
ingin er að fara úr böndunum og
Financial Times segir að það sem
fram fari sé fyrst og fremst valda-
barátta.
Þá miklu verðlækkun sem varð
nú á dögunum má rekja til þess,
eftir að framkvæmdastjóri OPEC,
Ali Attiga frá Líbýu, sagði, að
OPEC teldi eðlilegt að OPEC-ríki
framleiddu um það bil 18 milljónir
tunna á dag, en þetta er í rauninni
tveimur milljónum tunna meira
en OPEC samþykktin hljóðaði upp
á.
í Bretlandi, sem er orðið
fímmta mesta olíuframleiðsluland
í heimi, fór verðið niður fyrir 20
dollara á tunnu nú í vikunni í
fyrsta skipti í sjö ár. Ekki eru
nema 2 mánuðir síðan Bretar
settu upp tæpa 30 dollara fyrir
hveija tunnu.
Eins og vænta mátti hafði
verðfallið áhrif á gildi sterlings-
pundsins. Margaret Thatcher for-
sætisráðherra hækkaði þá vexti í
skyndi til að reyna að styrkja
stöðu pundsins. Áf spratt óstöð-
ugleiki á hlutabréfamarkaði,
vegna þess það þýddi í reynd
aukinn lánskostnað til fjárfest-
inga.
í New York gætir svo nokkurs
kvíða á verðbréfamarkaðinum,
um að verðsveiflurnar gætu komið
bönkum og olíufyrirtækjum í hin
mestu vandræði. Þessar áhyggjur
stafa af því, að einhver af olíu-
framleiðsluríkjum þriðja heimsins,
sem verðlækkunin bitnar á,
myndu eiga enn örðugra en áður
með að standa í skilum við al-
þjóðlegar peningastofnanir.
Væntanlega þarf ekki að útlista
hvaða kollsteypur gætu þá orðið.
Minnt er á að olíuframleiðsluríki
á borð við Mexíkó, Venezuela og
Nígeríu eru skuldum vafín; þar
er um að ræða milljarða dollara
sem þessi ríki hafa átt erfítt með
að standa skil á.
Malaysia er ekki aðili að OPEC,
en áheymarfulltrúi þaðan situr
fundi samtakanna. Malaysia hefur
ekki átt í neinum erfíðleikum með
að koma olíunni út, vegna gæða
hráolíunnar og vegna þess hve
lítill brennisteinn er í henni. Jap-
anir eru helztu kaupendur olíu
frá Malaysiu.
Mexíkó er heldur ekki innan
vébanda OPEC, en þó fjórða
mesta olíuframleiðsluland í heimi.
Þar eru framleiddar 2,75 milljónir
tunna á dag. Ríkisolíufélag lands-
ins hefur ákveðið að héðan í frá
muni Mexíkanar fylgja heims-
markaðsverði á olíu og tilkynna
verð í lok hvers mánaðar. En
mexíkanskir embættismenn og
sérfræðingar segja að þessi verð-
lækkun á olíu geti orðið meira en
lítið afdrifarík. Mexíkó á við gríð-
arlega efnahagsörðugleika að etja
og erlendar skuldir hlaðast upp.
í Suður-Kóreu kveður svo við
annan tón. Suður-Kóreumenn
flytja inn alla olíu sem notuð er
og stjómvöld segja að verðlækk-
unin geti orðið efnahagi landsins
til framdráttar og hleypt nýju lífí
í hann. Orkuráðherra Suður-
Kóreu sagði, að árið 1984 hefðu
verið fluttar inn 198 milljón tunn-
ur af hráolíu. Fyrir þetta greiddu
S-Kóreumenn 5,3 milijarða doll-
ara og sjá því fram á stórmikinn
spamað
í Japan spáði blaðið Mainichi
Shimbun að önnur olíuverðlækk-
un yrði innan fárra mánaða,
meðal annars vegna tiltölulega
hagstæðrar veðráttu á norður-
hveli jarðar síðustu mánuði. Jap-
anir flytja inn 3,39 milljónir tunna
á dag, af því 70 prósent af því
koma frá Miðausturlöndum.
Olíumálaráðherra Kuwait, Ali
Khaiifa Ai-Sabah, tilkynnti í vik-
unni að hann hyggði á heimsókn
tii Sovétríkjanna fljótlega. Meðal
annars til að leita ráða til að koma
á stöðugleika á olíumarkaðinum
í heiminum. Ráðherrann var frek-
ar bjartsýnn og sagði að olíufram-
leiðsluþjóðir myndu vonandi ná
samkomulagi sem gæti bundið
enda á ringulreiðina á heimsmark-
aði nú.
Olíuhreinsunarstöð í Nígeríu.
Kína:
Methalli á utan-
ríkisviðskiptum
Peking, 22. janúar. AP.
HALLINN á viðskiptum Kína við útlönd hefur aldrei verið hærri
en á síðasta ári, en þá nam hann 7,61 milljarði dollara, að því er
utanrikisviðskiptaráðuneytið skýrði frá í dag.
Heildarviðskipti jukust á árinu
um 19%, upp í 58,21 milljarð doll-
ara. Innflutningur rauk upp um
31,8%, upp í 33,41 milljarð dollara,
en útflutningur hjakkaði í sama
farinu, var 25,8 milljarðar dollara
og hafði aukist um aðeins 5,7%.
Það, sem olli þó mestum pólitísk-
um titringi, þegar viðskiptatölumar
vom birtar á blaðamannafundi, var
hallinn á viðskiptunum við Japani,
aðalviðskiptaþjóð Kínveija. Deng
Xiaoping, kínverski þjóðarleiðtog-
inn, gaf ákveðið til kynna í síðasta
mánuði, að Kínveijar mundu ekki
una slíkum halla á árinu 1986.
Samkvæmt upplýsingum utan-
ríkisviðskiptaráðuneytisins var hall-
inn á viðskiptunum við Japani 4,37
miiljarðar dollara á síðasta ári, en
var 2 milljónir dollara 1984.
Hallinn á viðskiptunum við
Bandaríkin nam 2,04 milljörðum
dollara á árinu 1985, en var 1,5
milljarðar 1984.
Bandarískir embættismenn
sögðu, að inn í þessar töiur vantaði
tölur um vömr, sem fluttar væm
til Bandaríkjanna í gegnum Hong
Kong.
Kínversk stjómvöld hafa ákveðið
að láta hergagnaverksmiðjur fram-
ieiða neysluvömr í ríkara mæli en
hingað til. Skulu þær nema tveim
þriðju hlutum af heildarframleiðslu
verksmiðjanna innan fímm ára, en
em nú um 36% af framleiðslunni,
að sögn Xinhua-fréttastofunnar.
Verksmiðjumar eiga m.a. að
framleiða myndavélar, reiðhjól,
mótorhjól, ísskápa, lofthreinsibúnað
og vélar til iðnaðar.
Grænland:
Lýsa yfir stuðningi við bar-
áttu svartra íbúa S-Afríku
Kaupmannahöfn, 22. janúar. Frá Nila Jörgen Bruun, fréttaritara Morgunblaðsins.
GRÆNLENDINGAR hafa lýst svartra manna í Suður-Afríku
yfir stuðningi sinum við baráttu fyrir mannréttindum og afnámi
__________________________ aðskilnaðarstefnunnar.
Gengi
gjaldmióla
Lundúnum, 22. janúar. AP.
BANDARÍSKI dalurinn féll á
gjaldeyrismörkuðum gagnvart
öllum helstu gjaldmiðlum heims
í dag, nema breska sterlings-
pundinu. Spákaupmenn segja að
það sé vegna hagtalna frá Banda-
rikjunum, sem sýni að hagvöxtur
sé þar minni en búist hafði verið
við. Gullverð féll einnig. Breska
pundið féll einnig og er það
vegna verðfalls á olíuafurðum.
Fór það í fyrsta skipti í fjóra
mánuði niður fyrir 1,40 dali. Það
var í 1,4120 í gær, en er í 1,3960
dölum i dag.
Gengi nokkurra annarra gjald-
miðla gagnvart dal var sem hér
segir. Innan sviga gengið frá því í
gær. Vestur-þýska markið kostaði
2,4380 dali (2,4540), svissneski
frankinn 2,0770 (2,07925), franski
frankinn 7,4950 (7,5250), hol-
lenska gyllinið 2,7450 (2,7605), ít-
alska líran 1.668,75 (1.675,00),
kanadíski dollarinn 1,40425
(1,40495).
Yelena Bonner
af sjúkrahúsinu
Newton, Massachusetts, 21. janúar. AP.
SOVÉZKI andófsmaðurinn Yel-
ena Bonner fékk i dag að fara
af sjúkrahúsinu, þar sem hún
hafði gengizt undir hjartaað-
gerð. Töldu læknar hennar hana
það hressa, að hún gæti dvalizt
á heimili ættingja sinna héðan í
frá og náð sér þar til fullnustu.
Skýrði Efrem Yankelevich,
tengdasonur hennar, frá þessu í
dag.
„Yelena Bonner er á góðum
batavegi eftir aðgerðina," var í dag
haft eftir dr. Adolph Hutter, sem
framkvæmdi skurðaðgerðina, en
hún fór fram 12. janúar sl.
ERLENT
Buthelezi, leiðtogi Zulumanna,
kemur í dag til Kaupmannahafnar,
og mun Tom Hoyem Grænlands-
málaráðherra þá færa honum kveðj-
ur Jonathans Motzfeldt, formanns
grænlensku landstjómarinnar.
Motzfeldt hefur óskað eftir að
Buthelezi verði borin þau skilaboð,
að á Grænlandi sé fyrir hendi sér-
stakur skilningur á baráttu svartra
manna í Suður-Afríku.
Kveðjunni fylgir gjöf, grænlensk-
ur helgigripur, skorinn í rostungs-
tönn.
Veður
víða um heim
Lægst Hæst
Akureyrl +2 skafr.
Amsterdam 4 7 skýjað
Aþena 7 16 helðskfrt
Barcelona 13 mistur
Berlín 3 7 rigning
Brussel 3 9 heiðskfrt
Chlcago +1 12 heiðskirt
Dublfn 1 8 rigning
Feneyjar 6 þokum.
Frankfurt 4 7 skýjað
Genf +4 8 skýjað
Heltlnki 0 1 skýjað
Hong Kong 16 17 heiðskfrt
Jerúsalem 2 10 skýjað
Kaupmannah. 3 6 skýjað
Las Palmas 19 skýjað
Lltsabon ð 13 skjýað
London 3 8 skýjað
Los Angeles 13 21 heiðskirt
Lúxemborg 3 skýjað
Malaga 14 léttskýjað
Mallorca 13 léttskýjað
Mlaml 12 22 skýjað
Montreal +3 0 skýjað
Moskva +19 1 skýjað
NewYork 4 11 helðskfrt
Otló +3 +2 skýjað
París 4 10 rigning
Peklng +11 4 heiðskfrt
Reykjavik +3 hélfskýjað
Rfó deJaneiro 21 33 skýjað
Rómaborg 2 13 rigning
Stokkhólmur +2 +2 tkýjað
Sydney 21 26 rigning
Tókýó 1 7 skýjað
Vfnarborg 1 6 heiðskfrt
Þórshöfn 4 altkýjað