Morgunblaðið - 13.03.1988, Blaðsíða 1

Morgunblaðið - 13.03.1988, Blaðsíða 1
112 SÍÐUR B STOFNAÐ 1913 61.tbl. 76.árg.______________________________________SUNNUDAGUR 13. MARZ 1988 Prentsmiðja Morgunblaðsins Brunað á bílslöngu Morgunblaðið/RAX Panama: Hart brugðist við greiðslu- stöðvun Bandaríkjamanna Panamaborg, Reuter. STJÓRNIN í Panama hefur ákveðið að stytta vinnutíma opinberra starfsmanna í þeim tilgangi að minnka útgjöld ríkisins. Þessi ákvörð- un kemur í kjölfar aðgerða Bandaríkjastjórnar sem hefur stöðvað reglubundnar greiðslur til Panama með það fyrir augum að bola Manuel Antonio Noriega hershöfðingja frá völdum. Suður-Afríka: Fundinn risastór demantur Kimberley, Suður-Afrfku. Reuter. SKÝRT var frá því í gær að fundizt hefði næststærsti dem- antur heims í Suður-Afríku. Demanturinn fannst á miðju ári 1986 í námu De Beers-fyrirtækisins skammt frá Pretoríu. Fundinum var haldið leyndum þar til í gær, á hundrað ára afmæli fyrirtækisins. Vó hann 599 karöt en þegar hann hefur verið skorinn og slípaður verður hann að líkindum á fjórða hundrað karöt. Aðeins einn demant- ur, Cullinan I, sem geymdur er í gimsteinasafni brezku krúnunnar, er stærri. „Þetta er draumasteinn, litur hans er fullkominn," sagði Julian Ogilivie Thompson, forstjóri De Beers. Hann sagði að steinninn yrði skorinn og slípaður og síðan seldur hæstbjóðanda. Verðmæti steinsins skiptir tugum milljóna dollara, að sögn Ogilvie Thompson. Tveir gervi- hnettír á braut umjörðu París. Reuter. EVRÓPSKU geimflauginni Ar- iane-3 var skotið á loft í fyrri- nótt frá frönsku geimferðastofn- uninni í Kourou í Frönsku- Guiana og tuttugu mínútum síðar var frönskum og bandarískum fjarskiptahnöttum komið á braut um jörðu. Geimskotið var fullkomið og var hið þriðja í röðinni eftir rúmlega árs hlé vegna bilana. Ariane-flaugin flutti að þessu sinni tvo fjarskipta- hnetti, franskan Telecom lC-hnött og bandarískan Spacenet III/Geo- star ROl-hnött, sem er í eigu fyrir- tækisins GTE Spacenet. Er hann fyrsti bandaríski fjarskipahnöttur- inn, sem skotið er á loft í rösk tvö ár. Var hnöttunum komið á braut yfír miðbaug. Stjómvöld í Washington ákváðu á föstudag að stöðva um stundar- sakir mánaðarlegar greiðslur, sem nema um 6,5 milljónum dollara, vegna afnota af Panama-skurði. Ronald Reagan forseti hét á föstu- dag að aðstoða Panama við að koma efnahagslífi landsins á réttan kjöl þegar Noriega væri farinn frá. „Eg hef tekið ákvarðanir sem miða að því að koma Noriega frá völdum og koma á réttlátri lýðræðisstjóm í Panama,“ sagði forsetinn, „þegar því marki er náð em Bandaríkin tilbúin til að aðstoða stjóm landsins við að komá á heilbrigðu efna- hagslífí," sagði Reagan í yfírlýsingu þegar tilkynnt var um greiðslu- stöðvunina. George Shultz utanríkisráðherra Bandaríkjanna tilkynnti í gær að árlegar greiðslur vegna olíuleiðsla Bandaríkjanna í Panama hefðu einnig verið frystar í bandarískum bönkum að beiðni fyrrum forseta Panama. Eric Arturo Delvalle. Bankar í Panama hafa nú verið lokaðir í viku vegna aðgerða af hálfu Bandaríkjastjórnar. Stjómin í Panama sagði á fímmtudag að ekki væri nægt fé fyrir hendi til að greiða 150.000 ríkisstarfsmönnum laun í næstu viku og fresta þyrfti útborgun launa. Einnig var tilkynnt að vinnu- tími starfsmanna ríkisins yrði stytt- ur til að draga úr útgjöldum. Opin- berir starfsmenn munu hér eftir ekki fá matartíma greidda og hefur vinnudagurinn verið styttur í 5 klukkustundir. Vinna hefst klukkan 7.30 á morgnana sem er talsvert fyrr en verið hefur. Er þetta gert til þess að minnka kostnað við loft- kælingu að því er forseti landsins, Manuel Solis Palma, sagði í sjón- varpsávarpi á föstudag. Sjá viðtal við Þóri Ö. Ólafsson, íslenskan skiptinema í Pan- ama-borg, á bls. 2. Nepal: 38 létu lífið í troðningi Kathmandu, Nepal. Reuter. AÐ MINNSTA kosti 38 manns létu lífið og yfir 300 slösuðust þegar þúsundur manna reyndu að ryðjast útaf knattspyrnuvelli í Kathmandu í Nepal í gær. Mikið haglél gekk yfír borgina meðan á knattspymuleik stóð. Hugðust þúsundir áhorfenda hlaupa í skjól og mddust að hliðum vallarins. I örtröðinni leið yfir tugi manna, sem tróðust undir. Talið var að tala látinna ætti eftir að hækka. Lögregla hafði lokað útgöngu- hliðum vallarins og neitaði að opna nema fá boð yfírvalda þar að lút- andi. Vopnasölumálið: Poindexter og North verða senn ákærðir Washington, Reuter. ÁKÆRUR verða senn gefnar út á hendur fyrrum ráðgjöfum Bandaríkjaforseta vegna vopnasölunnar til írans og flutnings ágóðans til kontra- skæruliða í Nicaragua, sam- kvæmt upplýsingum manna, sem vinna að rannsókn málsins. Fjórir menn verða ákærðir fyrir glæpsamlegt athæfi í framhaldi af játningum Roberts McFarlane, fyrrum öryggisráðgjafa Banda- ríkjaforseta. Það em John Poindexter, sem tók við starfí öryggisráðgjafa af McFarlane, Oliver North, starfsmaður þjóða- röryggisráðsins og aðstoðarmað- ur Poindexters, Richard Secord, fyrmm hershöfðingi í flughemum og samstarfsmaður hans, vopna- salinn Albert Hakim. McFarlane hefur komizt að samkomulagi við ákæmvaldið um samvinnu í réttarhöldunum. Sam- kvæmt því ætlar McFarlane að lýsa sig sekan um að hafa haldið mikilvægum upplýsingum leynd- um fyrir Bandaríkjaþingi. Há- marksrefsing, sem hann á yfír höfði sér, er fjögurra ára fang- elsi, en talið er að Lawrence Walsh, saksóknari, muni ekki krefjast þeirrar refsingar.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.