Morgunblaðið - 28.06.1988, Blaðsíða 4
4
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 28. JÚNÍ 1988
Skoðanakönnun Félagsvísindastofnunar:
Sjálfstæðisflokkur heldur
meirihluta í Reykjavík
Sjálfstæðisflokkurinn héldi meirihluta sínum í borgarsijórn
Reykjavíkur ef kosið væri nú, samkvæmt nýrri skoðanakönnun sem
Félagsvísindastofnun Háskólans gerði fyrir tímaritið Þjóðlíf í kring
um síðustu mánaðamót. Af þeim sem afstöðu tóku í könnuninni segj-
ast 53,3% myndu styðja Sjálfstæðisflokkinn. Það er svipað fylgi og
flokkurinn fékk í borgarstjórnarkosningunum 1986.
410 manns voru spurðir í könnun
Félagsvísindastofnunar, og tóku
76,4% þeirra afstöðu með einhvetj-
um stjómmálaflokki. Af þeim sem
INDRIÐI H. Þorláksson hefur
verið settur hagsýslustjóri til árs-
loka 1989 i stað Gunnars H. Hall,
sem sagði stöðu sinni lausri fyrir
nokkrum vikum og lætur af störf-
um um næstu mánaðamót.
Indriði er fæddur árið 1940 og
afstöðu tóku sögðust 5,9% myndu
kjósa Aiþýðuflokk, sama hlutfall
kysi Framsóknarflokk, 10,5% Al-
þýðubandalag, 21,3% Kvennalista
er hagfræðingur að mennt. Hann
hefur starfað hjá fjármálaráðuneyt-
inu sem skrifstofustjóri launadeildar,
sem fulltrúi ráðuneytisins í samn-
inganefnd ríkisins og nú síðast sem
skrifstofustjóri á tekjuöflunarsviði.
Kona Indriða er Rakel Jónsdóttir.
og 2,1% Borgaraflokk. Fylgi annarra
flokka er undir einu prösenti.
Samkvæmt könnuninni hefur per-
sónulegt fylgi Davíðs Oddssonar
borgarstjóra dalað frá því sem var
er sambærileg könnun var gerð
skömmu fyrir kosningar árið 1986.
Þá sögðust 64,7% þeirra er afstöðu
tóku hlynntir því að Davíð yrði áfram
borgarstjóri. Núna segjast 49,2%
hlynntir því að Davíð verði áfram
við stjómvölinn.
„Þetta er auðvitað stórkostleg
niðurstaða," sagði Davíð Oddsson
borgarstjóri. „Það er búinn að ganga
samfelldur áróður og reynt að af-
flytja og rangfæra fyrir okkur. Á
landsvísu hefur flokkurinn 27%, en
hér í borginni 54%.“ Davíð sagðist
stoltur og ánægður yfír persónulegri
útkomu sinni. „Ég býst við að það
hljóti að vera harla gott fyrir
pólitískan fulltrúa að fá 50% fylgi,
ekki síst eftir að hafa verið í þeirri
orrahríð sem ég hef verið.“
Indriði H. Þorláksson
settur hagsýslustjóri
VEÐUR
Heimild: Veðurstofa islands
(Byggt á veðurspá kl. 16.15 í gær)
/ DAG kl. 12.00:
VEÐURHORFUR í DAG, 28. JÚNÍ 1988
YFIRLIT í GÆR:
Viö suðaustur ströndina og yfir Melrakkasléttu eru 1015 mb smá-
lægðir báðar á leið norðaustur á milli íslands og Skotlands er 1025
mb minnkandi hæð. Grunnt lægðardrag að eyðast á Grænlands-
sundi. Hiti breytist lítið.
SPÁ: Á morgun verður hæg breytileg átt á landinu, skýjað með
köflum og að mestu þurrt. Hiti 8—14 stig.
VEÐURHORFUR NÆSTU DAGA
HORFUR Á MIÐVIKUDAG OG FIMMTUDAG: Hæg, breytileg eða
vestlæg átt á landinu. Skýjað og víða smá skúrir einkum við vestur
og norðaustur ströndina. Síðdegis á fimmtudag má Ifklega búast
við hægri norðurátt og súld við norð og norðaustur ströndina og
þurru veðri á suðvestur og Vesturlandi. Hiti verður 7—13 stig.
TÁKN:
Heiðskírt
Léttskýjað
Hálfskýjað
Skýjað
/' Aiskýjað
y, Norðan, 4 vindstig:
" Vindörin sýnir vind-
stefnu og fjaðrirnar
vindstyrk, heil fjöður
er 2 vindstig.
/ / /
/ / / / Rigning
/ / /
* / *
/ * / * Slydda
f * /
* * *
* * * * Snjókoma
* * *
-j 0 Hitastig:
10 gráður á Celsius
ý Skúrir
*
V H
— Þoka
= Þokumóða
’ , ’ Súld
OO Mistur
—J- Skafrenningur
Þrumuveður
VEÐUR VÍÐA UM HEIM
kl. 12:00 í gær að ísl. tíma
Akureyri Reykjavtk hlti 11 6 veður alskýjað rigning og súld
Bergen 17 léttskýjað
Helsinki 28 léttskýjað
Jan Mayen 4 skýjað
Kaupmannah. 20 skýjað
Narssarssuaq 9 léttskýjað
Nuuk 6 heiðskfrt
Oslð 35 hálfskýjað
Stokkhölmur 28 léttskýjað
Þórshöfn 12 skýjað
Algarve 23 léttskýjað
Amsterdam 20 skýjað
Aþena vantar
Barcelona 22 skýjað
Chicago 16 léttskýjað
Feneyjar 25 hálfskýjað
Frankfurt 24 hálfskýjað
Glosgow 18 mistur
Hamborg 20 skýjað
Las Palmas vantar
London 15 alskýjað
Los Angeles 18 heiðsklrt
Lúxemborg 22 léttskýjað
Madrld 22 þokumóða
Malaga 22 súld
Mallorca 24 alskýjað
Montreal 16 léttskýjað
New York 17 helðskírt
Parls 21 skýjað
Róm 24 rigning
San Diego 17 þokumóða
Winnipeg 18 hátfskýjað
i
Sigrún Þorsteinsdóttir forsetaframbjóðandi ásamt eiginmanni
sínum, Sigurði Elíassyni, er úrslit lágu fyrir.
„Þeir sem sátu heima
vilja virkari forseta“
- segir Sigrún Þorsteinsdóttir að
loknum forsetakosningum
„ÉG STILLTI þessu upp þannig að hvert atkvæði sem greitt væri
mótframbjóðanda mínum væri skilaboð til stjórnvalda um að þau
mættu halda áfram á sömu braut. Það sem mér finnst athyglisverð-
ast við niðurstöður kosninganna er að Vigdís fékk „pólska" kosn-
ingu, ekki „rússneska" eins og búist hafði verið við. Aðeins 71%
kjósenda mætti á kjörstað og að mínu mati eru þeir sem sátu heima
að segja að þeir vilji virkari forseta," sagði Sigrún Þorsteinsdóttir
forsetaframbjóðandi í samtali við
Sigrún sagði að kosningabarátt-
an hefði verið einkennileg þar sem
mótframbjóðandi hennar hefði
ekki viljað mæta sér í sjónvarps-
umræðum. „Hennar verður minnst
sem þeirrar er hopaði af hólmi.
Þetta var óvirðing við lýðræðið og
rangt gagnvart þjóðinni," sagði
Sigrún.
„Sá frambjóðandi sem lýsti því
yfir að hann væri ekki í kosninga-
baráttu var alltaf í fjölmiðlum að
halda fram þeirri ímynd forseta-
embættisins sem hún stendur fyr-
ir. Ég hafði mjög takmarkaðan
aðgang að fjölmiðlum, en í herbúð-
um mínum var mikil virkni og
stanslaus fundahöld um allt land.“
Sigrún leggur atkvæði greitt sér
og ónýttan atkvæðisrétt að jöfnu.
Hún segir að þriðjungur þjóðarinn-
ar, þeir sem ekki greiddu atkvæði
og stuðningsmenn hennar, vilji
veita Alþingi meira aðhald og virk-
ari forseta. Ef fólk væri ánægt
með starfrækslu forsetaembættis-
ins hefði það tjáð þakklæti sitt
með því að mæta á kjörstað.
Kvaðst hún þakklát Vestmanney-
ingum fyrir að kjörsókn þar væri
aðeins um 50%. Áðspurð af hverju
fylgi hennar hefði ekki verið meira
í Eyjum en raun ber vitni sagði
hún að enginn væri spámaður í
sínu föðurlandi.
„Tíminn var naumur og mér
gáfust lítil tækifæri til að kynna
mig. Það er ekki óeðlilegt að fólk
hafi ekki viljað setja traust sitt á
mig. Ég hef fengið upplýsingar
um að fylgi mitt í utankjörstaðaat-
kvæðagreiðslum var nánast ekki
neitt. Það sýnir að fólk var að
Morgunblaðið á sunnudag.
vakna til vitundar síðustu dagana.
Tveggja vikna kosningabarátta til
viðbótar hefði gert útslagið.
Ég hef heyrt í mörgum kjósend-
um Vigdísar sem eru sáróánægðir
með það að hafa ljáð henni at-
kvæði sitt. Þeir eru til dæmis
hneykslaðir á því að hún hafi ekki
verið til staðar í sjónvarpssal á
kosningavöku. í því sambandi má
benda á að ég hef aldrei hitt
Vigdísi.
Þá telja stuðningsmenn mínir
það rétt að forsetaframbjóðendur
opinberi kostnað við kosningabar-
áttu sína. Það kom glögglega í íjós"
að stuðningsmenn Vigdísar höfðu
mikla peninga handa milli, en mín
barátta er sennilega sú ódýrasta
sem um getur. Við eyddum
150.000 krónum í ferðir, síma-
kostnað, útgáfu, gerð myndbands
og rekstur skrifstofu. Við höfum
notið framlaga einstaklinga en eig-
um samt eftir að greiða um 50.000
króna skuld.
Það má spyrja sig hvaðan pen-
ingar Vigdísar komu, til að mynda
stingur það í augu að kosninga-
vaka hennar skuli hafa verið hald-
in á Bessastöðum og fólk veltir
vöngum yfir því hvort hún hafí
verið greidd af ríkinu," sagði Sig-
rún.
Sigrún sagði að fylgi sitt væri
grundvöllur til þess að byggja á
grasrótarhreyfingu fólks úr öllum
flokkum, sem hefði það að mark-
miði að gera uppreisn gegn núver-
andi valdakerfí. Hún hygðist fylgja
þessum hugmyndum eftir og yrði
það spennandi verkefni.
Guðjón Steingrímsson
hæstaréttarlögmaður látínn
GUÐJÓN Steingrímsson, hæsta-
réttarlögmaður og formaður
yfirkjörstjórnar í Reykjaneskjör-
dæmi, lést á heimili sínu í Hafnar-
firði að morgni sunnudagsins 26.
júní sl, 64 ára að aldri.
Guðjón Steingrímsson var fæddur
5. febrúar 1924 í Hafnarfirði, sonur
hjónanna Steingríms Torfasonar
kaupmanns þar og Ólafíu Hallgríms-
dóttur. Guðjón var stúdent frá
Menntaskólanum í Reykjavík 1945
og cand. juris frá Háskóla íslands
1950. Hann öðlaðist réttindi sem
héraðsdómslögmaður 1954 og
hæstaréttarlögmaður 1962. Árið
1950 setti hann á stofn lögmanns-
skrifstofu í Hafnarfirði og rak hana
til dauðadags. Guðjón var um nok-
kurra ára skeið formaður Lög-
mannafélags íslands. Árið 1959 var
hann kjörinn í yfirkjörstjórn Reykj-
aneskjördæmis og var hann formað-
ur yfírkjörstjórnar frá 1959 til
dauðadags.
Eftirlifandi eiginkona Guðjóns er
Margrét Katrín Valdimarsdóttir og
eiga þau fjögur uppkomin börn.