Morgunblaðið - 01.10.1988, Side 10
10
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 1. OKTÓBER 1988
ÉíkmDsLt tnáfl
Umsjónarmaður Gísli Jónsson 455. þáttur
Bjöm Stefánsson í Keflavík
er einn þeirra varðveislumanna
íslenskrar tungu sem stundum
skrifar mér bréf um þetta hugð-
arefni sitt. Til viðbótar því, sem
til hans var vitnað í síðasta
þætti, er þessa að geta:
1) Honum ofbýður staglstíll-
inn eins og fleirum, og þá ekki
síst í því sem opinberir aðilar
láta frá sér fara. Umsjónarmað-
ur tekur enn undir þetta og
undrast til dæmis að hafa heyrt
sjálft menntamálaráðuneytið
hvað eftir annað auglýsa „stöður
gmnnskólakennara við grunn-
skóla“ úti um allt land.
2) Umsjónarmaður er sam-
mála Bimi Stefánssyni, þegar
hann telur hvimleitt mál og
endasleppt eða halaklippt, ef
ekki er um það getið, í hverju
menn eiga að taka þátt. Hvemig
væri að segja: Vertu með í stað
hins: „Taktu þátt“? Eða þá:
Hvað voru margir með í stað-
inn fyrir: „Hvað tóku margir
þátt“?
3) Hann amast eins og fleiri
málvöndunarmenn við „stærð-
argráðunni" og „ársgmndvellin-
um“. Umsjónarmaðurer ekki frá
því, að þessi orð hafí heldur lát-
ið undan síga.
★
Gömul predikun:
„í morgun, þegar vér riðum
til kirkjunnar, sáum vér eina öm
sitja á Laufskálabökkum, hald-
andi einum laxi sér í klóm, hver
eð virtist mundu rífa undan
henni það eina læri. Þannig fer
djöfullinn með oss, kristnir
menn. Hann leitast við að rífa
undan oss það andlega læri. En
við því em ráð, kristinn maður.
Taktu skónál skynseminnar og
þræddu hana upp á þráð þrenn-
ingarinnar, taktu síðan leppdulu
lítillætisins og saumaðu hana
fyrir þína sálarholu, svo að sá
helvíski kattormur, djöfullinn,
klóri sig þar ekki í gegnum, si
sona og si sona.“
Um leið og presturinn sagði
þetta seinasta, glennti hann
fínguma í sundur og krafsaði
fram fyrir sig.
Umsjónarmaður vill geta
þess, að þessi predikun er til í
mismunandi gerðum, en hér er
farið eftir Steindóri Steindórs-
syni frá Hlöðum sem kunni hana
orðrétta eins og hún reyndist
vera prentuð í I. árgangi Huld-
ar. Önnur alþekkt gerð er í Al-
manaki Þjóðvinafélagsins um
árið 1886.
Orðið kattormur, sem prest-
urinn notaði um skrattann í
predikuninni hér að framan, hef-
ur aðeins fundist á tveimur stöð-
um í bókum, segja þeir orðabók-
armenn Háskólans umsjónar-
manni. í Félagsritunum gömlu
táknar það heldur en ekki ann-
að. Þar segir m.a. í grein um
íslensk sjúkdómanöfn (X, 28,
1790):
„Þat er íslendingar kalla re-
form, kémr sem optast í fíngum-
ar, bæði í neglr fram og verðr
þar at naglætu, en allt er hit
sama hvar hann kémr um líka-
mann, og í tilliti eðlisins er
hríngormr, ristill, reformr og
kattormr, eitt og hit sama at
vitni hinna ýngstu lækna.“
★
Því til viðbótar, er sagði í
433. þætti (23. apríl) um Guðjón
notað sem samnafn, er hér birt-
ur ofurlítill stúfur úr þýðingu
Páls Skúlasonar, Mislitt fé, en
þar glímdi hann við þann mikla
vanda að koma smásögum Dam-
ons Runyon á íslensku:
„Hinsvegar er enginn vafí á
því, að Blindi-Bensi er blindur.
Augnalokin era einhvem veginn
saumuð niður fyrir augun, svo
að það er alveg óhugsandi, að
hann sé að gera sér læti, því að
margir guðjónar hafa eftirlit
með þessu árum saman og sjá
hann aldrei gægjast."
Þess má enn geta, að ósjaldan
í þessari þýðingu er jósep sam-
nafn og þá skrifað svona með
litlum staf.
★
Smælki, sem alveg eins mætti
vera óhijóðverpt og heita smálki
(kk.):,
1) Iþróttamaður bætti afrek
sitt. Fréttamaður sagði að það
hefði verið mikil „bæting". Veit
ég vel að orðið bæting er til,
a.m.k. í samsetningum, eins og
netabæting. En væri ekki alveg
upplagt að nota ennþá hið góða,
gamla orð framför? Er nokkur
ástæða til þess að sniðganga
það, er einhver bætir afrek sín,
honum fer fram?
2) Er hægt að sættast á að
nefíia tvist, það sem útlendingar
kalla díóðu?
3) Umsjónarmanni þykir koll-
ótt, þegar stagast er á orðinu
„sería“ í kynningu á sjónvarps-
efni handa bömum. Væri ekki
miklu snjallara að hefja leikinn
á því að kenna bömum að það,
sem á erlendu máli er „sería“,
heitir röð á móðurmáli okkar.
Stutt og laggott. (Og í staðinn
fyrir „púsluspil" höfum við rað-
spil.)
4) I síðasta þætti misfórst
sögnin að meija, fékk inn í sig
k og breyttist í merkja. Reynd-
ar gerði þetta afskaplega lítið
til, því að no. merkja er af sama
uppruna og morkinn. Það getur
komið merkja í kjötið. Þá mis-
fórst uppruni á milli lfna, átti
að skiptast: upp-runi.
★
Vilfríður vestan kvað:
Átti Bjamey í Bolungarvík
undan bósanum Kol unga tík;
án þess að glúpna
hún gekk oft til ijúpna
bæði þrautgóð og þolungarrík.
”\
Safnaðarstjórn Fríkirkjunnar
skorar á safnaðarfólk að greiða atkvæði
í allsherjaratkvæðagreiðslunni
1. og 2. október nk. í Álftamýrarskóla
og krossa við JÁ. Bílasími 27270
O * f jrfjÉ& ;í MEDIMA || varmahlífar jj eru áhrifarík | hjálp s*— jjfv™ VARMAHLÍFAR Medima varmahlífarnar eru áhrifarík hjálp til að viðhalda nauðsynleg- um hita á veikum líkamshlutum eins og hálsi, öxlum, olnbogum, hnjám, hrygg, fótum, úlnliðum, vöðvum, nýrum, blöðruhálskirtli og blöðru. Til notkunar í kulda höfum við einnig Medima nærfatnað á börn og fullorðna. Stuttar og síðar buxur. Stutterma og langerma boli. Medima vörurnar eru framleiddar úr blöndu af kanínuull (angóraull) og lambsull. Til að auka á styrk og endingu er Polamyd styrktarþráður. Medima vörurnar eru vestur-þýsk hágæðavara flutt inn af Náttúrulækn- i ingabúðinni beint frá verksmiðju og er verðið sambærilegt við verðið út úr búð í Vestur-Þýskalandi. Náttúrulækningabúðin, Laugavegi 25, simi 10263.
Wá
V Áskriftarsíminner 83033 l
VÍSUN, FÖNSUN
OG STUÐLUN
Myndhöggvarinn Hallsteinn
Sigurðsson er ekki þekktur fyrir
litskrúðugt nafnaval á myndir
sínar. Pyrir utan ofanskráð nægir
honum Svif, Veggskrið, Keilur og
Hvel, sem hann tölusetur svo til
aðgreiningar með rómverskum
tölum, því að hann gerir iðulega
fleiri tilbrigði af hverri hugmynd.
Vafalítið er sýning hans á
Kjarvalsstöðum um þessar mundir
sú heillegasta og athyglisverðasta,
sem frá honum hefur komið til
þessa, en hún er senn í vestri
gangi og hálfum vestursal. Hall-
steinn er nú mun öruggari í form-
um en áður og um leið hnitmið-
aðri í vinnubrögðum ásamt því að
verkin eru lífrænni í útfærslu.
Á sýningunni er ein mjög ein-
föld en formfögur altaristafla og
fleiri einfaldar en áhrifaríkar lág-
myndir í jámi má sjá á veggjunum.
Kannski eru myndimar í hvítu
og svörtu sterkasta framlagið, en
hins vegar má allt eins búast við
því, að myndir sem hann hefur
málað gular eða rauðar, falli mjög
vel inn í rétt umhverfi og sérstaka
lýsingu, en hér eru Kjarvalsstaðir
ekki heppilegasti ramminn utan
um slíka litafjölbreytni í skúlptúr.
911 cn 91 97(1 LÁRUS Þ. VALDIMARSSON sölustjori
L I i ■ L I 0 / V LÁRUS BJARNASON HDL. LÖGG. FASTEIGNASALI
Til sýnis og söiu auk annarra eigna:
Gott steinhús á góðum stað
í Hvömmunum í Kópavogi. Á hæð er rúmgóö 5 herb. íbúö meö stórum
sólsvölum. Á jarðh./kj. er 2ja herb. íbúö, þvottahús, rúmgóöar geymsl-
ur og stór bílskúr. Fallegur trjágarður. Arkitekt: Sigvaldi Thordarson.
Margskonar eignaskipti möguleg.
Á vinsælum stað
í Vesturbænum í Kóp. neöri hæö í tvíbhúsi 4ra herb. 100,1 fm nettó.
Sérhiti. Sérþvottahús. Nokkuö endurn. Bilsksökklar fylgja. Nýtt hús-
næðislán kr. 2,2 millj. fylgir. Skipti möguleg á 3ja-4ra herb. íbúð í
Hafnarfirði eöa Garöabæ.
Endurnýjuð í vesturborginni
3ja herb. hæð við Brávallagötu 101 fm nettó. Stór og góö. Mikið end-
urn. Sérhiti. Sólsvalir. Fjórbýli. Skipti æskileg á stærri íbúðt.d. í nágr.
Við Háaleitisbraut - laus strax
Góð 4ra herb. ibúð á 2. hæð 92 fm. Frábært útsýni.
Húseign með tveimur íbúðum
Fjársterkir kaupendur óska eftir húseignum með tveimur íbúðum.
Þ. á m. óskast húseign með 3ja-4ra herb. íbúð og 2ja-3ja herb. íbúð
sem losnar í siðasta lagi í maí-júni nk.
Mosfellssveit - Hafnarfjörður
Góður kaupandi - ræktunarmaöur - óskar eftir einbhúsi, ekki stóru,
en með stórri lóð. Ennfremur óskast lítiö einbhús i Mosfellssveit.
Opiö í dag laugardag
frákl. 11 til kl. 14.
Fjöldi fjársterkra kaupenda.
LAUGAVEG118 SÍMAR 21150-21370
ALMENNA
FASTEIGNASALAN